Þjóðviljinn - 01.02.1968, Síða 7
i
Fimmtudagra* 1. febrúar 1968 — WÖÐVTiLJl'NN — SÍÐA J
Ríkisútgáfa námsbóka
stefnulaust rekald?
Birzt hefur í dagblöðum
greinargerð frá Ríkisútgáfu
námsbóka um nokkur atriði er
fram komu í opnu bréfi undir-
ritaðra til útgáfunnar um Nú-
tímaljóð, kennslubók saman-
tekna af Erlendi Jónssyni.
Greinargerðin er frá námsbóka-
nefnd, en í lögum er stjórn út-
gáfunnar nefnd svo. Er þarna
birt í heild bréf það er við á-
samt Eysteini Þorvaldssyni
sendum útgáfunni 20. ág. sl. en
„eftir atvikum þótti ekki ástæða
til að svara.“ Þó tekur nefndin
fram í lokin: „Útgáfunni hefur
alltáf verið þökk á bendingúm,
tillögum og gagnrýni, en því er
ekki að neita, að við kynnum
því betur, að erindi manna bær-
ust til okkar meg öðrum hætti
en í áðurnefndum bréfum."
Okkur er hins vegar ekki ljóst
með hvaða „öðrum hætti“ hægt
var að koma ábendingum á
framfæri í máli því er hér um
ræðir og útgáfan hefur ekki
leitað eftir „bendingum, tillög-
um og gagnrýnf* úr neipni átt.
Nefndin segist hafa orðið „þess
áskjmja af skrifum í blöð og
tímarit, að kennarar fengjust
við að kynna nemendum sínum
íslenzk nútímaljóð". Enginn
þeirra var þó spurður um hvað
hann teldi sig þurfa ;i hendur
til að geta náð árangri. Náms-
bókanefnd segist hafa lesið
handritið ásamt Tryggva Gísla-
syni stud. mag. Hafi þeir kom-
ið með einhverjar ábendingar,
voru þær ekki teknar til greina.
A.m.k. er þess ekki getið í bók-
inni né greinargerðinnL Ef þeir
hafa hins vegar ekki gert sér
neinar hugmyndir um bókina
er þeim mun furðulegra að ekki
skyldi leitað álits kennara og
sérfróðra manna. Eða eiga
menn að trúa því að námsbóka-
nefnd hafi engar skipulegar
hugmyndir, kunni engin skyn-
samleg vinnubrögð við gerð
námsbóka? Er hún stefnulaust
rekald? Minna má á að Óskar
Halldórsson cand. mag., fyrr-
verandi námsstjóri í íslenzku,
og prófessur Símon Jóhannes
Ágústsson, sem rannsakað hef-
ur efni lestrarbóka í skyldu-
námi og viðhorf nemenda til
þess, hafa báðir iagt til að höfð
væri samvinna sérfróðra manna
um gerð lesbóka. Um ábending-
ar okkar í þessu efni segir Ólaf-
ur Jónsson í Alþýðublaðinu 23.
jan. sl. „Áreiðanlega er þetta
rétt athugað — og er sjálf bók
Erlends Jónssonar raunverulega
bezta vitnið um að slík bók
verður ekki samin í einangrun."
Þá er eftir að útskýra hvað
veldur því að svo vonlaus
vinnubrögð voru höfð við þessa
útgáfu. Fram kemur í greinar-
gerg námsbókanefndar, að Er-
lendur Jónsson bað um þetta
verkefni og því óþarfi að sæta
neinum afarkostum frá hans
hendi. Og útgáfa sem rekin er
fyrir fé almennings og jafnan
hefur kvartað um nauman fjár-
hag hefur ekki efni á að gefa
út prívatljóðaúrval þegar skól-
ana vantar kennslubók.
Námsbókanefnd undirstrikar
í svari sínu það sem virðist eiga
að telja aðalatriði frá hennar
sjónarmiði. Það hljóðar svo:
„Mestri furðu sætir þó að þeir
leggja dóm á bók, sem þeir hafa
aldrei séð, bók, sem verið er að
prenta og kom fyrst út tæpum
þremur mánuðum síðar.“ Þessi
furða nefndarinnar er óþörf ef
hún vill skflja það að kennarar
hafa einlægan áhuga á að fá vel
unnar kennslubækur í hendur
og láta sig varða hag Ríkisút-
gáfunnar. Við höfðum fengið
upplýsingar hjá Erlendi Jóns-
syni um efni og gerð væntan-
legrar bókar og bréfið til út-
gáfunnar var auðvitað tilraun
til að hafa áhrif sem að gagni
mættu verða öllum aðilum.
Vera kann að þessar ábending-
ar hafi komið of seint, en um
það er ekki við okkur að sak-
ast. í rauninni vorum við þó
ekki að leggja dóm á óútkomna
bók, heldur vinnubrögð sem við
uggðum að leiða myndu til ó-
fullnægjandi kennslubókar.
Getur hvert skynugt barn lesið
þetta í bréfi okkar, sem við
kunnum námsbókanefnd þakk-
ir fyrir að birta.
Við hirðum ekki um að gera
hér nánari grein fyrir hug-
myndum okkar um kennslubók
í nútímaljóðum, enda eru þær
margar fram komnar í áður-
nefndum bréfum. Ástæða er þó
til að víkja stuttlega að þeirri
spurningu sem Guðmundur
Hansen varpar fram og ræðir í
Morgunblaðinu 20. jan. sl.: Þarf
að útskýra nútímaljóð? Guð-
mundur segir réttilega: „Ekkert
skáldskaparform er eins við-
kvæmt fyrir skýringum og Ijóð-
ið“. Enn fremur „f kennslustof-
unni mundu tilreiddar skýring-
ar á ljóðum binda hendur kenn-
arans. Ljóðelskur nemandl sem
fær bókina með skýringum að
hausti les hvort tveggja strax.
Verður kennslan jafn lifandi
eftir sem áður?“ Guðmundur
er hér farinn»að ræða hugtakið
skýringar í þröngri merkingu
og kemst að hárréttri niður-
stöðu. Það er hins vegar mis-
skilningur að telja að við höf-
um beðið um skýringar af þessu
tæi. Guðmundur ræðir málið
frá falskri forsendu. Upphaflega
vörpuðum við fram þessari
spumingu: „Hvers vegna eru
ekki í þessari bók skýringar, at-
hugasemdir og verkefni sem
Ftamhald á 8. síðu.
A thugasemd vii athugasemd
Tryggvi Öfeigsson útgerðar-
maður birtir í Þjóðviljanum
28AU 1967 athugasemd við
grein Georgs Viðars Bjöms-
sonar, sem var í sama blaði
22/11. Mér bárust í hendur
þessar greinar fyrir skömmu
og langar til að fara um at-
hugasemd Tryggva nokkmrn
orðum. Tryggvi segist birta
þetta vegna þeirra sem ekki
þekki til, annars sé Georg
ekki svara verður. Mig lang-
ar líka til að birta þessa at-
hugasemd vegna þeirra sem
ekki þekkja til.
„Blókin" er ekki svaraverð,
það er eins qg það sé vottur
af mikillæti þarna og satt að
segja minnir þetta mig á sög-
una af sérleyfishafanum sem
sagði ,,kúnnunum“ að halda
kjafti, er þeir báiru upp rétt-
mætar kröfur, því það væri
hann sem hefði vaídið og bfl-
ana!
Við skulum aðeins líta á
helztu póstana í athugasemd
Tryggva. „Viðhald á skipum
H *f Júpiters hefur alla tíðver-
ið eftir kröfum Skipaeftirlits-
ins og Lloyds, enda eiru skip
stöðvuð, ef ekki er farið eftir
fyrirmælum þessara aðila“,
segir Tryggvi. Þetta er rétt
svo langt sem það nær, en þvf
miður virðist þetta eftilrlit
næsta bágborið, fylgist sjó-
mennimir sjálfir ekki með að
neglugerðum þessara aðila sé
framfylgt. Því ættu állir sjó-
menn að kynna sér umræddar
reglugerðir og þá ekki sízt
skiustjómarmenn.
Ég var vélstjóri á b7v Nep-
túnusi um fjögurra mánaða
skeið á síðasta ári og satt bezt
að segja er ýrrrstr ■víðVaWi'þess
skips ábdtavant
Tryggvi segir, að borgarlækn-
ir sjái um heilbrigðiseftirlit og
kröfum hans sé fullnægt. Sé
þetta rétt, þá geta skattborg-
ararnir rólegir algjörlega spar-
að sér þetta embætti. Sem
dæmi um þrifnað má geta þess
að ekki er til nothæft bað
fyrir áhöfn skipsins, hinsvegar
hefur baðklefi afturskips ver-
ið tekinn fyrir matvæla-
geymslu, en inn af honum er
salerni og ekki útillokað að
saur og þvag berist inn íþessa
geymslu er salernið stíflast.
Ekki er úm nothæfa handlaug
þama að ræöa, þó að til þess
hafi verið ætlazt við smiði
skipsins. Þá heldur Tryggvi
því fram að tilhæfulaust sé
að látið hafi verið úr höfn
með aðeins eina nofhæfa Ijósa-
vél eða báðar Ijósavélamar
hóTfónýtar eins og Georg hafi
haldið fram. Ekki viildi ég nú
skrifa undir að þetta væri al-
gjörlega tflhæfuTaust hjá Ge-
org, og verð ég nú að skýra
örlítið frá tæknibúnaði skips-
ins til að sýna á hverju ég
byggi þessa skoðun.
Þegar hinir svonefndu ný-
sköpunartogarar komu til lands-
ins, þá voru þeir flestir með
tvo dieseldrifna rafala gerða
fyrir 80 kw álag hvor. Þó að
dieselvélar þær sem drifuþessa
rafala væru góðar, þá voru
þær að sumu leyti vanbúnar,
t.d. sjókælldar og með ófull-
kominn útbúnað tfl smurolíu-
hreinsunar.
1 Neþtúnusi er einn diesel-
diifinn 80 kw rafall og einn
50 kw rafall drifinn með eim-
vél.
80 kw gefur ca 360 amper
álag. Þegar ég kom fyrst á
nýsköpunartogarana var álag-
ið venjulega 80 — 100 A, svo
segja má að mjög vel hafi
verið séð fyrir orkuþörf skip-
anna í upphafi.
Þegar ég kom á b/V Neptún-
us í sumar leit þetta öðruvísi
út. Álagið var orðið 220—270
amp. og munaði þar mestu að
komin var rafkynt miðstöð í
framskip og rafmagnseldavél,
svo og fulllkomnari tæki í brú.
Þá er rétt að líta á hvemig
ástand hjálparvélanna var
(ljósavélanna). Vélstjórinn, sem
þama var, er að ég hezt veit
ekki tæknilærður, en hefur
hinsvegar mikla starfsreynslu
á togurum. Hann sagði mér
eins og rétt reyndist, að eim-
vélin væri naumast inothæf
vegna bilunar á gangráði. Vél-
smiðjan Héðinn vildi ekki taka
að sér að gera við hina bil-
uðu hluti, en búið var að bíða
lengi eftir þeim að utan. Mót-
orvélin var orðin útslitih og
því mjög valt að treysta henni
fyrir því mikla álagi, sem nú
var komið á rafkerfið.
. Á þessu má sjá, að ekki var
um fjarstæðu að ræða, þegar
Georg Viðar sagði: „Báðar
ljósavélarnar hálf ónýtar“.
Auk þess er eimvélin orðin
of lítil, þar sem hún fram-
leiddi ekki meira en tæp 230A
(50 kw), þótt hún væri í bezta
lagi, en venjulegt álag eryfir
þetta mark. Hins vegar er
þessi vél nothæf sem varavél.
Helztu slitfletir mótorljósa-
vélarinnar hafa nú verið end-
umýjaðir, en þrátt fyrir
290.000 kr. viðgerð gat Vél-
smiðjan Héðinn ekki skilað
henni af sér í fullkomnu lagi.
Það er hvorki Héðni né Georg
að kenna, því reynslan hefur
Framhald á 8. síðu.
Formaður húsráðs, Böðvar S. Bjamason, setur fyrstu samkomuna í hinu nýja húsi góðtemplara á
^kólavörðuhæð 14. janúar sl.
Skemmtistaður fyrir æsku-
fólk í Templarahöllinni
Mpð opnun neðstu hseðar
Templarahallar Reykjavikur á
Skólavörðuholti, má segja að
hefjjst nýr þáttur í starfsemi
Góðtemplarareglunnar í borg-
inni.
í dag, 1. febrúar, sem er helg-
aður bindindismálum um land
allt eins og kunriugt er, verður
rúmgóður, vistlegur salur á
neðstu hæð hússins tekinn í
notkun, sem almennur skemmti-
'staður fyrir æskufólk borgar-
innar. Hann er rúmir 500 rúm-
metrar að stærð og hefur leyfi
fyrir allt að 250 gesti. — Þenn-
an opnunardag hefur Samband
bindindisfélaga í skólum ai-
menna skemmtisamkonrro fyrir
ungt fólk í salnum.
Framvegis er ætlunin að sal-
arkynnin verði notuð fyrir
æskufólk höfuðstaðarms, að
mestu leyti, auk þess sem nokk-
ur hluti þeirrar starfsemf sem
rekin hefur verið í Góðtempl-
arahúsinu við Templarasund,
færist upp eftir, sem er á vegum
S.K.T. og S.G.T. — þess má og'
geta að bókasafm templara er
ætlaður staður á þessari hæð,
það er töluvert yfirgripsmikið,
og á alhnargt fágætra blaða og
bæklinga. — Hinn nýi glæsilegi
salur hefur lítillega verið notað.
ur áður. Þann 14. janúar sl. var
haldinn þar Stórstúkufundur,
og síðar 'fundur í Þingstúku
Reykjavíkur, um kvöldið var
samsæti í tilefni af fyrstu notk-
un reglunnar af húsinu; þá bár-
ust byggingunni ýmsar góðar
gjafir, frá velunnurum sínum,
t.d. húsbúnaður og ýmiskonar
tæki, nauðsynleg starfsemi
þessa nýja húsnæðis. Umdaem-
isstúka Suðurlands hefir einnig
haldið þar fund.
Minningarfundur var þar 16.
janúar um Svein heitinn Helga-
son. Hann var í byggingamefnd
hússins, og átti mikinn þátt í
að koma húsinu áleiðis.
Ungtemplarafélagið „Hrönn“
hafði skemmtisamkomu í saln-
um þann 17. s.m. Allar þessar
samkomur fóru með afbrigðum
vel fram, við húsfylli.
Um aðrar hæðir hússins er
það að segja, að á annarri hæð
er gert ráð fyrir fundarsölum
stúknanna í borginni, og skrif-
stofu Stórstúku íslands. Á
fyrstu hæð verður stór sam-
komusalur, sem ætlaður er fyr-
ir áfengislaust skemmtanahald.
Efsta hæðin er útleigð fyrst um
sinn.
Húsráð Templarahallar
. Reykjavíkur annast reksturinn,
en Æskulýðsráð borgarinnar
verður með í ráðum um tilhög-
un skemmtananna.
Ríki og Reykjavíkurborg hafa
veitt fjárstyrki fil byggingar-
innar, með tilliti til þess, að
húsinu er ætlað að bæta að
nokkru úr hinni brýnu þörf fyr-
ir áfengislausa samkomustaðL
handa ungu fólki.
Sérstakt húsráð, kosið af
Þingstúku Reykjavíkur, en for-
maður skipaður af Stórstúku
íslands, hefur séð og sér um all-
ar framkvæmdir við bygging-
una. — Formaður er nú Böðvar
St. Bjarnason húsameistari, en
framkvæmdastjóri er Kristinn
Vilhjálmsson. Aðrir í ráðinu
eru: Gunnar Árnason skrif-
stofustjóri, Haraldur S. Norð-
dahl tollvörður, Jón Hafliða-
son fulltrúi og Kjartan Ólafs-
son' fulltrúi.
Helgað
Góðtemplarareglunni
.
á fyrsta fundi hennar í Templarahöllinni
hinn 14. janúar.
Heimur í sköpun, mörgum reynslurúxrum
I
Bifreiðastjórar
í Árnessýslu gegn
hægri umferð
Á aðalfundi Vörubifreiða-
stjórafélagsins Mjölnis í Ár-
nessýslu, er haldinn var um sl.
helgi var eftirfarandi sam-
þykkt gerð:
„Fundurinn fagnar fram-
komnu frumvarpi á Alþingi
um frestun hægri umferðar í
eitt ár og að málift verfti lagt
undir þjóðaratkvæfti. Fnndur-
inn bendir á, að breytingin
yfir í hægri umferð er alger-
lega óþörf í okkar landi auk
þess sem hún ógnar öryggi
hvcrs þjóðfélagsþegns og kost-
ar stórar fjárfúlgur úr ríkis-
sjóöi á sama tíma og skomar
eru niftur fjárveitingar hins
opinbera til nauðsyntegustu
framkvæmda í landinu."
V
ritaður innst í vitund sérhvers manns,
leitandi huga, viljans vopnum búnum,
vísar þá leið, sem markar stefnu hans.
Hugsjónin skín í hverju fögru verki,
húsið vort nýja ber þess augljós merki.
Mannsandans braut á ljóss og skuggaleiðum
löng er og torsótt fraín á þennan dag.
Óskir og vonir lýsa huga heiðum
heiminn að baeta og mannsins hjartalag.
Tjöld eru fyrir takmark hinzta dregin,
trúin á lífið bendir fram á veginn.
Sannast í dag, er sigurvonir rætast,
söngur og gleði í huga vorum býr,
erfiðar stundir baráttunnar bæt&st,
blasir við augum vonabjarmi nýr.
Húsið sem viti í villumyrkri bendir,
vegarins bjarta leiðarmerki sendir.
★
íslenzka þjóð! Þann vanda að velja og hafna
veraldar reynsla leysi í þinni sál.
Kenningar þær, sem oss hér saman safna,
sýni þér leið og verði hjartans mál. ,
Hálfvelg'ja margra hugsjónina deyðir,
hrifningin trú á framtiðina leiðir.
Trúna á fegurð ókomipna alda,
algáðra manna heilbrigt samfélag,
sýnir vort merki, er hátt á loft skal halda.
Heimurinn þráir frið og bræðralag.
Hvar sem þess Ijós í framtíð fær að skfn^.
flytuT það von og trú á götu sína
Maríns Ólafsson.
i
*