Þjóðviljinn - 30.11.1967, Qupperneq 12
LandbúnaSarsýningín 1968:
Mesta sýning sem haidin
hefur verið hér á íslandi
□ BúnaSarfélag íslands og Framleiðsluráð landbúnað-
arins hafa ákveðið að gangast fyrir landbúnaðarsýningu,
í Reykjavík næsta sumar og segir í kynningarpésa sem
blaðinu barst frá þessum aðilum í gær að þetta verði
mesta sýning sem haldin hafi verið hér á landi. Verður
hún í Sýningarhöll atvinnuveganna í Laugardal og svæð-
umhverfis hana, dagana 9. — 25. ágúst.
mu
í kynningarritlingnum segir
að á Landbúnaðarsýningunni
1968 verði lögð áherzla á að
kynna þróun landbúnaðarins og
framleiðslu hans og muni mörg
félög og stofnanir taka þátt í
sýningunni.
Sýnt verður úrval nautgripa,
sauðfjár og hrossa, ennfremur
alifuglar, svín, geitur og vatna-
fiskar. Iðnfyrirtæki landbúnað-
arins munu sýna það sem þau
framleiða og einnig sýna garð-
yrkjumenn framleiðsluvörur sín-
ar. I>á mimu framleiðendur og
þeir, sem flytja inn og verzla
með landbúnaðarvélar og verk-
færi, kynna nýjungar á þeim
sviðum.
Á sýningunni verða og sýndar
aUar tegundir heimilistækja,
enn-fremur tilbúin hús og yfir-
leitt allar rékstrarvörur land-
búnaðarins.
20 ár eru nú Iiðin frá því
síðast var haldin landbúnaðar-
Lögregluþjónn
for i Tjornana
14 ára piltur fór niður um ís-
inn á Tjöminni í Reykjavík um
sexleytið í gaer. Gat hann ekki
þaft sig upp úr og var að berj-.
ast um í leðjunni þegar tveir
eða þrír lögreglumenn komu þar
sð í bíl. Fóru þeir þegar út á ís'-
inn, sem er ötraustur, til að
hjálpa drengnum, en svo óhönd-
uglega tókst til að einn lögreglu-
þjónanna fór niður úr ísnum
líka. Voru þeir báðir fluttir heim
drengur og lögregluþjónn.
Lögreglan bað blaðið að minna
foreldra á að vara börn sín við
að fara út á ísinn. Má benda á
áð hefði pilturinn verið yngri
ér óvíst hvemig farið hefði.
Minnzt hálfrar
sldar fuESveld-
is Finna 6. des.
Finnar minnast 50 ára full-
' veldis síns n.k. miðvikudag, 6.
desember.
í' tilefni af fullveldisdeginum
efnir Finnlandsvinafélagið Su-
omi til hátíðarsamkomu í Leik-
húskjallaranum að kvöldi þess
dags og verður dagskráin fjöl-
breytt. Dr. Gylfi Þ. Gíslason
menntamálaráðherra flytur að-
alræðu kvöldsins'; Minni Finn-
lands. Nánar verður sagt frá
dagskrá fullveldishátíðarinnar
síðar.
sýning hér í Reykjavík en það
var árið 1947. Sóttu þá sýningu
70 þúsund manns hvaðanæva að
af landinu og má af því ráða
að mikið fjölmenni muni sækja
sýninguna næsta sumar.
................
| Engin lausn á 1
I kjaradeilu bóka-1
I gerðarmanna I
Jón Ágústsson formaður ■
■ Hins íslenzka prentarafé j
i lags, sagði í viðtali við !
Þjóðviljann í gær að enn j
væri allt óvíst um lausn i
kjaradeilu bókagerðar- i
manna. Deiluaðilar héldu i
samningafund í fyrrakvöld |
en þar bar fátt nýtt til i
tiðinda og hafði annar |
fundur ekki verið ákveðinn !
síðdegis í gær er blaðið
átti tal við Jón. Hins vegar í
ætlaði stjórn HÍP að koma 1
saman til fundar í gær-
. kvöld. Þá hefur, eins og
Þjóðviljinn skýrði frá í
gær, verið boðaður félags-
fundur í HÍP síðdegis í
dag en verkfállið á að
að hefjast á miðnætti í
nótt, ef til þess kemur.
Veðurspáin hljóðar upp á útsynning og éljagang:
Víöa úti um land hafa vegir
nú teppzt sökum fannfergis
Fimmtudagur
argangur
272. tohiblað.
Stórviðburður í handknattleik:
2 landsleikir við
Tékka um helgina
□ N.k. sunnudag og mánudag leúca íslendingar tvo
landsleiki í handknattleik við Tékka og fara leikimir
fram hér í Laugardalshöllinni. Eins og kunnugt er, eru
Tékkar núverandi heimsmeistarar í handknattleik karla
og munu liðsmenn þeir sem hingað koma flestir vera
úr heimsmeistaraliðinu. Munu leikirhir fara fram M. 4
á sunnudaginn og M. 8,15 á mánudaginn.
Á fundi með fréttamönnum
skýrði stjórn Handknattleiks-
sambands íslands frá vali ís-
lenzka landsliðsins en það verð-
ur þannig skipað, í svigum f jöldi
landsleikja sem einstakir liðs-
menn hafa leikið: Þorsteinn
Björnsson, Fram (17), Logi
Kristjánsson, Haukum (2), Örn
Hallsteinsson, FH (15), Geir
Hallsteinsson, FH (7)„ Stefán
Sandholt, Val (11), Sigurður
Einarsson, Fram (20), Sigurberg-
ur Sigsteinsson Fram, (nýliði),
Guðjón Jónsson, Fram (16), Ing-
ólfur Óskarsson, Fram (16),
Einar Magnússon, Víkingi (ný-
liði) og Hermann Gunnarsson,
Val (11).
Það mun vekja mesta alhygli
við val landsliðsnefndar að
þessu sinni, að reyndasti leik-
maður okkar og sá er flesta
landsleiki: á að baki, Gunnlaug-
ur Hjálmarsson, er ekki lengur
valinn í liðið, en hann hefur
verið í liðinu samfellt frá 1958
eða í 10' ár og leikið 37 lands-
leiki.
í viðtalinu lét Hannes Þ. Sig-
urðssön þess getið, að vel gæti
svo farið að landsliðinu yrði
eitthvað breytt fyrir seinni leik-
inn og nefndi sem dæmi að
Gunnlaugur Hjálmarsson, Viðar
Símonarson, Karl Jóhannsson,
Auðunn Óskarsson, Stefán Jóns-
son, Jón Hjaltalín og Ágúst Ög-
mundsson kæmu allir sterklega
til greina í landsliðið.
í tékkneska liðinu sem hingað
kemur eru eftirtaldir 13 leik-
menn: Arnost, Skarvan, Havlík,
Herman, Duda, Mares, Rázek,
Frolo, Benes, Bruna, Korecný,
Gregor og Cinner. Eru þetta allt
fræg nöfn og flest handknatt-
leiksmönnum hér vel kunn, en
a.m.k. 7 þessara manna munu
hafa komið hingað til lands með
tékkneskum liðum. Fararstjórar
eru tveir og auk þess eru með
í förinni læknir og þjálfari liðs-
ins, B. König.
Kemur liðið hingað á laugar-
daginn og munu Tékkamir gista
á Hótel Sögu.
Á sunnudagskvöldið ' hefur
menntamálaráðherra boð inni
eftir leikinn fyxir leikmenn og
á þriðjudaginn hefur tékkneski
sendifulltrúinn hér boð inni í til-
efni af komu liðsins. Á miðviku-
dag verður farið í ferðalag til
Hveragerðis með Tékkana ef veð-
ur leyfir en héðan fljúga þeir
á fimmtudagsmorgun til Óslóar
og leika þar landsleik á föstu-
dag og í Danmörku leika þeir
landsleik á mánudaginn....•
íslendingar hafa tvívegis áður
leikið við tékkneska landsliðið í
handknattleik. í héimsmeistara-
keppninni 1958 unnu Tékkar
27:17 en í heimsmeistarakeppn-
inni 1961 varð jafntefli, 15:15.
Aðgöngumiðasala að leikjpn-
um hefst hjá Lárusi Blöndal á
Skólavörðustíg og Vesturveri og
kostar miðinn fyrir fullorðna
125 kr. en 50 kr. fyrir böm.
Dómari í leikjunnm verður
sænskur, Lennart Larsson að
nafni.
Jurtðsmjörlíki
hækkar í verði
um 15,5-16,5%
1 fyrradag hækkaði jurta-
smjörlíki í verði um 15.5-
16.5% og er það ein af af-
leiðingum ' gengisfellingar-
mnar.
í 500 gramma stykkjum
kostar kílóið af jurtasmjör-
líkinu nú kr. 63.00 en var
áður kr. 54.00, í 250 gr.
stykkjum kostar það kr.
64.00 — áður 55.00 kr. —
og í dósum kr. 67.00 — áð-
ur 58.00.
1 gær var vestanátt á landinu,
víða talsverður strckkingur, eink-
framan af. Allmikill élja-
gangur var vestantil á landinu
en bjairtviðri á Austurlandi. Vit-
að er til að kenndla í barnaskól-
um lá niðri í gær í Njarðvíkum
og Sandgerði og einhver brögð
munu hafa veri'ð að því að fund-
um og samkomum væri aflýst
á Akureyri vegna óveðurs.
Þjóðviljinn hafði samband við
Veðurstofuna og fékk þær upp-
lýsingar að frostið hafi yfirleitt
verið 5—8 stig vestan og norðan-
lands en minna á Suður- og
Austurlandi- Lægð var að nálg-
ast Suður-Grænland og má gera
ráð fyrir skammvinnri suðaust-
anátt og snjókomu en síðan út-
synningi og éljagangi.
Um tvöleytið í gær hafði lítið
verið flogið innanlands vegna
veðurs. Aðeins tvær flugvélar
höfðu farið frá Reykjavík á þeim
tíma, önnur til Homafjarðar og
Fagurhólsmýrar en hin til Norð-
fjarðar.
Þá náði blaðið tali af Hjör-
leifi Ólafssyni, vegaeftirlitsmanni
og innti hann efitir ástandi á
vegum úti.
I gaer var fært um Þrengsli
og allt Suðurlandsundirlendið en
færð var farin að þyngjast í Ar-
nessýslu og var jafnvel búizt við
að vegir bar tepptust um nótt-
ina. Greiðfært var um Suður-
nesin, Hvalájörð, Borgarfjörð ©g
Snæfellsnes, en fjallvegir á Snæ-
fellsnesi voru þá lokaðir. Vegur-
inn um Bröttubrekku var sömu-
leiðis lokaður.
Fjallvegir voru lokaðir á Vest-
fjörðum nema hvað fært var
milli Patreksfjarðar og Bíldu-
dals, og fært var innan fjarða.
Þess skal getið, sagði Hjörleif-
ur, að þegar talað er um færa
vegi að vetri tfl er átt við að
stórum bílum sé fært en ekki
er reiknað með litlum bílum, svo
sem fólksbílum.
Á Holtavörðuheiði var búizt
við að vegir tepptust í gær vegna
skafrennings en fært var nokk-
um veginn um Strandir til
Hólmavíkur og frá Holtavörðu-
heiði í Skagafjörð var nokkuð
gréiðfært- Siglufjarðarvegur var
ruddur í
fyrrinótt.
Vegurinn um öxnadalsheiði
var þungfær, e£ ekki ófær og
Ólafsfjarðarmúli var ófær. Hins-
vegar var fært milli Akureyrar
og Húsavíkur um Dalsmynni og
jafnvel jeppafært þaðan til Rauf-
arhafnar. Hálsavegur var teppt-
ur og einnig Sandvíkurheiði
milli Bakkafjarðar og Vopna-
fjarðar.
Austanlands var færðin betri,
greiðfært var um Fljótsdalsihér-
að og Fagradal. 1 gær átti að
ryðja snjó á Fjarðarheiði Dg
Oddskarði en nokkurt tvísýni
ríkti um hvort hægt yrði að
ryðja Oddskarð vegna vax-
andi skafrennings. Vegir um
sunnanverða Austfirði voru fær-
ir, sagði Hjörleifur að endingu.
Mæðrastyrksnefnd að hefja
jófasöfnunina að þessu sinni
Fuilveldisfagnaður ÆFR
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík efnir til fullveldisfagnaðar í
Glaumbæ í kvöld. Þar verður glatt á hjalla að vanda. Sextett
Jóns Sig. leikur fyrir dansi, og Pétur Pálsson og Ómar Ragn-
arsson skemmta.
Húsið verður opnað kl. 8
nætti.
og dansað verður til kil. 2 eftir mið-
Miðasala verður á skrifstofu ÆFR milli Id
við innganginn. Fjölmennum. Öllum opið
2—7 í dag, svo og
og öllum fagnað.
——- Æ.F.R.
M’æðrastyrksnefnd er að hefja
jóiasöfnun með sama hætti og
undanfarin ár. í fyrra leituðu
11 m 800 manns til nefndarinnar
fyrir jólin og þá söfnuðust um
500 þúsund krónur.
Jónína Guðmundsdóttir, for-
maður nefndarinnar sagði blaða-
mönnum í gær að ekkjur, frá-
skildar * konur og einstæðar
mæður væru stærsti hópurinn
sem leitaði aðstoðar nefndarinn-
ar fyrir jólin og að í öðru sæti
væri aldrað fólk. Einnig er mik-
ið um það að barnmargar fjöl-
skyldur og sjúklingar fái jóla-
glaðning frá Mæðrastyrksnefnd.
Þess má geta að undanfarin ár
hafa 40-60 heimili með 7 til 13
börn féngið aðstoð.
Söfnunin hefst að þessu sinni
strax eftir helgina og verður
tekið á móti fjárframlögum á
skrifstofu nefndarinnar að
Njálsgötu 3 alla daga frá kl. 10
f.h. til 6 e.h. Þá hafa verið send-
ir út listar til ýmissa fyrirtækja
og væri æskilegast að þeir bær-
ust hið fyrsta til baka. Jónína
sagði að mjög mikilvægt væri
að hjálparbeiðnir bærust hið
fyrsta, og tók fram að ekki yrði
úthlutað eftir gömlum umsókn-
um svo sem vaninn hefur verið.
Jólasöfnun Mæðrastyrksnefnd-
ar hófst árið 1928 en það ár
urðu mar-gar togarasjómanns-
konur í Reykjavík ekkjur. Jóla-
söfnunin er þó aðeins einn liður
í margþættri starfsemi nefndár-
innar, sem er skipuð fulltrúum
frá 20 félögum.
Fólk er hvatt til að líta inn
hjá Mæðrastyrksnefndinni og
taka þátt í jólasöfnuninni því
að vitað er að hart er í ári hjá
mörgum bæjarbúum og má bú-
ast við mörgum hjálparbeiðnúm.
BLAÐ-
DREIFING
Þjóðviljann vantar blað-
bera í eftirtalin hverfi:
Klejppsveg
Sogamýri
Gerðin
Tjarnargötu
Háskólahverfi
Öldugötu
Þjóðvilginn
Sími 17-500.