Þjóðviljinn - 19.12.1969, Page 2
Fram — KR 16:13 ,
Fram er með fullt hús stiga
að íslandsmótinu hálfnuðu
Frábær árangur, sem fáir bjuggust við
Það hefur oftast verið erfitt
hjá Fram að sækja sigur í
hendur KR *' handknattleik og
svo var einnig nú, því að það
var langt frá því, að Fram
fengi þessi tvö stig fyrir ekki
neitt- Fram-liðið lék nú einn
af sínum slöku leikjum og lið-
ið var ekki svipur hjá sjón hjá
því sem það var á móti Val
s.l. sunnudag. Með þeirri getu
er liðið sýndi þá, hefði munur-
inn orðið meiri nú,- KR-liðið
er enn að sækja sig. Ég og
aðrir, sem spáðum því falli í
upphafi þessa móts verðum að
endurskoða þann spádóm.
Þeir Geir og Hilmar skoruðu
tvö fyrstu mörk KR og það
tók Fraan 12 mán. að jaína 2:2
og 23 mán. að ná forustunni4:3.
Á þessum mínútum var vörn
KR-inga í góðu lagd. Rétt áð-
ur en flautam gaill til merkis
um leikihlé, slkoraði Ingólfur
Ósikarsson fyrir Fram og náði
þar með forustummi 7:6.
í síðari hálfileik héldu Fram-
arar alitaif forustunni og komst
forsikot þeirra upp í 3 mörk.
Þegar aðeins 4 mín. voru til
leiksloka var munurinn mdninst-
ur 13:12, en þessar síðustu mín-
útur leiksins voru versti kafli
KR-in,ga í leiknum Hefðu þeir
leikið rólega og yfirveigað, er
ekkd að vita nema annað stig-
ið hefði fallið þeim í skaut- 1
stað þess léku þeir ónákvaemt
og æstu sig upp í mikinn
hraöa og á því græddu Fram-
arar, sem slkoruðu 3 síðustu
rnörkdn og lokatölumar urðu
16:13. Fyllilega verðslkuldaður
sdgur.
Greinilegt er að Fraim-liðið
á mjög másjafna leiki. Þaðget-
ur náð stanmandi góðum leilc
einsog á móti Vai s.l- sxmnudag,
en ednnig getur það faliið nið-
ur líkt og í leikmum gegm Vík-
ing fyrir nokkru og nú gegn
KR. En það er engu líkara, cn
að Fram nái þessum glansledki-
um sínum á rnóti sterkari lið-
unum, þe-gar mest á ríður og
ef til vill er þetta þá allt í lagi
fyrir liðið. Þorsteinn Bjöms-
son, Sigurður Einarsson og Jón
Pétursson, ungur og efnilegur
leikmaður, vom mest áberandi
menn liðsins í þessum leik.
Hjá KR kornusf þeir bezt frá
leikmum Gunnar Hjaltaiín, sem
ekki hefur átt svo góðan leik
fyrr í haiust, Hilmar Bjömsson
og Karl Jóhannsson- Liðið er
i framför og einu atriði dáist
ég að hjá KR-imgunum, en það
eru innáskiptingamar hjá þjálf-
aramum Jóni Friðsteinssyni —
Innáskiptinigar í handknattleik
eru vandaverk, en Jón er ó-
ragur við að hvxla hvaða Jeik-
mann sem er og hann skiptir
mjög ört inmá og manni finnst
alltaf skiptingamar koma á
rétjtu augnabliki.
★
Dómarar vóru þeir Magnús
V. Pétursson og Eysfeinn Guð-
mundsson. Sem daami um ó-
samræmi ísienzkra handfcnatt-
leiksdómara má benda á, að
í þessum leik dæmdi Magnúsð
sinnum sfcref, en Eysteinn
aldrei- Nú er hugsanlegt að í
einum leik geti það skeð, að
samd dómarinn sjái allltaf þetta
leikbrot en hinn eklfci, en sá
möguleiki er þó einn á móti
ótalmörgum og sönnu nær að
hér sé eitthvað annað sem
veldur.
Mörk Fram: Guðjón 6 (3
víti), Jón 3, Ingólfur 3, Sigurð-
ur 3, og Björgvin l.
Mörk KR: Gunnar 4, Geir
3, Karl 2 (bæði úr víti), Hilm-
ar 2, Bjöm og Ævar 1 hvor.
— S.dór.
Dag- viku- og
mánaóargjald
BÍL4. LEIfwA N
RAUÐARARSTiG 31
(gntiiiental
SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ NÖGLUM
sem settir eru í, með okkar full-
komnu sjálfvirku neglingarvél.
veita fyllsta öryggi í snjó- og
hálku.
Nú er allra veðra von. — Bíðið
ekki eftir óhöppum, en setjið
CONTINENTAL hjólbarðá, með
eða án nágla, undir bilinh nú
þegar.
Vinnustofa vor er opin alla daga
frá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GÚMMÍYINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 — Sími 3-10-55.
Víkingur — Haukar 18:17
VfKINGUR FÆR
FYRSTU STIGIN
Haukar bregðast vonum manna
Þar kom að Víkingur vann
leik í 1- deildarkeppninni, og
er það raunar vonum seinna,
því lið félagsins er orðið gott.
Víkingai áttu þennan siguryf-
ir Haukum fyllilega skilið og
þar hefur óhcppnin ráðið um,
að ckki hafa fleiri stig fallið
til þeirra. Haukamir, sem
byrjuðu 1. deildarkeppnina með
fádæma offorsi og flcstir spáðu
þeim miklum frama í vetur,
virðast ekki hafa þolað þessa
ágætu byrjun, því að síðar.
hafa þcir ekki unnið leik, en
náð einu jafntefli, sem er allt-
of slakur árangur miðað við
það hve liðið hcfur góðum ein-
staklingum á að skipa.
Franxari af þessum leiik ledt
út fyrir sigur Hauka, þvl að
allan fyrri hálfleik höfðu þeir
forustu með ednu til tveimur
mörkuim, en þó tókst Víking-
um tvívegis að jafna, 7:7 og á
síðustu sekúndunum fyrir iedk-
hlé, 10:10, og þannig stóð í
hléi-
Svo vair það í sáðari hálfleik
að Vikinigsiiðdð sýndi hvað
raunveruiega í því býr og það
er alls ekki svo lítið- Það var
hinn umgi og efnilegi leifcmað-
ur Páll Björgvinssom, sem náði
forustunni fyrir Víking með
glæsiiegu marki strax í byrjun
síðari hálfleiks, en Haukamir
náðu fomstunni aftur með
tveimur mörfcum úr vítaköst-
um, en Guðgeir jaiEnaðd fyrir
Víking og Einar Maignússon
náðd farustumni, sem Vfkingar
létu svo ekki af hendi eftir
það.
Forskot Vfkinjga jókst upp í
3 mörk og Haiukamir reyndu
öLl ráð til að jafma, m.a. að taka
Einar Magmússon úr umferö,
en ekkert dugði- Undir lokin
varð ledkurinm. seðd tvísýnn. —
þegar aðeins eitt mark skildi
að, en Vfkingum tókst að varð-
veita forskotið og fyrstd sdg-
urinn í mótdnu varð staðreynd,
lokatöttamar 18:17.
Það fer ekki á mdUi mála,
að það var Vfkimgum mikið
lán aö fá Karl Benediktssom til
sín sem þjálfiara á iiðnu hausti.
Hamm hefur gerbreytt liðdnufrá
því sem var, er það byggðist
upp að mestu á eánstaklings-
framtaki Einars Magnússonar
pg er nú svo komið, að liöið
er að verða eitt atf okkar betri
liðum með hóp atf umgum og
stórefnilegum ledkmönnum. Ég
spái því, að liðið eigi eftir að
setja sitrik í reikndnginn hjá
hinum stóru nú í vetur. í þess-
um leifc bar mest á þeám Ein-
ari, Guðgedri, Páli, Ölafi Frið-
rikssyni og Páili Björgwinssyni,
en ekki er hægt að taiLa um
vedkan hJekk í liðimiu.
Hauka-liðið er sHdpað mjög
sterkum ednstaklimgum, sem
eiga að geta myndað frábœrt
lið, etf þeir ná samam, en það
hefur ekki gerztsíðan þeir uminu
KR í fyrsta leik mótsins. Menn
eins og Viðar Símonarson, Stetf-
án Jónsson, Þórður Sáigurðsson,
ólatfur Ólafsson, Sigurður Jóa-
kimsson og Þórarinn Ragmars-
son eiga að‘ geta myndað topp-
lið á ísilenzfcan mæJikvairða. Það
er eátthvert lítilræði, sem er að
í liðinu, en þegar það erfund-
ið út og hefur verið lagað, þá
verður Haufca-liðið ekkd auð-
unnið.
Dómarar voru Sveinn Kristj-
ánssan og Óli Ólsen. Ég get
efcki fellt mig við það hjáóla,
að dæma strax á hivert brot,
hvort sem menn rífla sdg laiusa
og skora eða ekki, em vegna
þessa dæmdd hanm 7 mörk atf
x leáknum og liðið sem braut
hagnaðist á brotinu-
Mörk Víkings: Ednar 6, Guð-
gieir 3, Magnús 3, Öttiaffur 2,
PáJI 2, Rósmiumdur og Sigfús 1
mark hvor.
Mörk Haufca: Steflán 5, Þór-
arinm 6 (3 víti), Viðar4 (lvíti),
Þórðuir 2.
— S.dór.
EIGINKÖNUR!
Skemmtileg og hagkvæm
jólagjöf fyrir eiginmanninn
eru ZAMBA-stálhillumar
í bílskúrinn, geymsluna eða
annars staðar. Hentar við
flestar aðsíæður.
Sex hillur í setti.
Stillanlegar á ýmsan hátt.
Settið kostar aðeins kr. 1.342.00.
Sisli ol <3ofínsen if.
VESTKÖTII45 SÍMAR: 12747-16647