Þjóðviljinn - 06.02.1968, Blaðsíða 3
Þsdöjaidagiur 6. febrúar 1068 — ÞJÓÐVELJINN — SlÐA J
FLUTTIR
ÁRMÚLA
Framkvæmdanefnd hægri umferðar og Upplýs-
inga- og fræðslumiðstöð hægri umferðar hafa flutt
aðsetur sitt í Ármúla 3, aðra hæð til hægri. (Hús
véladeildar SÍS og Samvinnutrygginga)
Símarnir eru óbreyttir: 1-4465 og 1-7030
Framkvæmdanefnd hægri umferðar
Stjórnarherinn veldur mikilli
eyðileggingu í sjálfri Saigon
Arás gerð á Khe Sanh herstöðina og enn barizt í mörgum borgum
Hanoistjórnin tilbú-
in ai hefja samninga
HANOI 5/2 — Máigagn konimúnistaflokksins í Norður-
Vietnam, Nhan Dan, lét að því liggja í dag, að N-Vietnam
byggist ekki við jákvæðu svari frá Washington á næstunni
við tilboði sínu um friðarsamninga.
SAIGON 5/2 — Stórskotalið stjórnarhersins hélt
uppi harðri skothríð 1 höfuðborginni í dag, þar sem
enginn veit með vissu hvar þjóðfrelsishermenn
hafast við, né hvenær þeir muni aftur láta til sín
taka. Þó þjóiðfrelsisherinn hafi ekki á sínu valdi
nema nokkur íbúðahverfi, eru stór hverfi í Saigon
á milli víglína, þar sem lítið sem ekkert ber á
stjórnarhermönnum á auðum götunum, sem eru
fullar af rústum.
í dag gerðu ,,norður-vietnamsk-
ir“ hermenn árás á virkið Khe
Sanh, sem hófst með mikilli
skothríð, en var hrundið eftir
blóðuga bardaga.
Iðnríkin munu
takmarka þróun-
araðstoð í bráð
NÝJC DELMI 5/2 — 2500 full-
trúar 131 ríkis hlýddu í dag á
fyrstu pólitísku yfirlýsingarnar
sem gerðar eru á alþjóðaráð-
stefnunni um verzlun og þróun-
armál i Nýju Delhi.
Eftir ræður sem fluttar voru
í dag virðist það greinilegt að
iðnríkin munu veita takmarkaða
fjárhagsaðstoð, en munu veita
meiri aðstoð sem ckki er bein
fjárútlát.
Michael Debre fjármálaráð-
herra Frakka færði þinghéimi
tilboð frá de Gaulle um að
frönsk þróunarhjálp verði ef til
vill aukin og efnahagsmálaráð-
herra Vestur-Þýzkalands Karl
Schiiler sagði að rfkisstjórnin í
Bonn væri að undirbúa 11 pró-
sent aukningu á þróunarhjálp
V-Þjóðverja.
Eugene Rostow varautanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna hélt
langa ræðu um fjárhagsvand-
ræði Bandaríkjanna sem vektu
ekki miklar vonir um aukna
þróunarhjálp Bandaríkjann á
næstunni.
Flestir ræðumenn í dag lögðu
til að alþjóðaverzlunarsamning-
ar verði auknir og á þann hátt
verði bæði framleiðsla og verð
hennar fastákveðin.
Fréttamaður Reuthers í Saigon
skýrir frá því að miðbærinn í
höfuðborginni hafi nötrað er
stórskotalið stjórnarinnar hafi
byrjað geysimikla skothríð á
Cholon hverfið rétt fyrir myrk-
ur í kvöld.
1 kvöld drógu stjórnarher-
menn sig til baka úr sjöunda
hverfi borgarinnar, þar sem
þúsundir flóttamanna höfðu safn-
azt saman á sjúkrahúsinu og í
skólum eftir að heimiili þeirra
höfðu verið lögð í rúst.
í nágrenni An Quang pagóð-
unnar, þar sem suður-viet-
namskar orustuflugvélar sprengdu
nokkur íbúðarhverfi í loft upp
fvrir skömmu er fólk dapurt og
hrætt, en ásakar engan hvorki
Bandaríkjamenn, ríkisstjómina
né þjóðfrelsisherinn, segja frétta-
menn.
Nú er fyrst möguleiki á að
gera sér grein fyrir því hvað
hefur gerst í S-Vietnam eftir
vikulanga bardaga.
Talið er víst að þúsundir ó-
breyttra borgara hafi látið líf-
ið. Bandaríkjamenn halda því'
fram að ekki færri en 17.000
hermenn þjóðfrelsishersins og
frá N-Vietnam hafi látið lífið,
en þessi tala er mjög dregin í
efa í Saigon.
Að minnsta kosti 4000 manns
hafa verið handteknir grunaðir
um að hafa aðstoðað þjóðfrels-
isherinn í árásunum og þeirra
meðal er fjöldi kvenna og barna.
Fyrr í dag sagði varaforsætis-
ráðherra S-Vietnam Nguyen Caó
Ky, að búizt væri við nýrri á-
rás Vietkong á Saigon.
Ky, sem tal'aði á blaðamanna-
fundi í skotheldum jakkasagði
að ás'tand í höfuðborginni væri
eðlilegt í fjórum af níu borg-
arhverfúm.
Einstakur póli-
tískur stórsigur
Brezka útvarpið skýrði
frá því í dag að Edward
Kennedy öldungadeildar-
þingmaður, sem er bróðir
Kennedys heitins forscta
hafi sagt, að eitthvað kynni
að vera til í því að Viet-
kong hafi beðið hernaðar-
legan ósigur, en það væri
skynsamlegra að gera sér
grcin fyrir því aðþeirhefðu
jafnframt unnið cinstakan
pólitískan sigíir.
Hann skoraði á Johnson
forseta að snúa sér alvar-
lega að leiðtogunum í S-
Vietnam. Það ætti að segja
.Thieu forseta að Ky vara-
forseta að þeir gætu ekki
vænzt þess að Bandaríkin
haldi áfram að sýna fóm-
arlund, nema þeir gætu
komið iöndum sínum tilað
sýna sama áhuga og fóm-
arlund.
Edward Kenncdy
Hann sagði að Bandarík-
in yrðu að ráðast á „hið
drepandi afskiptaleysi‘‘ Vi-
etnambúa gagnvart ríkis-
stjórn sinni.
I hinum fimm, sagði hann að
um „tákmarkaðar aðgerðir
skæruliða væri að ræða.
Ho Chi Minh
Ho Chi Minh forseti N-Kóreu
sendi persónulegar heillaóskir í
dag til þjóðfrelsishersins og í-
búa «S-Vietnam í tilefni sigurs
þeirra yfir Bandaríkjamönnum
og bandamönnum þeirra.
I boðskap til Nguyen Huu Tho
sem er forseti Þjóðfrelsisfylking-
arinnar, segir forsetinn: Við
munum vinna algjöran sigur.
Réttlætið er okkar megin.
Barizt í borgum
AFP skýrir frá því að enn
geysi mikil omsta í Hue, þar
sem bandarískir landgönguliðar
em að reyna að hrekja þjóðfrels-
ishermenn úr borginni.
I óshólmum Mekong reyna
Bandaríkjamenn enn að taka
aftur Ving Long, sem var stærsta
herstöð Bandaríkjamanna til eft-
irlits á fljótum og skurðum í
þessu héraði.
My Tho
Samtals eru 2000 íbúanna falln,-
ir og 5.000 hús hafa verið jöfnuð
við jörðu í fiskimannaborginni
My Tho í S-Vietnam.
Fjórði hluti borgarinnar er
gjörsamlega eyðilagður og emb-
ættismenn skýra frá því að mest-
um skaða hafi bandarískar flug-
Framhald á 7. síðu.
Um leið og blaðið birti um-
mæli Johnsons forseta á blaða-
mannafundi á föstudaginn Eýsir
blaðið því yfir, að Bandaríkin
kæri sig augljóslega ekki um að
snúa á þann veg sem- gæti leitt
til friðsamlegra lykta stríðsins i
Vietnam, þvert á móti vilja
Bandaríkjamenn halda stríðinu
áfram.
Af því leiðir að stríðinu verð-
ur haldið áfram og hinir 31 milj-
ón Vietnamar í báðum hlutum
Vietnams munu verða 31 miljón
óttalausra baráttumanna sem
munu gjöreyða hinum banda-
rísku árásarseggjum, segir blað-
ið.
Utanríkisráðherra N-Vietnams
Nguen Duy Trinh sagði í yfir-
Játar USA ai Pueblo hafi
verii innan landhelgi N-K?
Talsmaður utanríkisráðuneytisins neitar því, en í dag
var rannsóknar þingsins krafizt vegna fyrri neitana
Gerald Ford talsmaður repu-
blikana í fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings hafi sagt, að Johnson
forseti virtist vera að búa sig
undir það að játa að Pueblo
hafi verið innan landhelgi í N-
Kóreu.
WASHINGTON, SEOUL 5/2 — í dag var haldinn nýr
fundur fulltrúa Bandaríkjanna og N-Kóreu í Panmunjom
á landamærum Suður- og Norður-Kóreu til að ræða um
bandaríska njósnaskipið Pueblo og afhendingu 83 manna
áhafnar þess. Opinberlega er því harðneitað í Bandaríkj-
unum, að nokkur samningur hafi verið gerður, en talsmað-
ur republikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, Gerald
Ford hélt því fram j dag, að Johnson forseti virtist vera
að búa sig undir að játa að Pueblo hefði siglt inn í land-
helgi N-Kóreu.
Þetta var þriðji fundurinn um
Pueblo málið, en ekki ér vitað
hvort nokkuð samkomulag hef-
ur náðst.
Bandaríska utanríkisráðuneyt-
ið heldur því fram að þær fregn-
ir í dagblöðum í S-Kóreu séu úr
lausu lofti gripnar sem herma að
samkomulag hafi náðst í megin-
dráttum, eftir að Bandaríkin
hefðu látið að því liggja við N-
Kóreú að Bandaríkin myndu op-
inberlega viðurkennsf, að Pueblo
hefði verið innan landhelgi í N-
Kóreu er það var tekið. ,
Utanríkisráðuneytið varaði við
hvers konar bjartsýni um að við-
ræðurnar leiði skjótlega til
samninga. Talsmaður ráðuneytis-
ins lét að því liggja að fleiri
fundir yrðu haldnir, en gat ekk-
ert um það sagt hvenær það
yrði.
Landhelgisbrot?
Blaðafulltrúi utanríkisráðu-
neytisins, McCloskey ítrekaði að
ekki hefðu borizt neinar upplýs-
in^ar til Washington sem bentu
til þess. að Pueblo hefði verið
innan 12 mílna landhelgi N-
Kóreu er það var tekið.
Fréttamenn telja þetta svar
til nokkurra bandarískra rit-
stjóra sem höfðu túlkað um-
mæli Rusks utanríkisráðherra
og McNamara varnarmálaráð-
herra í sjónvarpinu í gær sem
nokkurs konar afsökun á því að
ef til vill hefði Pueblo verið
innan landhelgi
En þeir viðurkenndu báðir að
þeir gætu ekki verið alveg viss-
ir um það hvar Pueblo hefði
verið, þvi N-Kóreumenn hefðu
enn bæði skipið og áhöfnina í
sinni vörzlu og loggbók Pueblo
væri þvi ekki aðgengileg.
Áfall
Fréttaritari brezka útvarpsips
í Washington segir í gær, að
Ford sagði að þetta væri al-
varlegt áfall fyrir þingmenn sem
hefðu treyst fyrri afdráttarlaus-
um neitunum æðstu rnanna.
Hann krafðist þess að þingið tæki
þetta mál til rannsóknar.
Játning
Maður sem sagður var leiðang-
ursstjóri á bandaríska njósna-
skipinu Pueblo sagði í útvarp
í Pjongjang höfuðborg N-Kóreu
á sunnudag, að upplýsingar þær
sem skiþið hefði safnað hefði
átt að nota i árás á N-Kóreu.
í dag ásakaði Kim II Sung
forsætisráðherra N-Kóreu Banda-
ríkin um að auka óduldar árás-
araðgerðir sínar gegn N-Kóreu.
lýsingu sem hann flutti hinn 29.
desember, að Hanoistjórnin
mundi hefja friðarsamninga við
Bandaríkin þegar Bandaríkja-
menn hættu skilyrðislaust loft-
árásum á N-Vietnam.
I síðari opinberum yfirlýsing-
um og viðtölum hefur þetta til-
boð verið ítrekað og til að leggja
áherzlu á möguleika þessarar
friðarleiðar lét Hanoistjómin
lausa í fyrra mánuði þrjá
bandaríska flugmenn, sem höfðu
verið teknir til fanga.
Stjórnin í Hanoi telur að hún
hafi gefið nógu greinileg merki
um góðan vilja sinn, en Johnson
forseti krefjist stöðugt betri
merkja.
Þau merki,- sem Johnson for-
seti vill sjá er endii^ eðá a.m.k.
að mikið verði dregið úr bar-
dögum í S-Vietnam.
Þetta er kallað San Antonio-
skilmálar Johnsons forseta, en þó
Clark Clifford, sá sem á að taka
við embætti varnarmálaráðherra
af McNamara, hafi nokkuð dreg-
ið úr þessum skilmálum, getur
stjómin í Hanoi ekki gengið að
þeim, því í þeim felast gagnkröf-
ur segir Nanh Dan.
Hanoi-stjómin neitar að fall-
ast á þetta. Hugsunin um gagn-
kvæma tilslökun er ,,röksemd
glæpamanna“ segir blaðið og
bætir við að N-Vietnam hafi
aldrei ráðist á Bandaríkin, en
Bandarikin hefðu aftur á móti
ráðist á N-Vietnam, þess vegna
þyi#ti Hanoistjómin ekki að
gjalda neitt fyrir það að árásinni
verði linnt.
Stjórnin í N-Vietnam vill þó
alls ekki útiloka alla möguleika
a friðsamlegri lausn. Fréttamenn
segja að andinn í greininni . í
Nanh Dan sé gjörsamlega í sam-
ræmi við þau viðhorf sem heyra
megi hjá stjórnmálamönnum í
Hanoi, en þeir segja að þrátt
fyrir neikvæða afstöðu Johnsons
forseta til þeirra merkja um
góðan vilja sem Hanoistjómin
hefur sýnt, standi dyr enn opn-
ar fyrir viðræður ög það hafi
greinilega verið sýnt hvemig
Framhald á 7. síðu.