Þjóðviljinn - 03.12.1967, Page 12
Sundmót fram-
haldsskóla
Hið fyrra sundmót framhalds-
skódanna í Reykjavík og ná-
grenni skólaárið 1967 til 1968 fer
fram dagana 4. desember og 7.
desember n.k- klukkan 20.00 í
Sundhöll Reykjavíkur.
Keppt verður báða dagana í
boðsundum stúlkna og pilta,
sundaðferð bringusund.
Þann 4. desember (mánudag)
keppa yngri flokkar en 7- desem-
ber (fimmtudag) eldri flokkar.
Að vanda verður hörð keppni
og mikil þátttaka.
Skíðalyftan í
Hlíðarfjalli
var vígð í gær
t gaer kl. 1.30 e.h. átti að
fara fram vígsla nýju skíðalyft-
unnar í Hlíðarfjalli við Akur-
eyri. Þetta er fyrsta stóla-skíða-
lyftan sem sett er upp hér á
landi og getur hún flutt 134
menn i einu, ef hver stóll er
skipaður. Er áaetlað, að lyftan
geti flutt að meðaltali um 500
manns upp í skíðalandið. Vega-
lengdin sem lyftan flytur skíða-
fólkið er einn kílómetri en
hæðarmismunur 200 metrar.
Tekur ferðin upp með lyftunni
7—8 mínútur og fara stólarnir
hæst 7—8 metra frá jörð. Hef-
ur lyftan og uppsetning hennar
kostað nær 4,5 miljónir króna
og greiðir íþróttasjóður tvo
þriðju þeirrar upphæðar.
Til vígsluhátíðarinnar í gær
var boðið ýmsu stórmenni, svo
sem fjármálaráðherra, íþrótta-
fulltrúa ríkisins, stjóm ÍSÍ og
Skíðasambandsins, þingmönnum
Norðurlandskjördæmis eystra,
framámönnum í skíðafélögum
auk fréttamanna og fleiri gesta
og bauð bæjarstjórn Akureyrar
gestum til kaffidrykkju í Skíða-
hótelinu i Hlíðarfjalli að opnun-
arathöfninni lokinni.
Smásagnasafn sr.
Stanlsys Melax
Út er komið smásagnasafnið
„Sögur úr sveit og borg“ eftir
Stanley Melax-
I bókinni, sem eir 243 síður, eru
þrettán sögur „og bregða liær'1,
segir á kápusíðu, „upp myndum
af ýmiss konar fólki — ekki sízt
frá broslegri hliðinni“.
I
!
*
*
*
Ný kjörbúð í Garðahreppi
■ Ný kjörbúð var opnuð
í gærdag í Garðahreppi á
vegum Kaupfélags Hafnar-
fjarðar. Er kjörbúðin að
Garðaflöt 10 til 18. Búðin er
um 250 fermetrar að stærð
og er smekkleg og rúmgóð
með nýtízkulegu sjálfsaf-
greiðslusniði. Þarna eru á
boðstólum allar nýlenduvörur.
mjólk, kjöt og fiskur, bús-
áhöld, ritföng og leikföng svo
eitthvað sé nefnt.
Bókin kemur í staðinn fyrir
kjörbílinn á þessum slóðum,
en hann hefur verið í gangi
síðan í marz 1963.
Búðin er fyrsti áfangi af
stærri byggingu um 530 fer-
metrar og eru teikningar unn-
ar á teiknistofu SÍS, arkitekt
Hákon Hertervig. Yfirsmiður
var Guðmundur Lárusson-
Hér á myndinni er Ragnar
Pétursson, kaupfélagsstj. og
Bjöm Axelsson, verzlunar-
stjóri kjörbúðarinnar. (Ljós-
mynd Þjóðviljans A. K.).
*
Fann gamalt íslenzkt skinn
handrit á safni í Edinborg
Ólafur Halldórsson cand. mag.
starfsmaður Handritastofnunar
íslands, sem nú dvelst á Bret-
landseyjum við rannsóknir og
leit að íslenzkum handritum á
söfnum þar, hefur fundið gamalt
íslenzkt skinnhandrit í Register
House í Edinborg.
Frá þessu segir Magnús Magn-
ússon í grein í The Scotsman
27/11 og lýsir handritinu þannig,
að þetta sé lítil 110 síðna skinn-
bók, lúterskt tímatal og guðs-
orðarit fyrir húsmæður, skrifað
1586. Upprunalega hafði skinnið
verið notað í kirkjubók á latínu
snemma á 15. öld, en skriftin síð-
an verið skröpuð af og lúterska
tímatalið skrifað í bókina í stað-
inn. (Skinnið var löngum dýr-
mætt). Slikar bækur nefnafræði-
menn uppskafninga. Enginn veit
íslendingar og
Tékkar
Kl. 3 síðdegis í dag, sunnu-
dag, hefst landsleikur íslendinga
og Tékka, núverandi heims-
meistara í handknattleik karla,
í íþróttahöllinni í Laugardai.
Síðari leikurinn fer fram ann-
að kvöld, mánudag.
hvernig þessi bók hefur borizt i
Register House.
Ólafur Halildórsson hefur not-
ið styrk frá Unesco við þessar
rannsóknir sínar og eru þær lið-
ur í mikilli leit sem nú gerð að
íslenzkum handritum í söfnum
um allan heim. Má nefna að í
fyrra gerði annar starfsmaður
Handritastofnunarinnar Jónas
Kristjánss. cand. mag. samskon-
ar rannsóknir í söfnum í Noregi.
Tilgangur leitarinnar er ekki að-
eins að finna áður óþekkt hand-
rit heldur að skrásetja og láta
taka myndir af því sem þegar
er vitað að til er.
Sunnudagur 3. desember 1967 — 32. árgangur — 275. tölublað.
Veglegt fræðirit
um víkingatímana
Víkingamir ncfnist mikið rit
og veglcgt, sem er komið út á
vegum Almenna bókafélagsins.
Fjallar það eins og nafnið bendir
til um Iíf og háttu forfeðra vorra
á víkingaöld, hinu svipmesta
tímabili í allri sögu norrænna
þjóða. Er bókin til orðin fyrir
margra ára samstarf fremstu
fræðimanna af mörgum þjóðern-
um, en þeirra á meðal er dr.
Kristján Eldjárn þjóðminjavörð-
ur, sem ritar um þau efni, sem
scrstaklega varða Island. Aðalrit-
stjóri verksins er prófcssor Bertil
Almgren, einn kunnasti forn-
fræðingur sænskur, en Eiríkur
Hreinn Finnbogason cand. mag.
þýddi bókina á íslenzku.
Um víkingaöldina hefur að
sjálfsögðu margt og mikið verið
ritað, en flest hefur það fjallað
um einstök svið hins fjölþætta
efnis og auk þess byggzt nær
eingöngu á eldri heimildum. Hér
er aftur á móti rakin alihliða
saga víkingaaldar, þar sem enn-
fremur eru i fyrsta sinn saman
komnar á einn stað niðurstöður
víðtækra rannsókna frá síðustu
árum, en þær hafa í fjölmörgum
greinum leitt f Ijós svo nýstár-
lega vitneskju, að segja má að
tímabilið allt, fólk bess og um-
hverfi, blasi nú við i stórum
skírari birtu en áður og komi
oss að sama _ skapi kunnuglega
fyrir sjónir. í bókinni segir frá
afrekum víkinganna í hemaði og
landaleit, hvernig þeir hættu sér
fyrstir þjóða út á heimshöfin og
stóðu öllum framar að siglinga-
tækni og skipasmíðum, en frá-
bærar uppfinningar þeirra f
hvoru tveggja, svo sem áttaviti
og skipskjölur, gerðu þá að
drottnendum hafsins. En þar er
einnig fjafllað mjög ýtarlega um
daglegt líf vikinganna, hfbýla-
háttu, klæðnað, áhöld og hues-
I unarhátt, trúarbrögð. siðgæðis-
hugmyndir og háþróaðar listi-
legar menjar með ýmsum þeim
þjóðum, er þeir höfðu skipti við.
Það er ekki hvað sízt fyrir hina
glöggu innsýn í fjölskníðugan
hversdagsheim, að víkingamir,
forfeður vorir, verða oss ótrúlega
nálægir og lifandi af máli og
myndum bókarinnar.
Víkingarnir eru 268 bls. í mjög
stóm broti (31,5x29,5 cm), prent-
uð í tveimur pappírslitum og
sterklega bundin. Hefur ekkert
verið sparað til þess, að bókin
gæti orðið hverjum manni hinn
mesti kjörgripur, jafnt að efni
sem ytri búnaði. Myndasafn
hennar er eitt hið merkasta um
víkingaöld, sem saman er komið
í einni bók, en þ.á.m. em um 90
stórar litmyndir. Bókin er prent-
uð Pg bundin á ítalíu. Mörg út-
gáfufyrirtæki í Evrópu og Am-
eríku standa að útgáfu þessarar
bókar, en hugmyndin að útgáf-
unni og forystu alla hefur ann-
azt hið merka útgáfufyrirtæki
Tre Tryckare í Gautaborg.
M A I
Menningartengsl Albaníu ög
íslands halda fund i dag, 3. des-
ember klukkan 2.30 að Freyjú-
götu 27.
Á fundinum flytur Stefán Jóns-
son fréttamaður erindi, Jón frá
Pálmholtj les upp úr nýútkom-
inni Ijóðabók og Ólafur Jónsson,
Helga Hjörvar og Þorsteinn frá
Hamri sjá um samfellda dag-
skrá. Auk þess verða kaffivéit-
ingar á staðnum.
Félagar eru hvattir til að
mæta vel og stundvíslega.
BLAÐ-
DREIFING
Bazar Kvenlélags sósíalista
í Tjarnargötu 20 er í dag
★ Það er í dag kl. 3 sem Kvenfélag Sósíalista heldur
bazarinn í Tjarnargötu 20. Þar verða á boðstólum margir
eigulegir munir sem hentugir eru til jólagjafa. Má þar
nefna ýmis konar prjónavöru. íeikföng, skrautvörur og
fatnað.
★ Konur sem ætla að gefa muni á bazarinn eru beðnar
að skila þeim í Tjarnargötu 20 fyrir hádegi í dag.
Áhugi er að vonum mikill fyr-
ir leikjum þessum. Fæstir munu
þó búast við sigri íslenzka liðs-
ins, en menn vona að leikirnir
verði jafnir og skemmtilegir.
Val íslenzka liðsins hefur sætt
nokkurri gagnrýni; einkum þykir
mörgum vafasamt að setjaGunn-
laug Hjálmarsson, leikreyndasta
mann íslands í handknattleik og
fyrirliða landsliðsins um langt
skeið, út úr liðinu, en gefið hef-
ur verið í skyn að hann verði
valinn í liðið sem mætir Tékk-
unum annað kvöld.
Dómari verður Svíinn Lennart
Larsson.
Fundur Sósíalistafélagsins
er ó þriðjudagskvöldið
★ Sósíalistafclag Reykjavíkur heldur fund í Tjarnargötu 20
n. k. þriðjudagskvöld, 5. desember, klukkan 8-30.
★ A'ðalmálgagn á dagskrá fundarins verður: Viðhorf í efna-
hagsmálum. Frummælandi er Lúðvík Jósepsson alþingismaður.
Þjóðviljann vantar blað-
bera í eftirtalin hverfi:
Kleppsveg
Sogamýri
Gerðin
Tjarnargötu
Háskólahveríi
★ A þessurn fundi mun Eðvarð Sigurðsson, formaður Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar, ræða um viðhorf í verkalýðsmálum.
★ Þá talar Hjalti Kiristgeirsson, hagfræðingur um vísitölu-
grundvöli.
★ FÉLAGAR eru hvattir til að fjölmenna.
Þjóðviljinn
Sími 17-500.
Enskir, þýzkir og franskir KARLMANNASKÓR Stórglæsilegt úrval. SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR Laugavegi 100. FALLEGIR LAKKSKÓR fyrir telpur. — Stærðir 27 — 36 SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR Laugavegi 100.
Ódýrir KULDASKOR KARLMANNA Verð kr. 323,00. SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR Laugavegi 100. FRANSKIR DRENGJASKÓR Fallegar gerðir. ■— Stærðir 30 —39 SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR Laugavegi 100.