Þjóðviljinn - 27.06.1968, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 27.06.1968, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐmJlHNN — FSntóbffldagiur 27. júim' 19®. Forsetakosningar setja strik í reikningin Landsleik við V-þjóðverja verður frestað um einn dag Stjóm KSÍ og landslið&nefnd kölluóu íbróttaf'rétha'ritara á sánn fund í gær útaf fyrirhug- uöurn laindsleik íslendinga og V-Þjóðverja í næstu viku. Þessi ledkur hafði verið ákveðinn máudaginn 1. júlí, en vegna forsetakosninganna verður hon- u.m frestað um daig og fer fram 2. júlí. Hafsteinn Guðmunds- som, forrn. landsliðsnefndar var ■þama mættur og kunngerði val Landsieikir þjóðverja Thailand — Þýzkaland 0:1 Malaysia — Þýzkaland 1:3 Hong Kong — Þýzkaland 0:1 Fllippseyjar — Þýzkaland 0:4 Japan — Þýzkaland 0:1 Austurríki — Þýzkaland 2:0 ítaiía — Þýzkaland 0:0 Frá 'þvi 1952 til 1968 hafa Þjóðverjar alls leikið 661ands- leiki, unnið 35 gert 18 jafn- tefli Pg tapað 13 leikjum. Sett 126 rnörk gegn 82. M.a. leikið 7 leiki við Eng- land, unnið 5, tvedr urðu jafn- tefli. Unnið Brasilíu, Finn- land tvisyar, Fraildílland þrisv- ar, Japan þrisvar, Skotland einu stinnd. Leikið einn ledk við Sovétríkin og taipað 0:1 Þeir hafa ledkið einn leik við Suður-Vietnam og unnið 2:1. íslenzka landsliðsins, en það •verður skipað þessum mönn- um: Markv.: Sigurður Dagsson, Val. Bakverðir: Arsæll Kjartansson KR, Þorsteinn Friðþjófss., Val. Franwerðir: Þórólfur Beck KR (fyrirliði), Anton Bjarnason Fram, Guðni Kjartans., IBK. Framiherjar: Reynir Jónsson Val, Hermann Gunnarsson Val, Kári Ámason lBA, Eyleifur Hafsteinsson KR, Elmar Geirs- son Fram. \ Varamenn: Þorbergur Atla- son Fram, Jóhannes Atlason Fram, Viktor Helgason IBV og Matthías Hallgrímsson ÍA. Þetta val landsliðsnefndar á eflaust eftir að vekja mikla undrun knaittspymuáhugamanna og ekki að ófyrirsynju. Sú á- kvörðun nefndarinnar að velja Sigurð Dagsson í markið er vægast sagt mjög vafasöm. Eins og aílir vitá sem fylgzt hafa með knattspymúnni í vor hef- ur Sigurður staðdð sdg með fádæmum illa, fengið á sig eitt eöa flleiri ■ klaufamörk í hverjum leik, en Þorbergur Atlason sem valinn er sem varamaður aftur á móti staðið sig með m.ikilli prýði. í öðru lagi er það alveg óskiliandegt að enn einu sinni skuli lands- liðsnefnd brenna sig á sama söði.nu og velja miðvörð í bak- vairðastöðu og á ég bar við Ársæl Kjartansson í stað Jó- hannesar Atlasonar sem er tvímælalaust okkar bezti bak- vörður nú sem stendur. Það vekur og nokikra furðu að Guðni Kjarbansson sem verið hafur í íþróttaskólanum á Laugavatni og lítið sem ekkert getað leikið með í vor skuli vera valinn í liðið. Það er eins og kaup kaups hefur af þessu. Um framlínuna býst ég við að flestir geti verið samméla að sé sú sterkasta sem við eigum í dag, sem og tengiliðimirf- báðir. Leikurinn fer fram eins Og áður sagði þriðjudags- kvöld og hefsf kl. 8.30. Dóm- ari í þessum leik verður Skot- inn Mc Kee, en línuverðir ís- lenzkir. Þýzka liðið sem kem- ur hinigað er skipað eftirtöld- um mönnum: Markverðir. Friedhelm Schulte SG Watt- enscheid, 29 ára, 12 landsleik- ir. Klaus Hubbertz VfB Bott- rop, 22 ára, nýliði. Bakverðir. Klaus Dieter Schmidt SV AI- senbom, 27 ára, 7 landsleikir. Ehrhard Ahmann Luner SV, 27 ára, 28 landsleikir. Hartwig Bleidick SV Soest, 23 ára, ný- Iiði. Dieter Zorc SG Watten- scheid, 27 ára, 16 landsleikir. Dieter Mietz SG Wattenscheid 09, 25 ára, 10 landsleikir. Framherjar og framverðir. Rainer Zobel SG 09 Uelzen, 19 ára, 11 .landsleikir. Egon Schmitt Kickers Offcnbach, 19 ára, 12 landsleikir. Horst Pohl Wacker Múnchen, 24 ára, 8 landsleikir. Guntcr Kcifler Ein- tracht Frankfurt, 19 ára, 3 lands- leikir. Hclmut Bergfclder 1 F6 Köln, 21 árs, 11 landsleikir. Siegfried Krause Holstcin Kiel, 22 ára, nýliði. Bcmd Nickel Eintracht Frankfurt,, 19 ára, 1 landsleikur. Werner Thelen 1 FC Köln, 21 árs, 10 landsleikir. Paul Alger 1 FC Köln, 27 ára, 10 landslcikir. Þetta þýzka lið er ám efa mjög sterkt sem sést á því að af sjö leikjum þess á þessu ári hefur það unmið fimm, gert eitt jafntefli og tapað aðeims eimum, gegm Austurríki 0—2. Og eimmitt þess vegnai islkulum við vona rétt einu sinni enn að lamdsliðinu okkar takist nú loks að vinna góða sigur. S.dór. Unglingalandslið og B lands- lið leika n.k. íöstudag Vikuna 7.—14. júlí verður Norðurlandameistaramót ung- linga í knattspyrnu háð hér í Reykjavík. Gcstir mótsins verða Pólverjar en einu landi utan Norðurlanda er vanalega boðin þátttaka. Þetta er í fyrsta sinn sem mótið er haldið hér á landi og hefur undirbúning- ur unglingaliðsins okkar verið með bezta móti. Liðið hefur leikið marga leiki nú í vor og sumar, en árangurinn _ verið misjafn. Nk. LOKSINS! Tækninefnd K.S.Í. hefur ákveðið að ganga&t fyrir nám- skéiði fyrir þjálfara 7.—14. júld n. k. í Reykjavík. Kennt verður 1. og 2. stig. Próf verða tekin í lok námskeiðsins. Kennari verður Karl Guðmundsson og mun kennslan standa allan daginn. Þátttökutilkynningar skulu send- ast skrifstofu K.S.L íþróttamiðstöðinni Laugardal sími 8-44-44. Tœkninefnd K.S.Í. Tækninefnd K.S.Í. mun gangast fyrir námskeiði fyrir alla starfandi þjálfara 14.—16. júlí n. k. í Reykjavík. Kennari vérður hinn kunni danski landsliðsþ'jálfari Poul Petersen. u Þátttökutilkynningar sendist skrifstofu K.S.Í. íþrótta- miðstöðinni Laugardal sími 8-44-44. Tœkninefnd K.S.Í. <S> föstudagskvöld mun unglinga- liðið leika gegn B-landsliði sem landsliðsnefnd hefur Valið, þar er um eins konar „general prufu“ að ræða fyrir ungling- ama. Unglingairiefnd KSl hefur valið eftirtalda menn i ung- lingalandsliðið: Þorsitein Ólafs- son IBK, Ólaf Sigurvinss. ÍBV, Jón Pétursson Fram, Sigurð Ól- afsson Val, Rúnar Viihjálmsson Fram, Martein Geirsson Fram, Óskar Vailtýsson ÍBV, Bjöm Ámasom KR, Kára Kaaber Víking, Ágúst Guðmundsson Fram og Tómais Páisson ÍBV. Landsliðsnefnd hefur valið eftirtaida menn í B-landsliðið: Pál Pálmasori ÍBV, Gunnar Austfjörð ÍBA, Ævar Jónsspn ÍBA, Þórð Jómsson KR, Jón Stefánsson ÍBA, Halldór Bjöms son KR, Einar Árnaisón Fram, Gunnar Gunarsson Víking, Hreim Elliðason lA, Einar Gunniarsson ÍBV, og Gunnar Felixson KR. ■ ■ Á- kalli svarað Stjóm Æskulýðssambands norrænma jiafnaðarmanna kom saman í sambandi við ráðherrafumd Atlanzhafs- bandalagsins hér í Reykjavik og samþykkti ályktun sem send var ráðherrafundinum. Þar lýstu ungir jafnaðairmenn á Norðurlöndum „andúð sinni á samábyrgð bandalagsríkj- anna á hemaðáreinræði fas- ista í Grikklandi. Sambandið hvetur aðildarlönd bandalags- ins, þar á meðál Bamdaríkin, til að stöðva allar vopnasend- ingar tii og aJla efnahagsað- stoð vió grísku einræðis- stjómina. Sambaedið telur uggvekjandi, að bandalagið og sterkasta aðildarríki þess. Bandaríkin, hafa ekki viljað hindra valdatöku hinnar fas- istsku einræðiisstjómar í Grikklandi. Ungir norrænir jafnaðarmenn krefjast þess, að Nato, á ráðsfundi sínum, leitist við að koma því til leið- ar: að Grikkland verði aftur frjálst; að allir pólitískir fang- ar í landinu verði þegar látn- ir lausix; að sendinefnd frá Sameinuðu þjóðunum fái nú þegar að rannsaka aðbúnað hinna pólitísku fanga.“ Eflaust bafa unigir norrænir jafnaðarmenn gert sér vonir um að þessi sjónarmið yrðu sérstaklega túlkuð af Emil Jónssyni, formanni Alþýðu- flokksins. því hann stemdur nú uppi einn norrænna sósíal- demókrata á ráðherrafundum Atlanzh'afsbaedial'agsins. Og Emil hélt raunar ræðu á ráð- heTTafundinum sama dagimn og unigir jafnaðarmenn sendu ályktum sína og vék þar sér- staklega að afstöðu ungs fólks til bandalagsins. Vísir saigði í fyrradag þannig frá ræðu Emils: „Emil ræddi nokkuð um immanríkiserfiðleika sumra aðildarlandanna, t. d. um upp- lausn og óeirðir, sem æsku- fólk hefði staðið mikið að. Þessi innanaðkomandi upp- lausn er sízt hættuminni en utan'aðkomandi árás, sagði hann. Það er alvarlegt vanda- mál. hve mikill fjöldi unigra manna er á móti Atl'amzhafs- bandialaginu. sérstaklega í þróuðum iðnaðarlöndum, en þetta mue vera að miklu leyti . vegnia þess að þeir gera sér ekki grein fyrir mikilvægi og forseridu bandalagsins. sagði Emil, og lagði til að meira væri gert til að upplýsa al- menning um mikilvægi sam- takanna.“ Emil Jónsson, formaður Al- þýðuflokksins. telur þannig að andstaða un-gs fólks innan bandialagsríkjann'a sé „sízt hættuminiji“ en hin garnal- kunna ógn sem stafar frá Rússum. Og í samræmi við það telur hann það nú ‘vera eitt aðalverkefni bandalfl'gs- ins að bæla þvílka andstöðu. Nató eigi semsé að beita valdi sínu til þess að hafa áhrif á mnanlandsmál aðildarríkj- amna. Með þessum ummælum er Emil Jónsson tvímælaliaust að lýsa stuðninigi sínum við einræðisstjóminia í Grikk- landi, því hún rökstuddi ein- mitt valdarán sitt með hætt- unni af „inmanaðkomandi upplausn". Og F.mil Jónsson er einnig að spgja ungum nor- rænum „flokksbræðrum" sín- um að þeir megi vænta hlið- stæðra aðgerða í heimialömd- um sínum ef þeir sýni Atlanz- hafsbandalagiimi ekki tilhlýði- lega virðingu í ályktunum sín- um og athöfnum. — Austri. Björn Grímsson Fáein minningarorð Bjöm Grímsson, sjómadur í Drápuhlíð 48, amdaðist á heim- ili sínu hinn 21. þessa mánað- ar, og verður hann j-arðsettur í dag frá kapelluni í Ftossvogi. Bjöm fæddist hér í Reykjar vik hinn 15. júní 1917 og varð aðeins 51 árs. Foreldrar hans voru hjónin Halldóra Jónsdótt- ir og Grímur Jósefsson, bæði af sunnlenzkum ættum, sem mér eru annars ókunnar. Efni munu ekki hafa verið ríffleg í foreldragarði eins og víðar hér í bænum á ámnum upp úr 1930. Varð Bjöm bví snemma að fara að vinna fyrir sér og létta undir með heimilinu. Ung- ur að aldri byrjáði hann að vinna hjá Jóni og Steingrímd fis'ksölum, en gei’ðist síðar bif- reiðarstjóri hjá Heildverzlun Garðars Gíslasonar, einnig vann hann um nokkurra ára skeið hjá Haifnangerð Reykjavíkur. Sfðustu tuttugu árin var hann sjómaður á ýmsum slkipum, en einkum minntist hann með á- nægju veru sinnar á Vélbáitn- um Helgu. Þar eignaðist hann margt vina, sem sfðar, er iheils- an brást, reyndust honum vinir i ra un. Bjöm kvæntist árið 1941 Sbfflíu Bjömsdóttur frá Vik í Héðinsfirði, mætri konu, sem var honum traustur förunautur til hins síðasta. Þani eignuðust fimm böm: Halldóru, gitfta Páli Kristjánssyni. sjómanni á Siglu- firði, Grim, Guðmund, Þorstein og Bjöm. Em beir bræður enn í foreldrahúsum og hinn ynigsti þeirra ófermdur. Hatfa hinir eldri séð heimilinu farborða snðustu árin. Fyrir nokkrum árum kenndi , Bjöm hjartalbdlunar, sem á- gerðist er áleið. Fyrir fjöl- skyldumann er þó varla annað að gera en að þrauka meðan stætt er. Fyrir rúmu ári síðan gekb hann undir miikla aðtgerð í Lundúnum. Hann kom heim nokkmi hrossari, en áramgur varð minni en vonatzt var tdl, og í fyrrahaust varð hann að fara aftur á sjúkrahús og þótti nú einsýnt um endalokin. En hann vildi eiga síðustu stund- imar í hópi ástvina sinna og galt æðrulaus og rólegur hina hinztu skuld okkar allra. Ég kynntist Bimi Grímssyni ekki fyrr en fyrir nokkrum ár- um, þegar við urðum sambýl- ismenn/ Hann kom mér bann- ig fyrir sjónir við fyrstu kynni, að hann væri óvenju hlédrægur og kyrrlátur maður, oa satt að segja veitti ég komu hanis í húsið ekki mikla eftirtekt. enda sáumst við sjaldan. Hann var oftast á sjó og hafðd sjáid- an lan'gdvalir heima, edns og gerist Pg gengur um sjómenn. 'Það var ekki fyrr en sjúkdóm- uirinn hafði lagt fjötur á hann, að við kynntumst að ráði, og er skemmst frá að segja, að mér féll þvi betur við hann sem kynni okkar urðu meiri. Bar margt til, ekki sízt hóg- værð hans og dagfarsprýði. Hann var svo blessunariega laus við allatn asa og fyrir- gang, en skapfestumaður, sem ekki bugaðist bótt syrti í álinn, og hann vissi að hverju fór. Heimili Bjöms Grímssonar hefur verið slegið bumgu höggi við fráfall hans. Orð mín megna bair lítils. Þau verða aldrei annað en fátæklee kveðja okk- ar hjónanna með bakklæti fyr- ir góð kynni. Haraldur Sigurðsson. Kjörfundur í Reykjavík við kosningu forseta íslands hefst kl. 9.00, sunnudaginn 30. júlí n. k. og lýkur kl. 23.00 þann dag. Borgarstjórinn í Reykjavík mun auglýsa sérstaklega kjörstaði, skiptingu í kjörsvæði og kjördeildir. Yfirkjörstjómin mun á kjördegi hafa aðsetur í Austurbæjarskólan- um, og þar hefst talning atkvæða, þegar að loknum kjörfundi. Yfirkjörstjóm vekur athygli kjósenda á eftirfarandi ákvæði laga nr. 6/1966: „Áður en kjósandi fær athentan kjörseðil, skal hann, ef kjörstjóm óskar þess, sanna, hver hann er, með því að framvísa nafnskír- teini eða á annan fullnægjandi hátt.“ Yfirkjörstjómin í Reykjavík, 26. júní 1968. Páll Líndal Eyjólfur Jónson Jón A. Ólafsson Hjörtur Torfason Sigurður Baldursson t

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.