Þjóðviljinn - 14.02.1969, Side 8
8
SfBA — WÓBVTLJTNiN
Fö&tudagur 14. febrúar 1969.
Gilbert Phelps
Astin
allrafyrsta
27
usrt." Þegar bau sæju „þögla
vitnið" við gangstéttarbrúnina-
vonaði hann að þau myndu
„hugsa hlýlega til hans sem —
að ósekju — þyrfti að dveljast
nóttina undir framandi þaki“.
Hann myndi koma til baka
naesta morgun -eftir morgunverð.
Loks lágu Alan og Meg hlið
við hlið í stóra rúminu. Alan
l'á á bakinu og lét sig síga niður
í hið kunnuglega umihv^rfi- Hann
horfði á Molly sem var að bera
krem framaní sig — andlitið
mýktist og mýktist meðan hún
neri. Hún laut að speglinum og
kreisti út ímyhdaðan húðorm.'
Hún raraílaði eitt af lögunum sem
leikið hafði verið á grammófón-
ítwi hjá riddarahöfuðsmanninum.
Hann velti fyrir sér, hvort það
hofðj engin áhrif á hana að Hek-
tor frændi skyldi hafa komið.
Sennilega hugsaði hún ekki vit-
undarögn um það. Enn einu sinni
öfundaði hann hana og Viktor
sem hrærðust í einskismanns-
landi þar sem umheimurinn gat
ékki tnuflað þau- Honum fannst
þau vera á lygnum sæ en hann
sjálfur á fljóti sem var að byrja
að verða straumhart: framundan
var iðukast og hringiða sem
mjmdi fleygja honum til og frá.
En meira að segja í gær höfðu
hann og Meg lifað í enn meiri
friði. Meg, sem lá þama rétt
hjá honum, var enn umvafin
þéssum friði. Hann sneri sér að
henni.
— Hvað fannst þér skemmti-
legast? spurði hann.
— ökuferðin i vagninum,
svaraði hún án þess að hika.
— Hvaða partur af henni?
— Inni á gólfinu — auðvitað!
Hún geispaði: augun hurfu og
nefið varð á stærð við smátölu.
Það var tilgangslaust að spyrja
hana fleiri spuminiga. Hann
vissi að hún sagði satt. Tíminn
sem þau höfðu setið á vagngólf-
fEFNI
SMÁVÖRUR
TÍZKUHNAPPAR
HÁRGREIÐSLAN
Hárgreiðslustofa
Kópavogs
Hrauntungu 31. Sími 42240.
Hárgreiðsla. Snyrtingar.
Snyrtivörur.
Fegrun arsérfræ ðingyr á
staðnum.
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugav. 18. III. hæð (lyfta)
Sími 24-6-16.
Perma’
Hárgreiðslu- og snyTtistofa
Garðsenda 21. SÍMI 33-968
inu, lokuð inni á alla vegu og
hristust til og frá eins og pyls-
ur á steikarpönnu, var eini at-
burður dagsins, sem hafði mótazt
skýrt í vitund hennar- Allt ann-
að var eitt kraðak af hávaða,
litum, lyktum og hreyfingu.
Hann hnippti varlega í hana.
Hún umlaði hálfönuglega, hálfaf-
sakandi; hún var þegar sofnuð.
Molly setti síðasta kirullupinn-
ann í hárið. Hún blés á ljósið
og klifraði upp í rúmið undir
súðinni. Það marraði og brakaði
í því meðan hún var að hag-
ræða sér. — Góða nótt, krakk-
ar, sagði hún- — Þið rétt ráðið
hvort þið haldið fyrir mér vöku!
Það er útsala á morgun. Næst-
um í hverjum mánuði fann
vörulhúsið eitthvert tilefni til að
halda útsölu. Innan skamms vár
Molly sófnuð líká- Alan lá kyrr
og hlustaði á raddimar niðri í
miðstófunni. Hann gat ekki heyrt
hvað sagt var; raddakliðurinn
minnti hann a öldur sem ultu
fram og aftur; raddir karlmann-
anna voru undiraldan og kven-
raddimaf öld!utopparnir sem
stundum þyrluðu fitxhi og
skvettum upp í loftið. Faðir hans
sló úr pípunni við aringrind-
ina. Fætur og átólfætur dróg-
ust með gólfinrj; fúllorðna fólk-
ið teygði sig og geispaði. Svo
heyrði hann urgið þegar faðir
hans dró upp klukkuna og eftir
fyrsta snúninginn heyrði hann
purrið í Nipper og „plopp“ þeg-
ar hann hoppaði niður úr stóln-
um sem hann halfði sofið í. All-
ir hvísluðu „Góða nótt“ og kon-
urnar fóru upp til að leggja sig.
Karlmennirnir töluðu saman
dimmraddaðir meðan þeir læstu
útidyrunum og fóm fram í eld-
húsið að hleypa Nipper út. Það
hvein í krananum þegiar Ernest
frændl lét vatn renna í glasið
sem hann geymdi gerviitennum-
ar í; hann rumdi þegar hann
gekk upp stigann. Faðir Alans
opnaði bakdymar og hvíislaði
óþolinmódur nafn Nippers. Loks
sagði hann reiðilega: — Þá get-
urðu verið úti í nótt! og lok-
aði dyrunum. Eftir andartaik opn-
aði hann þær aftur, og Nipper
kom þjótandi inn með hávæm
purri eins og venja hans var
á hverju kvöldi. Og eins og
vanalega var ryðgaða sláin föst
og þegar faðirinn gekk framlhjá
áyrunum að svefniherbergi Alans,
stundi hann enn þungan efftir
áreynsluna við að koma henni
á sinn stað. öll þessi hljóð end-
urtóku sig á nákvæmlega sama
hátt á hverju einasta kvöldi.
En í ' kvöld var eins og þau
hefðu fengið nýja fyllingu; hann
hlustaði á þau eins og þetta
væri í síðasta sinn sem hann
heyrði þau.
Slkömmiu seinna var orðið
hljótt í húsinu; hann heyrði að-
eins ömmuna tala við sjálfa sig
og bylta sér í rúminu. En hann
lá vakandi. Ævintýri dagsins
liðu um huga hans- Iíonum
fannst sem einhver breyting
hefði orðið á viðhtyrfi hans til
þessara ævintýra. Hann hafði
óljóst hugboð um að það væri
vegna þess að hann myndi otf
mikið. \
Hann sofnaði loks og um leið
byrjaði hann að dreyma — eins
og hann hdfði opnað dyr að
einihverjum göngum- Hann og
Meg lágu í hnipri hlið við hlið.
Myrkrið kringum þau var hlýtt
og áíþreifanlegt — iðandi hring-
ur úr myrkri. Það minnti hann
á tréskurðarmynd í einni af
dýrabökunum sem amma hans
hafði gefið honum. Tveir bimir
lágu í dvala í híðinu; kringjum
þá var hringur af myrkri og
fyrir 1 utan hringsóluðu tungl,
stjörnur og plánetur. í draumn-
um kom hann allt í einu auga
á ljósdepil langt í burtu; hann
lósaði sig frá Meg, lagði höfuð
hennar varlega á mjúkt myrkr-
ið og fór að ganga í áttina að
bjarta dílnum- Hann stækkaði
eftir því sem hann nálgaðist og
elftir nokfcra stund heyrði hann
tónlist í fjarlægð. Ljósdepillinn
stækkaði og tónlistin hækkaði
og þegar hann kom loks út úr
híðinu varð hann næstum biind-
aður af ljósi og ærður af há-
Vaða. Hann stóð á löngum, mjó-
um vegx, þar sem grasið var
óeðlilega grænt í birtunni frá
ótal gasljósrjm- I fyrstu tók hann
bara eftir litabendu — bláu,
rauðu, gulu og gl^randi gulli og
silfri — tónlistinni sem drundi"
kringum hann. Svo varð honum
Ijóst að hann var sitaddur í stóru
tívólíi. Sitt hvorum megin við
götuna voru sölustallar af öll-
um stærðum og gerðum og af-
greið.sliuborð með röndóttum
brjóstsykúrstönigum og litríkum
sætindum sem döggvuðust í hit-
anum aif gasljósumum fyrir ofan.
Hann sá risastóra, vaggandi báta
með stafna eins og dýra- eða
fuglahausar og hringekjur með
hestum sem þu&i í hrinigi, ofsa-
fengnir og ógnandi. Frá þessum
hringekjum barst tónlistin; hún
drundi gegnum víðar pípur sem
voru, hálfhuldar í gufumekiki. En
það var eins og þetta gengi allt
sjáifkrafa- Hið eina sem hann
sá sem minnti á marjnlegar ver-
ur voru hópar af risastórum,
óhreyfanlegum styttum að lögun
eins og karlar og konur, en
alveg flatar eins og þær væru
skornar í krossvið og málaðar í
sterkum litum með gleiðbrosandi
andlit og eldrauðar kinnar og
nef. Hann gat gengið gegnum
þær fyrirhaífnarlaust; honium
fannst sem hann einn væri gerð-
ur úr efni, hamn var eins og
þung kúla sem val.t niður gjótu,
inn og út um flatar myndir.
En éftir nokkra stand tók hann
eftir því að máluðu brosin voru
orðin flíruilegri og yfiriborðið fór
að verða rakt. . Allt í einiu, fóru
myndirnar að gliðna og hreyfa
sig og innan skamms voru þær
kom-nar á öfsalega hreyffimgu;
þær þutu til og frá, ýtta huer
á aðra, æptu og góluðu með hás-
um röddum og sveifluðu stórum
hringlum. Ein veran stóðvaði
hann með fætinum, laut niöur
og bar rauitt, gljáandi andlitið
alveg upp að homium. Römm lykt
barst að vitum hans, en hamm
gat ekki greint hvort lyktin var
af brunninni málningu eða svita.
-J- Við erum lfka kringlóttar,
gólaði veran í eyrað á honum.
— Þú ert einn af oidcur! Þetta
fyllti hann viðbjóði og skelf-
ingu. Hann sneri sér við og leit
til baka. Hann sá niður eftir
löngu götanni með ljósuniuim og
litanum, söloistöllunum og hring-
<?kjunum á báða vegu sem nú
var troðfull og iðandi, háværu
fólki — hann sá alla leið að
opinu á göngunum og iangt,
langt niðri, eins og hann horfði
gegnum kíki, greindi ha-nn hol-
una þar sem Meg lá saman-
hnipruð í myrkrinu óg svaíf.
SJÖUNDI KAFLI
— Komið að kokklhúsdyrunum.
Komið að kokk'hús-dy ru-num!
Greg hafði blásið í homið í hálf-
tírna að minnsta kosti áður en
Alan varð að viðurkenna með
semingi að hann væri vaknað-
ur. Þau höfðu gleymt að draiga
niðuir rennitjaldið kvöldið áður
en gluggatjöldin voru dregin
fyrir. Þau voru úr upplituðu
chintzi en sólin litaði þau gull-
gul. Úti virtist vera gott veður
og logn, því að gluggatjöldin
héngu óhreyfanleg eins bg flek-
ar úr ógagnsæum málmi.
Búið hafði verið um rúm Moll-
ýar; dúskarnir á hvíta rúmtepp-
inu náðu alveg niður á gólf báð-
um megin við rúmið. Meg vakn-
aði og leit í kringum sig í her-
berginu gegnum samanlímd
augnahár. Þau héýrðu engin af
kunnuglegu hljóðunum — glamr-
andi mjólkurkemma, högg bréf-
berans, glamur í uppþvotti —
hljóð sem á hverjum morgni
gerðu þeim kíleiflt að komast að
því hvað klukkan var. Það var
eins og litla herbergið með dau/f-
gulri birtanni hefði verið atfigirt
frá húsinu að öðru leyti; það
var ómögulegt að átta sig á því,
hvort þáu höfðu sotfið eina nótt
eða hundrað ár. Svo var kyrrðin
rofin af smellum og skellum
sem féllu elkki inn í hversdags-
legt mynstrið-
Alan mundi loks að þetta var
morgunninn etftir Demtonsýning-
una og þá vóru þau vön að fara
seint á fætur. Svo mundi hann
að í dag ætlaði Hektor frændi
að koma. Hann hoppaði firam
úr rúminu og dró Meg á efltir
SKOTTA
— Hræðilega ertu óírumleg að hætta ekki að gangá í þessum stutt-
buxum þegar ég er komin í nátovæmlega eins-..
/
Þvoið hárið iir LOXEXE-Shampoo — og flasan fer
Cabinet
SANDVIK
S NJ Ö NAGLAR
SANDVIK snjónaglar veita öryggi í snjó og hálku.
Látið okkur athuga gömlu hjólbarðana yðar og negla
þá upp.
SANDVIK pípusnjónaglar eru framleiddir sérstak-
lega fyrir jeppa, vörubíla og langferðab’la.
SANDVIK snjónaglar þola sérstaklega vel malarvegi
okkar.
Gúmmivinnusfofan h/f
Skipholti 35 — Sími 31055 — Reykjavik.
Trésmíðaþjónustan
veitir húseigendum fullkomna viðgerða- og við-
i haldsþjónustu á öllu tréverki húseigna þeirra.
ásamt breytingum og annarri smíðavinnu úti sem
inni. — SÍMT: 41055
/