Þjóðviljinn - 04.01.1968, Blaðsíða 10
Clifford Jordan
leikur hjá MR
f kvöld mun hinn þekkti
tenórsaxófónleikari Clifford Jor-
dan Ieika í Menntaskólanum í
Reykjavík á vegum listafélags
skólans.
Jordan sem er 36 ána gamall,
hefur leikið með ýmsum fræg-
ustu jazzleikurum eftirstríðsár-
anna svo sem Max Roach, Hor-
ace Silver og J. Johnson. Jordan
er meðal hinna betri tónlistar-
manna af Sonny Rollins skól-
anum.
I kvöld leikur hann með þeim
Þórami Ölafssyni, píanó, Sigur-
birni Ingþórssyni, bassa Pg Pétri
östlund, sem leikur á trommur.
Stérðukin umferð
um KeflavíkurviM
r ■
ari {
Flugtök og lendingar á Kefla-
víkurflugvelli voru á sl. ári sam-
tals 66.168 en voru á árinu 1966
alls 58.069 að því er flugvallar-
stjórinn á Keflavíkurflugvelli
skýrði Þjó'ðviljanum frá í gær.
Lendingar farþegaflugvéla voru
2654 á móti 2480 árið áður.
Um völílinn fóru 269.442 far-
þegar en 213.179 árið 1966.
Vörufiutningar um flugvöllinn
jukust úr 1.156.438 kg. árið 1966
í 1.601.507 kg. árið 1967. Póst-
fiutningar jukust sömuleiðis úr
339.083 kg. árið 1966 í 507.841 kg.
árið 1967.
Fimmtudagun 4. janúar 1968 — 33. árgangur — 2. tölublað.
Lögreglufélag Reykjavíkur:
Vítír harðlega frá-
vísun Kjaradómsins
Kalt og hörkulegt veður
þessa dagana um land allt. Mikil norðanátt hefur
verið frá áramótum að kallla og sjaldgæfar frost-
hörkur. Fyrir norðan hefur víða verið hríð en bjart um sunnanvert landið en hins vegar nokkur
snjór eins og meðfylgjandi mynd sýnir en hún er tekin framan við stjórnarráðið við Lækjargötu
, nú cftir nýárið. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
Ætíar ríkisstjórnin að svíkja fyrir-
heit um starfsstyrki tii iistamanna?
Íhaldið og Alþýðuflokkurinn felldu tillögu Gils Guðmundssonar og
Magnúsar Kjartanssonar um hækkun listamannafjár í 7-8 milj. kr.
A fjölmennum fundi í Lög-
reglufél. Rvíkur sem haldinn var
28. des. 1967, voru geröar eftir-
farandi samþykktir:
„Fundurinn vítir harðlega frá-
vísun Kjaradóms i kjaradóms-
málinu nr. 4/1967, Lögreglufélag
Reykjavíkur gegn borgarstjóran-
um í Reykjavík, fyrir hönd Borg-
arsjóðs.
Fundurinn telur, að Kjaradóm-
ur hafi notað hæpin rök um mis-
tök á málsmeðferð, sem ljóst er
að enga þýðingu höfðu, til að
skjóta sér undan að Ieggja dóm
á ágreiningsatriði málsins, sem
báðir málsaðilar óskuðu þó eftir
að gert yrði.
Vegna þessarar. frávísunar
Kjaradóms telur fundurinn, að
kjaradeilan sé óleyst, og beri því
að halda samningum áfram.
Fundurinn bendir á, að það
gæti haft alvarlegar afleiðingar,
ef ekki tckst að leysa deilu þessa
á viðunandi hátt nú á næstunní.
Þvi telur fundurinn, að samn-
ingaviðræður milli Lögreglufé-
Iagsins og Reykjavíkurborgar eigi
að taka upp að nýju, og reyna
til þrautar að ná samkomulagi.“ .
„Pundur Lögreglufélags Rvík-
ur, haldinn 28./12. 1967 samþykk-
ir að fela stjórA L.R. að kanna
möguleika á að losna undan
Kjaradómi, og verði talinn mögu-
leiki á því, skal hún láta fara
■ 1,1 1 I ; ... ' 1- • -í. 1 Vk íþ: vv.
fram allsherjaratkvæðagreiðslu í
félaginu um það mál, og í siðasta
lagi um leið og næst fara fram
kosningar til stjómar L.R.“
□ Þegar lögin um listamannalaun voru sett á sl. ári
var gefið um það fyrirheit af stjórnarinnar hálfu að hrund-
ið yrði í framkvæmd einu helzta áhugamáli listamanna-
samtakanna á því sviði, starfsstyrkjum til listamanna. sem
gerði þeim kleift að vinna tvö-þrjú ár að tilteknu verk-
efni eða verkefnum. Við afgreiðslu fjárlaganna rétt fyrir
jólin átaldi Gils Gúðmundsson að ekkert hefði orðið úr
framkvæmdum þessa loforðs.
□ Jafnframt mælti hann fyrir breytingartillögum sem
hann og Magnús Kjartansson fluttu um hækkun lista-
mannafjárins. Lögðu þeir til að það yrði hækkað úr rösk-
um fjórum miljónum í átta. Sú tillaga var felld við 2. um-
ræðu. Einnig var felld tillaga sömu þingmanna við þriðju
umræðu fjárlaga að hækka listamannaféð í sjö miljónir
króna, og voru það þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Al-
þýðuflo'kksins sem felldu tillögurnar.
í umræðunum sagði Gils m.a.:
Þriðja breytingartillaga okkar
er við Hðinn listamannalaun.
Ég skal ekki að þessu sinni fara
um það mál ýkjamörgum orðum,
ég hef gert það alloft, og raunar
flest þau ár sem ég hef setið hér
Jólatrés-
skemmtm í
Tjarnarfötu 28
★ Jólatrésskemmtim fyrir
börn verður haldin á vegum
Sósíalistafélags Roykjavíkur
og Kvenféllags sósíaUsta að
Tjamargötu 20 næstkomandi
sunnudag. Skcmmtunin hefst
klukkan þrjú og vrerða að-
tröngumiðar seldir vift inn-
ganginn á kr. 50 stk.
★ Tll skemmtumar verftur:
I Leikir sem Vilborg Dagbjarts-
dóttir stjómar, einnig segir
hún bömunnm sögu. Gengift
verftnr í kringum jólatré og
jólasveinn kemur í heimsókn.
Sigursveinn D. Kristínsson
leikur jólalög og sýnd verft-
1 ur kvikmynd.
á þingi, og reynt, eftir minni
getu, að færa rök að því, að Al-
þingi beri að styrkja listamenn
bæði myndarlegar heldur en það
hefur gert, og þó sérstaklega á
þann veg, að það koimi bæði
listamönnunum sjálfum og þjóð-
félaginu að þetri og meiri not-
um, en þær fjárveitingar hafa
oft og tíðum komið sem hafa þó
verið veittar og jafnan af mjög
skomum skammti.
A síðasta AJþingi voru loksins
sett lög um útihlutun Hstamanna-
launa, en slík úthlutun hafði þá
farið fram árum saman, án þess
að þar um gilti löggjöf. Ég gerði
í fyrra ýmsar athugasemdir við
þessa löggjöf og tell hana engan
veginn fullnægjandi, en lít þó
svo á, að svö framarlega, sem
heildarupphæðin til listamanna
yrði hækkuð allverulega, mætti
að sinni una við þessa löggjöf og
þá væri hún ef til vill betri held-
ur en ekki neitt. Aðalatriðið er
að sjálfsögðu, að um sé að ræða
það stóra heMdarupphæð, að hún
kornii að einhverju gagni.
Ég get ekki látið hjá lfða að
minnast á eitt atriði, sem fram
kom í greinargerð ríkisstjórnár-
innar fyrir frumvarpinu um lista-
tmannalaun í fyrra og ég hygg, að
einnig hafi komið fram 4 rasðu
menntamálaráðherra fyrir því
frumvarpi. Þar var að því vikið
að ætlunin væri auk hinna al-
i mennu iistamannalauna, sem þá
voru mjög lítið hækkuð, stóðu
hér um bil í stað, væri ætlun
ríkisstjórnarinnar að verða við
þeim óskum og kröfum, sem
fram höfðu komið að veita fljót-
lega nokkurt fé til svo nefndra
starfsstyrkja listamönnum til
handa. En á það hafði verið bent
af ýmsum, að nokkurt fjármagn
til slíkra starfsstyrkja, sem út-
hlutað væri ekki ósvipað eins og
á sér stað um styrki úr vísinda-
sjóði, ætti að geta komið að
verulegum notufn. Þá er við það
átt, að Hstamenn, sem þegar hafa
sýnt getu sína eða a.m.k. sýnt
að þeir eru listamannsefni, fái
j tækifæri til þess aft vinna til-
tckinn tíma, 2-3 ár, skyldi mað-
ur scgja, aft ákveftnum vcrkefn-
nm og styrkir til þeirra miðist
vift þaft, að þeir geti skilað til-
tcknum verkefnum á tilteknum
tíma.
Ég kannast ekki við að þetta
fyrirheit, sem ég vil kalla svo i
greinargerð frumvarpsins um
BLAÐ-
DREIFING
Þjóðviljann vantar
blaðbera í eftirtal-
in hverfi:
Hverfisgötu neðri,
Hverfisgötu efri,
Múlahverfi,
Miklubraut,
Voga I.,
Óðinsgötu,
Laufásveg,
Háskólahverfi,
Tjaraargötu,
Rauðalæk.
ÞJÓÐVILJINN
Sími 17-500.
listamannalaun og í rasðu
menntamálaráðherra hafi verið
efnt eða nokkrir tilburðir séu
uppi enn sem komið er af hálfu
ríkisstjórnarinnar að verða við
þessu. Við Ðutningsmenn teljum
m.a. með tilliti til þessa, að
eðlilegt væri, að Alþingi hækk-
aði nú allmyndarlega þessa upp-
hæð til listamanna, og að hluti
af þeirri hækkun geti þá farift
til þeirra starfsstyrkja, sem rík-
isstjórnin er í rauninni búin að
gefa fyrirheit um, en ekki hefur
enn orðið annað en fyrirheitið.
Við leggjum til, að upphæðin
verði nokkurn vegin tvöföilduð
eða í staðinn fyrir 4 miljónir og
80 þús. kr. komi 8 miljónir kr.
Fél! á hálku
Það slys varð í gærdag að 67
ára gömul kona féll á hálku
í Bankastræti. Kvartaði hún um
þrautir í mjöðm og var flutt á
Slysavarðstofuna.
Um 350 manns biðu í gær
fíugfars á Akureyri suður
Flugsamgöngur innanlands hafa
verið heldur stopnlar um ára-
mótin vegna veðurs. Til dæmis
biðu 350 manns eftir flugfari
frá Akureyri til Reykjavíkur í
gær og nær 100 manns biðu
flugferðar norðnr.
Þjóðviljinn aflaði sér í gær
upplýsinga um innanlandsflug
Flugfélags íslands undanfama
daga. í gær hafði ekki verið
flogið til Akureyrar síðan á
gamlársdag. Lokað var hjá Flug-
félaginu á nýársdag og ekki var
hægt að fljúga í fyrradag til
Akureyrar vegna veðurs. í gær
kl. 4.30 var þó hægt að fljúga
norður til Akureyrar og var á-
ætlað að fljúga 5 ferðir þang-
að í gærkvöld og flytja alla þá
sem biðu fars.
Ekkj hafði verið flogið til
Vestmannaeyja síðan 28. des-
ember og ekki flogið þangað í
gær vegna veðurs. Flogið var til
Egilsstaða i fyrradag og var það
'eina ferð Fí innanlands þann
daginn. En í gær var ekki hægt
að fljúga þangað.
Áætlað var að fljúga tvisvar
til ísafjarðar í gær en þangað
var ekki flogið í fyrradag.
í gær fór flugvél af stað til
Homafjarðar en varð að snúa
við og lenda á Fagurhólsmýri
vegna slæmra veðurskilyrða. í
Fmmhald á 7. sfðu.
Vöruskiptajöfnuðurinn var
óhagstæður um 2.8 miljarða
□ Þjóðviljamim barst í gær bráðabirgðayfirlit Hagstofu
íslands -um vöruskiptajöfnuðinn í nóvember sl. svo og frá
áramótum til nóvemberloka. Var vöruskiptajöfnuðurinn á
þessum 11 mánuðum síðasta árs óhagstæður um 2,8 milj-
arða króna en á sama tíma árið 1966 var hann óhagstæð-
ur um 1 miljarð króna.
1 nóvember var vöruskiptajöfn-
uðurinn óhagstæður um 411.7
milj. kr. en var í sama mán-
uði í fyrra hagftæður um 2.4
milj. kr. Við þessar tölur er þó
það að athuga, að með innflutn-
ingnum í nóvemher 1967 er reikn-
aður innflutningur á skipum og
flugvélum á tímabilinu frá 1.
júlí til 30. nóv. Er innflutning-
ur skipa og flugvéla venjulega
| aðeins tekinn á' skýrslur tvisv-
1 ar á éri, þ.e. í júní og desemher,
en að þessu sinni var hann tek-
inn með í nóvember, þar eð inn-
og útflutningur er allur reikn-
aður á gamla genginu til nóvem-
berloka 1967, en eins og kunnugt
er kom nýja gengisskráningin til
framkvæmda 27. nóv. Frá 1. des-
ember verða tölur um utanríkis-
verzlunina hins vegar miðaðar
við nýju gengisskráninguna.
Frá 1. janúar til 30. nóv. 1967
voru alls fluttar inn vörur fyrir
6 miíjarða, 569,4 miljónir króna
(6 miljarða, 111.1 milj. kr. 1966).
Útflutningurinn á sama tímabili
nam hins vegar aðeins 3 miljörð-
um, 765.0 miljónum króna (5
miljörðum, 103.0 miljónum króna
1966). Sést af þessu að innflutn-
ingurinn hefur aukizt frá árinu
áður um 458 milj. króna, en út-
flutningurinn hins vegar mink-
að um 1 miljarð, 338 miljónir
Til nóvemberloka 1967 höfðu
verið flutt inn skip fyrir 433.4
miljónir króna (104.3 árið 19661.
og flugvéHar fyrir 233.1 milj. kr.
(284.4 milj. kr. 1966). Þá hafði á
sama tíma verið flutt inn vegna
Búrfellsvirkjunar fyrir 145.7 mili.
kr. (124.2 milj. kr. 1966). Inn-
flutningur vegna álbræðslunnar í
Straumsvík hefur hins vegar ekki
enn verið tekinn á skýrstu.
Visfmenn á Grnnd
og JUi 447 í
árslok 1967
Þjóðviljanum hefur borizt yfir-
lit frá Elli- og vistheimilinu
Grund um vistmenn þar á liðnu
ári. í ársbyrjun voru á stofnun-
inni alls 370 vistmenn, 277 kon-
ur og 93 karlar en í árslok voru
vistmenn kins vegar 378 eða 8
fleiri en í ársbyrjun, 286 konur
og 92 karlar.
Á árinu komu 133 nýir vist-
menn, 98 konur og 35 karlar,
54 fluttu af stofnuninni, 42 kon-
ur og 12 karlar, og 17 vistmenn
létust á árinu, 47 konur og 24
karlar.
Á dvalaiheimilinu Ási í Hvera-
gerði voru í ársbyrjun 46 vist-
menn, 23 konur og 23 karlar en
á árinu fjölgaði vistmönnum þar
um 23 og voru þeir 69 í árslok,
36 konur og 33 karlar. 75 nýir
vistmenn komu á árinu, 52 konur
og 23 karlar, en 52 fóru af heim-
ilinu, 39 konur og 13 karlar.
1 árslok 1967 voi*u vistmenn á
báðum stofnununum því 447 tals-
ins og hafði fjölgað um 31 á
árinu.
i