Þjóðviljinn - 07.12.1967, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 07.12.1967, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVHJTNN — Kmmtudagur 7. desember 1967- Otgefandl: Sameiningarfloldtur alþýöu — Sósíalistaflokk- urinn. Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, (áb.), Magnús Kjartansson, Siguröur Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V F’riðþjófsson. Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson. Framkvstj.: Eiður Bergmann. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja Skólavörðustig 19 Sími 17500 (5 linur) — Áskriftarverð kr- 105.00 á mánuðl. — Lausasöluverð krónur 7.00. Skertur hlutur J^tjómarflokkarnir eru sammála um kjaraskerð- inguna, að nú verði að framkvæma kjaraskerð- ingu. Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn hafa hagað ráðstöfunum sínum í samræmi við það. Stórfelld gengislækkun; viðurkenningin á ó- farnaði viðreisnarinnar svonefndu, er tengd því óhæfuverki að afnema verðtryggingu kaups, eitt aðalatriði júnísamkomulagsins, gegn mótmælum allrar verkalýðshreyfingarinnar. Hún hljómar orð- ið enn falskar en áður áróðurshugmyndin að með júnísamkomulaginu og samningunum 1965 hafi Bjami Benediktsson fundið upp nýja aðferð í sam- skiptum verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurek- enda! Aðalmenn verkalýðshreyfingarinnar í þeim samninguim hafa einmitt hvað eftir annað lýst því, að þeir teldu eitt aðalatriði og höfuðávinning júní- samkomulagsins 1964 að þá var ríkisstjómin knú- in til að afnema hið heimskulega bann við verð- tryggingu launa sem sett var þegar núverandi stjómarflokkar tóku við völdum 1960 og „reikni- meistarar“ ríkisstjómarinnar og ráðherramir boð- uðu þá sem fagnaðarerindi og flestra meina bót. Þetta aðalatriði júnísamkomulagsins er nú rifið í tætlur, verðtrygging kaupsins afnumin úr lögum fyrirvaralaust, og verkalýðshreyfingunni sagt að hún geti gjört svo vel og farið að berjast fyrir henni á nýjan leik eða jafngildi hennar! Og samtímis gerir ríkisstjómin ráðstafanir til að velta stórfelldri verðhækkanaskriðu yfir landsmenn. j^eiknimeistarar ríkisstjómarinnar, ráðherrar og LÍÚ munu þó hafa í pokahominu sérstæða kjaraskerðingu sjámanna. Klíkustjórar LÍÚ gátu ekki stillt sig um að láta hennar getið kringum gengislækkunina og tóku að lýsa því sem „skil- yrði“ fyrir því að gengislækkunin „dygði“ þeim, að aflahlutur sjómanna yrði skertur. LÍÚ hefur legið á því lúalagi árum saman, einkum íhalds- þingmaðurinn núverandi Sverrir Júlíusson, að heimta skerðingu á aflahlut sjómanna. Með því að misnota meirihlutavald Alþingis og þjónustu- semi gerðardómsráðherra Alþýðuflokksins tókst að skerða hlut síldveiðisjómanna á velgengnisári og færa miljónir af tekjum, sem sjóimönnum bar, í vasa LÍÚ-mannanna. Nú virðist eiga að leika sama óþokkaleikinn, og má þó ótrúlegt teljast, þrátt fyrir allt sem á undan er gengið, að Eggert G. Þorsteinsson, Emil Jónsson og Gylfi Þ. Gísla- son gerist berir að þeirri ósvífni að hjálpa Sjálf- stæðisflokknum að skerða aflahlut sjómanna. Al- þýðuflokksleiðtoginn Jón Sigurðsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, hefur eindregið mót- mælt áformum um skerðingu sjómannahlutarins. Og sjómennirnir sjálfir eiga eftir að segja sitt orð. Þess væri full þörf að kenna ríkisstjóminni, ef hún getur lært, að árásum á sjómannshlutinn verður ekki fram komið, hvorki nú um áramótin eða endranær. — s. \ GUÐAD Á GLUGGA Stundin okkar var fremur þunn og þar munaði að Ei- ríkur Stefánsson var ekki í sögustólnuna með sinar á- gætu endurminningar af Jök- uldalnum, eins og sunnudag- inn nítjánda nóvember. Myndasaga Ragnars Lár bar af efni í þessari stund. Per- sónur eru vel unnar og frú- sögnin ofin þjóðsagnablas, en það er efni sem öllum, jafnt fulilorðnum sem bömum, er hugstætt. Myndsjáin var eins og oft- ast áður þarfaþing. Athyglis- verðast í henni var starfsemi Blindrafélagsins og heimsókn- in til Andrésar Gestssonar og konu hans. Herréttur: Þetta var frá- munalega þunglamaleg og leiðigjörn mynd og á hreint ekkert erindi í dagskrá helgi- dags fremur en Maveriek. Hér gala gaukar: Það var létt yfir þessum þætti. Fram- koma og klæðnaður skemmt- enda mjög til sóma. Systum- ar Þórdís og Hanna Karlsdæt- ur frá Keflavík sungu Fingra- kossinn mjög sæmilega. Síð- asta lagið, sungið og leikið af Svanhildi Jakobsdóttur og Ólafi Gauk, var þó rúsínan í pylsuendanum. Fljúgandi bjargvættur: Það var stórkostlegt að sjá þetta hrikalega fjalliendi, auk þess sem myndir af fólki, sem leggur líf sitt í hættu til að bjarga öðrum eins og þessi fljúgandi bjargvættur gerði, verða alltaf gott efni, hvort heldur er í sjónvarpi eða hlljóðvarpi. Vísindin settu svip sinn ó þetta þriðjudagskvöld, utan 12. þáttur fyrri heimsstyrjaldar- innar, sem ekki brást frekar en fyrri daginn. Það var margt fróðlegt að sjá ogheyra og engum vafa undirorpið að um merka hluti var að ræða. En er þetta ekki einum of mikið af svona þungmeltri fæðu? Myndin Massachusetts (M. I. T) tók tæpa klukku- stund af kveldinu og fannst mér hún þó lökust þess vís- indaefnis, sem á þorð var borið fyrir okkur. Stundarkom: Þettavarmjög Guðlaugssyni. Hann virðist naskur að krækja í fólk, sem tekur hluti sína alvarlega. Ég vil fara nokkrum orðum um hvem þátttakanda, og þá er fyrstan að telja Svein R. Hauksson með Tengla, semað allra dómi hlýtur að vera tímabær og þarfur félagsskap- ur. Ég óska Sveini R. Hauks- syni og félögum hans tii ham- ingju og um leið þeim, sem eiga eftir að njóta þessa fé- lags. Elísabet Erlingsdóttir söng mjög vel. Hún fór bezt með Lindina. Samtalið við hina ungu leikkonu (leyfi ég mér að titla hana, þó hún sjálf teldi það of stóran titil) sýndi að hún veit hvað hún vill. ánægjulegur þáttur hjá Baldri Edda Þórarinsdóttir á eftir að láta kveða að sér á leiksvið- inu í framtíðinni. Óskar Sigurpálsson er hraustleikamaður að sjá. Von- andi verður hann á olympíu- leikjunum næst. Þjóðlagatríóið Hrynur er með því betra, sem ég hef heyrt og séð af því taginu. Vilþorg Árnadóttir, upp- hlutsstúlkan frá heimssýning- unni, er mjög aðlaðandi og skemmtileg stúlka. Þættir sem slíkir verða allt- af vinsælt sjónvarpsefni. Þama er ekkert sem þvingar, engar vöflur, fólk blátt áfram og hversdagslegt eins og það hefði komið saman á heimili einhvers þeirra til að spjalla um daginn og veginn. fsland nútimans: Þetta var góð mynd, en þó ekki betri en þær íslenzku eins og Horn- strandir Ósvaldar Knudsen, sem ég mun geta um síðar i þessum þætti. f þessari ágætu njynd er því slegið fram að borgarbúinn sé mosinn í þjóð- félaginu. Ef átt er við með því, að hann sé kjami þjóð- félagsins, því að í mosanum felst mikið kjarngresi, finnst mér það ekki rétt samlíking. Sveitafólkið og þar með tald- ir sjómenn og annesjabændur hafa aliltaf verið taldir kjarni þjóðarinnar, og verða það meðan byggð stendur. Þetta breytir litlu um gæði mynd- arinnar í heild. En hitt er ó- hrekjanlegur sannleikur. Á öndverðum meiði: Þama mættust stálin stinn, ef svo mætti að orði kveða. Margur hafði þó búizt við harðari Yfirlit þess helzta á sjónvarps- skerminum í síðustu viku mm ifii' iii' iiw" ...... rimmu, svo andstæð eru þau sjónarmið þessara ágætu manna. Eysteinn Jónsson þjarmaði þó nokkuð að fjár- málaráðherra, sem fór i kring- um málin eins og köttur í ^ kringum heitan graut. Hátt- 9 virtur fjármálaráðherra virtist ’ ekkert sorgmæddur yfir kjara- skerðingu launþegans. Hann gerði meira að segja að gamni símu, lék við hvem k sinn fingur og líkti kjörum J fólksins við jólaköku, sem það hefði hakkað í sig eins og hverjir aðrir óvitar. Hann sagði reyndar „við“ til að draga athyglina frá hverjum sneytt var að. ^ Ég vil segja það, og það | munu ffleiri taka undir orð • mín, að ef launþegar og al- menningur í þessu landi hef- ur lifað jólakökulífi, sem er 4 þó ekki nema sæmilegt líf, ^ þá hefur háttvirtur fjármála- *■ ráðherra og hans fylginautar lifað rjómatertulífi og vel það. Homstrandir: Þetta er meira en mynd. Þetta er heil saga, heimild um þessi gömlu frumstæðu áhöld, stórviðar- sögina, bjargvaðinn, handfær- ið, tréílátin, heimatillbúnu ■ þvottaklemmumar, og síðast, | en ekki sízt gamla prestinn I snússa sig ánægðan með sitt • hlutskipti nyrzt á hjara ver- aldar. Villta gresjan: Þessi mynd, eins og allar hinar af grið- löndum villidýra, var skín- andi góð og skemmtileg. Sagan af Lois Pasteur: Þetta var saga eins mesta velgjörð- armanns mannkynsins, föður . - sýklafræðinnar, baráttu hans ■ við þröngsýni annarra og | verðskuldaðs sigurs að 3ok- B um. Oft hefur sjónvarpinu ■ tekizt sæmilega með val löngu myndanna, stundumvel, en aldrei betur en með þessa mynd. Magnús Jóhannsson frá Hafnarnesi. | ! ! I ! ! I RÖGNVALDUR HANNESSON: Lokadagur réttarhald- anna í Hróarskeldu 30. nóvember — 1 morgun var síðasti dagur réttarhald- anna í Hróarskeldu, nema hvað á morgun verður kveðinn upp dómur. Um hann munu les- endur Þjóðviiljans væntanlega hafa fræðst þegar þessi grein birtist, því fréttaskeyti eru fljótari í förum en hraðbréf frá Skandinavíu. Þetta verður því síðasta grein mín frá rétt- arhöldunum. Lögfræðingamir Mehmet Ali Aybar þingmaður frá Tyrk- landi og fyrrum prófessor í al- þjóðarétti í Istanbúl, og Leon Matarasso frá Italíu, fluttu lög- fræðilegar skýrslur um þjóð- armorð. Verknaður sá er jafn- gamall mannkyninu. Áður fyir var barizt upp á líf og dauða um auðævi jarðarinnar, og þeir óvinanna sem lifðu af ósigur- inn voru annaðhvort drepnir eða hnepptir í þrældóm. Úr sögunni þekkjum við krossferð- imar og hinar grimmilegu trú- arbragðastyrjaldir. AHlir kann- ast við atferli nazista árin 1933 — 1945. Þó er liðlega öld síðan því var fyrst slegið föstu á al- þjóðlegum vettvangi að árásar- styrjöld væri ólögmætt atferii. Þjóðabandalagið sálaða ogSam- einuðu þjóðirnar bannlýsa á- rásarstyrjöld, og Haag-sáttmál- amir frá 1899 og 1909 tryggja bæði óbreyttum borgurum og hermönnum ákveðin réttindi í stríði. Ýmsar fleiri alþjóðasam- þykktir eru tiil um hemað, en ýmsar þeirra hefur Bandarikja- þing ekki staðfest. Mataresso taldi þó, að Bandaríkin væru engu að síður bundin af þess- um samþykktum, að svo miklu leyti, sem um væri að ræða viðteknar venjur meðal siðaðra þjóða. Auk þess þyrfti að að- hæfa lögin breyttum aðstæðum í veröldinni. Þjóðarmorð er samkvæmtal- þjóðalögum útrýming ákveðins þjóðflokbs eða kynþáttar með drápi einstaklinga, brottflutn- ingi þeirra, eða með því að gera þeim ófært að auka kyn sitt. Um þjóðarmorð getur ver- ið að ræða þótt útrýmingarað- gerðir beinist aðeins að hluta af ákveðinni þjóð — eða kyn- flokki. Athygli skal vakin á því, að í Nurnberg-réttarhöldunum kemur orðið „þjóðarmorð“ að- eins fyrir í ákæruskjölunum, en í dómnum eru nazistaforingj- amir sakfelldir fyrir „glæpi gegn mannkyninu“. Lelio Basso, prófessor íþjóð- félagsfræði við háskólann í Róm, flutti yfirlitserindi um þessa aðra umferð réttarhald- anna fyrir hönd þeirra, sem eiga sæti í dómstólnum. Hann taldi réttarhöldin hafa borið mikinn árangur, blöð og önnur fjölmiðlunartæki tækju þau nú mun alvarlegar en verið hefði í upphafi. Dómstólllinn hefði safnað saman mjög mik- ilvægum gögnum um Vietnam- stríðið, og rannsóknarnefndim- ar, sem farið hefðu tiil Vietnam og fleiri landa á vegum hans, hefðu unnið ómetanlegt starf. „Á hverjum einasta degi er verið að fremja stríðsglæpi í Vietnam“, sagði Basso. Hann taldi upp helztu vinnubrögð og vopn Bandaríkjamanna, sem vöröuðu við alþjóðalög. Pynd- ingar og dráp stríðsfanga. Dráp og nauðungarflutningur á ó- breyttum borgurum, konum og bömum. Gas- og eiturefnahern- aður. Byssan M16, sem „special forces“ nota og hefur svipuð og verri áhrif en dúm-dúm- kúlur. Napalm- og fosfór- sprengjumar. Stálkúlu- ognála- sprengjumar. Hann minnti á, að dómstóllinn í Nurnberg hefði ekki aðeins byggt dóma sina á alþjóðaHögum, heldur og því, að vissar athafnir væru í eðli sínu glæpsamlegar. Basso lauk máli sínu með nokkrum orðum um það, hvers- vegna fólki á Vesturlöndum gengi svo afskaplega illa að skilja þetta stríð. Á Vestur- löndum lifir ennþá góðu lífi þjóðsagan um Bandaríkin sem útvörð frelsis og lýðræðis. En við verðum að skyggnast á bak við hulu áróðursins til aðfinna það, sem komið hefur þessu stríði af stað. Bandaríkin haía gjörbreytzt frá þvi sjálfstæðis- yfirlýsingin var samin. Þau eru ekki lengur landbúnaðar- land heldur öflugt iðnaðarstór- veldi. Útþenslustefnan er eðliO þess og hefur lengi verið. Cleveland forseti komst svo að orði 1893: „Monroe-kenningin hefur nú gert sitt gagn. Vilji Bandaríkjamanna er nú lög hvar sem er í Vesturálfu". Síð- an hefur þetta stórveldi ætíð haldið áfram að víkka út efna- hagsleg landamæri sín. Helzti óvinur þess eru sósíalísku rík- in vegna þess að þau eru ekki opin fyrir bandarísku auð- magni, og það hefur ekkifrelsi til að hagnýta sér markaði þeirra. Þessvegna eru sósíah'sku ríkin ófrjáls heimur, en öll einræðisríki á markaðssvæði Bandaríkjanna frjáls. Þess- vegna má ekki vietnamska þjóðin sameinast undir forustu Ho Chi Minh þótt hún viilji það sjálf. Þessvegna lenda framfarasinnaðir leiðtogar eins og Castro og Arbenez í ónáð hjá Bandaríkjunum. Þessvegna steypa afturhaldsklíkur með stuðningi Bandaríkjanna frjáls- lyndum vinum þeirra eins og Juan Bosoh, Goulart og Pan- andreú. Æðsti draumur Banda- ríkjamanna er að flytja hinn bandaríska lífestil til annarra þjóða, en raunsæi kaupsýsl- unnar er þó ætíð á bak við. Þessi einkennilega blanda hræsni og hunzku er afekaplega áberandi í bandarísku þjóðfé- lagi í dag. Eins og John Quins- ey Adams sagði, þegar hann vildi fara að kristna Kínverja og Bandaríkin villdu á sama tíma ná undir sig mörkuðum Asíu: „Kristindómurinn er grundvöllur verzlunarinnar, hún byggist á hinni kristnu reglu, að menn breyti við aðra eins og þeir vilja, að breytt sé við sig“. Og undir þessum lestri verð- ur mér hugsað til tjörutunnu, sem ég fann uppi í öskjuhlfð einn sólskinsdag fyrir rúmum tveimur árum. Hún var áfyllt í Texas, en tjörukompanfið sagð- ist hafa sambönd um allan hinn frjálsa heim, og lét fylgja kort af honum til skýringar. Lundi, 30. nóv. Rögnvaldur Hanncsson. * X 1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.