Þjóðviljinn - 06.11.1970, Blaðsíða 10
JQ SlÐA — ÞJÓÐVTLJINN — Föstudagur 6. nóveimlber 1970.
Harper Lee:
Að granda
söngfugli
10
— Heyrðu mig, veiztu hvað
málamiðlun er, tel|>a mín?
— Að fara í kringum lögin.
— Ekki nákvæmlega það; við
skulum kalla það samkomulag
sem byggist á gagnkvæmri eEtir-
gjöf. 1 þessu tilviki eins og hér
segir: ef þú fellst á að halda
áfram að ganga i skóla, getum
við tvö svo sem vel haldið áfram
að lesa saman á kvöldin. Er það
afráðið?
— Já, pabbi!
— Ágaett... og þetta sinn get-
trn við ef til vill treyst hvort
óðru þótt við sleppum hinum
vanalegu formsatriðum, sagði
Atticus, þegar hann sá, að
ég var farin að safna saman
munnvatni.
Þegar ég tók nethengið frá
dyrun-um sagði Atticus:
— Heyrðu annars, Skjáta —
það er víst bezt að þú minnist
ekkert á þennan samning okkar
í skólanum.
— Af hverju ek-ki?
— Ég er hræddur um að það
sem við gerum, finni ekki alltaf
HÁRGREIÐSLAN
Hárgreiðslu. og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugav. 188 HI. hæð (Iyfta)
Sími 24-6-16.
Perma
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðastræti 21. SÍMI 33-9-68
náð fyrir augum hinna lærðu
yfirvalda.
Jemmi og ég vorum alvön
formiiöstu lögfræðiinálinu hans
föður okkar, og við máttum
hvenær sem með þurfti grípa
fram I fyrir honum til að fá
skýringu á því sem við skildum
ekki til fulls.
— Hvemig? sagði ég.
— Að vísu hef ég aldrei gengið
í skóla, sagði hann, — en ég
hef hugboð um að ef þú segir
ungfrú Carólínu að við lesum
saman hérna heima, þá verði
henni í nöp við mig og ég kæri
mig að minnsta kosti ek-kert um
það.
Attieus va-kti hrifningu okkar
þetta kvöld með því að lesa
hvern dálkinn af öðrum um
mann sem af óþekktum ástæðum
hafði komið sér fyrir efst í ilagg-
stöng, og fyrir Jemma var það
næg ástæða til þess að klifra
upp í holuna í trénu næsta
laugardag og dveljast þar allan
daginn. Hann sat þar uppi frá
mo-rgunve-rði til sólarlags og
hefði trúlega dvalizt þar alla
nóttina ef Atticus hefði ekki
fengið þá ágætu hugmynd að
loka fyrir bi-rgðaflutninga til
hans. Sjálf hafði ég verið önnum
kafin allan daginn við að kiifra
upp og niður tréð, sendast fyrir
hann, saskja handa honum, bæk-
ur, mat og vatn, t>g var einmitt
að drösla til hans teppum svo
að hann gæti verið þar nætur-
sakir, þegar Attieus þreilf í mig
og sagði að ég skyldi einfaldilega
hætta að sinna Jemma pg þá
kæmi hann áreiðanlega bráðum
niður. Það reynd-ist rétt hjá Atti-
Síðari skóladagar mínir virtust
ekld fremur undir heillastjömu
en hinn fyrsti. Hinar virðingar-
verðu en gersamlega árangurs-
lausu tilraunir sem Alabamaríki
með haugum af pappír og hrúg-
um af blýöntum gerði til að
kenna mér „hóp-aflfrasði‘‘ voru
algerlega til einskis. Desimal-
UNGUNGAR ÓSKAST
til sendiferða hálfan eða allan daginn.
Þurfa að hafa hjól.
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi BRETTI — HURÐIR — VÉLALOK
og GEYMSLULOK á Volkswagen í allflestum litum. —
Skiptu-m á einum degi með da-gsfyrirvaira fyrir ákveðið
verð. — REYNIÐ VIÐSKIPTIN.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar,
Skipholti 25 — Sími 19099 og 20988.
kerfi Devveys breiddist smám
saman út um allan skólann, svo
að mér gafst ekki tætkifæri til
að bera það saman við önnur
kennskxform. Ég vissi það eitt
hvemig því fólki sem ég þekkti
hafði vegnað: Atticus og föður-
bróðir minn, sem höfðu aldrei
stigið fæti í nokkurn skóla, vissu
allt milli himins og jarðar —
það sem annar vissi ekki, var
nokkum veginn víst að hinn
hefði einhverja hu-gmynd um.
Auk þess var mér kunnugt um
að faðir minn hafði um ái'abil
setið á löggjafarþingi ríkisins og
hafði ævinlega verið endurkjör-
inn mótatkvæðalaust, enda þótt
hann væri gersamlega fáfx'óður
um þær nýtízku uppfinningar
sem kennarar mínir töldu óhjá-
kvæmileg skilyrði þess að hægt
væri að verða góður og gegn
þjóðfélagsþorgari. Jem sem hafði
reyndar kynnzt ýmsum kennslu-
aðferðum, virtist að vísu bjarga
sér ágætlega, bæði einn saman
og með öðrum, en Jemmi var
auðvitað óheppilegt dæmi: Það
var ekki til það kennsluform í
þessum heimi sem fólk hafði
fundið upp, sem hefði getað
komið í veg fyrir það að hann
yrði bókaormur. Hvað sjálfa
mig snerti vissi ég ekki annað
en það sem ég ra-kst á af til-
viljun í Time og það sem ég náði
að glugga í af bæjartilkynning-
um heima, en meðan ég pældi
silalega gegnum staglið í skólan-
um í Maycomb hlaut ég öhjá-
kvæmilega að fá þá tilfinningu
að ég færi á mis við eitthvað.
Ég vissi ekki hvað það var, en
mér var vel ljóst að það gat
naumast verið tilgangur rílíisins
að neyða mig til að umbera tólf
ára þrotlaus leiðindi.
Fyrsta árið leið; ég fékk alltaf
frí úr skólanum hálftíma á und-
an Jemma, sem átti að vera til
klukkan þrjú, og smám saman
vandist ég því að hlaupa ein
framhjá Radleyhúsinu án þess að
stanza fyrr en ég var komin
heilu og höldnu upp á veröndina
heima. En einn góðan veðurdag
kom ég al-lt í einu auiga á dálítið
útundan mér og það sem ég sá
varð til þess að ég dró djúpt
and-ann, stanzaði, leit í kringum
mig og gekk nokkur s-kref til
baka.
Alveg úti við gangstéttina
stóðu tvær sígrænar eikur, en
þær vora inni á Radleylóðinni
og hnúskóttar ræturnar náðu út
undir gangstéttina og voru farn-
ar að lyfta upp flís-unum. Eitt-
hvað halfði vakið athygli mína
á þessum trjám: í holu eftir
kvist, svo sem í aiugnhæð minni,
var dálítið silfurbréf sem blikaði
í síðdegissóli-nni. Ég tyllti mér á
tá, leit í kringum mig enn einu
sinni, stakk hendinni inn í hol-
una og fann tvö stykki af tyggi-
gúmmí.
Ég ætlaði s-amstundis að stinga
þeim upp i mig, en á síðustu
stundu mu-ndi ég hvar ég var
stödd. Þá hljóp ég heim og úti
á veröndinni athugaði ég feng
minn nánar. Þetta tyggigúmmí
sýndist svo sannarlega í full-
komnu lagi. Ég þefaði af því
og lyktin var fyrirtak. Svo
sleikti ég annað stykkið og beið
•stundarkom. Og fyrst ég dó
elkki, stak-k ég báðum stykkjun-
um upp í mig. Það va-r Wrlg-
leys!
Þeigar Jemmi kom heim og
spurði mig hvar ég hefði fengið
þennan stóra klump, sagöist ég
hafa fundið hann.
— Þú átt ekki að borða allt
sem þú finnur, Skjáta.
— Já, en það lá ekki á göt-
unni; ég flann það í tré.
Jemmi rumdi.
— Það er alveg satt, sagði ég.
— Þessi tvö stykki lágu í trénu
þairna — sem maður kemur
fyrst að á leiðinni úr skólanum.
— Viltu skyrpa þessu út úr
þér undir eins!
Ég hlýddi. Það var næstum
orðið bragðlaust hvort eð var.
— Ég er búin að tyggja það í
allan dag og esr ekki dauð enn
— mér hefur eikki einu sinni
oxöið flökurt.
Jemmi stappaði reiðilega niður
fæti:
— Skilui’ðu það ekld, að þú
mátt ekki einu sinni snerta þessi
tré. Þú getur dáið af þvi!
— Þú hefur sjálfur snei't hús-
ið einu sinni!
— Það var allt annað mál. Nú
ferðu inn og skolar munninn —
undir eins, heyx-irðu það?
— Nei, mér dettur það ekki í
hug; þá hverfur bragðið alveg.
— Ef þú gerir það ekki skal
ég segja Calpurníu hvað þú
gerðir.
Bg kærði mig e-kki um að
komast í kast við Calpurníu og
gerði eins og Jemmi sagði. Ein-
hverra hluta vegna hafði fyrsta
skólaárið valdið ýmiss konar
breytingum á sambandinu milli
okkar: hin gamla hax-ðstjórn Cal-
purníu, óréttlæti hennar og af-
skiptasemi af öllu sem ég tók
mér fyrir hendur hafði breytzt
í tiltölulega meinlaust nöldu-r,
sem átti að túlka almenna van-
bók-nun. Sjálf gerði ég það sem
ég gat til að forðast að angra
hana — einstöbu sinnum að
minnsta kosti.
Sumarið var á næsta leiti og
við Jemmi biðum þolinmóð eftir
komu þess. Sumarið var bezti
tími okkar: þegar það kom sváf-
um við í beddum á aftari ver-
öndinni og við þöfðum meira
segja fengið að sofa uppi í byrg-
inu í trjánum: sumarið táknaði
allt góðgætið sem var á boð-
stólum, það var þúsund litir í
sólbökuðu umhverfi og umfram
allt var sumarið Ðill.
Síðasta skóladaginn gáfu skóla-
yfirvöldin ok-kur snemma frí, og
við Jemmi urðum samferða
heim.
— Ég býst við að Dill komi
strax á morgun, sagði ég.
— Sennilega ekki fyrr en hinn
da-ginn, sagði Jemmi. — Þeim
er sleppt degi seinna í Missds-
sippi.
Þegar við komum að sígrænu
eikunum við grindverkið hjá
Radley lyfti ég fingrinum til að
benda í hundraðasta skiptið á
hol-una þar sem ég hafði fundið
tyggigúmmíið, því að mér haffði
elcki enn tekizt að sannfæra
Jemma um að ég hefði fundið
það þar — og þá uppgötvaði ég
að ég stóð og var að benda á
nýtt silfurbréf.
— Ég er búinn að sjá það,
Skjáta.
Jemmi gaut augu-num í allar
áttir, rétti svo út handlegginn
og sótti ofur varlega lítinn, silf-
urgljáandi pakka inn í holuna.
Svo þutum við heim og á ver-
öndi-nni sátum við og dáðumst
af litlurn kassa sem smábútar úr
silfurbréfi vora límdir á. Þetta
var kassi eins og þeir sem gift-
ingarhringar eru keyptir í; hann
var fóðraður með rauðu fla-ueli
og á honum var agnarlítill lás.
Jemmi opnaði hann og þarna
lágu tveir skínandi og s-pegil-
gljáandi sentpendngar, hvor ofan
á öðram. Jemmi athugaði pen-
ingan-a nánar.
— Það eru þeir með indíána-
höfðunum, sagði hann. — 1906 og
... Skjáta, hinn er frá 1900. Þeir
eru svoma gamlir.
— 1900, bergmálaði ég. — Já,
en...
— Þegiðu nú andai'tak, ég er
að hugsa
— Heldurðu kannski að þetta
sé felustaður einhvers?
— Nei. Það ganga ekki aðrir
þarna ifiramhjá en við — nema
það væri þá einhver fullorðinn
— Fullorðið fólk á ekki felu-
staði. Heldu-rðu að við megum
eiga þá, Jemmi?
— Það veit ég svei mér ekki,
Skjáta. En ég held það næstum
því, vegna þess að við vitum
ekkert hverjum við eigum að
skila þeim. Ég veit það fyrir
víst að það gengur aldrei neinn
þarna framhjá; Cecil tekur alltaf
á sig stóran krók eftir bakgöt-
unni þegar hann fer heim.
ORANGE SQfJASH
má lilanda 7 siiiitiiin með vatni
GLUGGATJALDASTANGIR
FORNVERZLUN
og
GARDÍNUBRAUTIR
Laugavegi 133 — Sími 20745.
WILLIS JEEP
Til sölu er Willis jeppi árgerð 1C*H2, með
Egils húsi. Góður bíll. Hagstæ'ít verð ef
samið er strax. Upplýsingar í síma 25283
eftir kl. 19,00.
--------------------------------------
FYRIR SKÓLAFÓLKIÐ:
Buxur, skyrtur. peysur, úlpur nærföt sokkar og
márgt fleira. — Fjölbreytt og fallegt úrval.
PÓSTSENDUM.
*
O.L. — Laugavegi 71 — sími 20141.
Höfum ávalit fyrirliggjandi aliar stærðir skraut-
hringja á hjólbarða, bæði alhvíta og hvfta íft'é'ð
svartri rönd.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
GÚMMfVINNUSTOFAN H.F.
Skipholti 35 — Reykjavík — Sími 30683
©AÚGLVSINGASTOFAN
Yokohama snjóhjólbarðar
Með eða án nagla
Fljót og góð þjónusta
HJÓLBARÐAVIÐGERÐIN
GARÐAHREPPI
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32.
MÓTORSTILLINGAR
HJÓLASTILLINGAR LJÚSASTILLINGAR Simi;
Látiö stilla í tíma. / ■ iÉ '--®j l -1 n n
Fljót /og örúgg þjónusta. 1 rl U U