Þjóðviljinn - 13.10.1970, Qupperneq 9
Þriðjudaigur 13. dktólber 1970 — ÞJÖÐVTLJINN — SlÐA 0
Hæstu vinuingar i
Happdrætti H.f.
í gser var dregið í 10. ílakki
Happdrættis Háskóla íslands.
Dregnir voru 4.800 vinningar að
fjárhæð krónux sexfcán miljónir
og fjögur hundruð þúsund.
Hæeti vinningurinn, fjóriir
fimm hundruð þúsund króna
vinningar komu á nr. 5783. Voru
tveir miðarnir seldir í Aðalum-
boðinu, Tj amargötu 4 og tveir
miðar í umboði Helga Sívert-
sen, Vesturveri.
Eitt hundrað þúsund krónur
komu á fjóra heilmiða nr. 11892.
Var einn miðinn seldiur í umboð-
inu á Akureyri annar í umboðd
Frímanns Frímannssonar, Hafn-
arhúsinu, þriðji í umboðinu
Hagafelli, Keflavík og fjórði í
Aðalumboðinu, Tjarnargötu 4.
10.000 kr. vinningar:
604 2061 2462 2558 5782
5784 6893 7003 8010 8305
8925 10703 10878 11250 13112
13140 14559 15223 16029 18069
18452 18871 19212 19223 19372
19695 20872 21675 21791 22740
26897 27435 28405 29068 29816
30471 30638 32152 32154 32307
33328 33416 34460 38260 38433
38796 38912 39634 4310o 43264
43678 43732 44867 47á51 47690
48994 49885 52145 52588 52963
53939 54311 54484 54594 55087
55841 56087 56275 56469 56554
58038 58171.
(Birt án ábyngðar).
Kona féll út um
glugga á 3. HæS
Júgóslavnesk kona féil út um
glugga á þriðju hæð húss við
M jóstræti •ó-&unnudagsmorguninn.
Var eiginimaður konunnar eini
sjónarvotturinn að atburðinuim.. —
Spgði hajin við yfiriheyrslu hjá
lögregflunni að þedm hefði sdnn-
azt og konan hlaupið í blindnt
á gluggann. Lenti konan á smó-
grasbletti og var það lán í ó-
láni að hún féll milili tivegigja
hnullungssteina. Fótbrotnaði hún
og hilaut einhver meiðsii.
Hampar lygasögu
Framhald af 7. síðu.
hæfingu til baka, þegar yður eru
ljósar staðreyndir.
Hér í bæ eru sjö stórir bátar.
Fjórir þeirra eru í eigu Síldar-
vinnslunnar hf., sem þér segið
gamalt og gróið fyrirtæki AB-
manna í Neskaupstað. Af þessu
tilefni vil ég upplýsa yður um
það, að hlutafé félagsins er 500
þús. kr. Langstærsti hluthafinn er
samvinnufélag útgerðarmanna,
sem á 300 þús. kr. hlutafé, bæjar-
sjóður á 50 þús. kr., Dráttar-
brautin hf. (Samvinnufélag út-
gerðarmanna og bærinn eiga
meirihluta hlutafjár) á 40 þús.,
Olíusamlag útvegsmanna 17 þús.,
kaupfélagið Fram 10 þús., en í
eigu söltunarfélaga, útgerðar-
manna og annarra einstaklinga
eru 83 þús. kr.
Hinir fjórir bátar Síldarvinnsl-
unnar voru keyptir, án þess að
Ieitað væri eftir bæjarábyrgð og
án tilhlutunar bæjarstjórnar, en að
sjálfsögðu fyrir forgöngu Alþýðu-
bandalagsmanna.
Allir hinir bátarnir þrír voru
keyptir með bæjarábyrgðum, og
tveir þeirra með beinum fjárhags-
Iegum stuðningl Síldarvinnslunn-
ar. Allir eru þessir bátar í ein-
staklingseign, þótt reknir séu af
fjölskylduhlutafélögum, eins og
algengt er.
Haustið 1964 festi Gísli Berg-
sveinsson, útgerðarmaður kaup á
vélskipinu Vattarnes (nú Björg)
frá Eskifirði. Hann sótti um og
fékk bæjarábyrgð að upphæð kr.
2.635.00,00. Til tryggingar á-
byrgðunum fékk bærinn eftirtalin
veð:
1. Veð í hinu keypta skipi næst
á eftir kr. 3.367.000,00. <:>
2. Veð í öðru skipi, sem ábyrgð-
arþyggjandi átti, næst á eftir
600 þús. kr.
3. 1. veðrétt í 1. og 3. hæð hins
stóra íbúðarhúss Gísla.
4. 1. veðrétt í sjóhúsi Gísla.
Hinn 28. des. 1965 fékk Ölver
Guðmundsson, útgerðarmaður,
bæjarábyrgð á 1 milj. kr. láni til
kaupa á vélskipinu Magnúsi. Til
tryggingar veðsetti Ölver bænum
íbúðarhús sitt með öðrum veðrétti.
Á fyrsta veðrétti hvíldu aðeins 45
þús. kr. Húsið var þá brunatryggt
fyrir 1245 þús. kr.
Hinn 6. jan. 1966 fékk Svein-
björn Sveinsson bæjarábyrgð fyrir
1 milj. kr. til kaupa á vélskipinu
Sveini Sveinbjörnssyni. Til trygg-
ingar fékk bærinn veð í vélskip-
inu Glófaxa með öllum veiðarfær-
um, næst á eftir áhvílandi veði að
upphæð 2 milj. kr. Taldi bæjar-
ef þér skylduð halda, að þessir
þrír menn væru einhver sérstök
óskabörn Alþýðubandalagsins,
þykir mér rétt að taka fram, að
allir eru þeir ákveðnir andstæð-
ingar þess og vinna gegn því.
Þá er rétt að taka það fram, að
stundum hefir bærinn veitt á-
byrgðir til kaupa á smærri fiski-
bátum og Síldarvinnslan margoft
ábyrgzt lán og beinlínis Iánað fé
til kaupa á slíkum bámm. Við
slíkar ábyrgðar- og Iánveitingar er
aldrei farið í pólitískt manngrein-
arálit".
Bjarni ÞórrSarson.
stjórn þetta svo gott veð, að ekki
væri ástæða til þess að krefjast
fasteignatryggingar.
Sá er meginmunur á þessu á-
byrgðum öllum og ábyrgðinni til
Arnarborgar, að öll voru lánin
innlend og því óháð gengisbreyt-
ingum. Ég fullyrði, að bærinn
hefði ekki krafizt fasteignatrygg-
ingar af Arnarborg, ef ekki hefði
gengisáhætta fylgt ábyrgðinni og
í þokkabót einnig á l.-veðréttar-
láni Fiskveiðasjóðs.
Enn er þess ógetið, að Síldar-
vinnslan beinlínis lánaði þeim
Olver og Sveinbirni hvorum um
sig kr. 1.500.000,00 til skipakaup-
anna. Gísla nægði bæjarábyrgðin,
en hefði áreiðanlega fengið fyrir-
greiðslu hjá Síldarvinnslunni, ef
eftir hefði verið leitað.
Ég er þess fullviss, að hvorki
Ölver né Sveinbjörn hefðu getað
keypt sín skip, ef ekki hefðu til
komið bæjarábyrgðir og Ián frá
Síldarvinnslunni. Af þessu má
marka hve ómakleg eru um-
mæli yðar um, að Alþýðu-
bandalagsmenn í Neskaupstað
reyni að koma í veg fyr-
ir atvinnurekstur annarra. Og
Verkstjórar
Framhald af 2. síðu.
um fjallað um míkilvægi EFTA-
aðildar fyrir atvinnulífið.
Á siðari hlutanum er mestum
tíma varið í námsefnin „vinnu
rannsóknir, vinnueinföldun og
skipulagstækni“. Em þar kynnt-
ar merkustu aðferðirnar til þess
að auka hagræðingu í fyrir-
tækjum. Þá er á síðari hlutan-
um fjallað um noikikur helztu
atriði rekstrarhagfræði til að
veita þátttakendum betri sikiln-
ing á nauðsyn hagkvæms
rekstrar, og einnig er farið yfir
helztu atriði í atvinnuheilsu-
fræði.
Þeir, oem ljúka báðum hlut-
um hvers námskeiðs, fá þátt-
tökuskírteini.
Á næsta námsári eru fyrir-
huiguö 3 almenn 4 viíkna nám-
skeið og 3 framhaldsnámsikeið.
Næsta almenna námskeið
verður haldið sem hér segir:
Fyrri hluti: 19.—30. okit. Síðari
hluti: 4.—16. jan.
Þau starfsmannaskipti hafa
orðið við Verkstjómamámskeið-
in á þessu ári, að Sigurður
Ingimundarson, alþm., hefur
látið af störfum sem forstöðu-
maður, en við hefur tekið Þórir
Einarsson, viðskiptafræðingur.
Hestar tí/ sö/u
60-70 hross, á öllum aldri til sölu hjá Vinnuhæl-
inu á Litla-Hrauni, Eyrarbakka.
Hrossin eru af mjög góðu reiðhestakyni og verða
til sýnis laugardaginn 17. október frá kl. 13-18
við Litla-Hraun.
Kauptilboð sikulu gerð í einstök hross og eru eyðu-
blöð afhent á staðnum.
Upplýsingar gefnar í síma 3189 (svæðisnr. 99).
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri þriðjudag-
inn 20. okt. 1970, kl. 5 e.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI7 SÍMI 10140
Eiginkona mín
MARGRÉT GUÐLAUGSDÓTTIR,
Hringbraut 60, Hafnarfirði,
andiaðist á Borgarsjúfcrahúsinu 12. októiber.
F.h. fjölskyldunnar
Magnús Guðjónsson.
Jarðarför konumniar minnar, móður okkiar og ötnmu
SIGRÍÐAR E. SÆLAND, ljósmóður,
fer fnam fná Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði fimmtradaginn
16. október kl 2.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á minningar-
sjóð Sveins Auðunssonar og S.V.F.Í.
Stígur Sæland,
börn og barnabörn.
Fíknilyfjanefnd skilar áliti
Framhald af 12. síðu.
niðurstöðum nefndarinnar vera
nær óþekkt hér á landi, en vitað
er þó um, að íslenzkir unglingar
hafi notað efnið erlendis.
Á hinn bóginn eru hér tals-
verð brögð að misnotkun svo-
kallaðra róandi lyfja og svefn-
lyfja, og fullyrðir nefndin, að
ýmsir læknar sýni of litla að-
gæzlu við ávísun þessara lyfja-
tegunda. Samkvæmt alþjóðlegum
samþykktum eru ávísanir fyrir
sterkum verkdeyfandi og örvandi
lyfjum eftirritunarskyldar, þann-
ig að unnt er að hafa mjög
fulLkomið eftirilit með neyzlu
þeirra, en hér er aðeins um
að ræða 1/10 hluita ávana- og
fíknilyfja. I tillögum nefndar-
innar er talið nauðsynlegt, að
flest þessara lyfja verði gerð
dftirritunarskyld. Yfirgnæfandi
meirihluti vanalyf jasjúklinga
neytir svonefndra róandi lyfja
og svefnlyfja.
Kristján Pétursson deildarstjóri
í toll-gæzlunni á Keflavíkuirflug-
velli, er starfaði sem ráðunautur
nefndarinnar hefur sýnt ft'kni-
lyfjamálum mikinn áhuga oig gat
hann bent hópnum á allmarga
aðila, sem neytt höfðu og neyta
ýmiss konar lyfja. Var rætt við
10 einstaklinga og reynt að graf-
azt fyrir um, hvemig þeim hefði
tekizt að ná í fíknielfnin, og sam-
kvæmt iþeim upplýsiniguim er
þannig fenguzt, er talið mjög
ólíklegt, að sérstökum dreifingar-
kerfum hafi verið komið á fót.
Flestir þessara aðila höfðu byrjað
neyzluna erlendis, sumum hafði
tekizt að smygla einhverju magni
með sér inn í landið og aðrir
höfðu fengið efnin hjá kunn-
ingjum sínum. Æskulýðssamtök
bentu nefndarmönnum á nokkra
aðila, sem hafa legið undir grun
um fíknilyfjaneyzlu og það sama
kom á daginn í viðræðum við
þá.
Tillögur
Samikvæmt niðurstöðum nefnd-
arinnar er neyzla fiknilyfja hér-
lendis enn ekki orðið stórfellt
vandamál á borð við það, sem
gerist meðal nágrannaþjóðanna,
en nauðsynlegt er að gera ýmiss
konar róðstafanir til að sporna
gegn frekari hættum. Má þar
einfcum nefna aukið eftirlit toll-
gæzlu og löggæzlu með ólögleg-
um innflutningi, verzlun og með-
ferð ávana-, fíknilyfja og efna.
1 því sambandi er nauðsynlegt
að veita toll- og löggæzlumönn-
um fræðslu um þessi mál og sér-
hæfa ákveðinn hóp þeirra. Ætl-
unie er að senda bráðlega utan
nokfcra menn til að kynna sér
meðferð þessara mála í nágranna-
löndunum. Þá leggur nefndin til,
að bætt verði aðstaða til rann-
sókna á ávama- og fýknilyfjum
þannig að skera megi úr á örugg
an, skjótan og hagkvæman hátt,
hvort um slfk lyf sé að ræða
eða ekiki. 1 þriðja laf* er gert
ráð fyrir bættri upplýsingastarf-
semi um hættur samíara vímu-
gjöfum. Þá er áfcvæði um eftirlit
með lyfjaávísunum lækna, og í
5. lagi er bent á nauðsyn þess
að sjá sjúklingum, sem verða
ávana- og fíknilyfjum að bráð
fyrir lækningu og sem beztri
meðferð. Yrði þá líklega ktwnið
upp sérstakri sjúkradeild fyrir
fíknilyfjasjúklinga.
Svo sem að firaman greinir
eru þessar tillögur til meðferðar
hjá ríkdsstjórninni og á fundi
með fréttamönnum í gær töldai
nefndarmenn líidegt, að þessi
veigamiklu mál kæmust mjög
fljótlega til framlfcvæmda.
Bókaeign
Framhald af 7. síðu.
höfiundagireiðslur vegna afnota
ritverka í bókasöfnum verða
lögiteknar, er heimilt, ef sérstök
fjárvedting er til þess veitt f
fjárlögum, að veita rithöfund-
um árlega styrki til .dvaitar í
öðru norrænu liandi.“ Það má
segja firá því hér, að þegiar
hefur verið gerð tillaga til fjár-
laiga um hinn fyrsta sdífcna
styrkja, kr. 80.000,00. Lögin eru
þannig smám saman að öðlast
fudlt gild'. og fulda framkvæmd.
1,6 milj. tU 13 höfunda
Fyrsta stjórn sjóðsins hefur
nú senn setið þriggja ára tima-
bil sdtt og lætur af störfum eft-
ir fiáar vikur. Haina skipa Knút-
ur Hadlsson deildarstjóri, tid-
nefndur af menntamálaráðu-
neytinu, Stefán Júlíusson rithöf-
undur og Björn Th. Bjömson,
kosnir af stjóm Rithöfumdasam-
bands íslands. Hafa þeir í
stjómartáð sinni skipzt á for-
mennsku, sifct árið hver. Við þær
tvær úthlutanir sem þegar hafa
farið fram hafa alils niu höfund-
ar hlotið viðurkenningu: Fyrra
árið þau Jóhannes úr Kötdum,
Guðmundur Daníelsson, Svava
Jakobsdóttir og Guðbergur
Sjómannaþing
Framhald af 1. síðu.
roannaráðsteÉnu ekki síðar en í
byrjun desembenmánaðar tilþess
aö fiorana sameiginlegar kröfur fé-
laganna tU kjarabóta, sem send-
ar verða útvegsmönnum og fleiri
aðilum sem hlut eiga að máli“.
Þessir menn áttu sæti í kjara-
og aitvinnumállanefnd: Tryggyi
Heilgason, Jón Kr. Ólsen, Björg-
vin Sigurðsson, Jón Hedgason Rv„
Óskar Vigfússon og Guðimmdur
Kristjónsson.
Bergsson, og hlutu þau 100 þús-
und krónur hvert. 1 fyrra urðu
fyrir valinu þeir Þórbergur
Þórðarson, Guðmundur Gislason
Hagadín, Thór Vilhjálmsson,
Hannes Pétursson og Guð-
mundur Halldórsson frá Berg-
stöðuim, og hlutu þedr 125 þús.
hver. Enn er það ætlun okkar í
ár, að reyna að hadda verðgjlld’.
upphæðarinnar ósfcertu, og þó
hedzt aðeins betur, og er upp-
hæðin því að þessu sinni á-
kveðin 600 þúsund kr„ sem
skiptist í fjóra staði. Að því
meðtöldu mun Rithöfundasjtóð-
urinn því á þrem fyrstu árum
sínum veita til viðurkenningar
einni miljón, sexhundruð tutt-
ugu og fimm þúsund krónum,
sem fialla í hlut 13 höfunda.
Að svo mæltu er það ánsegja
mín, að mega fyrir hönd Rit-
höfundasjóðs Isdands tilkynna,
að hún hefur að þessu sinni
veitt eftirtöldium fjórum rithöf-
undum viðurkenningariaun, kr.
150 þúsund hverjum: Jóni
Bjömssyni, Ólafi Jóhanni Siig-
urðssyni, Þorsteini Jónssyni frá
Hamri og Tómasi Guðimundss-
syni. Um ileið og ég bið þó að
gamga hér fram og veita fénu
viðtöku, óska ég þess, að þeir
megi vei njóta, svo sem þedr
hafa vel til uinnið.
SÖLUSKA TTUR
Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir gjaldtímabil-
ið júlí og ágúst 1970, svo og nýálagðar hækkanir á
söluskatti eldri tímabila, hafi gjöld þessi ekki ver-
ið greidd 1 síðasta lagi 15. þ.m.
Dráttarvextir eru 1 %% fyrir hvern byrjaðan mán-
uð frá gjalddaga, sem var 15. sept. s.l. Eru þvi
lægstu vextir 3% og verða innheimtir frá og með
16. þ.m.
Sama dag hefst án frekari fyrirvara stöðvun at-
vinnurekstrar þeirra, sem eigi hafa þá skilað skatt-
inutn.
Reykjavík, 12 október 1970
TollstjQraskrifs-tofan,
Amarhvoli.
Húseignin
Skólabraut 13, Akranesi
er til sölu til niðurrifs.
Nánari upplýsingar veitir Hannes Jónsson,
verzl. stj., Matarbúð S.S., Akranesi.
Tilboð sendist skrifstofu vorri, Skúlagötu
20, Reykjavík, fyrir 31. október 1970.
Sláturfélag Suðurlands.
Eigum fyrirUggjandi
ódýrar Pipur — Spónaplötur — Báraðar
asbestplötur.
Ennfremur: Steypustyrktarjárn og -stál —
Þakjárn — Þakpappa — Saum o.fl.
VERZLANASAMBANDIÐ H.F.,
Skipholti 37. Sími 38560.
Vegamáiaskrifstofan
verður lokuð frá 9-12 þriðjudaginn 13. október
vegna útfarar Árna Pálssonar fyrrv. yfirverk-
fræðings
V egamálastjóri.
"Mji
tiM&m