Þjóðviljinn - 01.10.1970, Blaðsíða 4
4 SÍOA — ÞJÖÐVTUINN — Ftoimifcudaeur 1. ofetólbeíP 197a
Útgefandi:
Framkv.stjórb
Ritstjórar:
Fréttaritstjóri:
Ritstj.fuiltrúi:
Útgáfufélag Þjóðviljans.
EiSur Bergmann.
Ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson
SigurSur Guðmundsson
Sigurður V. Friðþjófsson
Svavar Gestsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Sfml 17500
(5 iinur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Rannsóknar þörf
jVýléga hafa birzt um það fréttir að rannsókn sem
fraimkvæmd var á vegum bandarískra neyt-
endasamtaka hafi leitt í ljós að fiskstautar frá ís-
lenzku fullvinnsluverksmiðjunum vestanhafs hafi
ekki uppfyllt þau skilyrði sem gera verði til góðr-
ar vöru. Þetta eru mjög alvarleg tíðindi, því að
útflutningur á fiskmeti verður enn um langt skeið
meginverkefni Íslendinga í milliríkjaviðskiptum,
og jafnt markaður sem verðlag mótast af því að
við höfum á boðstólum óvefengjanlega gæðavöru.
Því er ástæða ’til að vara við þeim viðbrögðum, sem
því miður eru allt of algeng á íslandi, að reyna að
afsaka og réttlæta hvað sem er með undanbrögð-
um og vífillengjum, en fiskframleiðendur hafa því
miður þegar gert sig seka um málsvörn af því tagi.
Ástæða er til að taka undir þá tillögu sem Jóhann
Kúld birtir í ágætri grein í Þjóðviljanum í gær,
að skipuð verði rannsóknamefnd sem kanni al-
mennt ástand í fiskframleiðslumálum okkar og
semji rökstuddar tillögur um aðgerðir er tryggi
það að framleiðsla okkar nái örugglega mati sem
gæðavara.
Heift og óheilindi
Atriði úr sýningru Skozku óperunnar í Edinborg á óperu Benjamins Britten „Herbert Iíerring“.
Skozka óperan í Edinborg
tónskáldið Benjamin Britten
JJin opnu prófkjör Sjálfstæðisflokksins eru fyrir-
bæri sem vert er að veita athygli. Hugmyndin
er sótt til Bandaríkjanna, en þar hefur reynslan
orðið sú að þeir einir ná árangri í skoðanakönn-
umun sem hafa aðgang að nægilegu fjármagni til
þess að hafa uppi umfangsmikinn áróður og skipu-
leggja smölun. Nú þegar er Ijóst að þessi hugmynd
leiðir til hins sama á íslandi. Átökin í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík kostuðu miljónir
króna og þeir einir náðu árangri sem höfðu tiltæka
fjármuni og harðsnúinn smalahóp.
lafnframt hafa þessi átök ýtt undir þá eiginleika
sem óviðfeldnastir eru í félagsmálastarfi. Próf-
kjörið í Reykjavík hefur leitt í ljós að samskipti
aðalleiðtoga Sjálfstæðisflokksins mótast af óheil-
indum og gagnkvæmri óvild. Menn taka ekki að-
eins þátt í prófkjörinu til þess að lyfta sínum
mönnum, heldur ekki síður til þess að níða skóinn
niður af öðrum. Það eru staðreyndir sem segja
mikla sögu að í prófkjöri Sj álfstæöisflokksins í
Reykjavík töldu 2.517 kjósendur að Geir Hall-
grímsson væri ekki til þess hæfur að vera í fram-
boði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í næstu kosningum
og 3.082 — eða rúmur þriðjungur — höfnuðu Jó-
hanni Hafstein, formanni flokksins og forsætis-
ráðherra. Þar kemur til afbrýðisemi þeirra á milli,
og auk þess sá ásetningur Gunnarsmanna að berja
niður alla þá sem taidir eru þrándur í framagötu
hans. Flokkur sem þannig logar af gagnkvæmri
heift og óheihndum er sannarlega ekki til þess
fallinn að fara með málefni þjóðarinnar. — m.
f kvöld og þrjú næstu kvöld
flytur hópur listanranna frá
Skozku óperunni í Edinborg
verk eftir brezka tónskáldið
Benjamin Britten á sviði Þjóð-
leikhússins við Hverfisgötu.
Hér er um merkan listviðburð
að ræða, sem ástæða er til að
fagna og vekja sérstaka at-
hygli á.
Skozka óperan vair stofnuð
1962 og er í daig talin meðal
fremstu ói>erustofnana Bret-
lands. 1969 sagði New States-
man jim hana í sambandi við
sýningu á Trójuimönnuim eftir
Berlioz: „Enginn óperuflokkur
í Vestur-Evrópu tekur hienni
fram einsog hún gerist bezt“.
Stofnandi Skozku óperunnar
var Alexander Gibson, sem hef-
ur stjórnað listrænni starfsomi
hennar og verið aðalhljóm-
siveitarstjóri, en hann er einnig
tónlistarstjóri og aðalsitjóm-
andi Scottish National Orch-
estra, sem leikur með flestum
sýninguim óperunnar. Fyrsta
óperan sem flufct var af SkozkJ
óparunni var Madiame Bufcter-
fly, en hljómsveitarstjóri var
Alexander Gibson. Síðan hefur
orðstír óperunnar vaxið mjög,
einsog þegar hefur komið
fram; má í því sambandi benda
á frábærar sýningar hennar
á síðustu óperum Verdis, Oth-
ello og Falstaff. 1966 sýndi hún
Valkyrjumar eftir Wagner, og
síðan hefur hún haldið áfram
sýningum úr Niflungahringn-
um sem mun ljúka 1971.
Skozka óperan er hvort-
tveggja í senn þjóíSleg og al-
þjóðleg stofnun og það mikla
áiit og sá ótvíræði orðstír sem
hún nýtur í dag er ævintýri
líkast, þegar haft er í huga
að hún er ekki nema 8 ána.
Fáir munu hafa trúað, þegar
hún hóf starfsemi sína 1962,
að hún æfcti langra lífdaiga auð-
ið — hvað þá komið til hugar
að spá henni sliku gengj sem
orði'ð hefur þó raunin.
Formaður óperuráðsins er
nú Robin Orr, en Alexander
Gibson hefur yfirumsjón með
listrænni starfsemi. Peter
Bcnjamin Britten
Hemmings er aðalritari stofn-
unarinnar, en framkvæmda-
stjóri sýninga er Pefcer Ebert.
Tónskáldið Benjamin Britten
Benjamin Britten — þekkt-
asta núlifandi tónskáld Breta
— fæddist j Suffolk árið 1913.
Tónlisitarhæfileikar hans komu
snemma í ljós, og þegax bann
var 12 ára gerðist hann nem-
andi Frank Bridges. 1930—33
sfcjndaði hann nám í Royal
College of Music, m.a. hjá John
Ireland og Arthur Benjamin.
þar urðu til Kóraltilbrigðin
„Child js born“ (1933), en sáð-
an hóf hann að semja tónlist
fyrir útvarp, leikhús og kvik-
myndir. Verulega frægð hliaut
hann fyrir Tilbrigði um stef
efltir Frank Bridge. Bmiitten
fluttist til B-andaríkjanna 1939,
en þar samdi bann fyrsta
meiriháttar verk sitt fyrir leik-
svið, óperettuna „Paul Buny-
an“, vi'ð texta eftir W. H. Aud-
en. Óperuna „Petex Grimes"
semur hann eftir heimkomuna
til Englands 1942, en óperan
var frumfljtt í Sadler’s Wells
leikhúsinu í London 1945. Hef-
ur hún síðan verið sýnd í öll-
um helztu óperuhúsum, enda
sikipaði hún höfundi sínum á
fremista bekk meðal óparutón-
skáld,a aldarinnar. Meðal ann-
arra ópera, sem enn bafa auk-
ið á orðstír hans, má nefna
„The Rape of Lucretia“ (1946),
„Albert Herring" (1947), „Billy
Budd“ (1951), „The Turn of
the Screw“ (1954), „A Mid-
suimmer Night’s Dream“ (1960)
og „Let’s Make an Opera“
(1949), þar sem áhorfendur
verða meðal þátttakenda sýn-
ingarinnar.
„The Rape of Lucretia" —
fyr.sta kammerópera Brittens
— var fyrsta verkefni English
Opera, en Britten veitti henni
listræna forstöðu, samdi óper-
Ur fyrir bana og stjórnaði
þeim — Aldeburgh-tónliistar-
hátíðin tók síðan við; hún hef-
u,r verið baldin í júnímánuSj í
fiskibæ í Suffolk, þar sem
Britten settist að 1947 og hann
hefur búið þar síðan.
Britten er óvenjufjölhæft
tónskáld. Mörg sönglaga hans
og kórverka (einkum við Bibl-
iutexta) eru fö-gur og áfcriía-
rik. Meðai ljóðaflokka, sem
hann hefur samig lög við, má
nefna „The Seven Sonnets of
Midhe(Iangielo“, „Tlhe HolySönn-
efcs of John Donne“, „Six
Hölderlin Fragmenfcs" og „The
Poet’s Ecbo“ við ljóð eftir
Pushkin. Meðal kórverkia:
„Hymn to St. Ceciliia“, „Rejoice
in the Lamb“, Vorsinfóníuna
Og hina áhrifaríku Stríðssálu-
messrj („War Requiem“). Britt-
en hefur samið verk, sem
nefna mættj kirkjuóperur —
enda flutt sem slík, en þekkt-
asfc þedrra er „The Frodigal
Son“.
Me0al tónverka Brittens
fyrir hljóðíæri eingöngu má
nefna strengjaikvairtetta, fiðlu-
konsert, „Diversions“ fyrir
píanó (vinsfcri hönd) og hljóm-
sveit. „Sinfonia d« Reqiem“,
tvær selló-svífcur (tileinkaðar
Rosfcropovitsj), selló-sónötu og
selló-sinfóníu.
Britten hefur stjórnað fflutn-
ingi verka sinna, á leiksyiði,
í kirkju og konsertsal, og á
hljómplötum (Decca).
Óperan Herbert Herring
Hér fer á efti,r stuttur efnis-
útdráttur úr óperunni Herbert
Herring, sem sýnd verður í
Þjóðleikhúsinu: Árið 1900. Sú
skapmikla lafði Billows, sem
ræður lögum og lofum í þorp-
inu Loxford, hefur kallað bæj-
arstjórann, sóknarprestinn, fó-
getann og skólastýruna á fund
til að kjósa Maí-drottninguna,
Florence, þjónustustúlka lafði
Billows og einkaritari, er einn-
ig viðstödd.
Fljótlega kem,ur í ljós, að
sáðferði stúlknanna, sem tii
greina koma, er ekki beinlínis
til fyrirmsmdar og visisulega
ekki í samræmi við hugmyndir
lafði Billows.
Eftir allstormasaimt þing er1
Framhald á hls. 9.