Þjóðviljinn - 13.02.1969, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 13.02.1969, Blaðsíða 3
Fiimimtudagur 13. feíbrúar 1969 — ÞJÓÐVTLJINN — SÍÐA J 2 flugslys í V-Þýzkalandi MÚNCHBN og KIHL 12,'2 — Þrettán manns fórust o'g fimm slösiuðnst í tveim fttugslysium sem tirðu í Vestur-Þ'ýzikalandi í dag. Var í báðum tilfefllum um her- flu tn i n gavéi iar að ræða. Slkammt frá borginni Erding í Bayem hrapáði 2ja hrejrffla vél af gerðinni Noratlas í hríðarbvl rétt eftir fluigtalk. Lenti vélin í ibúðarhverfi og á einu húsanna Níu brettán manna áhafnar fór- ust og hinir stórslösuðust. Kona í húsinu bjargaðist með ungbarn í fanginu, en tveggja ára barn fórst í rústunum. Hitt fluigsilysið varð í Slésvflt- Holstein í nágrenni Kielar. Þar fórust þrír er 2ja hreyfla Dak- otavél hrapaði og sá fjórði slas- aðdst. Leiðrétting Málsgrein í leiðara Þjóðviljans í gær er rétt þannig: ..Þess skgl einungis minnzt nú, þegar at- vinnuleysið sverfur á ný að þús- undufn fslendinga, að það var með verkföllunum miklu 1955 að verkalýðsfélögin knúðu í gegn löggjöfina um atvinnuleysds- tryggingar. en afturhaldið á Al- þingi hafði ekki sinnt því máli þó Sósíalistaflokkurinn bseri hvað eftir annað fram frumvörp um atvinnuleysisfryggingar, enginn þinigflokkanna léð þeim frum- vörpum lið“. Miljónir ítalskra verkfalls- manna heimta launajaf nrétti RÓM 12/2 — Um fimm miljónir verkamanna lögðu niður vinnu á Ítalíu í dag til að mótmæla launamisrétti i iand- inu. Náði verkfallið til allra iðnfyrirtækja í einkaeign í 70 af 94 héruðum landsins og stóð frá nokkrum tímum og upp í sólarhring. Er þetta annað stórverkfallið á Ítalíu á einni viku, en nær 20 miljónir verkamanna tóku þátt í allsherj- arverkfallinu á miðvikudaginn var. er krafizt var hækk- únar eftirlauna. 44 drepnir í ó- eirðum í Bombay BOMBAY 12/2 — 44 manns hafa drepizt og meira en 500 slasazt í Bombay undanfarnar fjóra daga í mestu róstum sem orðið hafa í borginni. Vinnustöðvun hefur verið í flestum fyrirtækj- mn, verzlanir hafa verið lokaðar og samgöngur Iegið niðri. Óeirðimiar hóÆust er meðlimir heegrisimvuðu Mahairasiht-hreyf- mgarimnar Siliiv Sena efndu t.il hópfunda tifl að kirefjast siamein- ingar Mysore við Maharasht- héruð, en þau liggja saman og í- búamir taila saima mál. Þróuðust útifiundimir filjótlega í hreinar ofbeldisaðgerði r, sem harðast bitnuðu á ftóllld frá öðrum lands- hiltutoum, einlkum Suður-Indverj- «n sem setzt hafa að í Bombay. Verkfallið í dag beindist fyrst og fremst að launamisrétti verka- mann-a eftir landshlutum, en til að hvetja iðjuhölda til fjárfest- in-ga hefur ríkisstjómin stutt þá stefmu að laun iðnverkamanna væru lægri í lítt iðnþróuðum héruðum, þ.e. einkum í suður- hluta Ítalíu og á Sikiley. Halda verklýðssamíökin þvi fram. að launakerfi . þettá hafi síður en svo ötrvað iðnþróun í þessum lamdshlutum, eh hi»s vegar enn aukið fátæktina í ^Suður-ftalíu ’og á fleiri stöðum. Að því er leiðtogar verklýðs- samtakamna skýrðu írá í dag lögðu 200 þúsund verkamenn nið- ur vinnu á Sikiley og 100 þúsund , í Mílanó. en þar fóru um 6000 í mótmælagöngu þrátt fyrir óvenju mikinn kulda og báru spjöld með kröfum um sömu laium fyrir söm-u vinnu. Annars varð verkfallsins ekki mikið vairt í stórborgum eins og Róm. TOrino og Genúa, þar sem verkíölfin stóðu bar bæði styttri tíma en í héruðunum sem launamigréttið bitnar mest á og eins náðu þau ekki til ppinberra samgön-gu- tækja. pósts né síma. eins o-g fyrra allsherj arverkfallið. Talið er að allt að 90% vebka- m-anna í suðurhéruðum landsins hafi - tekið þátt í verkf allinu, en fannkyngi hindraði samgöngur við marga bæi _ í dag og var því ekki mögulegt að fá nákvæmar töluir verkfallsm-anm-a. Verkfallið í dag náði aðeins til fyrirtækja í ein-kiaeign, en verka- menn í iðnfyrirtækjum ríkisins og verksmiðjum sem ríkið á.að hálfu hafa þegar undirritað sam- komulag um launakerfi á jafn- réttisgrundvelli. Hefur verkfallið í dag vakið mikin óróa meðal iðjuhöldan-nia. sem álíta að það ha-fi kositað þá þúsundi-r miljón-a líra, og segjast þeir nú vera fúsir til við- ræðna við verklýðssamtökin. Hin nýja samstey pu st j órn Mariano Rumors hefur þegar haf- ið samningá við verklýðssamtök Igndsins um ellilífeyrinm, sem kra-fizt var hækkunar á með alls- herjiarverkf-allinu fyrir viku. Eiga eftirlaunin að hækka úr 65% í 80% verkamamnalauna. Verklýðssamtökin krefjast þess að þau verði komin upp í 80% 1975, en ríkisstjómin hefur hald- ið sig við árið 1980. Vinstri fíokkarnir sigra í kosningum til fylkisþinga Plastpokum með blóði rigndi yfír Harold Wilson / Bonn NÍJU DELHI 12/2 — Indverski Kongressflokkdrinn hefur tapað í kosningunum í öllum fjórum fylkjunum, sem kosningar hafa farið fram í undanfarna daga- Punjab, Uttar Pradesh, Bihar og Vestur-Bengal. Hafa úrslitin í kosningunum til fylkisþingsins í Vestur-Bengal vakið mesta at- hygli, en þar beið Kongress- fiokkurinn mikið afhroð og sam- einaðir yinstri flokkarnir undir forystu kommúnista unnu stór- an sigur. Er ósigur Kongre&sflokksins í Vestuir-Benigál tadinn mikið áfall þar sem fylkið er eitt helzta iðnaðarfylki landsins og talið hafa miklá hernaðarlega þýð- ingu. Kongressflokkurinn stórtapaði einnig í kosningunum í fylkinu Uttar Pradesh, heimafylki Indim Gandhi sjálfrar, en þar heflur hann jafnan átt talsverðan meiri hluta. Munu kosningar í fjalla- héruðum fylkisins, sem fram fara 20. febrúar, ráða endanleg- um úrslitum, en í dag var þeg- a-r Ijóst að Kongressfllokiknuim hafði ekki tekizt að tryggja sér meirihluta þingsætanna 420. í kvöld er talið hafði verið i 189 af 240 kjördæmum í Vestur- Bengal h-afði bandalag vinsiiri flokkann.a unnið í 141, en Kong- ressflokkurinn aðeins í 42. Klofn- in-gsflokkar og óháðir höfðu sigr- að í sex kjördæmum. í Punjab fylki tapaði Kongress- flokkurinn einnig meirihlutianum, fékk aðeins 38 af 104 þin-gsæt- um, en í fylkinu Bihar hefur Qokkiurinn unnið á og fengið mörg ný þingsæti, en ekk-i þótti lí-klegt í kvöld að bann ynnf þar meirihluta. Athugasemd Þjóðviljanum þarst í gær eft- irfarandi athugasemd frá Guð- mundi J. Guðmundssyni og Jóni Snonna Þorfeifssyni: Vegna ummiæla Hdlma-rs Guð- lausso!na.r, fonmanns Múrarafélags Reykjavfkur, um útifund Dags- brúnar og Trésmiðafélaigsins í viðtaili í Morgunblaðinu í dag, 12. febr., viljum við biðja yður fyr- ir eftirfarandi athugasemd: Eins og réttilega kemur fram í viðtalinu var spuirt, hvort Múr- araféla-gið vildii með au-glýsingu hvetja féla-gs-menn sína til að mæta á útifundinum. Hitt er aHrangt hjá Hilmari, að Múrarafélaigiið hafi óskað eftir að gerast þátttakandi í f-undinum. Þar af leiðandi var engri si ikri ósik hafnað, eins og haldið er fram. f.h. Vei’kamannafélaigsins Dagsbrúnar. Guðmundur .1. Guðmumisson f.h. Trésmiðafélaigs Reykjavíkur Jón Sn. Þorleifsson Róðstef na landsprófsnema BONN 12/2 — Annan daginn í röð rigndi plastpokum fullum af blóði yfir brezka forsáetisráð- herrann Harold Wilson, sem er í opinberri heimsókn í Bonn, hrópað var á móti honum „Wil- son morðingi" og „Wilson, við fyrirlítum þig“, þegar hann ók til móttöku í ráðhúsi borga-rinn- ar í dag. Mótmælaaðgerðir hófust þegar á þriðjudagskvöld er Wilson kom til Bonp, en að þeim standa ung- ir Vestur-Þjóðverjar og Afrík- anar, og vilja á þennan hátt mótmæla vopnasendingum Breta til Nígeríu. Hrópuðu þeir slagorð gegn Wilson og slengdu plast- pokum fullum af blóði úr vest- ur-þýzkum sláturhúsum á bíla- lest gesta og gestgjafa, svo blóð- ið sprautaðist yfir silfurgráan Rolls Royce brezka forsætisráð- herrans. Meðan Wilson var við móttök- una slógu mótmælendur bumibur og sungu bíafCranska stríðs- söngva, en -strangur lögregluvörð- ur var uimhverfis þá. Vilja Breta í EBE Wilsbn hóf frveggja daga við- ræður sínar við Kiesinger for- sætisráðherra í dag og lýsti þá yfir, að Bretar’ væru þvi fylli- lega samþykkir, að nýr forseti Vestur-Þýzkalands yrði kosinn í Vestur-Berlín. Kiesinger á hinn bóginn fullvissaði Wilson um að vestur-þýzka stjómin mundi heilshugar stuðla að þvi að Bret- ar kæmust í Efnahagsbandalagið, ' ^lemendur landsprófsbekkja gagnfræðaskólanna í Reykjavík og Kópavogi efndu í gær til ráð- stefnu með um 60 fulltrúum, — tvcim frá hverri bekkjardeild. Ríkti mikill einhugur og áhugi á ráðstefnunni, sem haldin var í samkomuhúsi unga fólksins, fv. Lídó, og var í lok hennar sam- þykkt einróma áiyktun um eftir- farandi kröfur: „1. Eullkomin endursk. skól-a- kerfisins frá rótum. 2. Bætt verði úr húsnæðiskosti skólaninia. 3. Bókasöfn og tilraunastofur við hvem skóla. 4 Kennslutæki þau sem fyrir eru í skólum verði betur hag- nýtt og bætt við þau. 5. Athugun á fleiri möguleikum um inn-göng’u í menn-taskól- an-a. 6. Einkunnir gefn-ar í hieilum og hálfum, tölum og aðal- ein-kunniir með ei-num a-utkia- staf. 7. Kja-ftaíag-aála-ginu verði létt af landsprófsdeild og jafnað niður á I. og II. bekk gaign- fræðaskólann-a. 8. Sami háttur verði hafður á fyri-rkomula-gi i>rófa og í fyrr-a. 9. Fjárframlög til skóla verði aukin. 10. Lýðræðislegri rammi verði settur um féla-gslíf í skólum. 11. Kynferðisfræðsla verði hafin í sikóttum. 12. Reglum um menn-tun kennara verði framfylgt. 13. Nefnd með 1—2 fulltrúum fní hverjum gagnfræðlaiskóla, sem sitji fundi með fræðsluyfir- völdum og hafi þar tillöguirétf. Verði ekkert tilllit tekið tM þess-arar ályktunar munu lands- préfsnemendur grípa til eigin úr- ræða.“ UTSALA UTSALA «■■■■■■»■»■■■■■■■■■■»■■■ ■■■■■■■■ ■■WWWfl Hvers á Spánn að gjalda? It^lkynndnigu sem í gær barst frá aðalstöðvum Alþjóða- sambands frjálsra verklýðsfé- laga (ICFTU) i Brussel er sagt að meira en þúsund manns hafi verið handitekin á Spáni síðan þar var lýst „undan- þáguástandi" 24. jan-, mar-gir þeirra forystumenn verklýðs- samtaka. Undanþág’ul'ögin hafa gert. Francostjórninni kleift að halda áfram stöðugum otf- sóknum sínum gegn verka- mönnum og samtökum þeirra, segir ICFTU ennfrem-ur sem einnig hetfur uppgötvað að Francostjómin hafi gerzt sek um „mörg gróf brot á réttind- um verklýðsfélaga". Ek'ki verður sagt að hinir frjálsu verklýðsforingjar í Brussel taki djúpt í árinni — á þrjá- tíu ára valdatíma Francos hetfur spænsk verklýðshreyf- ing ek'ki hatft nein réttindí yfirileitt, sú barátta sem spænskur verklýður hefur háð hefur öll verið „ólögleg“ þótt stundum hafi hún orðið svo öflug að stjómarvöldin hatfa neyðzt til að láta undan síga. Sú afstaða sem mótar tilkynn- ingu-na frá Brussel í gær er þó allrar, virðingar verð — ekki sízt fyrir þá sök að við- brögð manna í Vestur-Evrópu við þeim tíðindum sem und- anfarið hafa verið að gerast á Spáni hatfa verið harla máttlítil, svo að ekki sé meira sagt og stinga æði mikið í stúf við viðbrögð þeirra við öðr- um atburðu-m sem gerzt hafa annars staðar í Evrópu tæpl síðasta misseri. Engir fundir hafa verið saman kvaddir í mótmælaskyni, engar samúð- arkveðjur sendar hinni bág- stöddu spænsku þjóð; íslenzk- ir prestar hatfa ekki beðið fyr- ir kristnum starfsbræðrum sín- um á Spáni sem tugum ef ekki hundruðum sarnan hetfur verið - varpað í dýflissur; lög- menn hafa ekki mótmælt handtökum sinna spænsku starfsbræðra sem fangelsaðir hafa verið fyrir það eitt að taka að sér vörn sakbominga eða mælast til þess að hlítt væri frumreglum heiðariegs réttarfars; stjórn Alþýðusam- bands tslands virðist láta sér á sama standa um örlög beirra ótal mörgu verklýðs- leiðtoga sem veslast upp í fangelsum Francos; stúdentar láta sér í léttu rúmi liggja örlög spænskra félaga sinna sem hvað harðast hafa orðið fyrir barðinu á þeirri nýju of- sóknaröldu sem nú gengur yf- ir Spán; enginn háskólaprétf- essor hefur að þessu sinmi rit- að grein í „Morgunblaðið“ fulla af heilagri vandlætingu, á borð við þá sem þar birtist á síðasta hausti; samtök ís- lenzkra rithöfunda og blaða- manna þegja þunnu hljóði við því að sá vísir að rit- og mál- frelsi sem gægzt haifa fram á Spáni hefur verið fótum troð- inn, en ekkert ritað mál má nú birta nema með leyfi stjómarvalda, að hækur fjöl- margra höfunda hafa verið settar á svartan lista og jatfn- vel sala á hljómplötum er háð eftirliti:# sjónvarps- og út- • varpsmenn hafa ekiki hneyksl- azt á því að s-pæniskir starfs- bræður þeirra hafa verið múl- bundnir; jaifnvel stjóm Al- býðubandalagsins virðist láta sig það. litlu skipta þótt hundruð sósíalista og annarra verfclýðssinna hafi fengið gist- ingu í svartholum Francos síðustu vikur, að ógleymdum beim tugþúsundum sem þar hafa lifað og dáið í mörg ár og áratugi. Hvers eiga Spán- verjar að gjalda? ás. Ódýrt! — Ódýrt! Unglingakápur • Barnaúlpur • Peysur • Skyrtur Gallabuxur og margs konar ungbarnafatnaður. - Regnkápur á böm og fullorðna FATAMARKAÐURINN, Laugavegi 92. Sö/uskattur Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir 4. árs- fjórðung 1968, svo og nýálagðar hækkanir " á söluskatti eldri tímabila, hafi gjöld þessi ekki verið greidd í síðasta lagi 14. þ.m. Dráttarvex'tirnir eru D/2% fyrir hvern byrjaðan mánuð frá gjalddaga, sem var 15. janúar s.l. Eru því lægstu vextir 3% og verða innheimtir frá og með 17. þ.m. Hinn 17. þ.m. hefst án frekari fyrirvara stöðvun atvinnurekstrar þeirra, sem eigi hafa þá skilað skattinum. Reykjavík. 10. ffebrúar 1969. Tollstjóraskrifstofan, Arnarhvoli. UTSALA KVENSKÓR BARNASKÓR KARLMANNASKÓR AÐ LAUGAVEGI 69 20 - 50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM VERZLUNARINNAR. KVENSKÓR OG LEÐURFATNAÐUR AÐ H AFN ARSTRÆTI 15 i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.