Þjóðviljinn - 28.01.1968, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 28.01.1968, Qupperneq 4
4 SfÐA — ÞJÓÐVIUINN — Sunnudagur 28. janúar 1968. tJtgefandi: • SameiningarflokKui alþýðu - Sósialistaflokkurlnn. Ritstjórar: ívar H. Jónsson (áb.). Magnús Kjartansson. Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson Framkvstj.: Eiður Bergmann Ritstjórn. aígreiðsla. auglýsingar prentsmiðja: Skólavörðustig 19. Simi 17500 (5 linur). — Áskriftarverð kr. 120.00 á mánuði — Lausasöluverð krónur 7,00. Fram á nöfína • jgnn er vopnabraki Bandaríkjastjórnar ætlað að sanna mannkyninu að valdamenn herveldisins séu þess albúnir að fara fram á fremstu nöf ef ekki fram af — og hefja nýja styrjöld. Sennilega treysta engir menn í heiminum nema ritstjórar Morgunblaðsins því að rétt sé skýrt frá í tilkynn- ingum Bandaríkjastjórnar um Pueblo-atburðinn, töku njósnaskipsins við strönd Norður-Kóreu. Svo rækilega hafa stjómarvöld Bandaríkjanna merkt sig sem ósannindamenn um atburði í alþjóðannál- um,.að það eru löngu orðnar sögulegar staðreynd- ir. Þannig er nú fjallað um íhlutun Bandaríkja- manna og njósnakerfa þeirra í innanlandsmál annarra ríkja, þegar nokkuð líður frá. Frjáls- lyndum, löglegum ríkisstjórnum hefur verið steypt með samspili Bandaríkjamanna og keyptra leppa í herklíkum og afturhaldsherbúðum margra landa. Því er ekki lengur neitað um stjórn Mossadeghs í íran eða íhlutun Bandaríkjanna í Guatemala. í byrjun innrásarinnar á Kúbu var einn virðuleg- asti stjómmálamaður Bandaríkjanna látinn standa ljúgandi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um málið, enda þótt vitneskjan um hlutdeild og sam- sekt bandarískra stjómarvalda yrði öllum heimi Ijós nokkrum dögum síðar. Komið hefur í Ijós að atburðurinn í Tonkin-flóa sem réttlæta átti stór- aukna þátttöku Bandaríkjanna í Víe'tnamstríðinu er vægast sagt gmggugt tilefni, sem illa þolir nán- ari athugun. Og þessa dagana koma Bandaríkin og önnur ríki Atlanzhafsbandalagsins með viðurkenn- ingu á silfurdiski til fasistastjómarinnar grískn sem hrifsaði völdin til að afstýra kosningasigri frjálslyndra afla Grikklands. Við skulum bíða nokkur ár, hver veit nema það verði þá líka orðin söguleg staðreynd að bandarísk stjórnarvöld og Atlanzhafsbandalagið hafi raunar ekki einungi" vitað fyrir valdarán grísku fasistanna, heldur hafi líka lagt á ráðin. v Me« fortíð Bandaríkjastjómar, yfirgangsstefnu og ofbeldisaðgerðir, í huga hljóta allar yfirlýs- ingar hennar um Pueblo-atburðinn að vekja tor- tryggni, enda hefur það komið glöggt fram í heimsblöðunum undanfarna daga. Margir virðast reikna með að Bandaríkjastjórn segi það eitt í mál- inu sem hún telji sér henta. Enda er tilhugsunin um hinar geysivíðtæku njósnir, sem Pueblo-at- burðurinn minnir á, og þá ekki síður flugvéla- flota Bandaríkjanna með kjamorkusprengjur á sí- felldu flugi yfir höf og lönd óhugnanlegt umhugs- unarefni. Ljóst virðist af fregnum danskra blaða að Bandaríkjastjórn hafi haft að engu samninga við ríkisstjóm Danmerkur um að fljúga ekki með kjamavopn yfir dönsku (grænlenzku)/ landi eða landhelgi. Hver þjóð, sem er svo ólánssöm og and- varalaus að hafa leyft bandarískar herstöðvar í landi sínu, getur átt á hættu nauðlending eða aðr- ar lendingar bandarískra flugvéla með kjamavopn eða „heimsóknir“ kjarnavopnakafbáta í hafnir sínar. Og enginn getur um það sagt hvort af slík- um óheillaheimsóknum geti ekki verið hætta á stórfelldri geislavirkni eða jafnvel kjamorku- sprengipgu, ef slys yrði. — s. Ólafur Björnsson ln memoriam — >að er ekki á neinn rýrð kastað, þegar nú er svo mælt, að íslenzk læknastétt sér í dag á bak einum sinna beztu manna Ólafur Björnsson var góður maður. Hann var göfugur mað- ur. Hann var framsýnn, íhug- ull, úrræðagóður, vinur vina sinna, læknir sjúklinga sinna. Margir verða til þess að rita minningu hans. Hér er aðeins stutt, persónuleg kveðja. Þegar Ólafur Björnsson hóf, læknisstörf sín að Hellu 1956. gerði hann það með þeim hætti, að nýstárlegt mátti teljast hér á landi, þótt ekki sé lengra um liðið. Hann kom þar upp rannsókna- og lækningastöð með nýjum hætti; ég má segja frummynd þess, sem 'nú vakir fyrir þeim, lærðum og leik- um, sém vilja koma upp lækna- stöðvum í dreifbýli og þéttbýli. Þar lýsir sér framsýni Ólafs, dugur og samvizkusemi, að þessa stöð sína rak hann einn saman um meira en áratug með því sniði, sem nú er loks að verða ljóst, að sé úrræðið til lausnar heilbrigðjsþjónustu dreifbýlisins. Nú skilja þó all- ir, að slík starfsemi verður að vera margra manna. í félagsmálum lækna var Ól- afur á Hellu jafnan sá, sem leitað var til. er vandi var á ferðum. Þaðan fór enginn bón- leiður. en allir bættir. Starf Ólafs náði alþjóðavettvangi. þótt fáum sé kunnugt, og var hann einn af virtustu starfs- mönnum Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar á sínu sviði. Siðustu stórverk Ólafs voru tillög hans til Læknaráðstefn- unnar í nóvember s.l., umfangs- mikið starf og skýrsla fyrir Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunina og loks það, sem við læknar munum ávallt minnast hans sérstaklega fyrir: Endursamn- ing siðareglna lækna. Megi sem flestir bera gæfu til að þekkja starf Ólafs Björnssonar og láta sér það að leiðsögn verða: þá er eigi örvænt- Ásmundur Brekkan. 1 Kínverjar sagðir selja físta- verk úr landi í stórum stíl Sovézka fréttastofan APN skýrir frá því að ein af afleið- ingum nienningarbyltingarinn- ar kínversku hafi verið sú að tekið sé að selja úr landi í stór- um stíl gömui kínversk Iista- verk og handrit. Fréttastofan hefur þetta eft- ir japönskum blöðum. Segja þau að eftir að menningarbyltingin hófst hafi um 35 þúsupd safn- gripir sem hafi mikið sögulegt og listrænt gildi verið seldir frá Kína til Japan. Þá hafi Japamr og keypt handrit kínversk sem ekki verði metin til fjár. Þannig segir blaðið Mainiti frá japönskum listaverkasala, Harada að nafni, serri hafi heimsótt söfn í Kanton. sem hafa verið lokuð vegna mfenn- ingarbyltingarinnar, og fengið ' af kaupa þar mjög dýrmæta hluti fyrir lítið fé. Hafi Harada gert samning um kaup á þús- undum gripa til viðbótar þeim sem þegar eru komnir til Jap- ans. Fréttastofan tengir þessar söl- ur við barátfu Rauðra varðliða gegn gömlum siðum og gamalli menningu — en áður hafi for- ystulið Kínverska allþýðulýð- veldisins lagt mikið kapp á að varðveita hinn forna menning- ararf. Næsti hiartatnegi Norfrnaður? OSLO 26/1 — Allt er nú reiðu- búið fyrir hjartaflutning í Nor- egi ef með þarf. Slík aðgerð mun væntanlega fara fram undir leiðsögn próf. Leifs Efskinds við Ríkissjúkrahúsið og mun stór hópur norskra lækna og sérfræðinga verða honum til aðstoðar. Próf. Efskind segir í blaða- viðtali að ef ljóst verði, að aðeins nýtt hjarta geti bjarg- að sjúklingi og hægt verði að fá slíkt hjarta þá muni verða lagt í aðgerðina. Við höfum, sagði prófessorinn, þegar gert tilraunir með að græða ný hjörtu í hunda og við fáumst nú við víðtækar rannsóknir á ónæmi í sambandi við slíkár aðgerðir. ..... " - -- — - —- - -v- , . . ... .J KOMMÓÐUR — teak og eik Húsgagnaverzluit Axels Cyfólfssonar Félag j ámiðnaðarmanna Allsherjaratkvæðagreiðsla Ákveðið hefur verið að viðhafa allsher jarat- kvæðagreiðslu um kjör stjómar og trúnaðar- mannaráðs Félags jámiðnaðarmanna fyrir næsta starfsár. Freátur til að skila tillögum rennur út kl. 18.00 þriðjudaginn 30. janúar n.k. Tillögur eiga að vera um 7 menn í st'jórn félags- ins og auk þess um 8 menn til viðbótar í trún- aðarmannaráð og 4 varamenn þeirra. Tillögum skal skila til kjörstjómar í skrifstofu félagsins Skólavörðustíg 16 3. hæð, ásamt með- mælum a.m.k. 51 fullgilds félagsmanns. Stjóm Félags jámiðnaðarmanna. VERKSTJÓRI helzt tæknimenntaður eða með reynslu í jámalögnum, getur fengið stöðu hjá okkur, ef um semst. — Sími: 4-24-80. STÁLBORG H.F. Nýbýlavegi 203, Kópavogi. Byggingavörur Nýkomið brennt og sandblásið GRENI. P.B. veggklæðning — Teak og Eik. TRYSIL-þiljur, þykkt 12 mm. VIROPAN-þiljur, óvenjulágt verð. HÚSGAGNASPÓNN i glagsilegu úrvali, svo sem Teak, Eik. Oregon Pine. Mahogni, Padouk. Palisander og Biholo. ■ Trétex, hvít áferð. —Gaboon-plötur. Hamp-plötur 8-30 mm þykkt væntanlegar mjög fljótlega. ÁSBJÖRN ÓLAFSSON H.F. Vöruafgreiðsla Skeifunni 8. Fjölbreytt og skemmtilegt tungumálanám 'i i $£» Skóli fyrir fullorðna. * Enskuskóli barnanna. Hjálparflokkar fyrir nemendur 1 framhaldsskólum. Málaskólinn MÍMIR Brautarholti 4 — Sími 1 000 4 (kl. 1—7 e.h.). Hafnarstræti 15 — Sími 2 16 55. FRÍMERKI- FRÍMFRKI innlend og erlend í úrvali. Útgáfudagar — Innstungubækur — Tengur og margt fleira. — Verðið hvergi lægra. Verzlun GUÐNÝJAR, Grettisgötu 45. UTSAIAN byrjuS MIKIL VERÐLÆKKUN. O. L. Laugavegi 71 Sími 20141. f

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.