Þjóðviljinn - 24.04.1969, Page 2
2 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 24. apríl 10(55.
í sumar verða allt að sjötíu
rafvirkjar atvinnulausir
Þjöðviljinn náði tali af
tveimur rafvirkjum í gær og
spurði þá um framgang verk-
falls rafvirkja og bað þá jafn-
framt að greina frá kjörum raf-
virkja og vinnuhorfum á næstu
mánuðum.
Þeir heita Guðmundur Magn-
ússon og Eðvarð Guðmundsson
og hafa báðir unnið hjá Ást-
valdi Jónssyni, rafvirkjameist-
ara, í vetur.
Samstaða rafvirkjanna hefur
aldrei verið eins góð t>g núna
í þessum átökum og skipta þar
flokksbönd ekki máli, sagði
Guðmundur-
Við höfurn áhuga á því að
samræma verkfallsvörzlu hjá
hinum ýmsu stéttarfélögum svo
að mennirnir nýtist betur. Þeir
kalla þetta hagræðingu í at-
vinnulífinu, sagði Guðmundur
ennfremur.
Við þurfum líka að byggja
upp meiri kröfuhörku og sækja
--------—-----------------------«>
Landgræðsla sjálfhoðaliða
Ingólfur Jónsson landbúnaðar-
ráðherra svaraði í gær á Alþingi
fyrirspurnum Jónasar Árnasonar
hve miklhi fé yrði varið til á-
burðar- og fræikaupa og annars
kostnaðar við landgræðslu sjálf-
bcðaliða í sumar, og svaraði ráð-
herrann þvi að til þessa myndi
varið 1.350.000 kr., samikvæmt
áætlun landgræðslustjóra.
Jónas taldi að það myndi vera
um tvöföld upphæðin sem varið
var í fyrrasumiair, en áleit að þörf
væri meira framlags vegna hins
mdkla áhuga sem ungmennafélag-
ar og aðrir heföu sýnt málinu.
síðan að settu marki með mark-
vissum aðgerðum, sagði Eðvarð.
Einhvemveginn finnst mér ég
hafa það á tilfinningunni, að
við séum að berjast fyrir til-
veru okkar þessa stundina og
mikið sé i húfi, bætti Eðvarð
við.
Meðalkaup rafvirkja er um
14 þúsund krónur á mánuði fyr-
ir dagvinnu og við höfum að-
eins unnið dagvinnu í vetur,
sögðu þeir félagar.
Þegar líður á sumarið er
hægt að gera ráð fyrir atvinnu-
leysi hjá 60 til 70 rafvirkjum
og ískyggilegu atvinnuleysi
næsta vetur.
Um eitt hundrað rafvirkjar
vinna í Straumsvík og að Búr-
felli um þessar mundir og verð-
ur verkum þeirra lokið fyrir
haustið. Þá er ljótt útlit í bygg-
. ingarvinnu í sumar og eru
dæmi þess að lóðahafar skili
Eðvarð Guðmundsson
24 vélsmiðjur hófu verk-
baiin á [..I* nætti sl. nótt
Þessi fyrirtæki eru í meist-
arafélagi járniðnaðarmanna og
settu verkbann á jámiðnaðar-
menn og hjálparmenn í jám-
iðnaði í nótt: Vélsmiðján Dynj-
aijdi, Skeifunni 3. Reykjavík,
Vélsmiðjan Héðinn, Seljavegi 2,
Reykjavík, Vélsmiðjan Klettur
h.'f., Vesturgötu 22, Hafnarfirði.
---; •. . ---------------------
Vélaverkstæði Bjöms og Hall-
dórs, Síðumúla 9, Reykjavík,
Landssmiðjan, Sölvhólsgötu,
Reykjavfk, Vélsmiðja Jens
Ámaisonar, Súðarvogi 14, Rvík,
Vélsmiðjan Bjarg, Höfðatúni 8,
Reykjavík, Vélsmiðjan Þrymur
h.f-, Borgartúni 25, Reykjavík,
Harnar h.f., vélsmiðja, Reykja-
--------------------------------
Um-
hugsunarefni
Menn ættu sannarlega að
staldrá við og hugsa sig utn
eftir f réttina um stiórfelldae út-
flutning á trésmiðum til Sví-
þjóðar; ekki sizt ættu atvinnu-
rekendur og stjómarvöld að í-
huga ráð sitt. Svíar fara fram
á að fá að ráða hér 50 tré-
smiði og nær 200 manns hafa
þegar slkráð sig á ósikalista.
Svíamir þurfa aðeins á tré-
smiðunum að halda um sex til
níu vikna skeið, en þeir bjóð-
ast til að greiða kcstnað af
ferðuim þeirra, tryggja þeiim ó-
keypis dvöl og greiða 255 kr.
íslenzik'ar í tímaikauip — en
uimsamið tímalkaup trésmiiða
hérlendis er um 60 kr., og
margir trésmiðir hafa elkki
haft neitt kaup mánuðum
saman vegna atvinnuleysis.
Svíar eru auðug þjóð, en
sarnt sýna alþjóðaskýrsllur
að þjóðartekjur á mann hafa
ekki verið miklu hærri í Sví-
þjóð en hérlandis; þar er um
að ræða bitamun en ekki fjár.
Engu að síður geta sænskir at-
vinnurekendur boöið margfalt
hærra kaup en hér er greitt,
og þeir geta í þoklkabót lagt
í mjög verulegan tilkostnað
til þess að ná í vinnuafl þó
þeir þurfi aðeins á því að
halda í skamman tfima. Þessar
staðreyndir sanna hverjum
hugsandi manni að sú rnein-
semd setm nú hrjáir aitvinnu-
vegi Islendinga er ek'ki of hátt
kaiuipgjald, heldur sú stað-
rejmd að alllt of mikilll hluti
þjóðartekna fer í stjómleysi og
sóun. Vandinn er ekki fófiiginn
í heimtufrekju verkafólks,
heldur í dugleysi atvinnurek-
enda og stjómarvalda.
Uim þessar mundir halda
iðnrekendur uppi verkbanni
hjá 140 fyrlrtækjuim í þeim
tilgangi að skerða um aillt að
því fimmtung tekjur sem eng-
an veginn nægja fyrir nauð-
þurftum. Ráðlegt væri fyrir
þessa íslenzku iðnrökendur að
leiða hugann að því að þeir
eiga kollega í Svíþjóð; og
sænsk iðnfyrirtæki hafa nú í
þjónustu sinni tugi þúsunda
erlendra verkamianna, Flnna.
flóttamenn frá Eygtrasalts-
löndum, einnig Itali, Júgó-
slava og aðra suðurlandabúa.
Vel getur hugsazt að einhver
sænskur iðnrekandi þurfi á að
halda þeim 1.100—1.200 Is-
lendingum. sem nú hafa ver-
ið reknir af vinnustöðvum sín-
um vagna ofstækis og dug-
leysis hérlendra atvinnureic-
enda. Hver veit nema Iðju
berisit boð einhvem daginn.
þar sem iðnverkafólki þessu
er heitið margföfidu kaupi á
við það sem hér tíðkast, ó-
keypis ferðum og dvalarkostn-
aði. Hvað myndi þá stoða at-
vinnurekendur að aflétta verk-
banni sínu; hvað geta -hinif
steiguriátu máttarstólpar þjóð-
félagsins, fraimtaksimenindmir
frjállsu, gert við „efignir" sínar
og, verksmiðjur, ef iðnverka-
fólk það sem nú hefur ver-
ið hrakið úr stanfi er ekki til-
tækit lengur? — Austri.
vík, Stálsmiðjan h.f. við Brunn-
stíg, Reykjavík, Jámsteypan
h.f., við Bmnnstíg, Reykjavík,
Vélaverkstæði Sigurðar Svein-
björnssonar, Skúlatúni 6, Rvík,
Vélsmiðja Eysteins Leifssonar,
Síðufnúla 17, ReykjáVfk, Vél-
smiðja Hafnarf jarðar h.f.,
Strandgötu 50, Hafnarfirði,
Stálver s.f., Súðarvogi 40, Rvík,
Vélsmiðja Jóns Sigurðssonar,
Lækjarteigi 6, Reykjavík, Vél-
smiðjan Keilir h.f. við Elliðaár-
vog í Reykjavík, Vélsmiðjan
Steðji h.f., Skúlagötu 32, Rvík,
Vélsmiðjan Normi s.f., Súðar-
vogi 26, Reykjavík, Vélsmiðja
Kristjáns Gíslasonar, Nýlendu-
götu 15, Reykjavík, Vélsmiðjan
Tækni h.f., Súðavog 9, Rvík.
Sindrasmiðjan, Hverfisgötu 42,
Reykjavík, Vélsmiðja Jóhanns
Ólafssonar h.f., Reykjavíkurvegi
70, Halfmarfirði og Vélaverk-
stæði Bernharðs Hannessonar,
Saðurland&braut, Reykjaivík.
Guðmundur Magnússon
aftur lóðum og hefjist ekiki
handa-
1 vetur höfðum við aðeins
dagvinnu og er meðalkaup raf-
virkja um 14 þúsund krómur á
mánuði. Það þarf meira en litla
ósvífni að korna fram fyrir
lauruþega og neita þeim um
vísitölubætur á þetta kaup til
þess að mæta verðhækkunum
viku eftir viku, sagði Guðmund-
ur.
Mér er óskiljanlegt, hvemig
fjölgkyldumönnum er ætlað að
lifa á þessu kaupi t>g við erum
knúðir til hörkufullrar baráttu,
sagði Eðvarð, og það mættu
líka ungir menn hafa í huga er
hugsa sér að stofna heimili í
framtíðinni.
Við spurðum þá félaga um
sérstakar oddakröfur hjá raf-
virkjum?
Fjölmennur félagsfundur hef-
ur samþykkt að leita eftir stoifn-
un lífeyrissjóðs og er raifivirkj-
um hugleikin krafian um stofn-
un lífeyrissjóðs, sögðu þeir fé-
lagar að lokum.
LÖGTAK
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að
undangengnum úrskurði verða lögtök látin
fram fara án frekari fyrirvara, á kostnað
gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dög-
um liðnum frá birtingu þessarar auglýsing-
ar, fyrir eftirtöldum gjöldum:
Áföllraum og ógreiddum skemmtanaskatti og miða-
gjaldi, svo og söluskatti af skemmtunum, gjöldum
af innlendum tollvörutegundum, matvælaeftirlits-
gjaldi og gjaldi til styrktarsjóðs fatlaðra, skipu-
iagsgjaldi af nýbyggingum, söluskatti 1. ársfjórð-
ungs 1969, svo og nýálögðum viðbótum við sölu-
skatt, lesta-, vita- og skoðunargjöldum af skipum
fyrir árið 1969. bifreiðaskatti, skoðunargjaldi af bif-
reiðum, gjaldi vegna breytingar í hægri handar akst-
ur og tryggingariðgjöldum ökumanna bifreiða fyr-
ir árið 1969, öryggiseftirlitsgjaldi, almennum og sér-
stökum útflutningsgjöldum, aflatryggingasjóðs-
gjöldum, svo og tryggingaiðgjöldum af skipshöfn-
um ásamt skráningargjöldum.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík,
23. apríl 1969.
ÚTGERÐARMENN,
SKIPSTJÓRAR,
ATHAFNAMENN
Framleiðum ýmislegt til skipa og báta. —
Tökum að okkur smíði og breytingar á tog-
búnaði. — Komum til með að eiga á lag-
er og sendum út á land til dæmis:
Toggálga, fótrúllur, pollarúllur komplett með
kúlulegum og rúlluboltum (stálrúllur), gálga-
blakkir, ýmsar aðrar blakkir, vatnsþéttar lúg-
ur með ferliðu og tilheyrandi fyrir togs'kip,
ferliður, bómur.
Framleiðum sjálfvirk fis'kþvottaker með
-ennu fyrir fiskiskip og löndunarkrabba.
Tökum að okkur ýmsar breytingar og viðhald
| á skipum, togvindum, nótarblökkum o.fl.
Kaupum og seljum notaðar vélar. — Smíðum
ýmislegt til húsa og mannvirkja.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA.
Vélaverkstæði J. Hinrikssonar
Skúlatúni 6, Reykjavík. — Sími 23520,
heima 35994.
Jósafat Hinriksson.
Góður sófi, gott rúm fyrir HEIMILI —
SKÓLA — GISTIHERBERGL
Húsgagnaverzlun
Axels Eyjólfssonar
Skipholti 7 — Símar 10117 & 18742.
NÝ DAGSBRÚN
2. tbl.Nýrrar dagsbrúnar er komið út. Með-
al efnis: Fjósamenn í stjómarráðinu.
Blaðið fæst á flestuim blaðsölustöðum. —
Nýir áskrifendur hringi í síma: 17510.
NÝ DAGSBRÚN.
GLEÐILEGT SUMAR!
Þökkum viðskiptin á liðnum vetrR
Þórður Ásmundsson — Heimaskagi h.f.
Ásmundur h.f., Akranesi.