Þjóðviljinn - 20.04.1969, Síða 6

Þjóðviljinn - 20.04.1969, Síða 6
0 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Sunmudagur 20. apríl 1969. SNÆFELLINGAR! Fjölbreytt úrval af: Kven- Karlmanna- og Barnafatnaði Verzlunin SUNNA Ólafsvík — Sími 132 HRAÐFRYSTUM allar íslenzkar sjávarafurðir og kjöt. ísframl»iðsla — Beitusala. Hraðfrystihús Hellissands h.f. Hellissandi. Trabant fólksbifreiðin er með sérlega stóra farangursgeymslu. Farangur sá sem sést á myndinni kemst allur fyrir í henni. Trabant stadion er rúmgóður enda notaður bæði til fólksflutninga, sendiferða o. fl. Stadionbifreiðar eru sérstaklega heppilegar til ferðalaga. Pappakassar þeir sem sjást á myndinni komast allir fyrir í Trabant-stadion bifreið. Eftlr 6 ára reynslu hér á landi vitum við að Trabant ryðgar ekki, Trabant er framúrskarandi endingargóður, Trabant er sparneytinn, Trabant er ódýr í vlðhaldi. Margir þeirra er keyptu fyrst Trabant hafa keypt Trabant aftur. Trabant fólksbifreið af de Lux gerð kostar kr. 161.305,00 til leyfishafa kr. 91.305,00. Trabant stadionbifreið af de Lux gerð kostar kr. 170.520,00 og til'leyfishafa kr. 100,520,00. Mjög góð lánakjör. Tökum gamlar Trabant bifreiðir upp í nýja bifreið. Við eigum óráðstafað aðeins ,12 bifreiðum af 1969 árgerð. I sýningarskála okkar að Vonarlandi við Sogaveg erum við með sýningarbifreið. mikill Ifarartálmi. Geta þá t.d. þeir sem ætla til Patreksfjarð- ar með bíl ekið frá Reykjavik til Stykkislhólms og tekið bát- inn þar og sparað sér þannig um 300 km keyrslu, þ.á.m- um B röttubrekkun a. Nú stendur til a$ þessiar póstferðir verði auJknar í sumar þannig að þær verði bæði lauigardaga og mánudaga Dg fær fólk þá tækifæri til að vera yfir helgina á Barða- ströndinni. Auk föstu ferðanm. höfum við verið með talsvert af hóp- ferðum út í eyjar, algengt að ferðahópar leigi báitinn til slíkra siglinga. — Hefur aldrej neitt komið fyrir þig öll þessi ár sém þú hefur verið á Baldri? — Nei, ég hef verið ákaf- lega heppinn og minnist þess hvorki hjá föður mínum né síðar að neitt hafi komið al- varlegt fyrir. Ég hcf liíka allt- af haift úrvals mannskap alla mína tíð. Áhöfn Baldurs í sal bátsins, sem tekur 45 í sæti. Frá vinstri: Jóhannes Þórðarson 2. vélstjóri, Kristján Jónsson matsveinn, Lárus Guðmundsson skipstjóri, Einar Bjarnason 1. vélstjóri, Pét- ur Guðmundsson háseti, Herbert Jónsson háseti og Jón Ágústsson stýrimaður. Siglir vikulega á allar hafnir Breiðafjarðar Reykjavíkur og Breiðafjarðar- hafna. I vetur hefur reyndar verið óvanalega mikill ís og við höfum ekki getað haft alveg fastar ferðir, en venju- leg áætlun er vikuleg ferð frá Reykjavik, á miðvikudögum, til allra hafnanna: Rifshafnar, Ólafsvíkur, Grundarfjarðar, Styk'kishólms, Búðardals, Hjallaness, Skarðsstöðvar, Króksfjarðarness, Flateyjar og Brjánslækjar. Afgreiðslu höf- um við hjá Rikisskipum i Reykjavík, en báturinn er skráður í Stykkishólmi. — Hvað eruð þið lengi í svona ferð til allra hafnanna, Lárus? — Því er erfitit að svara. Við Fjörutíu ár er hann búinn að vera á flóabátnum Baldri, hann Lárus Guðmundsson skipstjóri, en reyndar ekki alltaf á sama Baldrinum, þeir eru alls orðnir sex og hann hefur verið á þeim öllum, þaraf skipstjóri á fimm í sam- fleytt þrjátíu ár. — Ég fór fyrstu ferðina með föður mínum á Baldri elzta 1928, en hann var skipstjóri á fyrsta og öðrum bátnum, sem ég tók við af honum 1939, sagði Lárus þegar við heim- sóttum hann um borð við bryggjuna í Grundarfirði. Þefcta er sjötti báturinn og sá stærsti, með sjö manna áhöfn, bg gengur allifc árið milli verðum allstaðar að sæta sjáv- arföllum í innfjörðunum og getur það ráðið þvi hve lengi við erum. Fyrir utan hringferðina höif- um við vikulega fasta póstferð milli StykkiShólms og Brjáns- lækjar allt árið, frá því um miðjan apríl til 1- október för- um við alla mánudaga kl. 1 frá Stykkishólmi til Flateyjar og BrjánsJækjar,.en á vetuma er farið á laúgardögum. Nú er nýbyrjað að smíða bryggju á Brjánslæk, var lokiö sl. haust, og er bað mikil sam- göngubót fyrir Vestfjarða- kjálkann og ])á hægt að flytja bila á milli og spara sér Þingmannaheiðina, sem oft er Lárus skipstjóri Atvinnumálanefndin árangurslaus Engar hliðarráðstafanir — vísitöluuppbótina óskerta Ég veit ekki eftir hverju Al- þýðusambandið er að bíða, sagði Kjartan Þorstcinsson í Ólafsvík í viðtali um verklýðs- mál og atvinnumál staðarins, sem Þjóðviljinn átti við hann síðla í marz. — Flcstöll verk- iýðsfélög landsins hafa þegar samþykkt vcrkfallshcimild, þar sem gert er ráð fyrir „samráði við önnur félög“ og er nú beð- ið cftir að forystufólögin og ASÍ ríði á vaðið. — Ég álít að of dýrmætum tima hafi verið eytt í það upp- haflega að kjósa þessa atvinnu- málanefnd, sem maðuir hefur ekkert séð eftir enniþá og hefur reyndar litfla trú á, að sýni neinn verulegan árapgur- Ekkert hef- ur gerzt enn og það eina scm maður hefur heyrt, or að verið sé að ræða um einlhverjar hlið- arráðstafanir, eins og lífeyris- sjóð verkamanna eða eittihvað slíkt. Hann er að vísu æskilegur, en ég sé ekki að slíkt bjargi mál- unum eins og þau eru nú. Kraf- an sem nú verður að gera er að fá vísitöluuppbótina óskerta á þessi Iaun og held ég að allur almenningur geri sér það ljóst, hvar í flokki sem fólk annars stendur. Kjartan var við vinnu sína sem vélamaður hjá Hraðfrysti- Kjartan Þorstcinsson húsi Ólafsvikur hf. þegar við hittum hann að máli og sagði hann atvinnu næga þar nú og sömuleiðis hjá hinu frystihús- inu á staðnum, Kirkjusandi, sem er samvinnufyrirtæki. — Það hefur verið næg at- vinna síðan sjómannavorkfall- inu lauk og talsvert af aðkornu- fólki hér á vcrtíðinmi. Auk frystihúsanna tveggja eru starf- andi tvær fiskvinnslustöðvar sem verka salttfisk. Héðan eru gerðir út 18 bátar, allir á net nema tveir á línu, en alffli hefur verið með afbrigðum rýr að þessu sinni miðað við undan- farandi vertíðar. Þótt atvinna sé nœg eins og er hefur atvinnulíf í Ólafsví'k verið mjög lélegt imdanfarið ár og verst frá áramótum í vetur þar til verkfallið leystist, þá koimusit uppundir hundrað manns á atvinnuleysisskrá- Or- sök þessa ástands undanfarið ár er m.a. samdráttur í bygg- ingum og eims hitt, að annað frystihúsið, Kirkjusandur, hefur átt í ákaflega miklum erfiðleik- um, stöðvaðist um áramót í fyrra og síðar í a.m.k. tvo mán- uði, vegna greiðsluvandræðáV fólk þuirfti að bíða eiftir launum sínum allt uppí þrjá mánúðí. ' Þá hafa lifrarbræðsila og beiná-' mjölsverksmniðja sem hér’stöhÞ-'i uðu verið lokuð siðan um' ára-: mót vegna fjárskDrts. Þegar kjaraskerðingin bætist við þetta ásitand er ekki undar- legt þótt almonningur sé svárt- sýnn og fólk veltir því fyrir sér hvemig það á að lifa við þésáa dýrtið. Það segir fljótlegá" til" sín þegar fólk á að fara að 'búa” við 20% kjaraskerðingu og'það með minnkandi atvinnulífi. KAUPUM FISK til söltunar og herzlu. Kaupum einnig síld. Jökull hf. HeJlissandi 4

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.