Þjóðviljinn - 21.10.1970, Blaðsíða 2
2 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Miðvifcudagur 21. október 1970.
agt til að tilboðum innlendra
aðiia 10 til 15% hærri sé tekið
— fremur en tilboðum erlendra aðila. Albert guggnaði enn í
borgarstjórn — Hvað segir Björgvin um Björgvin og Efta?
□ Sigurjón Pétursson borg-
arráðsmaður lagði til á síð-
asta fundi borgarstjórnar, að
tilboðum innlendra aðila í
verk yrði tekið enda þótt
þau væru 10 -15% hærri en
erlend tilboð í samskonar
verk, en áður hafði borgar-
stjóm miðað við að innlendu
tilboðin mættu vera 5-10%
hærri en þau erlendu. — Al-
oert Guðmundsson hafði lýst
fylgi við að miða við 10 -
15% í ræðu er hann hélt áð-
ur en Sigurjón flutti sína
tillögu — en hetjan Albert
guggnaði þegar á hólminn
kom og þorði ekki að styðja
tillögu Sigurjóns.
Þessi mál komu til umræðu
á fundi borgarstj órnarinnar í
framihaldi af tillögu Björgvins
Guðmundssonar þar sem fjailað
var um yfirbyggingar á nýjum
straetisvögnum. Töldu borgar-
fulltrúar — aðrir en Björgvin
— tillöguna meiningarleysu og
lagði borgarfulltrúi íhaldsins,
Albert Guðmundsson til að til-
lögu Björgvins yrði vísað frá
með ítrekun á fyrri ályktun
borgarstjórnar um þetta eifni, þ.
e. að innlendum tilboðum yrði
tekið þö að þau væru allt að
5—10% hærri en erlend tilboð
samskonar. Er Albert mælti
fýrir tillögunni lýsti hann með-
al annars stuðningi sínum við
það að miðað yrði við 10—15%
hærri innlend tilboð en erlend.
Er Albert hafði flutt ræðu
sína sem fól í sér nefnda yfir-
lýsingu taldi Sigurjón Pétursson
þess nokkra von að borgarfull-
trúar væru að meirihluta fylgj-
andi 10—15% hærri innlendum
tilboðum. Flutti hann því til-
lögu sem fól það i sér — en
Albert þorði ekfci að samþyldcja
hana og var henni að lokum
vísað frá borgarstjóm til stjórn-
ar Innkaupastofnunarinnar með
atkvæðum íhaldsins alls — þar
á meðal Alberts — gegn at-
kvæðum fulltrúa minniihluta-
flokkanna í borgarstjórn.
Björgvin og EFTA
Björgvin Guðmundsson borg-
arfulltrúi Alþýðuflokksins flutti
sem fyrr segir þá tillögu sem
kom umræðunum aÆ stað um
þetta mál. Meðal efnisatriða
tillögu hans var að taka mætti
verktilboðum innlendra enda
þótt þau væru 10—15% hærri
en verktilboð erlendra aðila.
Þetta atriði tók svo Sigurjón
upp í sína tillögu. Það væri
hins vegar fróðlegt að fá um-
sögn Björgvins Guðmundssonar
starfsmanns í Viðskiptamála-
ráðuneytinu um það hvemig til-
laga Björgvins Guðmundssonar
borgarfulltrúa samrýmist regl-
um EFTA-sáttmálans, þar sem
m. a. er tekið fram að ekki
megi mismuna fyrirtækjum að-
ildarþjóðanna við tilboð í hvers
konar framkvæmdir.
A ðstoðarlæknisstaða
Staða aðstoðarlæknis við endurhæfingardeild
Landsspítalans er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt samningi Læknafélags Reykja-
víkur og stjómarnefndar ríkisspítalanna.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, námsferil
og fyrri störf sendist stjómamefnd ríkisspítalanna,
Klapparstíg 26, fyrir 20. nóvember 1970.
Reykjavík, 20. október 1970.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
lllíii!liliiHiilllllll!llli!llil!il!llí!lill!lll!lllllllllllli!i!llHHlilllllll!llllllllHlil!illllili!ll!l!!liillliij!iS!i!!ií!!!'i}líl!Síl
Hjartarannsóknartæki
sem gjöf á barnadeild
Leikfangahappdrætti til fjáröflunar
Thorvaldsensfélagið efnir nú
til leikfangáhappdrættis eins og
það hefur gert nokkrum sinn-
um með góðum árangri Verða
í happdrættinu að þessu sinni
100 ávenjufailleg leákiföng og
miðánn seidur á 20 krónur.
Efcki eru tök á að sýna aíia
munina á sama stað eins og
stundum hefuir verið gert áður,
en nokkrum verður stillt út í
Bazar Thorvaldsensfélaigsins.
Austurstræti 4, og eitthvað
verður til sýnis í ’ ánddyrf kvifc-'
myndahúsanna eins og áður
hefur verið.
Thorvaildsensfélaigið er eitt
elzta starfandi fólag í bænum,
það verður 95 ára 19. nóvem-
ber næstkomandi, og hefur all-
an aldur sinn starfað að líknaæ-
móilum. 1 tilefni af afmælinu
hefur stjóm félagsdns hug á að
gefa bamadeildinni á Landa-
kotsspítala myndarlega gjöf, og
hefur verið valið í samráði við
forstöðumenn sjúkrahússins
tæki ta hjartarannsókna, seim
mikilvægt er talið að sé þar.
Það er í þessa merku aflmiæl-
isgjöf, sem komiið getur fjölda
bama og fuhorðinna að gaigni,
sem verja á ágóðanuim af leik-
fangahappdrættinu, og öðrum
fjármunum sem. fé'aginu kamn
að áskotnast á næstunni, og
heitir það á Reykvíkinga og
aðra seim stutt hafa viðleitni fé-
lagsins fyrr og sáðar að vera
með í þessari gjöf, sem mikil
þörf er fyrir.
IMBDI
TEPMHOSHE
HEFUR TEPPIN SEM
HENTA YÐUR
u
TEPPAHUSIÐ
*
SUÐURLANDS-
BRAUT 10
*
SÍMl 83570
*
ÍHliijii!HilililiiiÍHÍiSfiiiiliSSi?iíifHiHniiiii!ii!!iii?liHSiiiiiiiiiiiiiii!iiliHiiiiniiitiinliiiinjíinT!ifii|íi!ii!?ii!HiflIiiT
Orð
og athafnir
Ánægjulegt er að fylgjasit
með því hve áhugi á sam-
stöðu vinstri manna fer nú
vaxandj meðal almemnings;
æ fleiri vdlja láita vinsitrisinn-
aða stefnu leysa af hólmi þá
hægristjóm sem nu hefur
riðið husum íslenzku þjóðar-
innar í meira en áratug.
Þetta viðhorf er nú þegar
orðið að pólifcísku afli sem
forustumenn komast ekki hjá
að taka tillit tii. Og það er
ákaflega fróðlegt að sjá
hivemig „æfðir stjómmála-
menn“ snúast við þessum
vanda
Forustumenn frjálslyndra
og vinsifcrimanna eiga sem
kunnugt er upphefð sína und-
ir stuðningi stjómarflokk-
anna. Hannibal Valdimarssoo
og Bjöm Jónsson voru kosm-
ir forseti og varaforsetj ASÍ
á síðasta Alþýðusambands-
þingi samkvæmt beinum fyr-
irmælum leiðtoga Sjálfstæð-
flokksins og Alþýðuflokksins.
Þeir hafa siðan ástundað
samvinnu við ríkisstjómina,
opinbera og leynilega, með
þeim afleiðingum að í átök-
unum miklu í vor þótti verk-
lýðsfélögunum skynsamlegasit
að halda stjórn ASÍ sem mest
utan við. Þeir Bjöm og
Hannibai segjast nú vera
miklir hvatamenn vinstrisam-
vinnu — en þeir balda áfram
íhaldssamvinnu sinni innan
stjómar Alþýðusambandis ís-
lands.
Ekkj þarf að rifja það upp
hver hefur varið ferill for-
ustumanna Alþýðuflokksins
umdanfarinn áratug. Þeir hafa
ekki aðeins verið í varanlegri
stjómarsamvinnu með íhald-
inu, heldur stutt það á öll-
um sviðum þjóðlífsins. Al-
þýðuflokksforusfcan átti þess
kost að slita stjórniarsam-
vmnunnj j haust og fá nýjar
kosningar, en hún hafnaði
þeim kosfcum og knúði íhald-
ið til samstarfs út kjörtíma-
bilið. Leiðtogar Alþýðuflokks-
ins segja mú að þá greini
ekkj á við íhaldið um nein
þau úrlausnarefni sem fram-
undan bíða. Engu að síður
segir Gylfi Þ. Gíslason að nú
vilji hamn endilega beita sér
fyrir vinstrisamvinnu.
Á fyrri hluta viðreisnar-
tímabilsins tók Framsóknar-
flokkurinm upp mjög eindreg-
inn vinstrisinnaðan áróður.
Leiðtogamir bagnýttu sér
sitefnu Alþýðubandalagsins
við tijlögugerð á flestum svið-
um þjóðlífsins, og var þedm
það sannarlega ekkj of gott.
Margix héldu að þessi tví-
átta flokkur væri nú loks bú-
imn að taka upp eindregna
vinstrisinnaða stefnu. En
þessi viðhorf hafa verið að
breytast mjög ört að undan-
fömu, og leiðtogar Framsókn-
arflokksins hafa greinilega
stefnt að endurnýjaðri' í-
haldssamvinnu. Hafa þau við-
horf kornið mjög skýrt fram
í átökum um kjaramál, um
verðlagsmál og ekki sdzt í
sveitarstjómum þar sem
flokksfomstan mæltj svo fyr-
ir að tekin skyldi upp sam-
vinna við íhaldið hvar sem
þess væri kostur. Nú síðast
hafa Framsóknarmenn sundr-
að vinstra samstairfj á ísa-
firði. Ritari Sambands ungra
Framsóknarmanna hefur lýst
þessu ástandd með svofelldum
orðum: „Ég get þvi ekki ann-
að séð en að barátta mín og
annarra róttækra manna
innan flokksdns sé gjörsam-
lega töpuð. íbald er og verð-
irr allfcaí íhald, jafnvel þótt
það klæðist vinstri skirúða,
þegar vel viðrar“. Samj segj-
ast Ólafur Jóhanneseon og fé-
lagar bans vera brennandj af
áhuga á því að efla vinstri
samvinnu.
Þetta er ekki rifjað upp tíl
þess að dæma þá menn sem
þannig bafa hegðað sér að
undianfömu óalandd og óferj-
andd, Allir menn ejga leið-
réttingu verka sinna, einnig
þessdr stjómmálamenn. En ef
orðum og athöfnum ber ekki
saman, eru það athafnimar
sem skena úr. Og er ekkj ó-
viðfeHdið að syngja kvöld-
lokkur um ást á vinstrisam-
vinnu á meðan menn hafa
ekkj enn losáð sdg úr faðm-
lögunum við íhaldsmaddöm-
una? — Austri.
Ef þú lítur í alheimsblöð
... er CAMEL
ávallt í
fremstu röð