Þjóðviljinn - 10.10.1970, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 10.10.1970, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 10. október 1970. 38 — Kærar þakkir, svaraði ég gremjulega, því að ég var far- inn að sjá eftir því að hafa sóað í hann svo mörgum orðum. En ég hafði þó ékki sagt honum neitt um það hvað Maire hafði tekið sér fyrir hendur eftir að hún hafði reynt að finna Kevin á þjóðveginum. Mér datt í hug drukkni maðurinn sem hún sagð- ist hafa séð. Átti ég líka að segja frá honum? Nei, það hefði getað verið uppspuni sem kona bjó til í þeim tilgangi að leiða athyglina frá sjálfri sér, ef hún hefði í raun og veru myrt Harri- et. Og fyrst Seamus hafði efcki getað haft upp á einum einasta flakfcara, hafði áreiðanlega eng- inn slíkur verið á ferð þessa nótt. Samtalið lognaðist út af á næstu tíu mínútum. Síðan reis Concannon á fætur og gekk til dyra. — Hve lengi verð ég að vera hér um kyrrt? — Þar til rannsókn minni er lokið, sagði hann aðeins. — Og hvenær verður það? Hann yppti öxlum. — En í hamingju bænum, — þér hljótið að vita að ég get orð- ið næsta fórnarlamb? — Ekkert illt mun henda yður, meðan þér eruð undir verndar- væng Flurrys Leesons. Tveim tímum seinna sat ég í herberginu í Lissawn House, þar sem Flurry geymdi veiðistengur sínar. Við Flurry höfðum þegar gert whiskýinu góð skil. Þetta varð allundarleg næturvaka — M i/ EFNI / SMÁVÖRUR TÍZKUHNAPPAR HÁRGREIÐSLAN Hárgreiðslu- og snyrtistofa Steinu og Dódó -.augav. 188 in. hæð (lyfta) Síml 24-6-16. Perma Hárgreiðslfu- og snyrtistofa Gahðastræti 21 SÍMI 33-9-68. nóttina eftir útförina og aðeins tveir syrgjendanna viðstaddir og sátu niðursokknir í ölæðishjal um þá konu sem undir öðrum kringumstæðum hefði getað feng- ið þá til að rjúka í hár saman. Flurry drakk til að gleyma henni. Ég drakk til að losa mig við þær grunsemdir sem Concann- on hafði komið inn hjá mér — að það væri ef til vill Flurry sem hefði myrt hana. — Hvað var það sem hann Concannon vildi, sagði hann eins og hann gæti lesið hugsanir mín- ar. — Hann heldur að það geti verið þú sem myrtir hana, þetta heimska svínabesti. — Jæja, heldur hann það? Nú, ég get vel skilið það. — Ég sagði honum að það væri djöfuls kjaftæði. Flurry tók veiðistöng og sveitfl- aði henni dálítið til áður en hann lagði hana aftur á borðið. — Reyndi hann að veiða eitthvað upp úr þér? — Já, það gerði hann. Hann reyndi líka að fá mig til að viðurkenna að ég hefði verið með Harriet kvöldið sem hún — — Þú hefur væntanlega efcki gert það? — Þú ert eini maðurinn í öll- um heiminum sem fær nokkum tíma að vita það, Flurry. — Og ég segi engum það, svaraði hann og ropaði feimnis- laust. — Það er annars svei mér skrýtið að við skulum sitja héma báðir og skrafa um hana. Fjanda- komið sem það á sér nokkurt fordæmi. Bf maður læsi það í bók, dytti manni ekki í hug að trúa því. Æjá, þegar kvenfólk er annars vegar er fjandinn laus — Guð veri sál hennar náðugur. Einhvem tíma kvöldsins tókst Flurry að finna handa okfcur brauð og ost. Seinna tók hann til við að skamma blaðamenn- ina sem höfðu angrað hann í tíma og ótíma. — Maður getur ekki einu sinni átt einkalíf sitt í friði nú á dögum. Ég yrði ekki hissa þótt þessir kauðar stæðu og læsu yfir öxlina á St. Pétri á dómsdegi til að sjá hvað hann hefur skriifað. — Þeir lesa að minnsta kosti ekkert sérlega ljótt um þig, Flurry. — Nema kannski eitthvað um morð, sagði hann þungbúinn. — Allt í einu varð ég alveg allsgáður. — Já, en það var í frelsisstríðinu og það er allt ann- að mál. — Til andskotans með Eng- lendingana. Ég er ekki að tala um þá. Hann leit íhugandi á mig. — Og ég er ekki heldur að Volkswageneigendur Höfum fyrirliggjandi BRETTI — HURÐIR — VÉLALOK og GEYMSLULOK á Volkswagen í allflestum litum. — Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. — REYNIÐ VIÐSKIPTIN. Bílasprautun Garðars Sigmundssonar. Skipholti 25. — Sími 19099 og 20988. tala um Harry, eins og þessi skít- hæll og drullupjakkur hann Con- cannon myndi halda. Ég er að hugsa um builuna sem drap hana. Það mannslíf vildi ég hafa á samvizkunni þegar dómsdagur rennur upp. — Af hverju læturðu yfirvöld ekki um það? Flurry spýtti inn í eidinn. — Yfirvöldin? Yfirvöldin sfculu ekki fé að stela honum frá mér. — Þú segir þetta af því að þú ert fullur, Flurry. Þú skiptir bráðum um skoðun. Þú ferð þó varla að eiga á hættu að verða hengdur — — Þú getur bölvað þér upp á að ég skal ná í þann náunga. Það er það eina sem ég hef að lifa fyrir, þegar Harry er ekki lengur til! Hann leit á mig vot- um augunum. — Hvað helztu annars um mig? — Að þú værir innst inni cM- lítið latur og viljir fara þér að engu óðslega. Lílfið hefur gefið þér tilteknar hugmyndir um rétt- inn til að beita aivöru, en þrátt fyrir allt eru ofbeldisverk and- stæð eðli þínu. Þess vegna verð- urðu að demba þér út í þau með lokuð augu. Þú ert ekki ánægður með það sjálfur að þú skulir í eðli þínu vera viðkvæm sál, og þess vegna reynirðu að brynja þig með harðri skel. Flurry hafði starað á mig með sívaxandi undrun meðan hann hlustaði á sálgreiningu mína. — Herra minn trúr; nú dámar mér akki. Þetta er það argasta endemis kjaftæði sem ég hef nokkurn tíma heyrt. Það ert þú sem ert mígandi fullur, Domi- nic. Ég finn hvorki haus né sporð á því sem þú ert að segja. — Það geri ég eiginlega ekiki heldur, fyrst þú minnist á það. En segðu mér annars eitt — og það hefði ég aldrei spurt þig um ófullur — af hverju kyrktix-ðu mig ekki með berum höndunum þegar ég — þegar ég sagði þér leyndarmál mitt? — Leyndarmál þitt? — Þegar ég sagði þér að ég hefði raunar verið með Harriet kvöldið sem hún var myrt. Það varð löng þögn. Það leit helzt út fyrir að Flurry ætti erf- itt með að einbeita huganum. — Það munaði líka minnstu, skil- urðu. En ég er efcki eins vitlaus og ég lít út fyrir að vera. Ég gat sagt mér sjálfur að sekur maður færi ekki að segja mér frá þessu leyndarmáli sínu og leggja líf sitt mér á vald. Þú varst sko alls eikki neyddur til að segja mér það, eða hvað? — En — — Bíddu hægur. Einu sinni á illu dögunum yfirheyrði ég mann sem við höfðum grunað um að hafa komið upp um tvo vini sína við óvinina. Hann neitaði því. Hann lét sem hann væri niðurbrotinn af harmi yfir ör- lögum vina sinna — þeir höfðu verið pyntaðir og drepnir. En það var ekki ekta. Ég fann það ein- hvern veginn í hjartanu að það var ekki ósvikin sorg. En það var þín stxrg hins vegar, hún var full af einlægum harmi og iðrun, það leyndi sér ekki. Jæja, nú er ég farinn að tala eins og faðir Bresnihan. Til fjandans með það allt saman. Þetta er annars hálfvitaleg næturvaka. Við ættum heldur að taka lagið. Kanntu „Piltarnir frá Wexford"? Ég söng allt sem ég mundi úr kvæðinu meðan Flurry sló taktinn í borðið og tók undir viðlagið með hásu hvískri. Ég hélt áfiram og söng: „Harpan sem eitt sinn ómar“, síðan tók ég til við; „Hún gekk um götur og torg“ á svo hjartnæman hátt að Flurry vatnaði músum. Sea- mus hlaut að hafa komið í miðju kafi, því að ég man að allt í einu sá ég hann og Flurry slaga um gölfið og styðja hvor annan, meðan þeir sungu í blönduðum kór herskáan bylt- ingasöng sem ég hafði byrjað á. Loks lét Flurry fallast niður í stól lafmóður. — Þetta var betra. Svtxna á það að vera. Hann hef- ur fína rödd, finnst þér ekki, Seamus? — Það hefur hann. — Þetta er eitthvað annað en þessar herjans gx-átkonur. Hef- urðu nokkurn tíma rekizt á írsk- ar grátkonur, Dominic? — Nei. — Þær gera óskaplegan háv- aða. Þær eru eins og hjörð af úlfum sem situr og spangólar upp í tunglið. — Þú hefur aidrei séð svo- leiðis úlfáhjörð, Flurry, sagði Seamus. — Nei, en bíddu bara hægur. Það er heil hjörð til taks á lögreglustöðinni. — Þá dettur mér í hug að ég þarf að muna að — — Ef það er eitthvað sem þú þarft að muna, ertu vinsamlega beðinn að fara út fyrir og muna það þar. Við höfum ekkert að gera við útfararstjórafés á þessari sorgarhátíð. Hafið þið gert ykkur ljóst, gömlu vinir, að þetta er í fyrsta sinn sem mér hefur tekizt að verða fullur síðan Harry — við verðum að skéla fyrir því. Ég var svo vankaður að ég þurfti að hafa mikið fyrir því að muna hvað hefði eiginlega komið fyrir. Jú, alveg rétt, það voru ekki nema f jórir dagar liðn- ir síðan Harriet dó. Mér fannst vera liðin heil eilífð. — Æjá, við elskuðum hana allir. Við skulum skála fyrir Harry; megi sál hennar hvíla i friði! Við skáluðum hátíðlega upp á það. — Og nú klingjum við glös- um við Dominic. Megi Djöfull- inn sjálfur í eigin i>ersónu rífa þakið ofan af þeim vistarverum og stofnunum sem bjóða þig ekki velkominn og mig líka. — Ég sting upp á að við skál- um fyrir Seamusi, sagði ég. — Seamus, þú mátt eiga Conne- mara-hattinn minn, þennan með skotgötunum í. Geturðu krafizt betri sönnunar fyrir vináttu minni? — Ég þakka kærlega fyrir, herra Eyre. — Ekkert að þakka. — Þann viðbjóðslega hattgarm, sagði Flurry. — Geturðu ekiki fiundið eitthvað skárra ? Við getum ekki einu sinni verið þclaktir fyrir að setja hann í lík- kistuna hjá gömlum landshorna- flækingi. — Þá man ég það að — — Æ, haltu kjafiti, Seamus! SINNUM LENGRI LÝSING neOex 2500 klukkustunda lýsing við eðlilegar aðstæður (Einu venjulegu perurnar framleiddar fyrir svo langan lýsingartíma) NORSK ÚRVALS HÖNNUN Heildsala Smásala Einar Farestveit & Co Hí Bergstaðastr. 10A Sími 16995 CHERRY BLOSSOM-skóáburður: Glansar betur, eudtst betur Aog B gæðaflokkar Laugaveg 103 ^ sími 1 73 73 Hver býður betur? Það er hjá okkur sem þið getið fengið AXMINSTER teppi með aðeins 10% útborgun. AXMINSTER — annað ekki. ffliífflil ANNAÐ EKKI Grensásvegi 8 — sími 30676. Laugavegi 45 B — sími 26280. Húsráðendur! Geri við heita og kalda krana, WC og WC-kassa, leka á ofnum og hitaveituleiðslum. STILLI HITAVEITUKERFI. HILMAR J. H. LÚTHERSSON pípulagningameistari Sími 17041 — til kl. 22 e.h. BILASKOÐUN & STILLING Skúlagötu 32. MOTORSTILLINGAR HJflflSTILLINGflR LJÚSASTILLINGAR Látið stilla í tima. S Fljót og örugg þjónusta. I 13-10 0 liil!liyillSjllllíjlilííS!li|lliyiíljllSlilií!ll!li!!Sillil!|!!l|ii!llliiil!i!lii!iiiiili!iiiSllili!l||il!i!íiSiSliil!iiililiii!ii!!!iiiiin TEPPIHUSIi HEFUR TEPPIN SEM HENTA YÐUR D TEPPAHUSIÐ * * SUÐURLANDS BRAUT 10 * SÍMI 83570 Auglýsingasími Þjóðviljans er 17500

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.