Þjóðviljinn - 01.02.1968, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 01.02.1968, Blaðsíða 12
Aíþýðusambandsþingið ræddi í gær kjara- og atvinnumál Barátta óhjákvæmileg fyrir verðtryggingu og kjarabótum Fimmtudagur 1. febrúar 1968 — 33. árgangur — 26. tölublað. □ Á fundum Alþýðusambandsþings /1 gær hvöttu leiðtogar verkalýðshreyfingarinnar til ein- beittrar baráttu gegn atvinnuleysi og kjaraskerð- ingu og töldu óhjákvæmilegt að alþýðusamtökin beittu afli sínu tií að knýja fram verðtryggingu kaups og kjarabætur svo að launafólk geti lifað af dagkaupi einu saman. Skipulags- og lagamálunum var vísað til nefndar á fundi Al- þýðusambandsþings í fyrrakvöld, og stóð fundut fram á nótt. í gær hófst þingfundur kl. 4 og stóð til kl. 7. Fóru þá fram um- ræður um kjara- og atvinnumál, og voru lögð fram tvenn drög að ályktunum, annað frá Hannibal Valdimarssyni og hitt frá þrem- ur mönnum úr verkalýðsmála- nefnd þingsins, Guðmundi J. Guðmundssyni, Benedikt Davíðs- syni og Erni Scheving. Hannibal og Guðmundur fluttu raeður með ályktunardrögum sín. um og urðu svo almennar um- raeður, en málinu í fundarlok vísag til nefndar. Ræða Guðmundar J. Guð- mundssonar, varaformanns Verkamannafélagsins Dagsbrún- ar, var'um margt ein hin athygl- isverðasta og þróttmesta ræða sem haldin hefur verið á þing- inu. Gagnrýndi hann og raunar fleiri ræðumenn að miðstjórn Alþýðusambandsins skyldi ekki hafa komið saman og lagt fyrir þingið drög að ályktun um kjara- og ^atvinnumálin, heldur kæmu þau drög að því er virtist frá Hkntíibal Valdimarssyni. Þegar svo réðist, hafi þeim þremur full- trúum £ verkalýðsmálanefndinni þótt rétt að flytja önnur drög að ályktun, sem væru talsvert öðru vísi upp byggð, enda þó þeir væru efnislega samþykkir mörg- um atriðum í drögum Hannibals. Guðmundur minnti á heit- strengingu, sem fulltrúarnir gerðu á fyrri hluta þingsins: A3 verkalýðshreyfingunni bæri að beita öllu afli sínu og áhrifa- valdi til að ná fram styttingu vinnutímans án skerðingar tekna, og aukningu kaupmáttar vinnulauna, með það að mark- miði að núverandi tekjur náist með dagvinnu einni. Ári síðar en þessi einróma heit- strenging var gerð á Alþýðusam- bandsþingi verði að viðurkenna að þetta mark hafi fjarlægzt. Myndi reynast erfitt að standa t.d. í verkalýðsfélaginu Verka- mannafélaginu Dagsbrún frammi fyrir því, að( hafa með þingsam- þykktum glætt vonir vinnandi manna um bætt kjör en verða svo að játa ári síðar að markið hafi fjárlægzt sem að var stefnt. Guðmundur ræddi þvínæst ýt- arlega um atvinnuleysið í Reykjavík og úti um land, og taldi ísltyggilega margt benda til þess að stéfnt væri í meira eða minna mæli að varanlegu at- vinnuleysi, og nú þegar hefðu al_ þýðuheimilin orðið fyrir stór- felldum tekjumissi vegna sam- dráttar atvinnu. . Þetta Alþýðusambandsþing yrði að lýsa því yfir svo eftir- minnilega að eftir yrði tekið að atvinnuleysi ætlaði verkalýðs- hreyfingin ekki að þola, því með því væri stefnt í þjóðfélagsástand sem enginn vissi hvað úr yrði. Baráttuna fyrir verðtryggingu kaupsins taldi Guðmundur und- irstöðuatriði. Minnti hann á hvernig mál hefðu farið í haust, og nú færi verðlag ört hækkandi. Framhald á 3. síðu- Fimm ritstjórar leggja fram frumvarp á alþingi: Hafín sé kennsla / bhðamennsku / H! í gær var lagt fram á alþingi eftirfaxandi frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 60 7. júní 1957 um Háskóla íslands: „1. grein. Á eftir IX. kafla (40. gr.) lag- anna komi nýr kafli og ný grein, svoliljóðandi: Í»Íɧ6S§Ísil§S&: iííí . Ein af Rolls Royce flugvélum Loftleiða. Loftieiðir kaupa fimmtu Rolls-Royce — áætlunarflug byrjar 1. maí □ Loftleiðir hafa nú fest kaup á fimmtu flugvélinni af gerðinni Rolls-Royce 400. Vélina kaupa Loftleiðir af banda- ,'íska flugfélaginu Flying Tiger Line, en samningar um kaupin voru undirritaðir í fyrradag. Á næstunni verður unnið að breytingum á flugvélinni, fyrst í Los Angeles og síðan í Taipei á Formósu, en 1. maí mun hun hefja áætl- unarferðir. 1 fréttatilkynningu, sem Loft- leiðir sendu út um kaupin í gær, segir, að þessi flugvél, sem smíð- uð er af Canadair verksmiðjun- Sjómannastofa opnuðífyrra- dag á Hafnarg. 80 Keffavík Njarðvík, 31/1. — f gærkvöld var tekin í notkun sjómanna- stofa í Keflavík í húsi sjómanna- dags^áðs að Hafnargötu 80. Hús þetta er tvær hæðir og hefur fyrir nokkru verið hafinn rekst- ur matstofu á neðri hæðinni en sjómannastofan er á efri hæð- Kingston-leitin árangurslaus Leitinni að brezka togaranum ' Kingston Peridot H 591 frá Hull, eða einhverju úr honum, var haldið áfram í gær, en án ár- angurs. Var í gær leitað út af Tjör- nesi, bæði flogið og farið á skip- um og gengið á fjörur, en einskie varð vart fram yfir það sem þegar hafði fundizt: gúmbátur, þrír bjarghringir og nokkur bjárghringaljós. Tryggvi Helga- son á Akureyri flaug yfir svæðið norður af Tjömesi bg bátar sigldu kringum Mánáreyjar, en ckkert nrýtt kom í Ijós. inni. Við opnun stofnnnar skýrði Ámi Ragnar -Ámason frá því fyrir hönd sjómannadagsráðs, að stofan hefði hlotið nafnið Sjó- mannastofan Vík. Árni skýrði einnig frá ograkti að nokkru aðdraganda að kaup- um þessa húss. Þá tók til máls Guðmundur Oddsson formaður Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands og gaf sjómanna- stofunni mynd af Stjána bláa teiknaða af Eggert Guðmunds- syni. Frú Ásdís Káradóttir, for- maður Slysavamadeildar kvenna í Garði færði sjómannastofunni að gjöf 34 bækur sem_ vísi að bókasafni. Sveinn Jónsson bæjarstjóri flutti érnaðaróskir frá bæjar- stjórn Keflavíkur. Fleiri gjafir höfðu borizt, t.d. gaf Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og Njarðvfkur stofnuninni sjón- varpstæki. Áætlað er að stofari verði op- in frá kl. 14-23.30 daglega. Framkvæmdastjórar eru Vilmar Guðmundsson og Ragnar Guð- mundsson. — Ú.Þ. / um í Montreal, eins og aðrar Rolls-Royce flugvélar Loftleiða, hafi bæði verið notuð til fólks- og vöruflutninga hjá Flying Tig- er. Hún verður nú innréttuð til fólksflutninga, en við nýsmíði verður gert ráð fyrir að auðvelt verði með lítilli fyrirhöfn að breyta bannig til að unnt verði að nota flugvélina til vöruflutn- inga. Fyrstu breytingarnir, sem nú þarf 'að gera til bess að búa 160 farþegum þægilegt rými í farþegasalnum verða unnar í flugvélaverkstæðum Flying Tiger í Los Angeles, en síðar verður vélinni flogið til Taipei á FPr- mósu, en þar hefur Flying Tiger Róða reynslu af yinnu við breyt- ingar og viðhald flugvéla. Þar verður lokið við innréttinguna og þaðan verður vélinni flogið til New York síðari hluta aprílmán- aðar, n. k. Er gert ráð fyr- ir að við upphaf sumaráætlunar Loftleiða, hibn 1. mai n.k., hefji þessi nýja flugvél áætlunarferðir, ásamt hinum Rolls Royce flug- vélunum fjórum, sem fyrir eru nú í flota Loftleiða. Þá geta 916 farþegar verið samtímis í lofti í Rolls R'oyce flugvélum Loftleiða, þar sem hinar vélamar fjórar rúma 189 farþega, hver. Að svo komnu máli hefur ekki verið ráðgert að' lengja þessa flugvél ein,s og hinar fjór- ar Rolls Royce flugvélamar, sem Loftleiðir nota nú til áætlunar- ferða. Ólafur Agnar Jónasson yfir- flugvélstjóri mun af hálfu Loft- leiða fylgast með öllum þeim breytingum, er nú þarf að gera á flugvélinni, bæði vestur í Kali- fomíu og á Formósu. Fullbúin til farþegaflugs mun hin nýja flugvél Doftleiða með nokkrum varahlutum kosta um 2,5 miljónir dollara eða um 143 miljónir íslenzkar krónur. Hafa Loftleiðir komizt að hagstæðum greiðsluskilmálum. Kaupin pru gerð með góðri fyrirgreiðslu ís- lenzkra stjómarvalda, segir enn- fremur í fréttatilkynningunni, en án ríkisábyrgðar eða annarra op- inberra skuldbindinga. KENNSLA í BLAÐA- MENNSKU. Við heimspekideild skal stofua til kennslu í blaðamennsku, er fé er veitt til þess í fjárlögum, og skal kveða á um námstilhög:- un í reglugerð. 2. grein. Lög þessi öðlast þegar gildi." Flutningsmenn tillögunnar eru fimm þingmenn úr öllum flokk- um og eru þeir jafnframt allir ritstjórar við dagblöðin í Reykja- vík, þeir Sigurður Bjamason, Benedikt Gröndal, Þórarinn Þór- arinsson, Magnús Kjartansson og Eyjólfur Konráð Jónsson. í greinargerð sem fylgir frum,- varpinu segja flutningsmenn svo um tilgang þess: „Innan samtaka íslenzkra blaða hefur um langt skeið rfkt mikill áhugi á hættri menntun- araðstöðu blaðamanna hér á landi. Hefur Blaðamannafélag Islands tekið málið upp á þeim grundvelli, að stofnað skuli til kennslu í blaðamennsku við Há- skóla Islands. Hefur verið rætt um þessa hugmynd við forráða- menn háskólans og menntamála- ráðherra. Báðir þessir aðilar hafa tekið jákvætt á málinu. Af hálfu háskólans hefur að sjálf- sögðu verið bent á það, að kennsla í blaðamennsku hlyti að hafa í för með sér einhver auk- in útgjöld fyrir stofnunina. Með frumvarpi þessu er lagt til, að stofnað skuli til kennslu í blaðamennsku við heimspeki- deild háskólans, þegar fé er veitt til þess í fjárlögum. Er jafnframt gert ráð fyrir, að kveðið skuli á um námstilhögun í reglugerð. En flutningsmenn telja, að styttri námstími en 3 mánuðir komi Framhald ó 9. síðu. Enn gabbað Slökkviliðið var gabbað rétt eina ferðina í gærkvöld, að þessu sinni á Káratorg, þar sem brot- inn hafði verið brunaboði, eins og oftast þegar um gabb er að ræða. Virðast pörupiltar seint ætla að fá sig fullsadda af þess- ari „skemmtun". Engin ákvörðnn nin bandaríska floitananninn Engin ákvörðun var tekin í dómsmálaráðuneytinu í gær í málj , Bandaríkjamannsins Ge- orge M. Noells, sem leitað hefur hér hælis sem pólitískur flótta- maður, en eins og sagt var frá í blaðinu í gær flýr hann land sitt af því að hann er and- vígur stefnu Bandaríkjastjórnar í Víetnam og vill ekki gegna herþjónustu þar. íslendingar höfðu náð 200 þúsundum fyrir sl. áramót □ Þjóðviljanum barst í fyrrad. bráðabirgðayfirlit um riiannfjöldann á íslandi 1. desember sl. Samkvæmt því voru íbúar á öllu landinu þá 199.526 að tölu en í athuga- semd segir, að við endanlegan útreikning íbúatölunnar eigi eftir að bætast við um 400 börn fædd í nóvember 1967, til lækkunar komi hins vegar ýmsar leiðréttirtgar á þjóð- skránni 1. des. 1967 þannig að endanleg íbúatala þann dag muni ekki ná 200 þúsundum, hins vegar sé ljóst, ,að hún hafi farið yfir það mark fyrir áramótin síðustu. Mannfjöldinn á öllu landinu skiptist svo eftir kynjum, í svig- um endaniegar tölur ársins 1966, að karlar voru 100.930 (99.546) en konur 98.596 (97.387). Virðist munurinn á fjölda karla og kvenna alltaf fara heldur vax- andi og er nú 2334. 1 Reykjavík eru þó 1869 fleiri konur en karlar, hinsvegar eru 3695 fleiri karlar en konur í sýslunum og 454 fleiri karlar en konur í öðr- um kaupstöðum en Reykjavík. Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar var mannfjöldinn í kaupstöðunum sem hér segir 1. des. sl.: Reykjavík 79.813 Kópavogur 10.524 Akureyri 10.102 Hafnarfjörður 8.932 Keflavík 5.430 Vestmannaeyjar 5.038 Akrancs 4.177 Isafjörður Sigluf jörður Húsavík Neskaupstaður Sauðárkrókur Ölafsfjörður Seyðisfjörður 2.704 2.354 1.859 1.550 1.407 1.047 928 ' Mest hefur mannf jölgunin orð- ið í Reykjavík, þar hefur fjölg- að' um 611 manns frá 1. des. 1966, á sú tala þó væntanlega eftir að hækka uaj 200-300 þeg- arendanlegar tölur liggja fyrir. Næst kemur Kópavogur með 510 manna fjölgun og er það að sjálfsögðu hlutfallslega mun meiri aukning en í -Reykjavík. í Hafnarfirði hefur fjölgað um 377 íbúa, og er það óvenjumikil aukning þar. Á Akureyri hefur fjölgað um 159 manns en í öðr- um kaupstöðum eru breyting- Frambald á 9. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.