Þjóðviljinn - 11.07.1970, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVTUTNN — Laugaffrfaglur íl. júJÍ 1970.
— Málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Útgefandi: Utgáfufélag ÞjóSviljans.
Framkv.stjórl: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson
Sigurður Guðmundsson
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson
Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson.
Auglýsingastj.: Olafur Jónsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Síml 17500
(5 linur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuðl. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Slysið á Þingvöllum
glysafréttir og óvænt manntjón vekja jafnan sam-
úðarhug imeð þeim sem fyrir slysum verða og
vandamönnum þeirra. Mönnum er gjarnt að setja
sig í spor þeirra sem um sárt eiga að binda, og í fá-
ménni íslenzks þjóðlífs er viðkynning manna svo
almenn að furðu oft finnast einhver kunnugleika-
éða frændsemistengsl við þá sem í slysum lenda.
j^jlysið á Þingvöllum aðfaranótt föstudagsins er í
öllum greinum svo hönmulegt að það hlýtur að
koma sárt við alla íslendinga. Forsætisráðherra ís-
lands, Bjarni Benediktsson, kona hans Sigríður
Björnsdóttir og lítill dóttursonur þeirra Benedikt
Vilmundarson fórust þar í eldsvoða, án þess að
nokkurri hjálp yrði við komið. Þetta gerist í byggð
og rétt við önnur hús, og án þess að þeir sem koma
að logandi ráðherrabústaðnum viti hvort húsið er
mannlaust eða ekki. Það er ótrúleg staðreynd sem
fram kemur í fréttum af slysinu á Þingvöllum, þar
sém auk heimabyggðar er stórt suimargistihús og
þúsundir manna koma innlendir og erlendir sumar
hvert, skuli enginn vísir vera að slökkviliði sem
sétíð væri tiltækt.
rKíAtrafi|R!«CVTis rrt
gjami Benediktsson var einn umsvifamesti for-
ystumaður Sjálfstæðisflokksins í þrjá undan-
farna áratugi, og áhrifamikill og mjög umdeildur
stjómmálamaður og ráðherra mestallan þann tíma.
Um verk hans mun íslandssagan dæima, en aldur-
tila hans, konu hans og barnungs niðja í ógnarslysi
á Þingvöllum harma allir íslendingar. Þjóðviljinn
vottar vandamönnum forsætisráðherrahjónanna
og Benedikts litla einlæga samúð.
Að forðast vinnuslysin
Qftar en einu sinni á þeim skamma tíma sem ál-
verksmiðjan í Straumsvík hefur starfað hafa
orðið þar alvarleg slys á verkámönnum. Nú síðast
hafa blöð flutt fregn um að starfsmenn þar hafi
slasazt er svokallaður biðofn féll á tvo menn sem
meiddust, annar þó imun meir, en hann klemmdist
á báðum fótum og tók um klukkustund að losa
hann úr klemmunni. Þegar slys verða hvað eftir
annað á verkafólki á sama vinnustað, er b'rýn nauð-
syn að þess verði vandlega gætt af hlutaðeigandi
yfirvöldum að allar fyrirskipaðar öryggisráðstafan-
ir samkvæmt íslenzkum lögum og reglugerðuim séu
í heiðri hafðar, og finnist eitthvað athugavert ber
hiklaust að krefjast þess að úr verði bætt. Reynslan
hefur sýnt oftar en einu sinni að ekki er nóg að
yfirvöld krefjist úrbóta, heldur verða þau að heita
má að láta standa yfir því að skipun þeirra sá hlýtt.
'Jhl eftirlits á vinnustöðuim um slysavarnir og holl-
ustuhætti er ekki nóg að eftirlitsmenn komi ein-
stöku sinnum. Eftirlitið verður þá fyrst vakandi og
virkt að verkamenn sjálfir hver á sínum vinnu-
stað og trúnaðarmaður verkalýðsfélagsiris eða fé-
laganna sé sívakandi yfir því að allt sé gert sem í
mannlegu valdi stendur til að forðast vinnuslys. - s.
t dag legigja þau Viktoría
Halldórsdóttir, Beneddkt fr á
Hofteigi og Tryggvi Emilsson
Bæj arpóstinum til efni — og
maettu gjama fleiri fara, að
daemi þeinra og senda póst-
inum línu.
Fyrst er þá lengsta bréfið,
,frá Viktoríu og ber yfirskrift-
ina „Hvenær er mælirinn
fullur?“ Svohljóðandi:
Á fremstu síðu Morgun-
blaðsins 1. júlí si. stóð stór-
leruð fyrirsögn: Árangursrík-
um aðgerðum lokið. Víð sjálft
lá að ætla að þessi stórfyrir-
sögn væri fögnuður vegna
þess að fólkið, sem færir rík-
inu þær ofsaháu fjárhæðir
sem þjóðin nýtur góðs af,
hefði nú loksins fengið kjör
sán bætt svo verðuigt væri og
árangursríkt gæti talizt. En
þegar lengra var lesdð kom
annað í ljós. Blaðið var að
fagna árangu-rsríkum aðgerð-
um Band-aríkjastjómar í
manndrápum og landeýðingu
í Víetnam og Kambódíu.
Blaðið birtir langa skýrslu
um a-freikin. segir að sjálfur
Nixon hafi birt 7 þúsund orða
skýrslu í tilefni ]>ess að her
Bandaríkjanna og ráðgjafar
eru að flytjást heiin. Glæsi-
legar tölu-r eru skráðar um
afrek mann.a ' Nixons: 11.349
manns drepnir í hernaðarað-
gerðum, en ekki eru tölur í
blaðinu um börn og konur
sem h-afa verið limlesf og líf-
látin, brennd lifandi með bens-
ínhlaupi og loftárásum á þorp,
skól-a, sjúkrahús og týnt hafa
lífi og limum í þessari hryll-
ings yillimannlegu styrjöld.
2.328 hermenn handteknir og
herfang glæsilegt, bæði vopn
og matvæii6 þúsund-tonn
af hrísgrjónum. — Ennfrem-
ur segir í skýrslunni að
Bandaríkin muni, að fengnu
samþykki stjómar Kambódíu,
halda áfram loftárásum á
flutningaleiðir óvinanna, ef
þeir geri tilraun til flutnings
hergagna um Kambódiu.
Bandaríkjastjórn lofar að
senda Kambódíu létt vopn og
Bandaríkjamenn gáfu þeim
herfangið, er þeir tóku af
óvinunum, segir í sjöþúsund-
orða skýrslunni bans Nixons.
Hvenær er mælirinn full-
ur? Hversu lengi ætlar þjóð-
in, sem telur sig kristna, að
líða þá smán að fréttir af
hryðjuverkum Bandaríkja-
stjómar séu fluttar í blaði
því sem styður íslenzka rík-
isstjóm, án þess að minnsta
tilraun sé gerð til að vita
Hvenær er maélirinn fullur? — Göniul
vísa sem ekki má gleymast — Listahátíðin
og verkföllin
þann djöfullega verknað sem
framinn hefur verið árum
saman? Ég spyr: Er fólk orð-
ið svo hart og miskunnar-
laust, að það vilji styðja í
orði og verki fjársterka þjóð
til glæpsamlegra verka gagn-
vart fátækri smáþjóð?
Ríkisstjórn íslands gengur
æ lengra í aðdáun sinni á því
fagra og frjósama samstarfi
sem hún á við Bandarikja-
stjóm NATO. Veizlur og
fleðulæti vjð þessar yfir-
drottnunarþjóðir er ' hreint
hneyksli öllu .siðuðu fólki. fs-
land er vopnlaust og ætti því
að vera fyrirmynd friðar og
réttlætis og gæ'ti með fullum
rétti sagt skilið við þau her-
veldi sem lugu sig inná
reynslulitla menn í milli-
rikjaprettum og svikum, —
eða var það ekki saigt að
NATO væri stofnað í þeim
tilgangi að aðstoða smáþjóð-
ir, er stórveldi réðist á þær
eða sýndu yfirgang? Allt
þetta var auðvitað prettir, og
því er óverjandi allur sá
sauðarháttur og glæpsamleg
meðsekt sem hér á landi er
látin viðgangast ár eftir ár.
Þegar Mogginn birti 1. júlí
aU-a 7 þúsund orða skýrslu
Nixons var ekki eitt orð frá
íslenzkum manni með þeirri
viðbjóðsskýrslu, sem lýsti
vanþóknun á því framferði að
senda æskukj'ama Bandaríkj-
anna í aðra heimsálfu til að
deyða .og misþyrmia þjóð sem
aldrei hafði gert neitt á hluta
bandarísku þjóðarinnar. Þessi
þjóð vildi vera sjálfstæð og
hafðj víst aðrar ' Skoðanir á
þjóðmálum en Bandiaríkja-
forsetar, þeir er gert hafa sig
að héimsfrægum mönnum af
sama toga og Hitler, hinn
illrærrrdi • brj álæðingur.
Ég hef alltaf verið að vona
að ég lifði það að sjá land
mitt leyst frá berveldi því
sem sveik sig inn í þennan
helga reit og geymir hér um
áratugi drápstæki, sem er
smán þjóðinni er um aldir
hefur verið vopnlaus og frið-
elskandi. Sú herstöð sem hér
er í óleyfi þjóðarinnar verður
hennar banabiti, ef þeir
striðsjálkar sem ráða rikjum
í heiminum koma af stað
heimsstyrjöld.
Nú ætla ég enn einu sinni
að vona að íslenzka þjóðin
þekki betur og skilji að þörf
er á breytingu þegar ábyrgir
menn á íslándi telja árang-
ursríkar aðgerðir vina sinna,
að drepa saklaust fólk og
auka þjáningar og hungur-
dauða með því að leggja
mannvirki i rúst, eitra og
brenna gróður jarðar. Ég
vona að lesendur Morgun-
blaðsins,' fleiri en ég, báíi
vedtt því athygli, að fsland
er í hættu, bvað trú og sið-
gæði snertir, þegar glæpastarf
er talið til árangursríkra að-
gerðá.
5. júlí 1970,
Viktoría Halldórsdóttir
frá Stokkseyri.
Benedikt Gislason frá Hof-
tédigi bafði samband við Bæj-
arpóstinn á dögunum og bað
fyrir eftirfarandi:
f Þjóðviljanum er farið
méð vísusamstððuha
„Kviði ég fyrir Kaldadal,
kvölda tekur núna“,
og sagt að sé gamall vísu-
botn. Ég lærði ungur þéssa
visu þannig:
Kvíði ég fyrir Kaldadal,
kvölda tekur núna.
Herra guð í himnasal
haltu mér við trúna.
Kannski er vísan að gleym-
ast. Það má ékki vérðá. Þess-
végha bið ég Þjóðviljahn að
birta hána héila.
Benedikt Gíslason.
Til ferðafólks
Ertu óvanur ferðalögum?
Skipulegðu ferðina vandlega.
Spurðu vana ferðamenn ráða,
hvers konar klæðnaður sé
heppilegastur og hvað sé nauð-
synlegt að taka með í ferðina.
Gerðu ráðstafanir til að koma
skilaboðum heim, ef ferðaáætl-
unin breytist og dvöl fjarri
mannabyggðum lengist.
Hvert er ferðinni heitið?
Það er mikilvægt öryggisatr-
iði fyrir fjallgöngumenn að
halda hópinn, en hlaupa ekki
hver í sína áttina um lítt
þekktar slóðir.
Þeir, sem ætla að dvelja /ið
ár og vötn, eru minntir & að
fara með gát á bátkænum, gefa
gaum að vindátt og veðri og
vera f björgunarvesti.
Lítið vel eftir börnum í
grennd við ár og vötn.
Tryggvi Emilsson héfur sént Póötinum eftirfarartdi kvséðj méð
fyrirsögninni „Listahátíð eittnig vérkföll“. — Það ér svohá: t
Listahátíð einnig verkföll
Það fréttist að hátíð var haldin í ár,
sem hérlendis reyndist sú fýrsta,
og aldrei var himinn jafn héiður óg blár
í hásölum vísdóms og lista.
í fagnaðarvímunni felldu menn tár,
svo fagurt var salina að gista.
í blöðum var sagt hverjir nutu þess nú
að nálgast þá háleitu þanka,
í myndum var talað um forséta og frú
og framámenn ríkis og banka,
um fátæka giuðsþjóna géislandi af trú
og gróðamenn auðuga og blanka.
Frá hásölum listar til himins er stytzt
og hér voru ei klungur né ögur,
þeir urðu svo glaðir sem áttu þar vist,
að annað eins hervna ekki sögur,
og svo var þetta líka svo velheppnuð list.
Og víst er hún háleit og fögur.
Það veldur mér gleði og sorgar í sénn
er sit ég í þögn minnar elli,
að heyra hve ljúft er að leika sér enn
á listanna fluighála svelli,
er hljóm'arnir léku um þá háttsettu ménn
sem halda þar tilreiddum vélli.
Ég öfunda ei neinn þó hann fylki sér fréýhst
og fegurstu tónana heyri,
en aldrei að dyrunum alþýðan kémst,
ef una bví fleiri og fleiri,
hve smátt er og valt se’m í vérkföllum serriSt,
unz verða þau stærri og meiri.
Tryggvi Emilsson.
. líM , I»'IVI» L
Ætlarðu að búa í tjaldi?
Farðu varlega með opinn eld
í tjöldum, ekki sízt nylontjöld-
um. Sofnið aldrei út frá logandi
gasihitunartækjum.
Sýnið snyrtímennsku við
tjaldstæði og valdið ekki öðrum
tjaldbúum óþarfa ónæði.
Ætlarðu að aka sjálfur?
Ef þú ekur eigin bíl, hafðu
hann í eins góðu lagi og frekast
er unnt. Taktu með í ferðina
nauðsynlegustu varahluti og
verklfæri. Ef þú ert óvanur
akstri — eða ekur bii, sem þú
ert ókunnugur, t. d. bílaleigu-
bíl, farðu sérstaklega varlega
meðan þú ert að venjast um-
ferðinni og bílnum. Hagaðu
akstri eftir ástandi vegarins >g
öllum aðstæðum hverju sinni.
Hvíldu þjg, ef þreyta sækir á.
Aktu með jöfnum og þægileg- I
um ferðahraða og forðastu
óþarfa framúrakstur. Tíma-
spamaður er sáralítill, þótt 'pú
akir smákafla yfir löglegum
hámarkshraða, aukning úr 70 í
80 km hraða, flýtir förinni að-
eins um 66 sekúndur á 10 km
vegalengd
Getur þú eða einhver í hópnum
veitt fyrstu hjálp ef slys ber að
höndum?
Verið viðbúin óhöppum og
taikið najuðsynlegustu sára-
umbúðir með í ferðina. Rifjið
upp aðferðir við lífgun úr
dauðadái og stöðvun blóðrásar.
Það getur komið í þinn hlut að
verða fyrstur á slysstað.
Verið varkár, varizt slysin.
(Frá Slysavamafélagi Islands).
Hótel Villu Nóva
Sauðárkróki.
FERÐAFÓLK! — Höfum opnað Hótél
Villa Nóva, Sauðárkróki.
Tökum á móti gestum til 1. október. •
Gisting, matur og aðrar véitingar.
Hótsl Villa Nóva
Sauðárkrókj.
i