Þjóðviljinn - 20.10.1970, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN — I>ríÖjndagur 20. olctóber 1970.
— Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Útgefandi: Útgáfufélag ÞjóSvIIjans.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Ivar H. fónsson (áb.), Magnús Kjartansson
Sigurður GuSmundsson
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson
Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Simi 17500
(5 linur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Næríngarskortur
J stjórnarblaðinu Vísi birtist fyrir nokkrum dög-
um bréf frá öryrkja sem komst m.a. svo að orði:
„JJann tók kipp, læknirinn, sem skoðaði mig ekki
alls fyrir löngu og sagði svo: „Þetta er nær-
ingarskortur, sem er að þér maður“. En sá, sem
þarf að lifa af örorkulífeyri plús nokkur hundruð
króna framlagi bæjarsjóðs á mánuði, verður ekki
hissa eins og læknirinn, þótt næringarskortur geri
vart við sig hérna innan um annars vel nært fólk.
Það fást nefnilega nokkuð færri máltíðir fyrir
5.000 krónur núna, heldur en fengust héma fyrir
síðustu áramót . . . 5.000 krónur hrökkva ekki ein-
staklingi, sem þarf að kaupa sinn mat tilbúinn, fyr-
ir fæði yfir mánuðinn, hvað þá fyrir lúxus eins og
vetrarfrakka til hlífðar, þegar maður norpar á
biðstöðvum strætó. Að maður tali nú ekki um
aukakostnað, eins og lyfjakaup eða læknisaðstoð,
sem leggjast rnjög oft á 75% öryrkja eins og mig
— svo sem eins og vegna næringarskorts o.fl.“
Jjessi ömurlega lýsing á því miður við um fjöl-
marga einstæðinga, aldrað fólk og öryrkja, í því
þjóðfélagi sem kennir sig við jöfnuð, neyzlu og
velferð. Hún er ekki aðeins prentuð upp hér til þess
að minna á ömurlega og óviðunandi meinsemd í
samfélagi okkar, heldur einnig til þess að mót-
mæla siðlausri forustugrein sem birtist í Alþýðu-
blaðinu fyrir nokkrum dögum. Þar var gumað al-
veg sérstaklega af ástandinu í tryggingarmálum
og komizt svo að orði að þær upphæðir sem varið
væri til trygginga væru 'til marks um það „að á
íslandi er félagslegt velferðarríki” og því bætt
við „að þau lögmál, sem öðrum fremur móta ís-
lenzk't þjóðfélag séu lögmál félagshyggjunnar,
þær hugsjónir jafnréttis, félagslegs og efnahags-
legs öryggis sem jafnaðarmenn voru frumkvöðlar
að hér á landi og hafa borið fraim til sigurs“.
^lþýðublaðið er þannig hjartanlega ánægt með
þær upphæðir sem aldrað fólk og öryrkjar fær
frá tryggingunum, það telur að íslenzkt þjóðfélag
sé næsta fullkomið á þessu sviði. Samt er það stað-
reynd að greiðslur til aldraðs fólks og öryrkja er
um þessar mundir ekki nema svo sem helmingur
þess sem tíðkast annarstaðar á Norðurlöndum,
enda þótt þjóðartekjur á mann séu mjög hlið-
stæðar hér og þar. Þetta ástand er mjög þungur á-
fellisdómur yfir leiðtogum Alþýðuflokksins sér-
staklega, því að þeir hafa farið með stjóm trygg-
ingamála um langt skeið og talið það verkefni sér-
svið sitt. Og það fer naumast milli mála eftir lof-
söng Alþýðublaðsins um hið fullkomna ástand
trygginganna, að leiðtogum Alþýðuflokksins er
ekki treystandi til að knýja fram óhjákvæmileg-
ar lagfæringar á því sviði. — m.
Reykjavíkurmótið í handknattleik:
Fram slapp með skrekkinn
Marði sigur yfir 2. deildarliði Ármanns 10:9
Maöur verður ekki oft vitni
að jafn miklum heppnissigri og
sigri Islandsmeistaranna Fram
yfir 2. deildarliði Ármanns í
Reykjavíkurmótinu í hand-
knattleik s. 1. sunnudagskvöld.
Þegar flautan gall til merkis
um Icikslok var staðan 10:9
fyrir Fram og það var gamla
kempan Guðjón Jónsson, sem
nú Iék sinn fyrsta leik með
Fram í haust, sem sigurmarkið
skoraði aðeins nokkrum sek-
úndum fyrir leikslok. Ef til vill
voru það ekki úrslitin sjálf
sem mesta athygli vöktu, held-
ur hitt, að Armanns-liðið hafði
frumkvæðið í leiknum allan
tímann og hafði forystu í mörk-
um allt þar til 5 mínútur voru
til leiksloka.
Hörður Kristinsson skoraði
fyrsta mark leiksins og þrátt
fyrir það að hann hafi otft leik-
ið betur en að þessu sinni, þá
er hann slíkur ógnvaldur, að
hvert lið verður að fóma ein-
um ákveðnum manni á hann í
vörninni og það verður til þess
að betur losnar um fyrir sam-
herja hans að sækja. Eftir að
Sigurður Einarsson hafði skor-
að tvö mörk í röð og þannig
náð forustinni fyrir Fram strax
á 3. mínútu, náðu Ármenning-
amir að jafna fljótlega og síðan
að komast yfir og forustunni
héldu þeir, eins og áður segir,
allt þar til 5 mínútur voru til
leiiksloka með örfáum undan-
tekningum að Fram tókst að
jafna. í leikhléi var staðan 5:4
Ármanni í vil
1 síðari hálfleiknum fóm tvö
vítaköst forgörðum eitt hjá
hvoru liði, og áfram hélzt tví-
sýnan um úrslitin. Þegar 5
mínútur vom tii leiksJoka náði
Axel Axelsson að jafna fyrir
Fram og með mjög stuttu milli-
bili skoraði Fram tvö mörk í
viðbót og náði þá í fyrsta sinn
tveggja marka forustu, en hún
stóð stutt, því næstu tvö mörk
skoruðu Ármenningamir og
staðan jöfn 9:9 og aðeins mín-
úta til leiksloka. Guðjón Jóns-
son hefur oft skorað mark á
mikilvægu augnabliki, bæði fyr-
ir félag sitt og landsliðið. Nú
sýndi hann þetta einu sinni
enn með því að skora sigur-
markið fyrir Fram þegar aðeins
30 sekúndur vom til leiksloka
og lauk því teiknum með sigri
Fram 10:9. Mikiil heppnissigur
það.
Tvær munu bafa verið aðal
orsakir fyrir erfiðleikum Fram.
1 fyrsta lagi vanmat á and-
stæðingnum og í öðru lagi það,
að Ármenningamir léku af
þeirri skynsemi að halda bolt-
anum eins lengi og mögulegt
var og skjóta ekki nerna I
dauðafæri. Þetta fór greinilega
í taugamar á Fram-liðinu og
þegar það loks fékk bóltann, þá
lá því svo mikið á að skora, að
það gaf sér ekki tíma til að
skapa sér almennilegt mark-
tækifæri, heldur reyndi skot í
tíma og ótíma. Ég held að ekki
sé ástæða til að geta neins
leikmanns Fram sérstakiega
nema Guðjóns Jónssonar fyrir
dýrmætt mark á réttu augna-
bli'ki.
Það fer ekfci á milli mlála að
Ármannsliðið er í mikilii fram-
för og til stórræða líklegt í 2.
deild í vetur. Tveir menn skara
framúr í liðinu en það eru þeir
Hörður Kristinsson og Björn
Jóhannsson og þegar Vilberg
Júlíusscm kemur inn í liðið,
aítur etftir þau meiðsli, eir hanr
hlaut nýlega, verður liðið
skeinuhætt hvaða liði sem er.
— S.dór.
Íslaiídsmótið í
handknattleik
hefst 25. nóv. nk.
Ákveðið hefur verið að 1.
deildarkeppni Islandsmótsins í
handknattleik hetfjist 25. nóv-
ember nk. Raöað hefur verið
niður í fyrri umferð keppn-
innar og leikdagar ákveðnir
og er niðurröðunin sem hér
segir:
25/11 1970.
Fram — Valur
Haukar — I.R.
29/11 1970.
F.H. — Víkingur
Valur — Haukar
16/12 1970.
Fram — F.H.
I.R. — Víkingur
10/1 1971.
Valur — F.H.
Fram — I.R.
13/1 1971.
Haukar — Víktngur
Valur — I.R.
17/1 1971.
Fram — Víkingur
Haukar — F.H.
24/1 1971.
Valur — Víkingur
Fram — Haukar
Bikarkeppnin: Breiðablik — Ármann 4-0
Breiðablik hafði yfirburði
Er nú kominn í 3ju umferð mætir næst KR
Það lék aldrci neinn vafi á,
hvort liðið, Breiðablik eða Ar-
mann, myndi sigra í þessum
leik, heldur var spuminginhve
stór slgur Breiðabliks yrði. I
fyrri hálfleik meðan Breiðablik
lék xmdan allsterkum vindi er
varla hægt að segja að Ár-
menningar hafi komizt fram
fyrir miðjan völlinn, og mest-
allur Ieikurinn fór fram inni í
vítateig Armanns. Þrátt fyrir
það tókst Brciðabliksmönnum
ekki að skora nema tvö mörk í
fyrri hálflciknum og ástæðan
fyrir því var sú, að þeir sóttu
of stíft, í stað þess að draga
Ármenningana út úr vítateign-
um og dreifa sókninni.
Rúmlega 20 mínútur liðu þar
til Breiðabliksmönnum tókstað
skora fyrsta maririð, en það
gerði Heiðar Breáðfjörð upp úr
þvögu er myndaðist fyrirfram-
an Ánmamnsmaririð. Það liðu
svo eklki nema 8 mínútur í við-
bót, þar till Guðmundur Þórðar-
son skoraði annað markið með
glæsilegu skoti fyrir utan víta-
teig og hafnaði boltinn í mark-
horninu, allsóverjandi fyrir
marfcvörð Ármanns. Menn voru
að gera því stkóna, að þessi 2
mörk dygðu Breiðábliki sfcammt
þegar Ármenningar hefðu vind-
in-n með sér í síðari hálfleikn-
um, en það fór á aðra leið. Rétt
fyrir leikhlé lenti miðvörður
Ármanns, Kristinn Petersen, í
orðaskaki við dómarann ogvar
Kristni vísað atf leikveflli fyrir
vikið. Þar með má segja að
síðustu vonir Árm-anns til að
vinna upp 2ja marka fórskot
væru úr sögunni, hvf að senni-
lega hefði það orðið þeim nógu
erfitt 11, hvað þá þegar þeir
voru aðeins 10 etftir á vellin-
um
Enda kom það strax í ljós í
síðari hálfleiknum að sófcn
Breiðaibiliks var sízt minni gegn
rokinu. Á 25. mínútu var Guð-
mundur Þórðarson kominn einn
innfyrir Ármannsvömina, en
var brugðið hariralega og víta-
spyra réttilega dæmd og úr
henni skoraði Magnús Stein-
þórsson 3ja markið. Guðmundur
Þórðarson bætti svo fjórða
markinu við á 35. mínútu etftir
nokkuð grótf mistök markvarðar
Ármanns.
Guðmundur Þórðarson ber
höfuð og herðar yfir aðra leik-
menn Bredðabliks, og hún er
fyrst og fremst honum að þakka
vefligengni liðsins í sumar.
Enda þótt Ármenningar settu
einn mann í það að elta Guð-
mund, var það tii ednskis. Jón
Hermannsson . fékk þetta hlut-
verk í Ármannsliðinu en Guð-
mundur lék sér að honum hvað
etftir annað. svo að þetta varð
Áitmenningunum nánast til
einskis. Kristinn Petersen, sem
vísað var atf leikvelli, enilang-
sterkasti vamanmaður Ármanns
og etftir að hans naut ekkileng-
ur við var vamarlejfcijr Ár-
manns í mdlum.
Etómari var Ragnar Magnús-
son og dæmidi ledkmn ágætlega,
en mér fannsit hann gera stóra
sikyssu, þegar hann visaði
Kristni útaf. Það er svo alvar-
legur atburður að vísa manni
atf leikvelli, að slfkt á ekki að
gena fyrir orðaskak eitt samian,
Mér finnst óatfsakanlegt að vísa
manni af ledkvelli fyrir orð en
ekfci athötfn. — S.dór.
Valur sigraði Þrótt 17:8
Auðveldur sigur Vals
Þróttur megnaði aldrei að
veita Vals-Iiðinu neina verulega
mótspymu í Reykjavíkurmótinu
í handknattleik s. I. sunnudags-
kvöld og sigur Vals var sízt of
stór. Það var aðcins í byrjun
leiksins að Þróttur hélt í við
Val, en smám saman jók Vals-
liðið forskotið unz lokastaðan
varð 17:8.
Valur komst í 3:0 og voru
þeir Jón Karisson, Bergur
Guðnason, sem að þessu sinni
léku 'sinn 199. leik með meist-
araflokki Vals og Ágúst ög-
mundsson þar að verid, en
Þróttaramir skomðu því næst
tvö mörk í röð og stuttu síðar
var staðan 4:3 Val i hag. Uppúr
því fór bilið að breikka. 1
leikhléi var staðan orðin 8:3
fyrir Val.
Og enn jókst bilið í síðari
hálfleiknum, unz lokastaðan
varð 17:8 og hefði sigur Vals
allt eins getað orðið stærri. Það
sem mest bar á milli hessara
liða var úthaldið. Vals-liðið lék
af sama hraða allan leikinn.
en greinilegt var að Þréttar-
liðið var búið með sitt úthald
fyrir miðjan síðari hállfleikinn.
Þeir Gunnsteinn Skúlas'on.
Bergur Guðnason og Ólafur
Jónsson skoruðu megnið af
mörkum Vals og voru lam|
beztu menn þess, en Bjan
Jónsson lék efcki með að þess
sinni og vantar þá mdkið f liði
þegar hann vantar. Elkki «
hægt að dæma Vals-liðið a
neinu marid eftir þessum lei
né leiknum gegn Ármanni uj
síðustu helgi, en greinilegt <
þó, að liðið er mun betur undii
búið nú en það var í fyrrahaui
og rná sennilega búast v:
miklu af því í vetuí.
Þróttar-liðið er eins og áðx
hefur verið sagt frá, gerbrey
frá síðasta keppnistímabili c
er hvergi nærri fullmótað em
Halldór Bragason er í sérflofcl
í liöinu og án hans væri þs
efcfci upp á marga fiska. E
ungu mennirnir, sem inn i lið:
hafa komið í haust tofa góð
— S.dó
Ólafur Jónsson var scm fyrr
bezti maður Vals-Iiðsins í leikn-
um gcgn Þrótti, en Valur vann
leikinn 17:8
Kaupum
léreftsfuskur
Prentsmiðja
Þjóðviljans