Þjóðviljinn - 03.12.1967, Page 4
4 SítÐA — ÞJÖÐVIUINN — Sunnudagur 3. desember 1967.
DIOflVHllNNsJítí!£ur Ben,s
Larsen í Túnis
Utgefandi: Sameiningarflokkui alþýöu — Sósíalistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: Ivai H. Jónsson, (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson.
Framkvstj.: Eiður Bergmann.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmlðja Skólavörðustíg 19.
Sími 17500 (5 linur) — Áskriftarverð kr- 105.00 á mánuði. —
Lausasöluverð krónur 7.00.
Blóð og gull
JJobert McNamara hefur nú hlaupizt á brott frá
styrjöld sinni í Víetnam, og þegar er hafin á-
róðursherferð til þess að þrífa mannorð hans. Því
er haldið fram í blöðum, m.a. í Morgunblaðinu, að
hann hafi verið imjög hófsamur og varkár í morð-
verkum sínum; hann hafi haldið aftur af hers-
höfðingjum sem vildu beita miklu meiri grimmd
— og sé nú ástæða til að óttast að ofstækismenn
fái meiri áhrif en áður á styrjaldarreksturimn.
Víst má styðja þennan samanburð á stríðsglæpa-
mönnum vestanhafs nokkrum rökum, en meg-
inatriðið er þó hitt að það er ekki sálarlíf neinna
einstaklilnga sem sker úr um styrjöld Banda-
ríkjaimanna í Víetnam, heldur aðeins kaldrifj-
aðir hagsmunir. Það er lærdómsríkast af öllu í
sambandi við starfsskipti Boberts McNamara að
hann fer beina leið frá morðverkum sínum til
æðstu metorða í Alþjóðabankanum í Washing-
ton. Öllu greinilegar var ekki hægt að leggja á-
herzlu á þá staðreynd að styrjöldin í Víetnam
er aðeins einn þátturinn í sókn Bandaríkjanna til
efnahagslegra yfirráða í heiminum. Nú þegar
ráða Bandaríkin yfir meira en sextíu hundraðs-
hlutum af auðlindum mannkynsins, og styrjöld-
in í Víetnam er háð til þess að treysta þau yfir-
ráð og auka þau. Þess vegna eru söimu einstak-
lingarnir taldir jafn hæfir til þess að stjórna Al-
þjóðabankanum og einhverri villimannlegustu
styrjöld sem háð hefur verið — þar er um að ræða
ítvær hliðar á sama verkefni.
jyýlega hefur gerzt annað dæmi sem varpar ljósi
á þessa sömu staðreynd. Eins og kunnugt er
leiddi valdarán hersins í Indómesíu til einhverra
siðlausustu fjöldamorða sem um getur í mann-
kynssögunni. Talið er að 500 þúsundir manna að
minnsta kosti hafi verið sviptir lífi af villimennsku
sem ekki verður lýst með orðum; mörg fljót lands-
ins runnu blóðlituð til sjávar dögum saman. Eng-
inn efast lengur um að bandarískir valdamenn
bera sína ábyrgð á þessum ógnaratburðum og að
þar hafi hagsmunir hins alþjóðlega auðmagns ráð-
ið úrslitum. Fyrir mánuði hófst t.d. í Genf ráð-
stefna sem Time Magazine gekkst fyrir um imál-
efni Indónesíu. Þar mætti sendinefnd frá fasista-
stjórninni í Imdónesíu og ennfremur fulltrúar
margra voldugustu auðhringa heims. Þarna voru
fulltrúar fyrir sjö bandaríska auðhringa, þ.á.m.
General Motors og Standard Oil, fjórtán vestur-
evrópska auðhringa, þ.á.m. Unilever, Siemens og
Krupp, ennfremur auðhringa frá Kanada, Ástral-
íu og Japan. Þama voru einnig fulltrúar sjö auð-
ugustu og voldugustu banka heims, meðal þeirra
Eugene Black, fyrirrennari McNamara í stjóm Al-
þjóðabankans. Verkefni ráðstefnunnar var að
leggja á ráðin um það hvemig hið alþjóðlega fjár-
magn gæti bezt búið um sig í Indónesíu og hag-
nýtt hinar óvenjulega miklu auðlindir landsins.
Þannig er farið að því að breyta blóði í gull. — m.
Eins og komið hefur fram í
fréttum vann danski stórmeist-
arinn Bent Larsen yfirburða-
sigur á nýafstöðnu millisvæða-
móti suður í Túnis. Larsen
hlaut einum og hálfum vinn-
ingi meira en þeir sem næstir
komu.
Þar sem úrslit mótsins hafa
þegar verið birt skulu þau ekki
rakin hér, né heldur hið ó-
vænta brotthlaup Bobby Fisc-
her, enda hafa því máli þegar
verið gerð skil í þættinum.
Strax að mótinu loknu var
dregið til fyrstu einvíga Á-
skorendamótsins en sem kunn-
ugt er er Áskorendamótið nú
útsiáttarkeppni. Þessir munu
tefla saman í fyrstu umferð:
Larsen — Portisch, Spassky —
Geller, Tal — Gligoric, Korts-
noj mun svo mæta þeim er
sigrar í úrslitakeppninni milli
þeirra Reshevsky, Stein og
Hort en sem kunnugt er urðu
þeir jafnir í 6.—8. sæti í Milli-
svæðamótinu. Þá var ennfrem-
ur dregið um það hverjir mæt-
ist í undanúrslitum Áskorenda-
mótsins og mætir þar sigur-
vegarinn í einvíginu Larsen —
Portisch sigurvegaranum í ein-
víginu Spassky — Geller o.s.frv.
Og hver teflir svo um heims-
meistaratitilinn við Petrosjan?
Bent Larsen sagði sjálfur í
viðtali við „Politiken“ að hann
hefði ekki teflt eina einustu
góða skák í Millisvæðamótinu!
Hvað um það — hér kemur
skák hans úr 1. umferð.
Hvítt: B. Larsen
Svart: M. Matulovic (Júgósl)
Réti-byrjun
12. cxd5 exd5
13. Hcl b5
14. a4 Ra5(?)
(14. — b4 ásamt a5 og Ba6
við tækifæri kom einnig mjög
til álita).
15. axb5 axb5
16. b4(!) cxb4(?)
(Þar með fær svartur ekki
annað út úr öllu þessu bramb-
olti sínu á drottningarvængn-
um en stakt og veikt peð, hætt
er við því að gömlu meistur-
unum hefði ekki getizt að
slíkri taflmennsku. Betra var
Rc4).
17. Rxb5 Hxcl
18. Dxcl Ba6
(Maður gæti freistazt til þess
að álíta að Matulovic teldi sig
hafa verið að leggja gildru fyr-
ir Larsen. Gallinn er bara sá
37. Re5t Kh7
38. Ke2 Hbl
39. Rf7 Kg6
40. Re5ý Kh7
41. Rd7 Rg4
42. Bxg4 Bxg4t
43. Kf2 Bh3
44. Rf8t Kg8
45. Ha8 Kf7
46. Rh7 Bf5
47. Rg5t Kg6
48. Hh8! Hdl
49. Rf3 Bd3
50. 51. Re5t Hf8t Kf6
(Ekki Rxd3 vegna Hxd2t og
Hxd3).
51. — Ke7
52. Hf7t Ke8
(Ekki Hxd2 vegna Kel t.d.
54. — He2f, 55. Kdl — Bb5, 56.
Hb7 og vinnur).
54. d3!
að Larsen sér lengra og nú (Larsen losar sig nú við veik-
álpast Júgóslavinn sjálfur i leikann á d2 og skiptir um leið
þessa gildru). upp í léttunnið hróksendatafl.
19. Rc6 Rxc6 Lokin þarfnast varla skýringa).
20. Dxc6 Dc8 54. — Bxd3
21. Ra7 De6 55. Rxd3 Hxd3
22. Hal Be2(?) 56. Ke2 Ha3
23. Dxe6 fxe6 57. h4 Ha2t
(Svartur stendur nú uppi með 58. Kf3 Ha3
verra endatafl. Hvítur miðar
í fyrstu taflmennsku sina við
að vinna peðið á b4).
24. Rc6
25. Bd4
26. Rxd4
27. Ha4!
(Svartur getur
Bc5
Bxd4
Bd3
Hc8
auðvitað ekki
reynt að valda peðið; því ef
27. — Hb8 þá 28. Rc6).
28. Bf3 —
(Ef strax Hxb4 þá Hclt ásamt
Rg4t og h-peðið fellur).
28. — Hclý
29. Kf2 Hflf
30. Kg2 Hbl
(Svartur taldi sig nú hafa
bjargað peðinu sem gæti orð-
ið mjög hættulegt. Enn hefur
Larsen þó séð lengra).
59. Hg5
60. Hxh5
61. Kf2
62. Hh8t
63. Hg8
64. h5
65. Hg5t
66. g4
67. Ha5
68. g5t
69. Ke3
70. Ha7t
71. Kxd2
72. h6
73. g6
74. Ke3
75. h7ý
76. Kf4
d4
Hxe3t
Hc3
Ke7
Kf6
Kf5
Kf6
d3
Hc4
Ke7
d2
Kf8
Hxf4
Kg8
Hd4ý
Hd8
Kh8
e5ý
Hér fór skákin í bið í 3ja
1. Rf3 c5 31. Ha8t Kf7
2. b3 Rf6 32. Ha7t Kg6
3. Bb2 e6 33. Rc6!
4. c4 Be7 (Bezt; í flækjum þeim sem
5. g.3 b6 komu upp eftir t.d. Rxe6 gæti
6. Bg2 Bb7 svarta b-peðið orðið mjög
7. 0—0 0—0 hættulegt).
8. Rc3 d5 3S Bflt
9. Re5 Rc6 34. Kf2 h5
10. f4 Hc8 (Ef t.d. 34. — b3 þá 35. g4!
(Til greina kom einnig að og svartur lendir í mátneti).
leika hér 10. — Rxe5 t.d. n. 35. Rxb4 Bh3
fxe - - Rxe5, 12. e4). 36. Rc6 Hb2
<$>-
(!,absiín-c.m. i
Í:';iUWAMÁÍ
Bent Larsen
sinn en Matulovic gafst upp án
þess að tefla frekar.
Það hefur nú verið ákveðið
að á jólaskákmótinu tefli í
efsta flokki þeir J. Kaplan
(Puerto Rico) heimsmeistari
unglinga, L. Stein og R. Chol-
mov (Sovétr.), V. Hort (Tékkó-
slóvakía), S. Ostojic (Júgósl.),
F. Gheorgiu (Rúmenía) og
Englendingurinn W. R. Hart-
stone. R. D. Keene, A. White-
ley og M. J. Basman.
Jón Þ. Þór,
Dagbók Jökuls frá
grískuþorpi, Diafani
Almenna bókafélagið hefur
nýlega sent frá sér Dagbók frá
Díafaní eftir Jökul Jakobsson.
Þar segir höfundurinn frá dvöl
sinni síðastliðinn vetur i grísku
smáþorpi og rekur í svipmynd-
um kynni sín af því fólki, sem
allt fram á þennan dag hefur
búið þar við sams konar lífs-
hætti og forfeður þess fyrir tvö
þúsund árum, klæðist eins og
þeir og sækir sér vatn í sömu
brunnana. En það er allt að
einu einhver ókyrrð í loftinu.
Umheimurinn er farinn að
segja til sín og það er jafnvel
von á skeimmtiferðafólki næsta
sumar. Svo langt gengur þetta,
að menn láta sig dreyma um
að „byggja hótelnefnu ofan á
krambúðina sína eða kaffistof-
una“, og bæjarstjómin er meira
að segja tekin að rumska, aldr-
ei slíku vant. Það er sem sé
komið upp úr dúmum, að
þorpsgatan, sem dugað hefur
mannfólki og ösnum allt frá
dögum Odysseifs og Sokratesar,
er alls ekki boðleg útlendum
túristum. Þess vegna eru nú
konumar í þorpinu önnum
kafnar við að moka sand og
möl í blikkdunka, sem þær bera
síðan á öxlinni, hnarreistar og
hnakkakertár. Því 'að hér bera
Jökull Jakobsson
konurnar hita og þunga dags-
ins í bókstafilegum skilningi.
Karlmennirnir hafa þar öðru
að sinna. Þeir sitja daglangt á
kaffihúsunum og virða konurn-
ar ekki viðlits . . .
Höfundurinn var kominn til
Aþenu, þegar stjórnarbyltingin
varð í Grikklandi, aðfaranótt
hins 21. apríl, og í bókarfor-
mála rekur hann kynni sfn af
þessum afdrifaríku atburðum.
Þá má geta þess, að Kristín
Þorkelsdóttir hefur gert mjög
skemmtilegar teikningar íbók-
ina.
Cabinet
KÓPA VOGUR
Blaðbera vantar í KÓPAVOG.
ÞJÓÐVILJINN sími 40-753.
Vatteraðir nylonjakkar
hettuúlpur, peysur og terylenebuxur —
Athugið okkar lága verð — Póstsendum.
O. L. Laugavegi 71
Sími 20141.