Þjóðviljinn - 01.05.1970, Side 2
2 SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Föstudagiur 1. maí 1970.
Handknattleikur:
fkingur stóðst eUraunino
er failið /
deild
Víkingur hafði algera yfirburði og sigraði 18:13
Q Gamla stórveldið KR er fallið niður í 2.
deild í handknattleik og er þetta í annað sinn
sem félagið fellur niður. Óhætt er að fullyrða,
að KR hafi fallið á eigin bragði í leiknum við
Víking, með því að setja mann til að gæta Jóns
Hjaltalíns sérstaklega, en við það losnaði um
Einar Magnússon, sem hefur sennilega aldrei
sýnt annan eins leik.
Oft hafa menn haft orð á
því. að Einar Magnússon beitti
sér aldrei sem sikyldi, vitandi
það, að þessd hávaxni og sterki
leikmaður getur nærri því gert
það sem hann langar til, ef
hann aðeins tseki á. Að þessu
sinni var mikið í húfi fyrir
Víking og Einar fékk þá óska-
stöðu í leiknum. að ledka á
móti fastri vöm, þair sem KR-
ingar tóku Jón Hj aitalin „úr
umferð“. Og vissiulega fengu
hinir fjödmöirgu áhorfendur að
sjá nýja hlið á Einari Magn-
ússyni. því að hann var meira
en góður í þessum leik. hann
var frábær. Hvað eftir annað
nýtti hann hæð sana og kraft
til hins ýtrasta og skofaði siam-
tals 7 mörk í ledknum. Að sjálf-
sögðu edga fleirí en hiann, stór-
an þátt í þessium sigri Víkinga.
Til að mynda sýndu hinir ungu
og efnilegu ledkmenn. svo sem
Guðjón, Magnús Sigurðsson,
Páll Björgvinsson. að ógleymd-
um markverðinum Eiríki Þor-
steínssyni, sem hefur komið
inní handknatdeikinn eins og
spútnik, stórgóðan leik og eiga
sinn stóra þátt í sigrinum. Þótt
svo að Jón Hjaltalín skoraði
ekki nenia 2 mörk, á hann sinn
stóra þátt j sigrinum vegna
þess. að KR-ingar sáu ásrtæðu
tíl að taka hann úr umfexð
með þeim afleiðingum sem að
framan greinir.
Leikuxinn hélsit í jafnvægi
framan af. Hilrnar Bjömsson
skoraði fyrsta mark leiksins, en
Einar jafnaðd sitrax fyrir Vík-
ing. Það var strax sýnt, að
Hilmiar Björnsson var aðal-
maður KR-liðsins og tóku Vík-
ingar þá það ráð, að taka han.n
„úr umferð“ og við það dofn-
aði mikið yfir spilinu hjá KR.
Þegair staðan var 5:4 fyrir KR
misnotaði Karl Jóharmsson
vítakast og í stað þess að ná
2ja marka forskoti. urðu KR-
ingar að horfa uppá Víkingana
jafna 5:5 og mér segir svo
hugur að þetta atvik bafi sett
strik í reikninginn. Þetta skeði
nær miðjum fyrri hálfleik.
Smátt og smátt náðu Víking-
arnir betri tökum á leiknum
og í leikhléi höfðu þeir 2ja
marka forskot 9:7, enOdamark-
ið sikoruðu þeir, meðan þeir
voru einum færri vegna brott-
vikningar Páls Björgvinssoniar
af ledkvelli.
f siðari hálfleiknum kornu
jdirburðir Víkings betur í Ijós
og þá var það sem Einar
Magnússon tók að beita sér af
alefli. Segja má að Einar haíi
gert út um leikinn þegar sitað-
an var 11:1 o fyrir Víking með
þvj að skora 3 mörk í röð, án
þess að KR fengi svarað fyrir
sig, enda vaxði Eirikur af
stafari snilld. Þar sem staðan
&
■ \
k
briinabAtafílags íslands
LAUGAVEG 105 - SIMI 24425
Húseigendafryggingin innifelur
eftirfarandi tryggingar:
VATNSSKAÐATRYGGINGU
GLERTRYGGINGU
FOKTRYGGINGU
INNBROTSTRYGGINGU
BROTTFLUTNINGS- 0G
HÚSEIGENDATRYGGINGU
SÖTFALLSTR YGGIN GU
ÁBYRGÐARTRYGGIN GU
HÚSEIGENDA
I húseigendatryggingunni eru sameinaðir í eina tryggingu íast-
eignatryggingar, sem hægt hefur verið að kaupa sérstaklega
undanfarin ár. Með þessari sameiningu hefur tekizt að lækka
iðgjöldin verulega.
ATH.: 90% af iðgjaldi er frádráttarhæft við skattaframtal.
Kynnið yður hin hagkvæmu tryggingakjör
• UMBPÐSMENN UM LAND ALLT.
BRUNABÓTAFÍLAG ÍSLANDS
var nú orðin 14:10 og aðeins
13 mínútur eftir af leiknum,
var eins og vonleysi gripi um
sig í KR-liðinu og einj maður- j
inn sem virtist halda jafnvægi
var Hans Steinmann, sem nú
lék aftur með KR eftir langa
fjarveru. Hann skoraði 3 af 4
síðustu mörkum KR og fékk
þar að autoi- eitt vítakast, þeg-
ar brotið var á bonum á lín-
unni Leiknum lauk svo eins
og áður segir með yfirburða-
sigri Víkings 18:13.
Hilmar Björnsison er bezti
maður KR-liðsins, en hann fékk
ekki notið sín í þesisuon leik
vegn.a þess hvað hans var vel
gaett. og þá tók hinn kornungi
leikmaður Björn Ottesen við
aðialhluitverkinu. Þar er á ferð-
inni eitt mesita handkn.attleiks-
mannsefni, sem len.gi hefur hér
komið fram og hefur hann
tekið stórstígum framförum í
vetur. Ungur frændi hans,
Hauikur Ottesen, er einnig mjög
efnilegur leikmaður og eru
þetta þeir ledkmenn, sem KR .
bindur mestar vonir við. Mjög i
miargir leikmanna liðsins etru :
orðnir það fullorðnir, að þeir j
eru um það bil að hætta |
keppni. KR á ágætan 2. aldurs-
flokk og ætti því ekki að þurfa
að kvíða framtíðinni. Því gæti
veran í 2. deild næsita vetur
orðið tilvalið tækifæiri til að
endurskipuleggja liðið með því
að byggjia upp f.rá grunni.
Dómiar'ar í leiknum voru Val-
ur Benediktsson og Ósfcar Ein-
arsson og sluppu allvel. Þó
voru þeir ósamkvæmir sjálfum
sér við brottvíkningar ledk-
manna því 4 leikmönnum Vik-
ings var vísað af leikvelli, en
engum KR-ing. en þó fór fjarri,
að Víkingamir hafi sýnt gróf-
ari leik.
Mörk Víkinigs: Einar 7, Guð-
jón 4, Magnús 2, Jón Hj. 2,
Sigfús 2 og Páll 1. — Mörk
KR: Bjöm 5, Hilmar 2 Heins 3í
Gedr 2 og Ævar 1. — S.dór.
Fjársöfnun
Merkið sem Menningar- og frið-
arsamtök íslenzkra kvenna hefja
sölu á í dag til ágóða fyrir Víet-
namsöfnun þá er Alþjóðasam-
band lýðræðissinnaðra kvenna
gengst fyrir um lieim allan.
Þjóðviljinn í dag
Franmhald a£ 1. síðu.
verkalýðsfél a.gann a í Reykjavíic
og Alþjóðasaimibandi verkalýðsfé-
laga. Þá er í blaðinu Akureyrar-
síða, sem er helguð 1. miaí og
forustugrein Þjóðvdljans er að
sjálfsögðu í tiiefni dagsins.
Loks má nefna Bnéf til afa
míns aftir Pétur Páisson, ljóð til
nýja fónans og í blaðinu eru enn-
fremiur fróttir aif íslen2k.um
náimsmiömniujm ekki sízt til þess
að undirstrika samstöðu launa-
fólks og náimsfóiks í haigsmuna-
baráttunni.
Bílasýningin verður opnuð
í Sknutahcllinni síðd. í dag
í dag, föstudag, opnar Félag
bifreiðainnflytjenda bílasýn-
ingu í Skautahöllinni. Verða
þar tii sýnis 47 farþegabifreið-
ir inni í sýningarsalnum, en
fyrir utan má lita jeppa, hjól-
hýsi, vöru- og sendiferðabif-
reiðir og langferðabíla.
Það hefur verið erfitt að
kynn,a sér fyrirbafnarHtið mun-
inn á þeim rnörgu bílategund-
um, sem fluttar eru til lands-
jns, á einum stað, og kynnasit
þá jafníramt nýjustu árgerðum
þeirra. Þessd bílasýning verð-
ur á 1700 fermettra gólffleti í
SkautahöLUnni og því skipt
niður í tuttugu sýningiarsitúk-
ur. Haía bílainnflytjendur
menn á staðnum til þess að
gefa uplýsing.air um hverj.a
bifreið.
Bíl'asýningin stendur yfir í
10 daga og er opin frá kl. 17
til 22 virka daga, en a lau.g-
ardag og sunnudag frá kl. 13,30
til 22. Aðgöngumiðar, sem
jafnframt eru happdræittismið-
ar — kosta kr. 60,00 fyrir full-
orðna og kr. 25,00 fyrir börru
Vinningur fyrir fujlorðna í
bappdrættinu er Skoda bifreið
110 L og verður dregdð um
hana á lokunardaginn 10. nraí.
Þá verður jafnfnamt diregið um
leikfianigabíl fyirir knakkania úr
seldum aðgöngumiðum þeirra.
Fluigfélag íslands mun gefa
20% afsiátt á miðum til þeima
er ætla að sækja þessa bila-
sýningu utan af landi og sýn-
ingarskrá hefur verið gefin út
á vegum sýningarinnar, sem
Verzlunarskólanemendur hafa
unnið.
Sérstök sýningamefnd hefur
séð um ailan undirbúning og
skipa hana Þórir Jónsson, Ingi-
mundur Sigfússon og Matthías
Guðmundsson, en framikvæmdia-
stjóri sýningamefndar er Ósk-
ar S. Óskarsson. Skipulagn-
ingu siýningarininar annast a,ug-
lýsingaskrifstofan Argus og
merkí sýningarinnar hefur
Kriistín Þorkelsdóttir teiknað.
Flytur fyrirkstiw m ge&
í dag, 1. maí kl. 16,30 fllytur
prólf. Hlizabeth Kent Gay fyrir-
lestur . í Norræna húsdnu um
ýmsar nýjungar' í bandarískum
geðheilbrigðisimiáílnm.
Mun hún mieðal annairs segja
frá endurskipulagmingu geðiheil-
brigðisþjónustu og gredna frá
ýmsuim nýjum aðferðum tiil þess
að öirva sálarþróun miannsdns,
ednstatolinga og hópá.
Frú Elizaibeth Kent Gay er
prófessor i télaigsráðgjöf við
læknaskólann í Dartmouth og
aðaflfélagsráðgjafi við Dartmoutih-
Hdtchcock g.eðheilibrigðismiðstöð-
ina í Hanover, M.H. USA. Hún
er virkur þötttaikandi í „Associ-
ation for Huimianistic Psycihol-
ogy“.
*
Óskað er eftir fyrirspuirmim
og uimræðum.
ALLTAF FJOLCAR
VOLKSWAGEN
Volkswagen bilar, — og gengur úr sér, eins og
allt annað í þessum heimi, en ef það vaeri jafn
auðveit að lagfæra allt, sem úrskeiðis fer,
eins og Volkswagen, þá væri ástandið í heim-
inum alls ckki eins slæmt. Volkswagen er þannig
byggður í upphafi, að það er auðvelt að framkvæma
nauðsynlegar viðgerðir á honum. Þegar endurbgetur
eru gerðar á Volkswagen, þá er oftast hægt að nýt3
þær í eldri árganga Volkswagen bíia, þessvegn$ ei
Volkswagen sígildur bíll og örugg fjár'festing-
-VOLKSWAGEN EK 'PIMM MANNA BÍLL-
Verð frá kr. 189*500,
i
LANDSKUNN VARAHLUTA
OG VIÐGEROAÞJONUSTA
HJARTAÐ MÆLIR MEÐ VOLKSWAGEN
HÖFUÐIÐ MÆLIR MEÐ VOLKSWAGEN
Þarf ég að velfa því lengur
tyrír mér oð kaupa
N ---?
9