Þjóðviljinn - 13.02.1969, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 13.02.1969, Blaðsíða 8
g SfBA — MómnnWTPfN — FtamtinSagur 13. febróar 1389. « Gilbert Phelps Astin allrafyrsta 26 umráð yfir. Hann var ktvminn úr I jakkanurn og gekk um í svart- og gulköflótfcu vesti með ljós- gulu silkibaki. Eftir máltíðina saifnaðist fólk- ið kringum flygilinn. Doris, yngsita dóttir riddaralhöfuðs- mannsins, bústin og blómleg með vanga eins og villiepli, settist á píanóbekkinn — sem var langur* eins og sófi og klæddur rósóttu brókaði. Doris var álitin ágætur pianóleikari og auk þess bafði hún veika em viðkunnanlega sópranrödd- Hetty eldri systir hennar — há og þrekleg með þyk'kar fléttur, skínandi eins og tagl á hrossi, í krónu um höfuð- ið — hafði fallega altrödd og var oft beðin að syngja á hljóm- leikum í négrenninu- Fyrst í stað völdu stúlkurnar þekkt og vinsæl lög eins og „Annie Laurie", „Sweet Afton“, „Pack Up Your Troubles" og „Hold Your Hand Out, You Naraighty Boy!“ og hvöttu hina til að taka undir. Svo hækkaði Do- ris með aðstoð Hettyar sætið á píanóbekknum og tók fram nótur. Allir þögnuðu. Jafnvei Gharlie ömmubróðir þagnaði í rmðjum brandara sem hann var að segja. Hátíðleg eftirvænting fyllti stofuna. Alan og Meg hurfuyinn í hom- ið lenigst í burtu og settust á gólf- ið umdir grammófóninum með grænu trektinni,. sem minnti á blað á risaaspadistru. Alan var ekki sérlcga hrifinn atf þessum hátindi í veizlum riddarahöfuðs- mamnsins. Hann var ekki bein- línis á móti textunum eða lög- nrnim eða svipnum á andlitum karlmannanna eða tárunum í' augum kvenfólksins- Það var miklu fremur það hvemig Hetty söng. Dældin undir hásinum á henni varð rauð, háJlsinn varð titrandi kjötsúla og það var m fEFNI SMÁVÖRUR TÍZKUHNAPPAR HÁRGREIÐSLAN Hárgreiðslustofa Kópavogs Hnaunitungu 31. Sími 42240. Hárgreiðsla. Snyrtingar. Smyrrtivörur. Eegruniarsérfræðingur á staðnum. Hárgireiðslu- og snyrtistofa Steinu og Dódó Langav. 18. III. hæð (lyfta) Sími 24-6-16. Perma Hárgreiðslu- og snyrtistofa Garðsemda 21. SÍMI 33-968 næstum óhugnanlegt hvemig barmurinn á henni hófst og hneig. Djúp altröddin bergmál- aði óþægilega við hljóöhimnur hans. Þetta var rödd fullorð- innar konu Pg hún var í senm aðlaðandi og fráhrindandi fyrir hann. Nú skildi hann hvers vegna Watchmíin, labradorthumd- ur riddarahöfuðsmannsins, hafði árið áður setzt á aft.urlappirnaf, lyft höfðinu óg gefið frá sér spangól í miðju laginu um „Ei- leen Alannah“. Honum fannst eins og maginn á honum fylitist af vatni meðan hann var að hlusta. Hetty lauk söngnum við dyn;j- andi fagnaðarlæti, nótumar vom teknar burt og flyglinum lókað- Rab kærasti Hettyar. fölleitur uingur maður sem var undir- foringi í sjóhernum, hafði ein- blínt á hana soltnum augum meðan hún var að synigja;' nú greip Viann um hendurnar á henni og dró hana niður í fang sér. Það gaf Charlie ömmubróð- ur tiléfni til að koma með eina af hinum satfaríku athugasemd- um sínum og allir hiógu ofsa- lega. s Riddarahöfuðsmaðurinn skenkti í glösin, og gestimir, sem bersýnilega höfðu orðið þyrstir af því að horfa á háls- inn á Hetty, tæmdu þau strax. Döris lagði plötu á grammófón- inn og hás foxtrott ómaði út í stofuma. Hetty og Rab og Doris. og vinur hennar fóm að dansa með' ýktum, rykkjóttum hreyf- ingum og ýtti • Charlie ömmu- bróður og áheyréndum hans lengra inn í eitt homið. Glad frænka var rjóð í andliti og hár- ið féll niður á ennið. Hún þreif í handlegginn á eiginmanni sín- um til að toga hann með sér og himir hrópuðu: — LáttJu hana ekiki setja á þig beizlið, Emie! Hún dró hann út á mitt gólfið og neyddi hann til að dansa. Hann hafði enga hugmynd um hvernig spprin voru, en hann hoppaði upp og niður, meðan Glad frænka skók hann til og hviaði af Mátri. Alan og Meg voru rekin úr hominu undir grammófóninum og hnipruðu sig saman í auðu sæti í sófanum. Þar sat kona riddarahöfuðsmannsins teinirétt með prjónana sína. Hún hafði komizt að raun um að foreldrar Alans vonu „skikkanleglt ifól'k" og talaði við þau um „pen** mól- efni. Hún var með hjartasjúk- dóm; andlitið Var á litinn eins og- jarðarberjamauk og var inn- rammað af geislabaug úr þunnu, hvítu hári. Molly og Viktor höfðu náð sér í hægindastól rétt hjá; hann sat á arminum bg hún sfiuddi si'g við hnéð á honum. Friðsamilegur blærinn í sófan- um og hægindastólnum náði eikki til hinna í samkvæminu. Ridd- arahöfuðsmaðurinn sjálfur var reyndar ekki hávær- Með katt- mjúkurn hreyfingum og hæðnis- bros á vör leið hann milli gest- anna og hellti í glösin- En hann var jafnsnjall í því að skapa fjör í kringjm sig og Glad frænka. sem réð lögum og lofum í næstu stoffiu og það leið ekfci, á löngu óður en hirassiin á stallinum fyr- ir neðan j>au fóru að stappa nið- ur fótum eins og þau langaði til að tafca þátt í gleðskapnum. Gegnum háreystina heyrði Al- ar> bjöltu hringja. Auk hans sjálfs var það víst aðeins ridd- arahöSuðsmaðurinn sem heyrði hljóðið. Hanin stóð andartak og hallaði undir flatt, svo setti hann glasið frá sér og gekk til dyra. Meg togaði í ermina á Alan. — Þyrst, sagði hún. Alan gekk að börðinu sem ýtt hafði verið að veggnum. Hann fann glas, en vatnskannan var tóm- Þá gekik hann þvert yfir gólfið og fram á stigapallinn, en þar var vatns- krani. Neðst í stiganum sá hann glitta í riddarahöfuðsmanninn. Sér til undrunar þekkti hann raddir Gwens ömmusystur og Eðvarðs eiginmanns henmsr. — Við vissum ekki að það var veizla hjá þér, sagði Gwen ömmusystir. — Viljið þið ekki fá ykkur ,glas meö okkur? sagði riddara- höfuðsmaðurinn. — Ha? Hvað? sagði Eðvarð frændi- — Þú veizt að ég bragða aldrei dropa- — En viljið þið ekki matair- bita? Komið með rrtér upp. — Þú þarft ekkert að smjaðra fyrir okklur, svaraði Gwen ömmusystir. — Við komum bara til að ræða viðskipti. — A þessum tíma dags? — Við áttum leið hjá. Við vor- um seint á ferð. — Findley gamli er nýdáinn og við ætluðurrt að reyna að kaupa dálítið af dótinu hans- I okkar verkaihring verður maður að vera fljótur að átta sig- — Við getum farið yfir í her- bergið héma hinum megin, sagði riddarahöfuðsmaðurinn. — Nei, við viljum ekki “ta*ka big frá gestunum. Þetta getur beðið til morguns. Ný hlátra- sköil og drunur í Charlie ömmu- bróður bárust. til þeirra ofanúr stofunni. — Sumir geta skernmt sér,, hnussaði í Gwen ömmusystuT. — Og þetta kostar víst skild- inginn, mætti segja mér- Sei. sei, sei- Alan sá fyrir sér hvemig Eðvarð frændi vatt upD á háls- inn innaní óhreinutn fHbbaniutm, eins og hæna með sár á hálsin- um. Lpks leið að lókum veizlunnar. Alan var svo þreyttur að hann fvlgdist ekiki með hvemig það perðist, en alit í einu stóðu þau öll úti í porttnu. Ljóskqr dingl- uðu. hross stappaði og hneggi- aði, það glamraði í keðju. Kirk.iuspíran og ferbymdur tum- inn á dómkirkjunni stóðu upp í dimmgrænan himininn, þar sem tætingsleg ský þutu um allt eins og þymirunnar sem rifnir hölfðu verið upp með rótum og vind- urinn þeytir ýflr sléttu. Það var eins og spíran og tuminn hefðu færzt nær hvort öðru og snertust nú næstum- Allir hróp- uðu góða nótt hver upp f ann- an, síðan var fjölskyldan orðin ein og af einhverjum undairleg- um orsökum fiáru allir að hvfela. Emest frændi hélt á Meg í famg- inu, hún þrýsti andlitinu að öxlinni á honum svo að kinnarn- ar flöttust út og fótleggimir dinglíuðu eins og á tustoubrúðu. Þau flýttu sér eftir dimmurn hliðargötunum eins og þau væru á flótta undan pest. Þau mættu öðrum fjölskyldum sem báru lfka örmagna böm í famginu á heim- leið frá skemmtunum dagsins. Þær flýttu sér framlhjá, þrýstu sér upp að veggnum eða gengu yfir á hinn helming götunnar. Stöku sinnium var kyrrðin und- irstrikuð af glamri í fötu og skóflu eða bamsgráti, sem strax var þaggaður niður. Þau beygðu inn í Majuba Road. 'Cítlínur húsamma titruðu, slökkt var á götuljósunum. og staurarnir titruðu eins og skips- möstur í höfn. Steinlögnin glóði eins og málmur í tunglsljósinu; í hvert sinn er þau komu að tré, skrjáfaði í lauifkrónunni eins og tréð væri að heilsa þeim. En þegar þau vom komin hálifa leið niður götuna komu þau auga á langan hlut sern stóð spölkom frá þeim. — Það er bíll, sagði Glad frænka, eins og þessi und.- ariega birta útheimti að öllu væri gefið nafn á nýjan leik. — Og hann stendur fyrir utan okkar hús, bætti móðir Alams við. Þaiu herfcu gönguna. Þegar þau kornu nær sáu, þau að þetta var grænn sportbíll með kubbs- legri brynju framaná, sem breið leðuról var spennt yfrum. Bíll- inn stóð við gangstéfctarbrúninar pg sýndist yfirlaptislegur, næst- um ógnandi. — Hver i ósköpumum skyldi eiga hann? spurði mióðir Alans- — Hektor á hann, það er ég viss um, svaraði tengdamóðir hennar með samblandi af van- þóknum og gleði í rómnum. Móðir Alans og Glad frænka sögðu vonsviknar; — Nei, en leiðinlegt. Hann hefur þá komið í dag þrátt fyrir allt. Hvað ■ -skýldi hann halda um okkur. Loks saigði móðir Alans: — Ég vissi að við heffðum ekki átt að fara til Denton. r Segldúkur var breiddur yfir bílinn og við dúkinn var festur miði Paðir Alans rétti móður sinni hann. Tunglsljósið var nógu sterkt til þess að hún gat lesið boðin upphátt meðan þau stóðu umhverfis bílinn. Hún talaði lágt til að ónáða ekki nágrannana. Hektor frændi skrifaði að „mér til Skelfingar“ hefði hann kom- ið að tómum kofunum og hefði ákveðið að „labba á næsta hó- tel.“ Þau vildu kannsiki líta eftir bílnluim hans? Þau myndu sjállf- sagt gera það, þar sem hann hdfði ekki fengið þær viðtökur sem hann hefði „gert sér vonir Blaðdreifíng * / Vantar fólk til blaðdreifingar í Háskólahverfí — Langholtsveg. ÞJÓÐVILJINN Sími 17500 MANSION-rósabón gefnr þægílegan ilni í stofnna J o King Featuraa Syndicat*. Inc.. 1965. WorM rigfcta rcserved Mikið gefca strákar verið ós mekikllegir! SfMi 1-7373 RAZNOIMPORT, MOSKVA RUSSNESKI HJOLBARÐINN ENDIST (gntlnental SNJÓHJÓLBARÐAR MEÐ NÖGLUM sem settir eru í, með okkar íull- komnu sjálfvirku neglingarvél. veita fyllsta öryggi í snjó ög hálku. . # Nú er allra veðra von. — BíðiS ekki eftir óhöppum, en setjið CONTINENTAL hjólbarðá, með eða án nágla, undir bílinn nú þegar. Vinnustofa vor er opin alla daga frá kl. 7,30 til kl. 22. Kappkostum að veita góða þjón- ustu með fullkomnustu vélum sem völ er á. GÚMMÍVINNUSTOFAN h.f. Skipholtí 35 — Sími 3-10-55.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.