Þjóðviljinn - 15.02.1968, Blaðsíða 10
tð stÐA —mCx&mmmm
SAKAMALASAGA
Eftir
i. B. PRiESTLEY
10
Hann kinkaði kolji, drakk síð-
an dálítið te í viðbót og kveikti
aftur í pípu sinni og notaði geysi-
stóran gaskveikjara. Hann reykti
og þagði góða stund og Maggie
reyndi að hafa taumhald á ó-
þolinmæði sinni.
Loks: — Hverjir eru heima
hjá yður?
— Móðir mín. Og ég segi henni
ekkert um þetta. Alan bróðir
minn, sem er nokkrum árum
eldri en ég, ókvæntur og kennir
eðlisfræði við háskólann — í
Hemtonshire á ég við.
— Aha — snjall náungi?
— Mjög snjall að mörgu leyti.
Mesti auli að öðru leyti. Er
eiginlega ekki orðinn fullorðinn.
En auðvitað segi ég honum allt.
Hann gæti orðið að miklu liði.
— Vilduð þér kannski láta
hainn um þetta?
— Ég held nú síður. Hún var
hneyksluð- — Auk þess hef ég
meiri tíma aflögu.
Hamn beið andartak. — Þótt
faðir yðar sé einhvern veginn
flæktur í þetta Noreenar Wilks
mál, þá er ekki þar með sagt
að þér þurfið að verða það —
Nei, hlustið nú á mig, Maggie.
Þér eigið enn kost á að velja.
Annaðhvort farið þér heim og
reynið að gleyma öllu um Nor-
een — og mig. Eða — þér hjálp-
ið mér s<ð komast að því hvað
órðið hefur um hana — í þeirri
von að við komumst að því
hvar faðir yðar er niðurkominn
og hvað hann er að gera. Þótt
bwgsamar stktas, þwf að tbaam satnr. Bzzz- Hsmn íert á Salt lækni.
m
M EFNI
/ SMÁVÖRUR
TÍZKUHNAPPAR
Smurt brauð
Snittur
VIÐ ÓÐINSTORG
Sími 20-4-90.
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugav. 18, III. hæð (lyfta)
Sími 24-6-16.
PERMA
i
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21. SÍMI 33-968.
ég geti ekki sannað það, þá er
ég sannfærður um að þama er
samband á_ milli. Og mér veitir
sannarlega ekki af hjálp, bæði
frá yður og bróður yðar.
— Þá er það ákveðið, sagði
hún óþolinmóðlega.
— Ekki alveg. Við ,þurfum
ef til vill að taka lokið af
Birkdenborg. Og það sem við
finnum, kanif að vera miður
geðslegt. Það gæti jafnvel verið
hættulegt.
— Salt læknir, ég er vonsvik-
in- Ég hélt ekk'i að þér væruð
maður sem gerir úlfalda úr mý-
flugu —
— Það var alveg rétt hjá yð-
ur.
— Við erum í Birkden, ekki
í Chicago eða New York —
— Þér eruð langt á eftir tím-
anum, Maggie. Nú eruð þér í
fjarlægri útborg New York og
Chipago. Og ég er alls ekki að
vkja. Ég geri það aldrei. Ég hef
verið he<milislæknir í sjö ár hér
í Birkden. Ég veit hvað gengur
fyrir sig hér. En ég veit ekki
allt. Ekki nóg. Og nú brýndi
hann raustina svt> mjög að
Maggie hrökk við og hún sagði
enn einu sinni við sjálfa sig,
að þetta væri kyndugur mað-
ur. — Og nú þarf ég að hitta
mann, og ef þér ætlið'að hjálpa
mér, þá gæti verið fróðlegt fyr-
ir yður að koma með mér. Ég
ætla að hringia og ganga úr
skugsa urn að ég nái í hann.
— Ég skal taka fram s*f borð-
inu á meðan. Og þegar hún kom
fram í eldhúsið, varð hún undr-
andi enn á ný. 1 stað þess að
vera ein benda af óhreinum
diskum og hnífapörum, mygl-
uðum og súrum matarleifum, va<r
eldhúsið hreinna og, snyrtilegra
en eldhúsið þeirra heima. Hún
flýtti sér að þvo upp og þurrka
teáhöld’n.
— Hann er við. Við skulum
koma. Hann var svo stuttur f
spuna, að henni flau^ í hug að
hönum væri lítið um að hún
væri að þvælast í eldhúsinu.
Skyldu karlmenn hugsa þannig?
Hún gekk út og braut heilann
um þetfa. Hann var svo sem
ósköp mikill læknir, en þó'var
hann ólíkur öllum þeim lækn-
um sem hún hafði nokkurn
tíma hitt. Meðan hún beið eftir
því að hann læsti, tók hún eftJ
ir spjaldinu, sem hann hafði
fest á hurðina: L. H. Salt. —
Hvað merkja stáfirnir L og H?
spurði hún þegar þau gengu að
bílnum.
— Lionel Humphrey, sagði
hann hrjúfri röddu. — Og gleym-
ið því á stundinni. Kallið mig
Salt þegar þér verðið leiðar á
læknistitlinum.
— Alit í <lagi, Salt, sagði hún,
dálítið of innilegai til að leyna
taugaóstyrk sínum.
Hann brosti ekki en^ virtist
ekkert móðgaður heldur. Senni-
lega stóð honum alveg á sama
hvað hún — eða nokkur annar
— kallaði hann. Hann virtist
undarleg blanda — aðra stund-
ina syfjulegur, óbrotinn og ósköp
indæll — hina harður og tillits-
laus- Annaðhvort var hann of
nfðursokkinn í aksturinn eða
þegjandi, svo aið hún hafði næg-
an tíma til að brjóta heilann
um hann, meðan þau óku eftir
ótal hliðargötum, fóru framhjá
miðborginni og komu loks í
borgarhluta sem var henni fram-
andi. Það var ótólegt og rytju-
legt hvérfi; það var eins og
flest húsin biðu þess að verða
rifin.
Fjórði kafli.
Salt læknir stöðvaði bílinn
rétt hjá lokuðum inngangi með
neonljósi yfir, sem ekki var búið
að kveikja á og á stóð Buzzy.
Þegar þau komu út fann hann
mjóar dyr skammt frá aðalinn-
ganginum og hann gekk á und-
an upp hrörlegan timburstiga.
Efst uppi var eins konar skrif-
stofa, ekki stærri en veggskáp-
ur. 1 henni sat magur unglingur
með' gleraugu en ábúðarfullur á
svip, eins konar eldri útgáfa af
Reg Morgan. — Að hittai herra
Duffield? spurði hann kurteis-
lega. — Á hann von á yður?
— Já, ég er Salt lækmr.
— Auðvitað — þér hringduð.
Þessa leið, gerið þér svo vel.
Herbergið fyrir innan var ögr\
stærra, en svo miótt að það var
eins og gangur. Á .því var eng-
inn gluggi sem vissi út — þrjár
st’erkar pefur með grænum ljós-
hlífum héngu niður úr loftinu
— en eftir endilöngum vinstri
veggnum var glerrúða, og við
vegeinn á móti stóð mjög langt
borð, hlaðið vindlakössum, glös-
um, diskum, risastóru svínslæri
og osti, tveim vösum með ryk-
ugum gerviblómum, grænum síma
og rauðum síma og hlaða af síma-
skrám. Maggie sá þetta allt sam-
an, vegna þess að þau burftu að
bíða stundarkorn eftir herra
Duffield, sem kom síðan inn og
var að þurrka sér um andlit og
bendur á stóru bleiku hand-
klagði og hann kom inn um
dvr í hmum enda herbergfsins.
j Hann var feitur. og sver og
sköllóttur með geysistórt and-
lit með helztu andlitsdráttum í
bendu í miðjunni.
— Hæ. Buzzy, sagði Salt lækn-
ir. — Ungfrú Maggie Culworth
— herra Buzzy Duff’eld.
— Gleður mig að kýnnast yð-
ur, ungfrú Culworth. Duffield
var búinn að losa sig við hand-
klæðið t>g nú tók hann í hönd
hennar: henni fannst eins og
hún væri með hönd’'na innaní
kjötstykki. — Gleður mig. Mik-
ill heiður. Bzzz. Og ef hann
lagði í vana sinn að gefa frá
sér þetta býflugnasuð án afláts,
bá var ekki að undra þótt hann
væri kallaður Buzzy. Nú var
hann s<ð taka i höndina á Salt
l.ækni. — Læknir, það er stór-
kosílegt að sjá þig. Dýrlegt —
dýrlegt. Hann sneri sér að
Maggie. — Þori að veðja að
hann hefur ekki sagt yður hvað
hann gerði fyrir bróður minn-
Bjargaði lífi hans þegar ha<nn
var á grafarbakkanum. Er nú
í Ástralíu — stálsleginn og
sprækur — en hundleiðist. Aldrei
ánægður, — svona er Arthur.
Bzzz. Hann Salt hérna gæti skor-
ið þá alla niðrjr við trog ef
honum sýndist svo, ungfrú Cul-
worth — Ég kalla yður ungfrú
Culworth, skiljið þér — þér eruð
dálítil dama — en þér skuluð
kalla mig Buzzy — lofið mér
því —
— Allt í lagi, Buzzy.
— En það eru svo sem eng-
in forrétt’ndi. Þessi bær er full-
ur af lúsablesum sem ég gef
skít fyrir sem kalla mig Buzzy
— þegar ég er ekki viðstadd-
— Fyrst þú ert hingatð kominn,
læknir, þá ætla ég að segja þér
dálítið. Þegar ég bauð þér í
stóran og fínan franskan mið-
degisverð á Queen — hvað sem
þú vildir — þú Veizt, rétt áður
en ég sendi Arthur af stað til
Ástralíu — og þú afþakkaður
það — þá sárnaði mér — svei
mér þá, mér sárnaði óskaplega.
Bzzz.
— Ég hafði svo mikið að
gera, Buzzy. Var í sjúkravitjun-
um alla daga og hálfar næturn-
ar. Mig langaði bara til að
hvíla m;g þegar ég átti frí.
— Það má geta nærri, geta
nærri. Jæja — hvað eigum við
að drekka? Ungfrú Culworth?
/ — Er það ekki fullsnemmt?
Jæja annars — gin og tonic,
þakka yður fjAir, Buzzy.
— Ef það á að vera eitthvað
meira spennandi, þá er ekki ann-
að ,en nefna það. Ég á allt.
Læknir?
— ögn af skota, þakk, Buzzy.
Sæmilega útilátinn ef hann er
góður.
— Bezta sort — tvítugur. Eins
og móðurmjólk — ef þú ert
iæddur tígrisdýr. Heyrðu, Doxi,
af hverju færðu þé ekki sjálf-
ur, meðan ég blanda handa ung-
frú Culworth? Hérna megin, ef
þú v;lt gera svt> vel. Þú getur
gefið mér annan um leið. Bzzz.
Svo að þú ert að yfirgefa stað-
inn, Doxi. Það þykir mörgum
súrt, í broti.
— Ekki mörgum. Fáeinum, að-
e;ns fáeinum, Buzzy. ’
— Satt segirðu. Auðvitað að-
'eins fáeinum. Satt er orðið. Flest-
ir tækju ekki eftir því þótt
spýtukarl mældi í þeim hitann.
Þeir eru sjálfir ekki annað en
bölvaðir spýtukarlar. Bzzz. Hér
kemur ginið yður, ungfrú Cul-
worth, og þér verið að fyrirgefa
þótt orðbragð!ð h.iá mérséstund-
um dálftið safaríkt —
— Buzzy, ég vann í fimm ár
hjá verðbréfasala í City. Þar
var nú tekið upp í sig. En segið
mér — hvers vegna er þessi
undarlegi inmgluggi, héma á
veggnum?
— Til þess að ég geti séð
hvað er að gerast í klúbbnum
mínum. Dansgólfið er hérna fyrir
neðan- Ef eitthvað fer úr skorð-
um — þá get ég " fylgzt með
því. Bzzz. Lítið inn emhvern
tíma að kvöldlagi — hvaða kvöld
serr er nema sunnudagskvöld —
þegar allt er uppljómað þarna
inni og þá er hægt að horfa
gegnum gluggann á bullandi
hringiðu. Hef annan sál hinum
megin — sex einarma þrjótar
— ein Ýúlletta og pronpon borð.
Engin fínheit hér, þér skiljið.
Fólkið ekki nógu múrað í borg
af þessari stærð. Ekki einu sinni
vínveitingaleyfi, þótt sítrónusaf-
inn okkar hafi stundum sömu
áhrif og einhver hefði hellt gini
saman við hann. En spyrjið mig
ekki hvernig á því stendur. Ég
er bara Buzzy gamli, sem fékk
ekkert vínveitingaleyfi. , Allt í
lagi, Winston litli, hvað vilt þú?
Snyrtilegi ungi maðurinn með
gleraugun var kominn í gættina.
— Þar er Charlie, herra Duf-
field. 1 símanum — frú Nort-
hampton. Hann var líka snyrti-
legur í röddinni. — Á ég að
gefa honum sambahd?
— Nei, hvað vill hann?
— Hann er með áttatíu og
fimm transistora. Japanska. Hann
segist láta þá á fjórtán stykkið.
— Ekki handa mér, Winston
litli. Það er víst auðvelt að
brenna sig á þeim. Segðu Charlie
að hafa sig hægan. Bzzz.
— Já, herra Duffield. Dyrnar
lokuðust.
SKOTTA
Umboðssa/a
Tökum í umboðssölu notaðan kven- og
herrafatnað.
Verzlun GUÐNÝJAR, Grettisgötu 45.
CHERRY BLOSSOM-skó áburðnr:
Glansar betnr« endist betnr
) King Feature. SynJie.le, Inc.. 1966. World righU te.ctv,
— Þú átt greinflega eftir að læra ýrnislegt Donni. T. d. það að
þú ert ekki lengur sjálfs þíns herra þegar þú ert trúlofaður....
ÚTSALA -- ÚTSALA
Stórfelld verðlækkun á öllum vörum verzlunar-
innar. — Notið þetta einstaka tækifæri og gerið
góð kaup.
ALLT Á AÐ SELJAST!
VERZLUN GUÐNÝJAR
Grettisgötu 45
Útsa/a —Ki 'art vkaup 1
Úlpur —- Kuldajakkar — Hvítar fermingarskyrtur og margt fleira. Ó. L. Laugavegi 7' Sími 20171. Peysur — Buxur — Skyrtupeysur 1 4
BÍLLINN
Gerið við bíla ykkar sjálf
Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga.
BÍLAÞJÓNUSTAN
Auðbrekku 53, Kópavogi — Sími 40145.
i *
Látið sfilla bílinn
Önnumst hjóla- ljósa- og mótorstillingu
Skiptum um kerti, platínur, ljósasamlokur.
— Örugg þjónusta.
BÍLASKOÐUN OG STILLING
Skúlagötu 32, sími 13100.
—— ■■ I !■ Il ,111
' ^ .
Hemlaviðgerðir
• Rennum bremsuskálar.
• Slípum bremsudælur.
• Límuni á bremsuborða.
Hemlastilling hf.
Súðarvogi 14 — Sími 30135.
I