Þjóðviljinn - 28.01.1968, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 28.01.1968, Blaðsíða 12
Sakamenn á Þingvöllum. Lengst til vinstri er Jón Hreggviðsson Arnas Arnæus, Árni Magnússon (Rúrik Haraldsson) og Etatsráðið -Jón Hreggviðsson (Róbert Arnfinnsson) gengur á fund Snæfríðar (Róbert Arnfinnsson) og við hlið hans stendur sakamaður lcikinn (Ævar Kvaran) (Sigríður Þorvaldsdóttir) og biður hana að bjarga lífi sínu öðru af Sigurði Skúlasyni. Nenni stendur illa við stóru orðiu RiÖM 26/1 —■ Litlu munaöi að til stjórnarkreppu kæmi á ítalíu vegna þess að sósíalistar undir forustu Nennis höfðu krafiztþess að opinber rannsókn færi fram á samsæri um valdatöku hersins á Italíu i júlí 1964. Stærsti flokk- ur stjórnarinnar, kristilegir demó- kratar, höfðu hótað stjórnarslit- um ef' sósíalistar héldu fast við kröfu þessa, og fór svo að þeir létu undan. Háttsettir menn úr flokki kristilegra voru sagðir viðriðnir samsærisáformin. HáskóledeHdum s Madrid fækkar MADRID 26/1 — Lögreglan réðst í dag inn í læknadeild háskólans í Madrid eftir að stúdentar höfðu barizt við 'iana með grjóti og vatni. Sagt er að 42 stúdentar hafi verið teknir og deildinni lokað. Stúdentar höfðu einmit.t haldið bannaðan fund til aðmát- mæla lokun heimspeki- og hag- fræðideilda skólans. Nýft heimsmet Snæfríður íslandssól (Sigríður Þorvaldsdóttir) og Arnas Arnæus (Rúrik Haraldsson) I Skálholti. (Ljósm. Þjóðv. A.K.). NEW YORK 26/1 — Banda- ríkjamaðurinn Bob Seagren bætti í dag sitt eigið heims- met í stangarstökki innanhúss um þrjá sentímetra. Stökk hann 5,29 m. Seagren er 21 árs gamall stúdent og er það í sjötta sinn að hann bætir heimsmet í stangarstökki síð- an hann tók það af landa sín- um John Pennel 1966 — en þá var métið 5,19 m. Saknað við Kýpur LONDON 27/1 — ísraelsks kaf- báts hefur verið saknað á Mið- jarðarhafi síðan í gær. Brezkt og bandarísk skip hafa leitað hans í námimda við Kýpur svo og brezkar flugvélar. Kafbátur- inn hefur 65 manna áhöfn. HANNOVER 27/1 Tólf manns létu lífið er sprenging varð um 90 m. undir yfirborði jarðar í járnnámu einni í Neðra-Sax- landi. Sprengingin varð í sprengi- efnageymslu neðanjarðar. Snæfríður Islandssól (Sigríður Þorvaldsdóttir) og Eydalín lögmaður (Valur Gíslason) ' sinni. íslandsklukkan □ Myndirnar hér á síðunni tók ljósmyndari Þjóðviljans Ari Kárason á æfingu í Þjóðleik- húsinu fyrir skömmu en eins og kunnugt er verður íslandsklukkan e^tir Halldór Laxness frumsýnd þar 31. þessa mánaðar. □ Hingað til hefur íslandsklukkan verið sýnd yfir 80 sinnum í Þjóðleikhúsinu og þeir sem sáu leikritið voru urn 50 þúsund talsins. En menn gera sér engu að síður góðar vonir um mikla aðsókn að leikritinu. * Q Tólf ár eru nú liðin frá því verkið var síðast sýnt og hefur verið breytt um leikendur í flestum hlutverkum. ®------------------;----------- 107íbúiir íullgerðar í Kópavogi á sl. ári - Hafin bygging 90 íbúða á árinu □ Þjóðviljanum hefur borizt útdráttur úr skýrslu bygg- ingafulltrúans í Kópavogi um byggingaframkvæmdir árið 1967. Samkvæmt henni voru fullgerðar á árinu 107 íbúð- ir og er það 39 íbúðum færra en árið 1966. Hafin var bvgg- ing 90 íbúða á árinu og er það 5 íbúðum færra en 19S6. Yfírlit byggingafulltrúans fer hér á eftir og eru tölur frá 1966 í svigum til samanburðar. Tölur í svigum eru sambæri legar frá árinu 1956. íbúðarhús í ársbyrjun 1967 voru í bygg- ingu 478 xbúðir (529) 235.685 ^rúmm. (266.929 rúmm.). Á árinu var hafin bygging á 90 íbúðum (95) 46.890 rúmm., (37.195 rúmm.). í byggingu voru því á árinu 568 íbúðir (624) 282.575 rúmm., (304.124 rúmm.). Þar af voru fullgerðar á árinu 107 íbúðir (146) 50.612,rúmm.. (68.439 rúm- metrar). Auk þess voru i notkun í árs- lok 279 íbúðir (181) í 200 (179) ófullgerðum húsum og fokheld- ar 112 íbúðir- (233). Iðnaðar- og verzlunarhús í ársbyrjun 1967 voru í bygg- ingu 31 iðnaðar- og verzlunar- hús (34) 84.634 rúmm., (83.526 rúmm.). Hafin var bygging á 11 hús- um (6) 56.289 rúmm, (19.254 rúmm.). í byggingu voru því á árinu 42 hús (49) 140.923 rúmmetrar, (102.780 rúmm). Þar af voru 3 hus fullgerð (9) 20.345 rúrnm. (18.140) á árinu og aufc þess Framh'ald á 9. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.