Þjóðviljinn - 03.12.1967, Page 10

Þjóðviljinn - 03.12.1967, Page 10
10 SlÐA — ÞJÖÐV7LJINN — Sunnudagur 3. desember 1967. WINSTON GRAHAM: MARNIE 65 dáin. Ég ætlaði að strika tvö- falt strik undir þau með reglu- stiku. Og svo ætlaði ég að byrja upp á nýtt. Stephen frændi kom við hand- legginn á mér- — Mamie ........... — Farðu til fjandans, sagði ég. — Hitt fólkið er farið. Ég sendi þær burt. Og Doreen þurfti að ná í lest. Lucy verð- ur að bjarga sér sjálf ...... — Það get ég líka — sama og þegið. — Það geturðu eflaust. Og þú ert líka tilneydd. En fyrst lang- ar mig að tala við þig. Lucy segir mér, að þú vitir allt um mömmu þína. — Farðu til fjandans, sagði ég. — Mamie mín litla, við verð- um að tala saman. Það bíður leigubfll eftir mér. Við skulum aka á einhvem stað. — Þakk fyrir, ég vil heldur ganga- — Komdu nú. Hann tók undir handlegginn á mér. HARÐVIÐAR UTIHURDIR TRÉSMIÐJA Þ. SKÚLASONAR Nýbýlavegi 6 Kópavogi sími 4 01 75 Hárgreiðslan Hárgreiðslu- og snyrtistols Steinu og Dódó Laagav 18 III. hæð (lyfta) Sími 24-6-16. PERMA Hárgreiðslu- og snyrtistofs G-arðsenda 21 SIMI 33-968 Og allt í einu var ekkert mót- stöðuafl eftir í mér. Ég sneri mér frá honum og gekk - ð leigubfln- um. Við óKum ei'r.hvs.ð og drukk- um te. Það var á einu af þess- um glæsilegu veitingahúsum, og á eftir hugsaði ég sem svo að hann hefði einmitt farið með mig á slíkan stað, þvi að þar gæti ég hvorki leyft mér að lyppast niður eða fá móður- sýkiskast — meðan mér stóð þá ekki alveg á sama um hvað var viðeigandi og hvað ekki. Og í rauninni lagði hann í mikla á- hættu, því að mig langaði mest af öllu til að sparka borðinu um koll. En það var ekki reiði, það veit hamingjan, það var svo skelfilee örvænting, svo yfir- þyrmandi tómleiki og vonleysi, að ekki var hægt að ætlast til að nokkur mannvera gæti afbor- ið það. Hann sagði: — Marnie, þú verður að reyna að herða þig upp. — Hvað þykistu eiginlega vera að sitja hér og segja mér fyrir verkum? — Mamie, hættu þessum ónot- um og reyndu að líta þetta allt rólegum augum. Ég veit vel að betta hefur verið hræðilegt áfall fyrir þig. fyrst að missa móður bína og fá svo að vita þetta um hana strax á eftir. En reyndu að líta á þetta allt í réttu ljósi. Ef bú vilt leyfa mér að tala dá- lítið um þetta, þá held ég að það gæti orðið þér til hjálpar. — Ef þú hefðir talað um það við mig fyrir tíu árum, þá hefð- irðu haft nokkurn rétt til að tala við mig í dag. — Áttu við að ég hefði átt að sesja þér það, þegar þú varst brettán ára? I fyrsta lagi átti ég alls ekki með það. Þú varst bamið hennar, ekki satt. En ef ég hafði gert það þrátt fyrir það, heldurðu bá að þú hefðir getað skilið það sem ég ætla nú að serfla þér? Ég starði þvert yfir sex hvíta dúka og á blómaskál — hvíta- sunnuliliur, íris, túlipanar .... — Edie var eldri en ég, sagði hann, en mér hefur alltaf þótt vænt um hana og að vissu leyti held ég að ég hafi skilið hana. Það er tímanna tákn að kenna foreldrum sínum um allar sír.ar eigin vammir og skammir; en ef bú ásakar hana fyrir galla sína, bá verðurðu líka að skella nnkk- urri skuld á föður okkar, minn og mömmu þinnar- Afi þinn var prédikari. Þú hefur trúlega vitað það? — Já, ég veit það. — Hann var leikprédikari, en hann var gipsmótari að iðn og eftir 1920 var hann atvinnulaus í meira en átta ár. Það gerði hann beizkan og það var eins og tilfinningalíf hans rýrnaði. Hann varð trúaðri, en það var undarlega öfugsnúin trúrækni. Þegar amma þín, móðir okkar Edie, dó, þá dró pabbi sig meira inn í skelina og það var Edie sem varð að fást við hann. Hef- urðu nokkurn tíma hugsað um móður þfna sem konu, Marnie? Að öðru leyti en því að hún var móðir, á ég við? Hún var það sem kalla mætti mjög ásthneigð kona. — Þakka þér fyrir, mér er orð- ið það ljóst. — Þetta er nú ekki svona ein- falt, Mamie. Sjáðu til, frá því að móðir þín var kornung hafði hún alltaf mjög laðandi áhrif á karlmenn — það var alltaf ein- hver sem gekk á eftir henni með grasið í skónum, en hún hafði fengið alltof strangt uppeldi til þess að — ganga of langt með nokkrum þeirra. Ég var litli bróðir hennar og ég veit það. Hún var kyrr hjá pabba þangað til hann dó- Þá var hún orðin þrjétíu og þriggja ára. Þrjátíu og þriggja ára. Geturðu dregið nokkra ályktun af því? Hún hef- ur áreiðanlega oft átt í sálar- striði. Og um leið þurfti hún að kljást við pabba; hann gat verið skelfilegur stundum; og svo hafði hann til að bera ó- trúlegan myndugleik, næstum eins og spámaður úr Gamla testamenntinu. Hún var farin að líkjast honum dálítið síðustu árin, en hún var ekki nándar nærri eins slæm- Ég forðaðist hann eftir því sem ég gat. Og ég stakk af á sjóinn strax bg ég fékk aldur til. Hann spurði hvort ég vildi te, en ég hristi höfuðið. Hann hélt áfram: — Tveim mánuðum eftir að pabbi dó, giftist hún pabba þínum. Ég held þau hafi verið hamingjusöm. Ég gat ekki bet- ur séð en þau væru hamingju- söm. Ég held að það hafi verið í fyrsta skipti sem hún lifði eðli- legu lífi sem kona. Ég held líka að hún hafi — svo að ég tali hreinskilnislega — allt í einu uppgötvað hvað hún hafði verið svikin um. Og ég held að Frank hafi uppgötvað að hann hafi vak- ið eitthvað hjá konunni sinni, sem hann hafði ekki átt von á- Það gerði auðvitað ekkert til þegar hann var heima, en .... Þegar þið fluttuð til Sangerford var hún ein, aleinni en hún hafði nokkurn tíma verið áðar en hún giftist. Því að nú var hún vökn- uð til lífsins — og það hafði gerzt seint. Og nú ætlaðist tilver- an til þess af henni að hún sofn- aði aftur. Það er ekki auðvelt. Og þá fór hún að taka á móti hermönnum. — Hermönnum — í fleirtölu, er ekki svo? — Ég ætla ekki að fara að bera blak af henni að því leyti. Ég er bara að reyna að útskýra fyr- ir þér, hvemig þetta gat orsak- azt. Aðrar konur sem voru öðru vfei gerðar pg höfðu fengið ann- ars konar uppeldi, hefðu senni- lega ekki lent í þessu sama. Þetta sxðasta, með bamið, það hefði alla vega ekki gerzt. — Ætlarðu í raun og veru að halda því fram, að það hafi ver- ið uppeldið sem varð til þess að hún drap sitt eigið barn? Hann þagði við og fór að troða í pípu sína og kveikja í henni. — Mamie, móðir þín var sérstæð kona, það skal ég viðurkenna fyrstur manna. Hún hafði mikla hneigð til sjálfsblekkingar, ekki sízt síðustu árin. Þegar ég hugsa um hvernig hún gleypti þessa sögu þína um ríka vinnuveitand- ann þinn — þennan Pemperton, sem jós í þig peningum og — — Þú hefur þá ekki trúað því? Hann tók út úr sér pípuna og hristi höfuðið. — Ég veit ekki hvaðan þú fékkst þá peninga og ég hef ekki hugsað mér að spyrja þig um þá; en ég trúi ekki þessu um herra Pemperton. Og hún hefði ekki trúað því heldur, ef hún hefði ekki ein- mitt viljað það sjálf og haft þennan dæmalausa eiginleika til sjálfsblekkingar- Og sama máli gegndi um þetta undarlega tíma- bil í Sangerford. Jafnvel bar tókst henni að sefa sjálfa sig með sjálfsblekkingu. Ég veit vel hversvegna hún svaf hjá her- mönnum — hún gerði það vegna þess að hún var haldin sterkri og óviðráðanlegri ásthneigð — én mér er hulin ráðgáta hvernig hún gat svæft samvizku sína. Hefurðu nokkum tíma reynt að gera þér í hugarlund hvemig það hlýtur að vera að lifa tvöföldu lífi? Það fór hrollur um mig. — Haltu áfram. — Ef til vill — og þetta á ekki að vera nein meinleg fyndni — ef til vill gerði hún sér þá hugmynd að hún legði fram sinn skerf í styrjöldinni með því að gefa dátunum blíðu sína. Og ein- hvem veginn tókst henni að lifa dagana eins og næturnar væru ekki til. Hún var alltaf hin virð- ingarverða og siðlega dóttir Abels Treville, vel klædd Dg snyrtileg. Hún var hin trúfasta eiginkona Franks Elmers. Og ræktarsöm móðir þín. Ég gaf frá mér einhver undar- leg hljóð, en hann hafði ekkert svar við þeim. Hann horfði á mig gráum aug- um sínum. — Þegar nýja bam- ið var orðið til, hlýtur það að hafa splundrað þessum múr af sjálfsblekkingu sem hún hafði gert um sig. Hamingjan má vita hvemig hún hugsaði og álýktaði þá. En einhvemveginn varð sú ranghverfa ofaná hjá henni, að hún gæti einfaldlega afneitað til- veru bamsins, líka gagnvart sjálfri sér. Auðvitað hafði þessi læknir rétt fyrir sér. Eftir fæð- inguna varð hún gripin andar- taks sturlun — og þá gerði hún það sem hún gerði......... Við sátum þegjandi lengi, lengi- Þjónninn kom til okkar og Stephen frændi borgaði reikning- inn, en við sátum kyrr. Nokkrar rosknar konur sem höfðu setið hinum megin á veröndinni fengu í sig hroll og fluttu sig inn f sjálfan veitingasalinn. Vika- drengur kom með kvöldblöðin frá London. En enginn keypti þau. En svo sagði ég; — Ef ég hefði verið dómarinn og þeir hefðu sagt mér að kona af þessu tagi hefði sturlazt andartak, þá hefði ég spurt: já en hvers vegna bjó hún sig ekki undir komu þessa bams? Var hún þá sturluð afla þessa níu mánuði? Við risum á fætur og geng- um af stað í áttina að Cuthbert Avenue- Við gengum og kaldur vindur blós enn um bæinn. I höfninni lágu fáeinir bátar og vögguðu til og frá og meðfram götunni skrjáfaði í pálmatrján- um eins og strápilsum. Ég sagði: — Vissirðu að ég er gift? Þvoið hárið nr LOXENE-Shampoo - og flasan fer SKOTTA — Finnst þér ekki fallega gert af vini mínum að gera við sláttu- Einangrunargler Húseigendur — Byggingameistarai. Útvequm tvöfalt einangrunargler með mjög stutt- um fyrirvara. Sjáum um ísetningu og allskonaT breytingar fi *luggum Útvegum tvöfalt gler í lausafög og sjá- um um máltöku. Gerum við sprungur i steyptum veggjum með baulrevndu gúmmíefni Gerið svo vel og leitið tilboða. SÍMl 5 11 39. NÝKOMID Peysur, úlpur og terylenebuxur. O. L. Laugavegi 71 Sími 20141. BÍLLINN ið við bíla ykkar sjálf Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga. BÍLAÞJÓNUSTAN Auðbrekku 53. Kópavogi — Sími 40145. Látið stilla bílinn Önnumst hjóla-. Ijósa- og mótorstillingu Skiptum um kerti. platínur. ljósasamlokur — Örugg þjónusta. BlLASKOÐUN OG STILLING Skúlagötu 32. sími 13100 Hemlaviðgerðir • Rennun; bremsuskálar. • Slípum bremsudælur • Límum á bremsuborða. Hemlastilling hf. Súðarvogi 14 — Sími 30135.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.