Þjóðviljinn - 07.12.1967, Blaðsíða 1
DSOHVIUIIil
HAPPDRÆTTI ÞJÓÐVILJANS 1967
□ Dregið verður 1 Happdrætti Þjóðviljans 1967 eftir aðeins 16
□ daga og eru aðalvinningarnir í happdrættinu tveir fólksbíl-
□ ar, Moskvitchbfreið og Trabant de lux. Ennfremur eru
□ þrír aðrir smærri vinningar. — Gerið skil í Tjamargötu 20,
□ sími 17512, eða að Skólavörðustíg 19, sími 17500 sem allra
□ fyrst.
MiSbœjarskólanum lokaS vegna kulda
HITAVEITAN HEFUR ALDREI
BRUGÐIZT JAFNHRAPALLEGA
Á sama tíma samþykkir íhaldsmeiri- •
hlutinn í borgarstjórn 18% hækkun
hitaveitugjalda 1. janúar nk. og síðar
á að koma 12% hækkun þar ofan á
□ Sjaldan eða aldrei hefur Hitaveita Reykja-
víkur brugðizt eins hrapallega hlutverki sínu
einsog í kuldunum í fyrradag og gær og eru borg-
arbúar þó orðnir ýmsu vanir frá hennar hendi.
□ í stórum hluta gamla bæjarins var í fyrra-
dag og gær varla viðvært í húsunum sökum kulda.
Veit blaðið nokkur dæmi þess að fólk flýði með
börn sín að heiman af þeim sökum. Heita vatnið
þraut í pípunum um hádegi og sjaldan eða aldrei
hafa Þjóðviljanum borizt jafnalmennar kvartanir
víðsvegar að úr gamla bænum og nú: Af Bræðra-
borgarstíg, Hávallagötu, Snorrabraut, Miklubraut,
Skólavörðustíg, Lokastíg, Gunnarsbraut, Njarðar-
götu og Laugavegi svo nokkur dæmi séu nefnd.
□ Og svo kált var í Miðbæjarskólanum í gær
að þar varð að fella niður kennslu, bæði fyrir og
eftir hádegi, og hefur slíkt víst ekki gerzt um
hálfrar aldar skeið eða síðan 1918!
30% hækkun hitaveitugjalda
Sömu daga og stór hluti Reykvikiuga situr í kuldanum
eru forráðamenn Reykjavíkurborgar að samþykkja stór-
fellda hækkun hitaveitugjalda. Á fundi borgarráðs í fyrra-
dag var samþykkt með 3 atkvæðum gegn 2 tillaga um 18%
hækkun hitaveitugjalda er koma á til framkvæmda 1. janú-
ískönnun fyrir Norðurlandi
1 gær, miðvikudaginn 6. des.
fór gæzluflugvélin TF-SIF í ís-
könnunarflug.
Flogið var fyrir Snæfellsnes og
Bjarg og komið í þéttan ís,
7-9/10, 49 sjómílur í r/v 315° frá
Barða. Þaðan virtist ísbreiðan
liggja í r/v 220°- Fylgt var ís-
röndinni norður með að stað r/v
343° 57 sjómílur frá Homi.
Síðan var flögið SA og A yf-
ir Húnaflóa og var þar dreifður,
sundurlaus ís og ísspangir, að
stað 330° r/v 40 sjómílur frá
Skaga. Þaðan var flogið norður
fyrir Grimsey meðfram gisnu ís-
hrafli, sem var þéttast 1-3/10. Is-
hrafl þetta var næst Skaga í um
það bil 40 sjómílna fjarlægð.
Nokkuð þéttur ís, 4-6/10, var
í 50 sjómílna fjarlægð norður af
Grímsey og íshrafl þaðan í aust-
ur og suður.
Gisið íshrafl og ísrastir liggja
þaðan, að stað um það bil 20
sjómílur norður af Rauðunúpum,
en þaðan virðist ísinn beygja í
norðaustlæga stefnu.
Smá íshrafl og jakar sáust
kringum Mánareyjar og suður af
Grímsey. Nokkrir smájakar og
íshrafl voru norður af Gjögrum
og Eyjafirði og gætu þeir verið
hættulegir skipum í dimmviðri.
Fyrir Norðurlandi virðist ísinn
tættur og dreifður og ekkert ó-
venjulegt ísmagn á þessum tíma
árs.
Hörmulegt bílslys skammt frá Grímsárvirkjun:
Unnið að endur-
skoðun á tolla-
■ ■■ ■■■■■ ■
loggjofinni
Þjóðviljinn sneri sér í
gær til Jóns Sigurðssonar
ráðuneytisstjóra fjármála-
ráðuneytisins og spurðist
fyrir um það hvað liði end-
urskoðun á tollalöggjöfinni,
en eins og menn munu
minnast var það boðað
samfara gengislækkuninni,
að endurskoðun yrði gerð
á tollalöggjöfinni og tollar
þá lækkaðir á sumum
vöruflokkum.
Ráðuneytisstjórinn kvað
tollskrárnefnd hafa unnið
að undirbúningi málsins
að undanförnu en aðild að
henni eiga m.a. Félag ís-
lenzkra iðnrekenda og
Verzlunarráð íslands auk
þess sem i henni sitja
embættismenn ríkisins. Þá
hefur Alþýðusamband ís-
lands átt aðild að þessu
undirbúningsstarfi. sagði
r áðuney tisst j ór inn.
Ráðuneytisstjórinn kvað
of snemmt að ræða' um
efnislegar breytingar á
tollalöggjöfinni, málið væri
enn aðeins á undirbúnings-
stigi. Kvaðst hann ekkert
geta sagt um það ennþá,
hvort verkið sæktist það
vel að hægt yrði að leggja
breytingatillögurpar fyrir
alþingi fyrir jóf.
Síberíukynning í kvöld
Síberfukvöld á vegum MÍR er
í kvöfld kl. 9 í salnum að Þing-
holtsstræti 27 — en það féll nið-
ur í frétt hér í blaðinu í gær.
Þorsteinn frá Hamri fiytur
frásögu frá Síberíu og sýnd verð-
ur ný heimildarmynd um þetta
mikla land, litmynd sem ungir
menn hafa saman sett mjög fjör-
lega. öllum er heimill aðgangur.
ar n.k. og auk þess er í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
og fyrirtækja hennar sem kemur til fyrri umræðu í borgar-
stjórn í dag reiknað með 12% hækkun hitaveitugjaldanna á
næsta ári vegna hækkunar byggingarvísitölu. Munu hitaveitu-
gjöldin því hækka um hvorki meira né minna en 30% á
næsta ári þegar allt kemur til alls.
----------------------------«>
Tveir piltar biou bana, en
þrennt slasaðist alvarlega
□ í fyrrinótt, laust eftir miðnættið, varð það
hörmulega slys skammt frá Grímsárvirkjun að bif-
reið steyptist niður í Gilsárgil. Átta ungmenni úr
Egilsstaðakauptúni voru í bílnum, 5 piltar og 3
stúlkur. Voru 2 piltanna látnir, þegar læknir kom
á slysstaðinn, þrennt slasaðist alvarlega.
Fimmsett
í Kennara-
skólann!
ÞÓTT KENNARASKÖLI ÍS-
LANDS sé til húsa í nýrri
byggingu á hann þegar vift
mikla húsnæðiserfiðleika að
etja og er nú í skólanum fimm-
faldur fjöldi á við það sem
fullgerður hluti skólahússins
rúmar samkvæmt tcikningu.
ÞETTA KOM FRAM á fundi
sem skólastjóri Kennaraskólans
Broddi Jóhanncsson hélt með
blaðamönnum og fleirum í
gær og sagði hann að í skólan-
um væru nú 30 bekkjardeildir
í sjö kennslustofum. Nemendur
í bóknámsdeildum eru 640 og
30 I handavinnudeild auk þess
eru i skólahúsinu 181 barn úr
Æfingaskólanum, cn bygging
hans hófst í sumar. Sá hluti
skrMahússins scm lokið er við
rúmar aðeins nm 170 manns.
Við afgreiðslu hitaveitugjalda-
hækkunarinnar í borgarráði
fluttu þeir Guðmundur Vigfússon
fulltrúi Alþýðubandalagsins og
Kristján Benediktsson fulltrúi
Framsóknarflokksins eftirfarandi
frestunartillögu:
„Með því að lagahcimild um
verðtryggingu Iauna hefur nú
verið felld úr gildi og allt er
í óvissu um hvort samtök
Iaunþega ná samningum við
atvinnurckcndur um greiðslu
vísitöluuppbótar á laun til að
vega upp á móti þeim vcirð-
hækkunum sem komnar eru
til framkvæmda og framund-
an eru telur borgarráð ekki
fært að hækka gjaldskrá
Hitaveitu Reykjavíkur að svo
stöddu og frestar því fram-
kominni tiWögu um hækkun
gjaldskrárinnar".
Frestunartillaga
var felld
Þessa tillögu þeirra Guðmund-
ar og Kristjáns felldi íhalds-
meirihlutinn 1 borgarráði með
þrem aíkvæðum gegn tveim.
Framlhald á 9. síðu.
Ekki er vitað um orsakir slyss-
ins, en sýslumaðurinn í Norður-
Múlasýslu vann að rannsókn
þess í allan gærdag.
Ungmennin, sem voru á aldr-
inum 14 ára til tvítugs, munu
hafa verið á kvöldakstri í bíln-
um, Rússajeppa, þegar slysið
varð um kl. 0.10 að því er tal-
ið er. Hefur bíllinn steypzt nið-
ur í gilið, um 17 metra fall, og
lent þar á framhjólunum í Gilsá.
Áin var á ísi, en ísinn brotn-
aði undan þunga bílsins og var
framendi hans á kafi í vatni,
er að var kómið.
Tvær stúlknanna, sem f
bílnum voru, og einn piltanna
komust út úr bílflakinu í ánni
og gátu gert viðvart í íbúðar-
húsinu við Grímsárvirkjun.
Var þá þegar haft samband
við björgunarmenn í Egils-
staðakauptúni og voru þeir
komnir á slysstað um kl. 1
ásamt héraðslækninum Þor-
steini Sigurðssyni. Tveir pilt-
anna voru þá látnir, en
þrennt alvarlega slasað. Stúlk-
urnar tvær og pilturinn sem
gátu gengið frá slysstað
að Grímsárvirkjun meiddust
hinsvegar ótrúlega litið.
Unglingarnir átta voru allir úr
Egilsstaðakauptúni eða frá ná-
grannabyggðinni Hlöðum. Stúlk-
an sem slasaðist alvarlega liggur
í sjúkrahúsinu að Egilsstöðum,
annar piltanna var fluttur, í
spítalann í Neskaupstað en
hinn með flugvél hingað til
Reykjavíkur í gærkvöld og í
sjúkrahús.
Enginn sáttafundur hefur ver-
ið boðaður enn út af verkfalli
Verkakvennafélagsins Sóknar í
Vestmannaeyjum, sagði Guð-
munda Gunnarsdóttir, formaður
félagsins í viðtali við Þjóðvilj-
ann í gærdag.
Sem fyrr segir var unnið að
rannsókn slyssins í gær. Lá þá
ekkert ljóst fyrir um orsakir
slyssins og eins þótti ekki tíma-
bært að birta strax nöfn þeirra
sem létust eða slösuðust alvar-
lega. — Læknir frá Neskaupstað
var héraðslækninum í Egilsstaða-
kauptúni til aðstoðar í gær.
Meginmisklíðarefnið er útborg-
unarfyrirkomulagið til verka-
fólksins í hinum fjórum frysti-
húsum í Eyjum. Utvegsbankinn
heimtar að verkafólkið spari og
leggi laun sán inn á sparisjóðs-
reikning hjá þeim.
Enginn sáttnfundur
í verkfallinu í Eyjum