Þjóðviljinn - 07.02.1970, Side 2
2 SfÐA — ÞJÓÐVILJIMT'Í — Laugardagur 7. febnúar 1070.
Handknattleikur, 1. deild
Tveir leikir annað kvöld
Annað kvöld kl. 20.15 heldur
1. deildarkeppni fslandsmótsins
í handknattleik áfram með
leikjum milli Fram og Víkings
og FH og KR. Þetta verður síð-
asta leikkvöldið i 1. deildar-
keppninni um >eins mánaðar
skeið, en 15. marz fara fram
tveir leikir, en síðan kemur aft-
ur mánaðar hlé. .
Fyrri leikurinn annað kvöld
er milli FH og KR og verður án
efa bæði tvísýnn bg skemmti-
legur, þvi að FH-ingum hefur
oftast gengiö illa með að sigra
KR, hversu sterkt, sem lið
þeirra hefur verið. Þá orkar það
ekki tvímælis, að KR-liðinu
hefur farið mikið fram frá þvi
í upphafi keppnistímabilsins og
gseti þvf hæglegá sett strik í
reikninginn fyrir FH, sem
stefnir að sigri í mótinu ásamt
Val og Fram, sem er efst í mót-
inu. Fyrri leiknum milli FH og
KR lauk með naumum sigri FH
24:21.
Síðari leikurinn er á milli
Fram og Víkings. Fram er eins
og áður segir efst í mótinu, en
Víkingur á botninum ásamt KR.
Þó er það svo, að langt er frá
því að Fram eigi vísan auðveld-
an sigur. 1 fyrri umferðinni lauk
leik þessara aðila með sigri
Fram 18:16, og mátfcu þeir þakka
fyrir þann nauma sigur. Vík-
ings-liðið er ungt lið og mjög
efnilegt. Eins og öll slík lið vant-
ar það fesfcu, en ef það nær
sér upp getur það sigrað hvaða
lið sem er í 1. deildinni. Fram
hefur átt nokkuð misjafna leiki
í vetur, en þó unnu þeir alla
sína leíki í fyrri umferðínni, en
byrjuðu þá síðari á að tapa fyr-
ir Haukum 21:19 og áttu þá
einn sinn lakasta leik í vetur.
Það er þvi ekki að vitá, í hvaða
ham Framarar verða á morgun.
— S.dór.
Breiðholtshlaup ÍR
Brei ðholtshiaup ÍR er nýtt
n.afn á nýju hlaupi, sem til er
stofnað vegna þess að ÍR-ing-
ar hyggjast flytja miðstöð
starfsemi sinnar inn í þetta
nýja hverfi og skapa sér þann-
ig bæjarhverfis-kjama fyrir
stairfsemi sána.
Það er frjálslþróttadeild fé-
lagsins, sem hefst fyrst handia,
endia léttast um vik, þar sem
aðrar deildir félaigsins þurfa
íþróttasal fyrir æfingar sinar,
en íþróttasálurinn við bama-
skólann þar verður ekki tilbú-
inn fyrr en að hausti.
Ætlunin er að sniða þessu
Breiðholts-
framkvæmdirnar
Úmræður um þjóðmál eru
öft á einkennilega frumstæðu
stigi hér á landi og einkenn-
ast af gapalegum staðhæfing-
um og gagnkvæmum öskrum.
Ágætt dæmi um þetta eru þær
kynlegu deilur sem orðið hafa
að undanförnu um íbúðirn-
ar í Breiðholti. Þær hófust
með skringiiégri ræðu sem
Stefán Valgeirsson alþingis-
maður hélt á þingi, en þar var
.áramótaskaup sjónvarpsins
talið órækt sönnunargagn um
það að íbúðiinar i Breiðholti
væm óíbúðarhæfar, handa-
skömm og forsmán af hálfu
iðnaðarmanna og byggingar-
nefndar. Gerði Tíminn síðan
þann málflutning að sínum. Þá
rauk Alþýðublaðið upp og
hlóð ámota fjarstæðukenndu
lofi á Breiðholtsframkvæmd-
imár Og byggingarnefndina;
þær athafnir væm tíl sannrar
fyrirmyndar, firrtar blettum
og hrukkum. Því næst skarst
Víáir í léikinn og tók undir
méð Stefáni Valgeirssyni og
Tímanum. Síðan hafa fjar-
stæður og fáryrði þeytzt á
milli þessara aðila dag hvem.
Tíminn spyr 'í gær hvers
végna Þjóðviljinn blándi sér
ekki í þessar deilur og hvers
vegna Eðvarð Sigurðsson hafi
tekið þátt í að hrekjá firrur
Stefáns Valgeirssbnar. Al-
þýðuþandalaginu hefur aldrei
til hugar komið að taka undir
þann fráleita róg sem and-
stæðingar félagslegrar stefnu
hafa þyrlað upp um Breið-
holtsfrámkvæmdimar Hins
vegar hafa Þjóðviljinn og
talsmenn Alþýðubandalagsins
á þingi margsinnis og með
ljóáum rökum gagnrýnt Breið-
holtsframkvæmdirnar m.a. á
éftirtöldum forsendujn:
Breiðholtsframkvæmdimar
voru liður í kjarasamningi við
vérklýðsfélögin í Reykjavík og
fyrirheitin um þær fram-
kvæmdir eru jafn bindandi og
önnur k.iaraákvæði. Loforð
ríkiisstjórnarinnar vom þau að
byggðar skyldu 1250 ibúðir
handa lágtekjufólki í verklýðs-
samtökunum og skyldi þvi
verki vera lokið 1970. Efndim-
ar eru þær að aðeins er lokið
rúmum fjórðungi þessara í-
búða. Þar er um að ræða mjög
alvarlegar og ósæmilegar van-
efndir af hálfu stjórnarvalda,
og hefur verklýðshneyfingin
brugðizt við þeim vanefndum
af furðu miklu langlundargeði.
1 annan stað áttu Breiðholts-
framkvBemdirnar að stuðla að
því að lækka byggingarkostnað
og hafa vafalaust gert það, þvi
að einkaaðilar sáu þann kost
vænstan að lækka gróðahlut
sinn eftir að framkvæmdimar
hófust. Engu að saður er það
staðreynd að Breiðholtsíbúð-
imar hafa orðið mun dýrari en
vonir stóðu til, og er þar um
að ræða mistök sem nauðsyn-
legt er að læra aif. Afleiðing-
in hefur orðið sú að það hefur
verið erfitt fyrir Breiðholts-
búa að rísa undir skuldbind-
ingum sínum á tímum at-
vinnuleysis og lækkandi raun-
tekna. Beitti Alþýðubanda-
lagið sér fyrir því á síðasita
þingi að lánskjömm yrði
breytt af þessum ástæðum, og
féllst féliagsmálaráðherra að
nokkra á það sjónarmið með
bráðabirgðalögum. Hins vegar
ber að leggja áherzlu á það að
fengin reynsla verði eftirleið-
is hagnýtt til þéss að Jækka
bygigin.garkostnað til mikilla
, muna; á þvi eiga að vera öll
tök þegar um er að ræða
skipulegar stórframkvæmdir.
Hið alvarlega í hinum fárán-
lega málflutningi Stefáns Val-
geirssonar, Tímans og Vísis er
það að tilgangur þeirra virðist
vera sá að stöðva Breiðholts-
framkvæmdimar, gera van-
efndir ríkissitj. endanlegar
og koma í veg fyrir nútíma-
lega skipulagningu í hús-
byggingamálum. Hlýtur verk-
lýðshreyfingin að líta þann
málflutning mjög alvarlegum
augum. Engin nýjung er að
kynnast þeim viðhorfum f
Vísi, en fomsta Framsóknar-
flnkksins f andfélagslegum
rógi um Breiðholtsfram-
kvæmdimar hlvtur að vekia
sérstaka athygli. — Austri.
hlaupi svipað form og -Hljóm-
skálahlaupi félagsins, nema
með einni mikilvægri breyt-
ingu, sem er að tveir og tveir
munu hefja hlaupið samtímis.
V.egalengdin verður um 800 til
1000 metrar og verður hægt að
fylgjast með hlaupinu svp til
alla leiðina.
Keppt verður i aldursflokk-
um.yg miðast þeir við fæðing-
arár'hjá þeim yngstu, en ann-
ars við venjulega aldufsskipt-
ingu frjálsíþró.ttakerfisins.
Verðlaun verða veitt fyrir
beztu tímana fyrlr samianlagt
4 hlaup, en alls er ráðgert að
hafa Maiupin 6.
Fyrsita hlaupið fer fram nú á
siunnudaginn kemur 8. febrúar
kl. 14.00 en hið síðasta, 6.
Maupið, hinn 18. maí í vor,
Öll Maupin er ráðgert að
hefja á sama tíma eða kl.
14.00 hvert sinp, en keppend-
ur þuirfa áð mæta kl. 13.30 til
skráningar og númeraútMut-
unar. — (Frá ÍR).
58. Skjaldar-
glíma Ármanns
Skjaldarglíma Armanps, hin
58. frá upphafi, verður háð að
Hálogalandi á morgun, sunnu-
daginn 8. febrúar, og hefst kl.
lí:30.
11 keppendur em skráðir til
keppni að þessu sinni, þeirra
á meðal 3 þeir efstu á síðustu
Skjaldiairglímu, þeir Sigfcryggur
SigurðsE'on KR skjaLdaimiafi,
Jón Unndórsson KR og Þor-
valdur Þorsteinsson Ármanni.
Rey k j a nesriSi 11
í handknattleik
í dag, laugardag, verður
haldið áfram keppni í Reykja-
.nessriðli islandsmeistairamóts-
ins í handknattleik. Leiikið
verður í íþróttahúsinu á Sel-
tjamamesi og hefstt keppnin
kl. 15.00. Eftirtaldir leikir fara
fram í dag:
2. fl. kv. Umf.N : F.H. ■
2. fl. kv. Grótta : Breiðablik
3. fl. k. F.H : Breiðablik
3. fl. k. I.B.K. : Stjaman
22. fi. k. Haukar : F.H.
2. fl. k. Grótta ; Breiðablik.
II. deild k. Grótta : Breiðablik.
íl.
Staðan í 1. deildarkeppninni í
handknattleiik fyrir leikina ann-
áð kvöld er þessi:
Stig
Fram 6 5 0 1 103: 92 10
Valur 7 4 1 2 124:113 9
Haukar 8 4 1 3 142:123 9
FH 6 4 0 2 107:101 8
Vííking. 6 1 0 5 99:109 2
KR 7 1 0 6 103:140 2
Firmakeppni HSÍ
Með þátftöku 1. deildaliðanna
og til styrktar íslenzku HM-förum
Handknatt-Icikssambandið hef-
ur ákvcðíð að gangast fyrir
firmakcppni í handknattlcik n.
k. miðvikudag 11. febrúar í í-
þróttahúsinu í Laugardal. Ein-
ungis 1. dcildarliðin munu taka
þátt í kcppninni og leika fyrir
nokkur þan fyrirtæki, sem
styrkt hafa þiessa keppni.
Keppnin verður hraðkeppni
með útsláttaríyririkomulagi og
verður hver leikur 2x20 mínút-
ur. Nú hefur verið dregið um
hvaða lið leiki samain. í fyrstu
umferð og dróst þannig:
Málning h.f. (Haukar) — Flug-
féiag Islands (Fram).
Olíufélagið hf. (KR) —: Lands-
bankinn (Valur).
Olíuverzlun Islands (Víking-
ur) — Skcljungur (FH).
Siðan munu leika saman sig-
urvegararnir úr leik 1 og 2, en
sigurvegarinn úr íeik 3 (Vík.—
FH) fer beint í úrslit. NPkkur
önnur fyrirtæki hafia boðizt til
að borga þátttökugjald, þótt
ékkert lið leiki fyrir þau og er
það mjög höfðinglega boðið.
Ágóðinn af keppninni fer til
styrktar leikmönnum íslenzka
landsliðsins þegar þeir halda í
lokakeppni HM, síðar í þessum
mánuði.
Vetrarmótið held-
ur áf ram á moraun
Sem kunnugt er, hafa tals-
verðar tafir orðið á framkvæmd
hins nýja vetrarmóts í knatt-
spyrnu, sem KRR ákvað að
gangast fyrir í síðasta mánuði.
Nú mun þó ætlunin að halda
mótinu áfram á morgun, sunnu-
dag, og þá fara fram tveir ieákir.
Valur mætir Fram i fyrri
leiknum, sem hefst kl. 14, en
aðeins er leikið í 2x30 mínútur.
Strax á eftir leika svo KR og
Þx-óttur. í þeim tveim leikjum
sem fram hafa farið urðu úrslit
þau að KR sigraði Ármann 1:0
og Þróttur sigraði 1, deildarlið
Víkings öllum á óvænt 3:1.
Þetta mót er hugsað sem við-
bót við þær vetraræfingar og
æfingaleiki, siem fram fara í
ki-ingum landsliðið, en raddir
hafa heyrzt um það, að mótið
eyðilegði fyrir vetraræfingum
sem er að sjálfsögðu* alger fjar-
stæða. Þvert á móti mun þetta
vetrarmót verða fyrirtaks inn-
skot i vetrarknattspymuna hjá
okkur, siem stefnir að því að
við eignumst loks góð knatt-
spymulið. — S.dór.
fA-félagið verður
stofnað á morgun
Á morgun, sunnudag, kl. 14.30,
hefsit stqfnfuindur lA-félagsins,
sem við sögðum frá að fyrir-
hugað væri að stofna hér i
Reykjavík. Verður fundurinn
haldinn í átthagasal Hótel
Sögu. Geysilegur áhugi er fyrir
stoífnun félagsins meðal Mnna
fjölmörgu aðdáenda ÍA-liðsins í
knattspyrnu og hafa undirtektir
manna í þessu sambanidi farið
langt fram úr björtustu vonurn
þeirra, er að þessari félagsstofn-
un standa. Eins og áður hefur
verið sagt frá, eru allir velunn-
arar IA velkomnir i- félagið og
eindregið hvattir til að mæta á
stofnfundinum. — S.dór.
Laus staða
Staða forstöð'umanns Blóðbanfeans er laus til um-
sóknar frá 1. apríl 1970 að telja. Launakjör eru
tilsvarandi við laun yfirlæfena ríkisspítalanna.
Umsækjendur skulu vera sérmenntaðir í blóð-
banikastarfsemi og hafa starfsreynslu er jafnast á
við kröfur um sérmenntun lækna, að loknu emb-
ættisprófi.
Gert er ráð fyrir, að forstöðumaðurinn veiti stúd-
entum í læknadeild leiðsögn í blóðbankafræðum,
eftir samkomulagi og nánari ákvörðun lækna-
deildar H. í.
Umsóknir um stöðuna, ásamt upplýsingum utn
námsferil og fyrri störf, skulu sendar stjórnar-
nefnd ríkisspítalanna, Klapparstíg 26, fyrir 10.
marz 1970.
Reykjavík, 6. febrúar 1970.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
100 ára afmœli Leníns
I tilefni þess að liðin eru 1 00 ár frá fæðingu
Leníns kemur út sérstakt hefti af tímaritinu
Sovétríkin.
í heftið skrifa ýmsir þekktir stjórnmála-
menn, vísindamenn, sagnfræðingar og
blaðamenn.
I heftinu er ríkulega myndskreytt frásögn
um Lenín ásamt endurminningum fólks,
sem þekkti hann vel.
í stuttu máli má segja að þetta sé sam-
þjöppuð alþýðlega skrifuð alfræðibók um
Lenín, sem enginn má missa af.
Verð heftisins er aðeins kr. 45,00. — Gjörið
svo vel að senda áskriftir til skrifstofu
MÍR, Þingholtsstræti 27 eða í pósthólf 1087,
fyrir 20. febrúar n.k.
/