Þjóðviljinn - 03.12.1967, Page 3
Sunnudagfur 3. desember 1967 — ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 2
HVERS VEGNA LÆKKAR GENGID?
r-
A
HVÍLDAR-
DACINN
Fimm gengis-
lækkanir
Þegar yfir dynja stórtíðindi
sem raska högum hvers einasta
manns er ástæða til að fólk
staldri við ofurlitla stund og
reyni að skyggnast út fyrir
hversdagslegt umhverfi sitt. Ég
vil biðja menn að hugleiða með
mér eina athyglisverða stað-
reynd. Á tæpum tveimur ára-
tugum höfum við lækkað gengi
íslenzku krónunnar fimm sinn-
um. Eftir styrjöldina kostaði
einn bandarískur dollari rúmar
sex krónur — hann kostar nú
57 krónur. Sé dollarinn notað-
ur sem mælikvarði hefur ís-
lenzka krónan nú aðeins svo
sem einn níunda hluta af því
verðgildi sem hún hafði fyrir
tveimur áratugum. Þetta hrun
á gengi íslenzku krónunnar
stafar ekki af því að við höf-
um átt við einhverja óvenju-
lega og óviðráðanlega erfiðleika
að etja á þessu timabili; menn
geta bent á eitt og annað örð-
ugleikaskeið, en í heild hefur
þetta tímabil verið okkur hag-
stætt, tækniþróun hefur verið
ör, þjóðarframleiðsla og þjóð-
artekjur hafa aukizt verulega.
Engu að síður hefur gengi
krónunnar haldið áfram að
falla, og fallhraðinn fer í si-
fellu vaxandi — síðustu þrjár,.
gengislækkanimar hafa dunið
yfir okkur á tæpum átta árum
— einmitt á þeim árum þegar
vöxtur þjóðartekna hefur ver-
ið hvað örastur. Hliðstæð dæmi
verða ekki fundin í nokkru
viðskiptalandi okkar og raun-
ar ekki í nokkru landi heims
með hliðstæðan efnahag — við
verðum að leita til óstjórnar-
ríkja rómönsku Ameríku til
þess að finna jafnoka okkar.
Hvers vegna?
Hver einstök gengislækkun
hefur verið varin með tíma-
bundnum rökum af ýmsu tagi,
og menn hafa oft tekið þann
málflutning gildan, fallizt á
röksemdirnar eða snúizt gegn
þeim. En ef við lítum á þessa
tvo áratugi í heild má það
vera hverjum manni ljóst að
hinar tímabundnu röksemdir
hrökkva ekki til sem nein raun-
veruleg skýring. Hrun krón-
unnar hefur verið föst regla
allan þennan tíma og sú regla
gerist æ nærgöngulli okkur —
án þess að skýringar verði
fundnar í nokkrum þeim ytri
aðstæðum sem við höfum orð-
ið að fást við á þessum tíma.
Meinsemdin hlýtur að liggja
í stjórnarfarinu sjálfu. Það
stoðar lítið að segja að
gengislækkun sé orðin óhjá-
kvæmileg og spyrja eins og
gert hefur verið undanfarna
daga: Ertu með henni eða á
móti? Það sem skiptir máli er
að leita svars við þeirri spurn-
ingu hvers vegna gengislækk-
anir verða okkur óhjákvæmi-
leg örlög æ ofan í æ. Það
stoðar lítið að setja upp ábúð-
armikinn svip, eins og Bjami
Bénediktsson forsætisráðherra
og aðrir málsvarar ríkisstjórn-
arinnar, og segja að víst sé
gengislækkun neyðarúrræði en
til slikra úrræða verði menn
áð grípa af karlmennsku ef
þeir vilji ekki gefast upp fyr-
ir vandamálunum. Það sem
máli skiptir er að fá svar við
þeirri spumingu hvers vegna
þessi gengislækkananeyð sækir
okkur heim æ ofan í æ umfram
allar grannþjóðir okkar.
Meira en efna-
hagsmál
Þvílíkar spurningar ættu að
vera áleitnar við landsmenn
þessa dagana, ekki aðeins vegna
þess að gengislækkanir eru
efnahagslegar kollsteypur sem
raska högum og kjörum hvers
einasta manns. Gengislækkan-
ir hafa einnig mjög víðtæk á-
hrif á samfélagslega vitund
manna, siðferðilega afstöðu
þeirra, það félagslega sam-
hengi sem er undirstaða hvers
þjóðfélags, ekki síður en sjálft
efnahagskerfið. Gengislækkan-
ir eru ekki aðeins tilfærsla á
fjármunum í þjóðfélaginu, oft
afar ranglát; þær ýta ekki að-
eins undir ábyrgðarleysi, brask
og spákaupmennsku. slík efna-
hagsóstjórn hefur einnig áhrif
á lífsviðhorf manna, hún brýt-
ur niður þær félagslegu dyggð-
ir sem eru bindiefnið í hverju
heilbrigðu þjóðfélagi, hún stuðl-
ar að upplausn og óreiðu og
siðferðilegri ringulreið. Ég held
það fái naumast dulizt nokkr-
um hugsandi manni að siðferði-
legri reisn þessa þjóðfélags
okkar hefur hrakað ásamt
gengi krónunnar á þeim rúm-
um tveimur áratugum sem liðn-
ir eru síðan við endurreistum
lýðveldið af fagnandi einhug.
Sérstaða okkar
En hvernig stendur þá á því
að síendurteknar gengislækk-
anir sækja okkur heim umfram
allar þær þjóðir sem við höfum
mest viðskipti við og nánust
kynni af, hvort sem þær búa
við kapítalistískt eða sósíalist-
ískt efnahagskerfi?. Ég tel eng-
um vafa bundið að sú staö-
reynd er tengd sjálfri sérstöðu
okkar í heiminum. Við erum
næsta einstætt fyrirbæri, að-
eins 200.000 manns í víðáttu-
miklu og harðbýlu landi. Við
höfum sett okkur það mark að
halda til jafns við aðrar þjóð-
ir í lífskjörum og menningu,
enda þótt allur þjóðarbúskap-
ur okkar jafngildi aðeins einu
sæmilegu fyrirtæki meðal stór-
þjóðanna. Það er augljóst mál
að því aðeins fáum við risið
undir því verkefni að við lær-
um að sameina krafta okkar og
einbeita þeim. ,Engu að síður
hafa ráðamenn þjóðarinnar
gengið upp í þeirri dul að við
gætum apað eftir efnahags-
skipulag og hagstjórnaraðferð-
ir annarra þjóðfélaga, hundr-
aðfalt og þúsundfalt stærri.
Þeir hafa — og ekki sízt með
viðreisnarstefnunni — reynt að
hefja hér til öndvegis gróða-
kerfi það sem tíðkast í Amer-
íku og Vestur-Evrópu. Afleið-
ingin hefur orðið sú að við
sundrum kröftunum æ meir
í stað þess að sameina þá,
brjótum þetta litla samfélag
niður í örsmáar einingar sem
grafa hver undan annarri. í
auðvaldsrikjum Ameríku og
Evrópu eru burðarásarnir
risastór fyrirtæki sem eru
þrautskipulögð og starfrækt af
ýtrustu hagkvæmni — þar er
sannarlega ekki um stjórnlaust
framtak hvers einstaklings að
ræða. Hér á íslandi er hlið-
stæð skipulagning óhugsandi
nema við temjum okkur félags-
leg viðhorf — eins og við ger-
um til að mynda í raforku-
framleiðslu, áburðarframleiðslu
og sementsframleiðslu. En á
flestum þeim sviðum sem máli
skipta blasir í staðinn við
glundroði.
Allsherjar stjórn-
leysi
Fiskveiðar eru undirstöðuat-
vinnugrein íslendinga. Á því
sviði hafa vinnubrögðin verið
þau eftir strið að sum árin
höfum við keypt nýja togara
svo tugum skiptir, en á öðrum
árabilum látum við togaraflot-
ann grotna niður eins og gerzt
hefur í tíð núverandi ríkis-
stjórnar. Sama stjómleysið
einkennir bátaútgerðina — sí-
felldir rykkir eftir vísbending-
um stundargróðans. í fiskiðn-
aði okkar er í senn um að ræða
stórfellda yfirfjárfestingu og á-
kaflega lélega nýtingu, oft not-
ast aðeins 10—15% af af-
kastagetu frystihúsanna — svo
að ekki sé minnzt á fjárfest-
inguna í síldariðnaðinum eða'
á fyrirbæri eins og Faxaverk-
smiðjuna og Norðurstjörnuna í
Hafnarfirði. Um aðrar greinar
iðnaðar er sömu sögu að segja;
sum árin fjárfestum við hundr-
uð miljóna króna í neyzluvöru-
verksmiðjum með afkastágetu
sem gæti séð miljónaþjóðum
fyrir nauðsynjum og látum þær
svo koðna niður eða deyja
drottni sínum nokkrum árum
síðar. Allir vita hvernig ástatt
hefur verið að undanförnu í
málmiðnaði og stálskipasmíði.
Þó tekur fyrst steininn úr
þegar vikið er að verzlun og
þjónustu; þar hafa fyrirtækin
sprottið upp eins og gorkúlur
á haugi undanfarin ár. Nú er
svo ástatt í Reykjavík að hver
verzlun um sig sér að meðal-
tali aðeins fyrir þörfum nokk-
urra tuga fjölskyldna, og það
gefur auga leið að tilkostnað-
urinn við það kerfi verður ó-
hemjulegur, þó að ekkert sé
minnzt á gróða. Yfirleitt hefur
reglan verið sú í öllum atvjnnu-
greinum á íslandi, að hafi ein-
hversstaðar verið gróðavon
hafa sprottið upp fjölmörg
fyrirtæki og grafið hvert und-
an öðru þar til engin tök voru
lengur á skynsamlegum rekstri.
Nú síðast eru tvö fyrirtæki far-
in að framleiða fiskumbúðir
með tvöföldum vélbúnaði og
tvöföldum tilkostnaði — vegna
þess að það eina sem fullnægði
öllum þörfum okkar var talið
skila verulegum arði.
Meginástæðan
Það er þetta allsherjar
stjórnleysi sem er undirrót
stöðugrar verðbólguþróunar og
síendurtekinna gengislækkana.
Efnahagskerfið er svo sundur-
tætt í smáar einingar og þjón-
ustustarfsemin svo þrútin og
kostnaðarsöm, að þjóðfélagið
sporðreisist með stuttu milli-
bili. Þetta sundurvirka, þrótt-
lausa skipulag veldur því að
þess er enginn kostur að koma
við skynsamlegri hagstjórn —
stjórnarvöldunum er það helzt
eftir skilið að ákveða koll-
steypur þegar kerfið er að kom-
ast í alger þrot. Þarna er
meginástæðan fyrir öryggis-
leysinu í íslenzkum efnahags-
málum — af þessum sökum
höfum við orðið að þola fimm
gengislækkanir á tæpum tveim-
ur áratugum.
Kjarni málsins
Sumum kunna að finnast
þetta nokkuð almennar hug-
leiðingar í tilefni af van-
trausti og nærtækum viðfangs-
efnum sem um er deilt í því
sambandi. Samt er hér vikið
að sjálfum kjarna vandamál-
anna, þeim grundvallaratriðum
sem geta skýrt öll smærri við-
fangsefni. Það mun stoða okk-
ur litið að deila og þjarka og
þrasa um nærtæk vandamál,
ef þær deilur eru ekki mótað-
ar af langsýnum sjónarmiðum.
Það sem sker úr um stjórn-
málaþróun og efnahagsþróun
á íslandi eru átökin milli fé-
lagshyggju og stjórnleysis.
Hver sem íhugar af raunsæi
hinar sérstöku aðstæður ís-
lenzku þjóðarinnar mun kom-
ast að þeirri niðurstöðu að við
getum aðeins starfrækt þessa
litlu efnahagslegu heild og
haldið til jafns við aðra með
1949
1960
1961
1967
félagslegum vinnubrögðum —
aðrar leiðir eru ófærar. Þegar
ég tala hér um félagsleg vinnu-
brögð á ég við allar tegundir
eignarréttar, þjóðnýtingu, sam-
vinnurekstur og einkarekstur
— sem sameinist í áætlunarbú-
skap, sniðnum eftir hinum sér-
stöku íslenzku aðstæðum. Ég á
við það að við rekum þjóðar-
búskap okkar á jafn skipulegan
og hagkvæman hátt og nútíma-
leg fyrirtæki eru rekin í sæmi-
lega þróuðum löndum, hvort
sem þau eru sósíalistísk eða
kapítalistísk. Menn streitast
enn við það hér á landi að
kalla nútímalega hagstjórn
höft — en hún ein mun geta
tryggt okkur festu og öryggi
í efnahagsmálum, hámarksnýt-
ingu á auðlindum okkar, fjár-
magni og vinnuafli og þar með
þann afrakstur sem tryggir
þegnunum hámarksfrjálsræði í
verki.
Viðbrögð
stjórnarinnar
Ástæða er til að benda á það
í þessu sambandi að ríkis-
stjórnin og sérfræðingar henn-
ar hafa greinilega einnig hug-
leitt þessi vandamál á undan-
förnum árum og komizt að
sömu niðurstöðu og ég, að það
sé ekki unnt til frambúðar að
halda uppi sjálfstæðri íslenzkri
efnahagsheild með aðferðum
hins sundurvirka gróðaskipu-
lags. En þeir taka skipulagið.
stjórnmálahollustu sína, fram
yfir það ætlunarverk íslenzku
þjóðarinnar að starfrækja hér
sjálfstætt samfélag. Viðbrögð
þeirra eru þau að opna landið
. erlendu auðmagni, leyfa alþjóð-
legum auðhringum að starf-
rækja hér risafyrirtæki á ís-
lenzkan mælikvarða, og nú er
' sú stefna boðuð af váxandi
kappi að tengja okkur við Frí-
verzlunarbandalagið og Efna-
hagsbandalag Evrópu. Valdhaf-
arnir vilja gera ísland að hluta
af stórri heild, svo að þær hag-
stjórnaraðferðir sem standast
ekki við íslenzkar aðstæður
verði neyddar upp á okkur af
öðrum, svo að við verðum út-
kjálkahreppur í samfélagi vold-
ugra þjóða og verðum að lúta
lögmálum þeirra. í flótta sín-
um frá innlendri efnahagsó-
stjórn stefna valdhafarnir að
því að leiða yfir okkur er-
lenda efnahagsharðstjórn. Þessi
þróun hefur verið afar greini-
leg seinustu árin, og hún er í
beinum tengslum við þau
vandamál sem leitt hafa yfir
okkur eina gengislækkunina af
annarri með sívaxandi hraða.
Leysir engan
vanda
Valdhafarnir reyna mjög að
halda því fram að nýjasta geng-
islækkunin sé aðeins tækni-
leg aðgerð til þess að bjarga
atvinnuvegunum og koma í
veg fyrir atvinnuleysi; þeir
segjast hafa reiknað nákvæm-
lega út hvað fiskiðnaðurinn
þurfi mikið, þorskveiðarnar.
síldariðnaðurinn o.s.frv. og
gengislækkunin sé óhjákvæmi-
leg niðurstaða á því dæmi. Og
í samræmi við það biðja stjórn-
arvöldin verklýðsfélög og aðra
að sýna þegnhollustu og fórn-
arlund og sætta sig við byrðar
til þess að bjarga atvinnuveg-
unum og íslandi. En þessar á-
kallanir standast ekki. Geng-
islækkun ein saman leysir eng-
an vanda til frambúðar, því
hún kemur ekki nálægt sjálfu
vandamálinu, skipulagi efna-
hagskerfisins og hagstjórninni.
Gengislækkun eins og sú sem
nú hefur verið framkvæmd hef-
ur aðeins þann tilgang að fram-
lengja enn um stund óstjóm-
ina og ringulreiðina í atvinnu-
málum og efnahagsmálum, gera
þessum aragrúa af óhagkvæm-
um og illa reknum fyrirtækj-
um kleift að starfa áfram enn
um sinn, halda við sóuninni og
magna hana — þar til næsta
kollsteypa verður óhjákvæmi-
leg, eins og gerzt hefur með
sívaxandi hraða undanfarna
tvo áratugi. Ef stjórnarstefn-
an helzt 'verður þessi geng-
islækkun aðeins ávísun á þá
næstu nema ríkisstjórnin verði
áður búin að innlima okkur í
stærri heild, svo að aðrir og
voldugri aðilar en við skeri þá
úr um rekstur atvinnuveganna
og gengi gjaldmiðilsins. Geng-
islækkun eins og sú sem nú
hefur verið framkvæmd er
ekki skurðlækning til þess að
komast fyrir mein, heldur er
hún deyfilyf til þess að draga
í bili úr vanlíðan þeirri sem
meinsemdinni fylgir.
Lágkúra í stjórn-
málum
Eins og ég sagði áðan skipt-
ir það engu meginmáli hvort
gengislækkunin hafi verið ó-
hjákvæmileg eða ekki — held-
ur hvers vegna hún er talin ó-
hjákvæmileg í fimmta skiptj á
tæpum tuttugu árum. Hér er
ekki um að ræða hagfræðilegt
reikningsdæmi eða tæknilegt
úrlausnarefni heldur stjórnmál,
átökin milli félagshyggju og
gróðahyggju, áætlunarbúskapar
og stjórnleysis. Það er til marks
um skammsýni og getuleysi
margra íslenzkra stjórnmála-
manna að félagshyggjan skuli
hafa verið á undanhaldj á ís-
landi um langt skeið — því
það er alkunn staðreynd að yf-
irgnæfandi meirihluti þjóðar-
innar aðhyllist félagsleg sjón-
armið. Hér á þingi eru tveir
flokkar sem stofnaðir voru til
framdráttar sósíalistískum og
félagslegum markmiðum, Al-
þýðuflokkurinn og Alþýðu-
bandalagið. f kosningunum í
sumar fengu þeir þriðjung
greiddra atkvæða, og þeir hafa
að bakhjarli öflugustu félags-
samtök þjóðarinnar, verklýðs-
hreyfinguna. Héx er um að
ræða svo sterkt þjóðfélagsafl
að það gæti mótað stjórnmála-
þróunina, ef menn gætu hafið
sig yfir lágkúruleg ágreinings-
mál og fordóma og tekið að
huga í alvöru að þeim megin-
málefnum sem sameiginleg
eru. Framsóknarflokkurinn var
einnig stofnaður til framdrátt-
ar félagslegum viðhorfum,
samvinnu, sameign og sam-
hjálp; og einnig innan Sjálf-
stæðisflokksins er skilningur á
félagslegum sjónarmiðum meiri
en í nokkrum íhaldsflokki sem
ég þekki til. Hér á íslandi
ættu að vera allar forsendur
fyrir sívaxandi félagslegri
stjóm á efnahagsmálum og at-
vinnumálum, ef stjómmála-
flokkamir störfuðu í samræmi
við skoðanir stuðningsmanna
sinna. En því miður hafa ís-
lenzk stjórnmál verið í öldu-
dal um langt skeið, þar hafa
skammsýn sjónarmið og lág-
kúra ráðið ríkjum, menn
hjakka í sama farinu og hafa
ekki djörfung til að endurmeta
viðhorf sín þegar aðstæður
breytast. Þess vegna hefur lít-
illi og harðvítugri klíku . for-
ustu Sjálfstæðisflokksins ag
sérfræðingum í hennar þjón-
ustu tekizt að ráða ferðinni á
undanförnum árum, þessi hóp-
ur sérhagsmunamanna og
kreddumeistara hefur getað
skákað andstæðingum sínum
hverjum gegn öðrum vegna
þess að þá hefur skort sam-
heldni og reisn og skilníng á
þeim viðfangsefnum em brýn-
ust eru. Það er þessi litla við-
reisnarklíka sem hefur leitt yf-
ir okkur fimm gengislækkanir
á tveimur áratugum og æílar
næst að festa kreddur sinar og
sérhagsmuni í sessi með því
Fnamhald á 9. síðu.
i