Þjóðviljinn - 23.02.1968, Síða 12
| Krafan um verðtryggingu kaupsins er réttmæt
Hefur fjármálaráðherrann
sér guðlegt wald
tekið
— viðtal við Tryggva Sigurbjarnarson, for-
mann Starfsmannafélags ríkisstofnana
Krafan um verðtryggingu
kaupsins er svo sjálfsögð að
raunverulega ætti hún ekki
að vera ásteytingssteinn fyrir
einn eða neinn og mér er til
efs, að svo sé í raun og veru
og hugsi ríkisstjómin sér ein-
hverja tilslökun ásamt at-
vinnurekendum.
Mér finnst' þetta liggja eih-
hvern veginn í loftinu núna
enda getur ríkisstjómin og at-
vinnurekendur ekki staðið
gegn slíkri réttlætiskröfu eins
og verðhækkanir hafa dunið
yfir að undanfömu. Spum-
ingin er hinsvegar sú frá
sjónarmiði ríkisstjórnarinnar
og atvinnurekenda, hvað bil-
lega þeir sleppa frá laun-
þegum og. ætlun þeirra er að
skammta naumt og það mjög
naumt að þessu sinni.
Þetta ættu launþegar að
hafa hugfast þessa dagana og
hvemig þessi mál skiptast í
samningum milli atvinnurek-
enda og verkalýðshreyfingar-
innar næstu daga fer vitan-
lega eftir þeirri samstöðu, sem
launþegar sýna nú, og auðvitað
þarf átakið að vera samstillt
og heilt í verkfallsaðgerðum.
Við höfum stundum heyrt
það launþegárnir í B.S.R.B.,
að það standi ekki á okkur
að taia digurbarkalega af því
. að við megum ekki fara í
verkfall.
Hinsvegar vil ég leyfa mér
að fullyrða á þessu stigi máls-
ins, að við innan B.S.R.B.
viljum láta verkalýðshpeyf-
ingunni í té allan stuðning í
baráttunni fyrir verðtryggðu
kaupi. Svo bágborin eru kjör
ríkisstarfsmanna í dag oghafa
dregizt laiigt aftur úr í góð-
ærinu. Ekki er fráleitt til
dæmis, að B.S.R.B. beiti sér
fyrir fjársöfnun í sjóði verk-
fallsmanna, ef til verkfalla
drægi og ekki skaðar að vita
af ( skeleggum baráttuvilja
ann'arra baráttufélaga, þó að
þeir eigi óhægara ' um vik
þessa stumdina.
Eins og nú er komið kjör-
Tryggvi Sigurbjamarson
um margra ríkisstarfsmanna
er það hreint tímaspursmál,
hvenær stórir hópar ríkis-
starfsmainna gera hreinlega
uppreisn vegna kjara sinna og
myndu þá líklega brjótast út
skipulagslaus starfsmanna-
verkföll hjá hinum og þess-
um ríkisstofnunum.
Einhvem tíma brestur þol-
inmæðin eins og ríkisstarfs-
menn eru leiknir. Því erhald-
ið fram að við búum við
samningsrétt að nokkru, þar
sem átt er við Kjaradóm.
Það er hreim firra. Þetta fyr-
irbæri hefur sýnt sig svo hlut-
drægt á undanfömum árumí
garð ríkisstarfsmanna, bó að
honum hafi verið ætlað það
hlutverk að vera óhlutdrægur
dómur milli launamanna og
ríkisvaldsins.
Kjaradómur hefur sýnt sig
sem kúgunartæki á opimiber-
um starfsmönnum og ævinlega
tekið vilhalla afstöðu með
ríkisvaldinu.
En það hefur verið gengið
skrefi lengra að undanfömu.
FjármálaráðheiTa hefur að
undanförnu túlkað hin og
þéssi sammingsatriði opinberra
starfsmanna að vild og botnar
enginn upp né niður i þess-
um túlkunum enda hvila þær
ekki á neinurn raunhæfum
grunni oftast nær. Það er
engu líkara en fjármálaráð-
herra hafi tekið sér í hönd
guðlegt vald ofan við
lög og rétt í landinu og túlki
eins og honum sýnist hin og
þessi samningstoundim rétt-
indi opinberra starfsmanna og
ævinlega hlutdrægt ríkissjóði
í vil.
Þetta er slík fádæma ósvífni
í garð rfkisstarfsmanna, sem
eiga þó að heita hafa mann-
réttindi — þau em að vísu
takmörkuð meðan við höfum
ekki verkfallsrétt. Er ekki
kominn tíma til að opinberir
starfsmenri taki sér bennan
rétt í hönd. — g.m.
Föstudagur 23. febrúar 1968 — 33. árgangur — 45. tölublað.
Myndin er af Bangsimon
Bangsímon, nýtt barnaleik-
rít sýnt í Þjóöleikhúsinu
Góufagnaður
Kvenfélags
sósíalista
Kvenfélag sósíalista held-
ur góufagnað sunnudaginn
25. febr. i Tjarnargötu 20.
Dagskráin hefst með borð-
haldi kl. 7 stundvíslega. Á
borðum verður íslenzkur
matur.
Upplestur: Jónas Árna-
son alþingismaður les upp.
Nemendur úr Tónskóla
Sigursveins D. Kristinsson-
ar leika á hljóðfæri.
Sýndar verða íslenzkar
litskuggamyndir.
Undir borðum verður tek-
ið lagið.
Allir sósíalistar og vel-
unnarar Kvenfélags sósíal-
ista eru velkomnir á góu-
fagnaðinn.
1 byrjun næsta mánaðar verð-
ur frumsýning í Þjóðleikhúsinu
á mjög vinsælu og skemmtilegu
bamaleikriti, en það er'leikritið
Bangsimon eftir A. A. Milne. Er-
ic Olson hefur fært söguna um
Bangsimon og vini hans i leik-
búning. Mörg létt og skemmtileg
lög eru sungin í leiknum, en
þau eru eftir Bruno Jublesky.
Þetta leikrit hefur að undan-
förnu notið mikilla vinsælda á
Norðurlöndum og hefur verið
flutt á mörgum leikhúsum.
Fyrir nokkmm árum var sag-
an af Bangsimon og vinum hans
flutt í barnatímum hjá Ríkisút-
varpinu og vakti sá flutningur
mikla og verðskuldaða athygli,
ekki sízt fyrir frábæra túlkun
Helgu Valtýsd., sem tókst með
lestri sínum að glæða þessar
sérstæðu dýrapersónur lífi og
gera þær eftirminnilegar hjá
yngri kynslóðinni. Síðar var bók-
ir gefin út hjá Helgafelli. Hulda
Valtýsdóttir þýddi bókina og
þýðir hún einnig leikinn, en
ljóðaþýðingar erru gerðar af
Kristjáni frá Djúpalæk. Þess
má geta í þessu sambandi að
þau Hulda og Kristján hafa þýtt
flest þarnaleikritin, sem sýnd
hafa verið hjá Þjóðleikhúsinu á
síðastliðnum árum.
Leikstjóri er Baldvin Halldórs-
son, en leikmýndir eru gerðar af
Birgir Engilberts. Carl Billic sér
um tónlistarflutning, en Fay
Werner semur dansana og eru
það nemendur úr Listdansskóla
Þjóðleikhússins, sem koma þar
fram og dansa nokkra dansa.
Leikendur eru aíls átta ogfara
þessir leikarar með helztu hlut-
verkin: Hákon Waage er Bang-
simon, þá eru ennfremur Jón
Júlíusson, Auður Guðmundsdótt-
ir, Jónína Jónsdóttir, Margrét
Jóhannsdóttir, Þórhallur Sigurðs-
son og fleiri.
Stjórn og framkvæmdastjóri Húseigendafélags Reykjavíkur, taldir frá vinstri: Hjörtur Jónsson,
Jón Guðmundsson, Alfreð Guðmundsson, Páll S. Pálsson, Þórður F. Ólafsson, Óli M. ísaksson,
Friðrik Þorsteinsson og Ólafur Jóhannesson. Á myndina vántar Leif Sveinsson.
Húseigendafélagið 45 ára
í dag ern liðin 45 ár frá því
að Húseigendafélag Rcykjavíkur
var stofnað. Fyrstu árin hét fé-
lagið reyndar Fasteignaeigenda-
félag Reykjavíkur. Húseigenda-
félagið rekur nú eigin skrifstofu
að Bergstaðastræti 11 og þar gef-
ur framkvæmdastjóri félagsins,
Þórður Ólafsson félagsmönnum
leiðbeiningar um málefni er
varða fasteignir.
Á fundi með blaðamönnum í
gær sagði formaður félagsins,
Páll S. Pálsson frá starfseminni
í stórum dráttum og kom þar
m.a. fram eftirfarandi.
Tilgangur félagsins hefur frá
3ju skólatónleikarnir haidn-
ir vegna mikiiiar aðsóknar
Svo sem komið hefur fram í
fréttum, mun Sinfóníuhljómsveit
íslands efna til skólatónleika
n.k. mánudag og þriðjudag. Gert
var ráð fyrir því, að haldnir
yrðu tvennir tónleikar, aðrir fyr-
ir hádegi á mánudag en hinir
fyrir hádegi á þriðjudag. Sala
aðgöngumiða fór þegar fram úr
áætlun, og seldust þeir upp á
skömmum tíma.
Sinfóníuhljómsveitin hefur því
ákveðið að bæta við einum tón-
leikum á þriðjudagseftiríniðdag,
þann 27. þ.m., og hefjast þeir
kl. 14,00. Miðar á þessa tón-
leika verða seldir á skrifstofu
Sinfóníuhljómsveitarinnar, Skúla-
götu 4, fjórðu hæð, eða í barna-
skólunum.
Þessi áhugi bamanna á skóla-
tónleikunum er forráðamönnum
hljómsveitarinnar mikið gleði-
efni, og vonandi verður hann
ekki minni, þegar seinni skóla-
tónleikarnir verða haldnir í
marzlok.
upphafi verið ,,að stuðla að því
að fasteignir í Reykjavíkurlög-
sagnarumdæmi verði sem trygg-
ust eign — hafa vakandi auga
með öllum saimþykktum og lög-
um er snerta fasteignir í Rvík og
út kunna að vera gefin af bæj-
arstjórn eða alþingi". Á fyrstu
tveimur starfsárum félagsinsvar
einnig lögð óherzla á að hafa ó-
hrif á allar fulltrúakosningar til
þings og bæjarstjórnar. Fyrsti
formaður félagsins var Guðm.
Kr. Guðmúndsson og með honurn
i stjóm voru Sigurður Halldórs-
son, trésmiður og Sveinn Jóns-
son, trésmiður og kaupmaður. Á
meðal þeirra sem gegndu for-
ustustörfum í félaginu á 1. og 2.
áratugnum í sögu þess má nefna
prófessor Ágúst H. Bjamason,
prófessor Einar Amórsson, síðar
hæstaréttardómara og Sigurð
Thoroddsen, verkfr.seðing.
Félagið hefur allt frá síðari
heimsstyrj aldarárunum barizt
fyrir afnámi húsaleigulaga og
tókst að útrýma þeim með öllu
á árinu 1965. Taldi formaðurinn
að þetta hefði ekki haft í för
með sér hækkun á húsaleigu
heldur þvert á móti. Áhrifa fé-
lagsims, hefur á síðari tímum
einnig gætt á setningu laga um
brunamál, um skatta og útsvör
og um framkvæmd þeirra laga
svo sem um hækkum fymdng-
arafskrifta af fasteignum til frá-
dráttar við álagnimgu skatta og
útsvara. Gat formaðurinn þess
að nú væri verið að meta allar
fssteignir á landinu og væru
margir félagsmenn svartsýnir á
að nýja fasteignamatið verði hús-
eigendum þungbærti.
Félagið hefur fyrir nokkm
hvatt til þess að . endurskoðuð
verði löggjöf um sameign í fjöl-
býlisihúsu.m er sett var sem ný-
mæli 1959 og að mörgu leyti
hefur reynzt sæmilega vel, og
einnig að settar verði reglur um
sambýlishætti í fjölbýlishúsum.
Félagsmálaráðuþcytið hefur ný-
lega tilkynnt félaginu að nefnd
yrði sett á laggirnar í þessu
skyni m.a. skipuð fulltrúum frá
Húseigendafélagi Reykjavíkur.
Félagsmcnn í Húseigendafélag-
inu munu nú vera nokkuð á
þriðja þúsund og hafa þar af
bætzt við um 600 á síðasta'miss-
eri. Fyrir forgöngu félagsins var
stofnað fyrir nokkrum árum
Húseigendaisamband íslands OHús-
eigendafélag Rvíkur og Húseig-
endafélag Akureyrar) som aðila
i norrænu samstarfi landssam-
taka húseigenda.
Stjóm Húseigendafélags Rvíkur
er þaninig skipuð: Formaður er
Páll S. Pólsson, hrl. (frá 1958)
og meðstjórnendur Friðrik Þor-
steinsson, húsgagnaismíðameist-
ari (sem manna lengst hefur ótt
sæti í stjórn félagsins), Leifur
Sveinsson, lögfræðingur, Jón Guð-
mundsson, fulltrúi og Alfreð
Guðmundssön, skrifstofustjóri, en
til vara Óli M. ísaksson, fulltrúi,
ölafur Jóhannesson, kaupmaður
og Hjörtur Jónsson, forstjóri.
Merkjasala hjá kvennadeild
SVFi á sunnudaginn kemur
Á Góudag sem er næstkomandi
sunnudag er hinn árlegi merkja-
söludagur kvennadeildar Slysa-
varnafélags íslands. Hafa kon-
urnar haft merkjasölu á þessum
degi í rúm 30. ár. Ágóðinn renn-
ur tii starfsemi Slysavarnafé-
Iagsins.
Stærsti þáttur í starfi kvenna-
deildar SVFÍ heíur alla tíð ver-
ið að afla peninga til kaupa á
hinum ýmsu tækjum sem nauð-
synleg eru til varnar gegn slys-
um. Má sem dæmi nefna að
keyptar hafa verið fjölmargar
talstöðvar, björgunarskyli og út-
búnaður í þau. Einnig átti
kvennadeildin á símjm tíma mik-
inn þátt í að keypt var þyrla sem
SVFÍ og Landhelgisgæzlan eiga
í sameiningu.
Konumar hafa i þessu skyni
haldið hlutaveltur, efnt til
happdrættis og kaffisölu, fyrir
utan hina árlegu merkjasölu.
Kvennadeildin verður 38 ára
þann 28. apríl ri.k. Félagskonur
eru 1200—1400 og er formaður
deildarinnar Gróa Pétursdóttir.
Kvennadeildin heitir á for-
eldra að leyfa börnum sínum að
selja merkin á Góudaginn, börn-
in fá aíhent merkin i öllum
barnaskólum bæjarins frá kl.
9,30 á sunnudagsmorgun. Þess
má að endingu geta að kvenna-
deildin hefur kaffisölu að Hótel
Sögu sunnudaginn 3. marz.
Fjolmennur iðjufundur sam-
þykkir verkfallsheimiid
í gærkvöld var haldinn
fjölmennur félagsfundur í
Iðju, félagi verksmiðjufólks
í Alþýðuhúskjallaranum, báð-
ir salirnir fullir, um atvinnu-
og kjaramálin og var sam-
þykkt á fundinum einróma
að veita 18 manna nefnd ASÍ
umboð til þess að semja um
vísitölubætur á kaupið við
atvinnurekendur.
Ennfemur samþykkti fund-
urinn einróma að staðfesta
þá ákvörðun trúnaðarmanna-
ráðs félagsins á dögunum að
boðk til verkfalls 4. marz
næstkomandi, ef þurfa þykir
í yfirstandandi samningum
við atvinnurekendur þessa
daga.
daga um vísitölubundið
kaup.
>
4