Þjóðviljinn - 03.03.1968, Qupperneq 3
Sunmidiagiur S. marz 1968 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 3
kvlkmyndlp
HÆÐIN - Sidney Lumet
HÆÐIN. — Sean Connery.
Myndin gerist í brezku her-
fangelsi í Norður-Afríku. Þar
dveljast nokkur hundruð her-
menn undir afar ströngum aga,
sem á að mlða að því að gera
þá að hlýðnum og dugandi
hermönnum. f miðjum fanga-
búðunum rís hæðin sem gerð
er úr sandi, grjóti og svita
fanganna. í steikjandi sólar-
hitanum eru þeir reknir klyfj-
aðir á brattann þar til þeir
eru að örmagnast. Yfirmenn
fangelsisins stjóma eftir göml-
um og úreltum reglum, þeir eru
flestir ofstækisfullir og ýmist
haldnir kvalalosta ellegar kyn-
ferðislega truflaðir og er með-
ferðin á föngunum ef-tir þvi.
Ekki skal efnið rakið nánar
en myndin er afburðavel gerð
á flestan hátt og grípur áhorf-
andann sterkum tökum, þótt
stundum eigi maður bágt með
að trúa að hermenn séu látn-
ir sæta slikri meðferð i her-
fangelsum síns eigin lands.
Sean Connery leikur fyrrver-
andi undirforingja sem hafði
neitað að láta hermenn sína
berjast og var því sendur í
fangelsi. Hann hefur þar árang-
urslausa baráttu fyrir bættum
aðbúnaði fanganna. Harry
Andrews leikur fangelsisstjór-
ann, Sir Michael Redgrave
fangelsislækninn. en í öðrum
hlutverkum eru m.a. Ian Bann-
en, Alfred Lynch og blökku-
maðurinn Ossie Davis en leik-
ur hans er með því albezta í
myndinni. Þegar hann rífur
hermannabúning sinn í tætlur.
neitar að hlýðnast skipunum.
segist vera hættur í hemum.
gengur á fund yfirfangabúða-
stjóra á nærbuxum einum
klæða, leggst þar útaf og lætur
fara vel um sig reykjandi
vindla yfirmannsins, þá fer svo
að áhorfendur gráta af hlátri
enda þótt þetta sé á einni
mestu alvörustund myndarinn-
ar, svo meistaralega var hér
að farið.
Eins og nærri má geta vakti
myndin, sem tekin var á Spáni,
mikinn úlfaþyt í Bretlandi.
Þótti sumum það algjört
hneyksli er hún var valin til
sýninga á kvikmyndahátíðinni
í Cannes ásamt tveim öðrum
brezkum myndum, The Knack
og The Ipcress File. En á há-
tíðinni fékk The Hill verðlaun
fyrir bezta kvikmyndahandrit-
ið.
Sýningum myndarinnar fer
nú að fækka í Gamla Bíói og
vil ég eindregið minna menn á
að láta hana ekki fram hjá sér
fara.
Sidney Lumet
Leíkstjórinn Sidney Lumct
er einkum þekktur hérlendis
fyrir mynd sína The Pawnbrok-
er (Veðlánarinn) sem Laugar-
ásbíó sýndi, en þó hafa flestar
myndir hans verið sýndar hér.
Sidney Lumet er Bandarikja-
maður fæddur 1925. Á bams-
aldri lék hann í mörgum leik-
ritum á Broadway en gerðist
síðan leikstjóri. Þá réðst hann
til sjónvarpsins og starfaði þar
fjölda ára m.a. með John
Frankenheímer. Fyrstu kvik-
mynd sína Twelve Angry Men
gerir Lumet 1957. Hún fjallar
um kviðdómanda sem trúir á
sakleysi drengs sem ákærður
er fyrir föðurmorð. Hann reyn-
ir að sannfæra 'hina meðlimi
kviðdómsins um sakleysi
drengsins. Strax með þessari
mynd tók hann upp þá aðferð
sem ham% hefur haldið æ síð-
an: að æfa leikarana í hlut-
verkunum eins og um leikrit
væri að ræða a.m.k. tvær vik-
ur áður en myndatakan hefst.
Merkur ferill
1958 gerir hann Stage
Struck um stúlkuna sem reyn-
ir að komast á sviðið á Broad-
way sannfærð um leiklistar-
hæfileíka sína. 1959: That Kind
of Woman með Sophiu Loren
í hlutverki auðugrar frúar sem
verður áslfangin af ungum her-
manni. 1960 kemur myndin The
Fugitive Kind byggð á leikriti
Tennessee Williams, Orpheus
Descending, með Marlon Brando
og Önnu Magnani. 1961: A
View From the Bridge (Horft
af brúnni) eftir leikriti Arthurs
Miller. 1962 gerir Lumet enn
kvikmynd eftir leikriti, Long
Day’s Journey Into Night eftir
O’Neill, með Katharine Hep-
bum og Ralph Richardson i
aðalhlutverkunum. Lumet hef-
ur sagt að þetta sé eina mynd-
in sem hann er ánægður með.
1963: Fail-Safe fjallar um
kjaimorkustríð sem fer af stað
vegna tæknilegra mistaka, 1964
kemur Veðlánarinn sem flest-
ir telja hans beztu mynd til
þessa. 1965: The Hill og 1966
The Group sem gerð er eftir
hinni frægu sögu Mary Mc
Carthy sem komið hefur út á
íslenzku og nefndist Klikan.
Hún fjallar um átta bandarísk-
ar stúlkur og andstætt The Hill
þar sem eingöngu koma fram
karlmenn er nú kvenfólkið hér
í miklum meiriihluta. Nýjasta
UL YSSES -
ULYSSES (1967) Leikstjóri: Josepli Strick. — Fáar kvikmyndir síð-
ari ára hafa valdið jafnmiklum dcilum og 'UIysses, sem gerð er
eftir samnefndri siigu Jamcs Joyce. Meistaraverk sögðu sumir,
gnðlast og klám sögðu aðrir. Margir telja ókleift að kvikmynda
söguna, aðrir telja það hafa tekizt með ágætum. Eftir miklar
deilur var leyft að sýna hana óklippta í Bretlandi, en allt fjaðra-
fokið magnaði aðsóknina svo, að hún hefur verið sýnd 4 8 mán.
í sama kvikmyndahúsinu í London. Á Nýja-Sjálandi var myndin
bönnuð yngra fólki en 18 ára og það skilyrði sett, að kvikmynda-
hús þar sem starfsmenn væru allir karlkyns sýndi fyrii karlmenn
eingöngu, og annað kvikmyndahús þar sem aðeins væru ikonur
við störf sýndi konum myndina. Eitt hefur óneitanlega unnizt
með myndinni, en það er stóraukinn áhugi fyrir lestri hlnnar
frægu bókar Joyce.
DR. FA USTUS
DR. FAUSTUS. — Richard Burton 1 aðalhlutverkinu.
mestu tekin í London og þykir
Lumet takast vel að ná hinu
sanna Lundúnarandrúmslofti
með mjög vandaðri litkvik-
myndtm. |
í New York
Lumet hefur aldrei starfað í
Hollywood utan einu sinni er
hann vann þar að Horft af
brúnni. Hann hefur gert flest-
ar myndir sínar í New York
eins og annar merkur bandarísk-
u,r leikstjóri, Elia Kazan, Sg um
tíma unnu þar ekki aðrir at-
vinnukvikmyndastjórar en þeir
tveir þótt fjöldi áhugamanna
væri gífurlegur. Þetta er nú
að breytast og á allra síðustu
árum hafa komið þax fram
mjög athyglisverðir kvikmynda-
höfundar sem gera myndir eft-
ir sínum eigin listrænu kröf-
um, en eru ekki bundnir á klafa
miljónafyrirtækja skemmtana-
iðnaðarins.
Þ. S.
mynd Lumet The Deadly Af-
fair (1967) fékk yfirleitt mjög
góða dóma erlendra gagnrýn-
enda. Þetta er njósnamynd gerð
eftir sögunni Call for the Dead
eftir John Le Carre höfund
„Njósnarans, sem kom inn úr
kuldanum”. Myndin er að
HÆÐIN. — Sean Connery og Harry Andrews
Nýlega var lokið við gerð
myndarinnar Dr. Faustus. Hún
er gerð eftir leikriti enska
skáldsins Christopher Marlowe
(1564—1593), en það mun vera
elzta leikritsgerð á sögunni um
Faust. Af öllum þeim fjölda
leikrita sem skrifuð hafa ver-
ið um Faust er þó leikrit
Goethe langmerkast.
Richard Burton leikur Faust,
en hann stjómar einnig mynd-
inni ásamt Oxford-prófessom-
um Nevill Coghill. Árið 1966
léku Burtons-hjónin i þessu
leikriti með leiklistarfélagi Ox-
ford-háskóla, og öfluðu þannig
17.000 sterlingspunda í sjóð
háskólaleikhússins. Þau ákváðu
að kvikmynda leikritið og Burt-
on lagði fram byrjumarfjár-
magn. Kvikmyndað var í kvik-
myndaveri í Róm. Burton og
Taylor þáðu engin laun fyrir,
aðrir leikarar eru 48 Oxford-
stúdentar, en hagnaður af
myndinni mun renna til há-
skólaleikhússins. Eitt aðalvanda-
mál Burtons var, að meirihluti
leikaranna hafði aldrei áður
. lei'kið í kvikmynd og þjáðust
sumir af „myndavcla-skrekk“.
Eitt sinn er tveir stúdemtar
voru að lefba erfitt atriði með
Burton tóku þeir að skjálfa
þegiar myndavélin fór að snú-
ast. Þá sagði Burton: „Þið hald-
ið ef til vill að ég sé alltaf ró-
legur þegar ég er að leika. En
þótt ég sýnist rór þá slít ég
þrennum sokkum á dag með
því að núa tánum ósjálfrátt
saman. Þegar Ivor bróðir minn
sá mig í fyrsta sinn leika i
Old Vic leikhúsinu hélt ég að
hann myndi hrósa mér fyrir
góða frammistöðu. í stað þess
sagði hann „Drengur, ætlarðu
aldrei að stilla á þér tæmar“.
Síðan hef ég aldrei leikið í
bandaskóm".
Og Burton hefur kennt þeim
hin mörgu frávik sem eru á
kvikmyndaleik og sviðsleik.
„Þetta hefur ekki verið erfitt
þótt þau séu byrjendur, reynd-
ar þvert á móti“, saigði Burton.
„Þau eru svo áhugasöm og svo
vel gáfum gædd, að ég er mjög
ánægður með allt“.
í byrjun myndarinnar er
Faust sextugur og tók það larng-
an tima að skapa Burton þetta
gervi (sjá mynd), en hann hef-
ur ekki oft leikið svo gamlan
mann. En Faust gerir samning
Elizabcth Taylor í Dr. Faustus
við Djöfulinn og verður brátt
24 ára og það þóttá Burton ekki
erfitt hlutskipti.
(Endursagt úr tímaritinu
Films and Filming.)