Þjóðviljinn - 29.11.1970, Síða 2

Þjóðviljinn - 29.11.1970, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÖÐVXLJTNTT — 28. nóvemiber 1970. „Val og venjur í mat og drykk“ Mmáhék um framreiðslu og hótelþjónustu í ísL þýðingu „Val og venjur í mat og drykk“ nefnist nýútkomin bók eftir Conrad Tuorí yfirkennara við einn frægasta hótelskóla í Evrópu, École Koteliére í Lau- sanne í Sviss. Þetita er eins konar handbók um framleiðslu og hótelþjón- ustu og ætluð jafnt almenningi sem hótelstjórum og fram- reiðslufólki. Bókinn, sem er 180 síðoir að stærð, er skipt í tvo megin- kafla: 1) um vín og framredðslu og 2) um matreiðslu og mat- reiðsluhætti. í fyrri hluta bókarinnar eru mjög ýtarlegar upplýsingar um flestar tegundir þrúguvína, brendra drykkja og óáfengra drykkja, framleiðslu þeirra, geymslu, gæði, tegundir, hvar þau eru framleddd og hversu skal framreiða þau. Fylgja með skýringarfcort af helztu vín- ræktarhéruðum í Evrópu. 1 síðari hluta bókarinnar er lýsing á öllum helztu réttum, kjötmeti, fiskréttum, grænmeti, ís og ávaxtaréttum, sem góð hótel hafa að bjóða gestum sínum, ennfremur á notkun bragðbætandi kryddjurta. Þá er einnig kafli um hversu háttað skuli góðri hótelþjónustu og framreiðslu veitinga. Síðast í bókinni er orðasafn á frönsku, þýzku, ensku og íslenzku yfir tækniorð hótelsrekstursins, nöfn rétta og önnur atriðisorð sem snerta samskipti gesta og vedt- enda. Geir R. Andersen þýddi bók- ina „Val og venjur í mat og drykk“ á íslenzíku. Útgefandí er fsafoldarprentsmiðja h.f. í Saga 18. aldar var martröð á þessari þjóð. Að- eins með þvi að fá innsýn í lifnaðarhætti þjóð- arinnar á þeim tíma, er hægt að gera sér von- ir um að skilja rétt athafnir Fjalla-Eyvindar. — Með nokkurri vissu má telja, að Matthías Jochumsson hafi haft Fjalla-Eyvind í huga, þegar hann samdi leikrit sitt „Útilegumenn- ina“, sem fljótlega var nefnt „Skuggasveinn". Matthias, sem var skáld af Guðs náð, hreifst af frelsisþrá og óbilandi kjarki þessa ógæfu- sama manns, sem lengst allra fslendinga lifði , á köldum fjöllum og öræfum íslands. f bók- inni er samandregið flest það, sem skráð hefur verið um þennan þjóðkunna útilegumann. GUÐMUNDUR GUÐNr GUÐMUNDSSON: Saga Fjalla-Eyvindar Þau eru mörg íslenzku heimilin, sem gleðjast yfir útkomu hverrar nýrrar bókar Guðrúnar frá Lundi. Bækur hennar rifja upp minningar frá gömlum dögum og minna á lífið og starfið í heimahögum í sveit og við sjó. — Þessi nýja saga, UTAN FRÁ SJÓ, lýsir lífi og heimilis- háttum á heimili efnaðs bónda út við strönd- ina og tilhugalífi og ástum heimasætanna og ungs sonar leiguliðabóndans, sem býr á næsta bæ við stórbýlið. Þessi saga gerðist þá — og gerist enn. GUÐRÚN FRÁ LUNDI: Ulan frá sjó 0' s? 8- fB r s s s H (■fc n Tvaer asftarsogur: LAXTÁNA, eftir Dorothy Quentin. Þetta er fögur og spennandi ástar- saga, sem gerist á hinni unaðslegu Suðurhafseyju — Lantana. Þangað kemur leikkonan Linden, niðurbrotin á sál og'líkama. Ástúð og unaðs- legt umhverfi opna henni nýjan heim — og gera hana heilbrigða á ný. FKEISTIXIGlVí, eftir Lionel White. í sögunni vefur höfundurinn sam- an ást og umbrotum líðandi tíma. — Freistingin er viðburðarík saga. mo Mb m* Hinn 18. okt. 1915 réðst ungur íslendingur, Cæsar Mar, i siglingar á norskt skip, sem þá lá fyrir akkerum á ytri höfn Reykjavíkur. Hét skipið Aquila, mjög stórt þrímastrað seglskip (með 19 segl, þegar öll voru uppi). Þessi ungi maður var svo til mállaus á erlend mál og með öllu ókunnugur vinnubrögðum á hinu risastóra seglskipi. — Öll ár fyrri heimsstyrj- aldar sigldi hann. Leið hans lá um öll heims- ins höf, frá Suður-Ameríku norður í fsahaf. Tveim af fjórum skipum, sem hann var á, var sökkt, og svo til nakinn bjargaðist hann. — Frásögn hans er ljós og hreinskilin,. og af- bragðs skemmtileg. C/ESAR MAR: Ur djúpi ftímans ÚR DJÚPI TÍMANS Bókin fjallar fyrst og fremst um atvinnuhætti í Breiðafjarðareyjum. Lesandinn kynnist fjöl- breytilegu lífi eyjabóndans: Heyönnum, dún- og fuglatekju, sjómennsku o. fl. Ef til vill hefur landbúnaður og sjávarútvegur hvergi verið eins samtvinnaður. — Þar var margur bóndinn með haga hönd og báru breiðfirzkir bátar þess vitni. — Aðdáúnarvert er, hversu fólki vegnaði að ýmsu leyti vel í átökum við óblíða náttúru og kunni að hagnýta sér öll gæði lands og sjávar. BERGSVEINN SKÚLASON: ÁRATOG Höfundur bókarinnar segir m. a.: Bók þessi er ekki sniðin eftir neinni ann- arri ákveðinni bók eða fyrirmynd. Stutt frá sagt er efninu viðað að úr öllum áttum. Vil ég nefna nokkrar bækur, sem ég hef stuðzt við: Fyrst ber að nefna Islenzk-enska orðabók eftir Geir T. Zoega, sem margt var tekið úr; Tækniorðasafn Sig. Guðm.; Nýyrðasöfnun orðabókar Háskóla Is- lands; Islenzk læknisfræðiheiti Guð- mundar Hannessonar; Ensk orð og orðtök Sig. L. Pálssonar; Ensk verzl- unarbréf eftir Eirík og Þórarin Bene- dikz; Ensk-íslenzka orðabók Sig. Ö. Bogasonar. — Af erlendum bókmn má nefna: The Concise Oxford Dic- tionary; Webster’s New School & Office Dictionary; The Winston Dic- tionary for Home, School and Office o.fl. Framan við fjölda orða hafa verið sett tákn, til þess að tengja orðin viss- um greinum vísinda og tækni. Þessi bók er nauSsynleg öllum þeim, sem nám stunda og gagnleg á öllum skrifstofum. ARHGRÍMUR SIGURDSSON Islenzk-ensk orðabók RITSAFN E. H. KVARAN Allt ritsafnið, 6 bindi í vönduSu bandi. — Einar H. Kvaran var óumdeilanlega meSal mestu höf- unda þjóSarinnor. Þrjár nýjar bækur efftir ísl. höfunda: Vndir hauststjörnum, ljóð eftir Kristján Jóhannsson. • Gestir á úskastjörnu, skáldsaga, eftir Gústaf Óskarsson. Hér lýsir höfundurinn á skáldlegan hátt fyrirbæri, er fyrir hann bar í fiskiróðri. Telur hann sig hafa orð- ið vitni að heimsókn lífvera frá öðrum hnetti. Hvaðan komu þeir? • TÍBRÁ Skáldsaga eftir Kristínu M. J. Bjöm- son. — Þetta er þriðja skáldsaga Kristinar. Fyrri bækur hennar heita GRÉTA og VÍKINGADÆTUR. Vesftur-Skafftfellingar 1703—1966. Stutt æviágrip allra þeirra, sem fæddir eru í Vestur-Skaftafellssýslu eða hafa dvalizt þar. —• Einstætt heimildarrit. ÞaS er svo margt, eftir Grétar Fells, IV. bindi. Um fjörutíu ára skeið flutti hann fyrir- lestra í útvarp og víðar og naut mikilla vinsæida. Sjálfsævisaga Yoga. Þessi stórmerki heimsfræðari færði sönnur á gildi Yoga sem vísinda- legrar tækni til þess að öðlast guðdómlegan skilning — ekki aðeins í lífi, heldur einnig í dauðanum. fslenzkir samftíðarmenn III. Komið er 3. bindið af hinu ágæta verki: ÍSLENZKIR SAMTÍÐARMENN. Það er handhægt, þegar afla þarf vitneskju um einhvern góðan mann, að fletta upp í ritinu. — Þar eru æviágrip nærri sjö þúsund manna. Unglingabækur: Mary Poppins lokar dyrnnum — Þetta er 4. og siðasta bókin um Mary Poppins. Nancy. Um Nancy koma tvær bækur — Nancy og reimleikabrúin og Nancy og tókn snúnu kertanna. * • Frank oy Jni. Nú vita allir, að Frank og Jói eru hinir frægu Hardý-brœður, — Af þeirra frægðarverkum koma nú út tvær bækur. BOB MOBAN, 19. og 20. bókin eru komnar — og heita þær: Endurkoma Gula skugg- ans og Svarta höndin, og eru báðar ákaflega spennandi. • K/.M oy örláti þjðfurinn. Kim, Kata, Eiríkur og Brilli eru alltaf jafn sniðug. Sirkus-Xonni, bráðskemmtileg unglingasaga — síðasta bókin sem Þorsteinn Jósefs- son þýddi. • TOMMl oy sonur Indíánahöfðinyjans. Sérlega falleg saga, skrifuð við hæfi hraustra drengja. Itellarnir á tunylinu. Þessi bók segir frá rannsóknum Bandaríkjamanna og Rússa. 1 sam- einingu telja þeir sig finna í undir djúpum tunglsins sönnun fyrlr því, að lif hafi verið á tunglinu fyrir mörgum milljónum ára. En rann- sóknarstarf þeirra er ekki tekið út með sitjandi sælunni. Moii iun. Þetta er .5. bókin af Mola litla og félaga hans, Jóa járnsmið. I þessari bók eru þeir staddir í sveitinni. Ný burnubók eftir Kára Tryggvason „Böm á ferð og flugi“ nefn- Ist nýútkomin bama- og ung- lingabók eftir Kára Tryggvason. 1 bók þessa, sem er 148 síður, er safnað nokkrum völdum fcöflium úr áðurútkomnum bamasögum hins vinsæia höf- undar og prýða bóíkma all- margar tei'kningar eftir þau Ragnhildi B. Ó'lafsdóttur, Hall- dór Pétursson, Þórdísi Tryggva- dóttur, Sigrúnu Gunnlaugsdótt- ur og Odd Bjömsson. Kápu- mynd er eftir Baltazar. Bókin er gefin út a£ ísafold- arprentsmiðju hf. Þriðja Ijóða- bók Þórarins frá Steintúm Undir felhellum heitir ný ljóðabók eítir Þórarin frá Steintúni. Geymir hún hefð- bundin Ijóð um náttúru og sögu, taefcilfærisljóð og orðsend- ingar, svo og lausavísur af ýmsu tilefni. Ein þeirra er svona: Undir Pegasus ekki þarf nú að mylja og óþarft að gera málfari rimuð skil. Álitamál er hvort skáldin eiga að skilja sín sköpunarverk nema svona hérumbil. Þórarinn frá Steintúni hefur áður gefið út tvær Ijóðfiþigfcur. „Útfall“ (1964) og „Litir 'í laufi“ (1966). „Undir felheliium“ er 58 bls., útgefandi er höfundur. 35 ára gömul bók um ástarlíf gefin úr í annarri úfgáfu „Þrennt er það, sem fyrst og fremst má slá föstu viðvíkjandi ástalífi manna: 1) Allir heil- brigðir menn, karlar og konur, geta orðið ástfangnir. 2) Þeir, sem ástfangnir hafa orðið, kannast við, að ekkert er til sælla og dýrðlegra en þctta, að vera ástfanginn og vera elskaður. 3) Slíkt sælulíf endist mönnum oft mjög stutt. Það er hörmulegt tap/' Þannig kemst Pétur Siguirðs- son ritstjóri Einingar að arði í fomnála bókar sinnar „Ástalíf“. Þennan formála s'krifaði höf- undur fyrir 32 árum, þogar bófcin kom fyrst út. Nú er hún komin út öðru sinni, óbreytt að mestu leyti, en með viðauka sem höfundur gerir þannig grein fyrir i fonmála 2. útgáfu: „Hér læt ég fylgja með nbkkur ástarljóð, sem ég ■ gaf konu minní sérprentuð, þegar hún varð sjötíu og fimm ára, en mátti ekki láta á ’þeim bera, því að á þetta leit hún sem bamaskap, en ég sendi þau ein- um vini mínum, 1 hæfileika- manni og álla vega vel gerðum embættismanni. í bréfi ti1 mín sagði hann: „Þetta á ekki að vera 1 telum“, og fleiri voru hans góðu orð. Upþörfaður af beim læt ég „bahnaskapinn" fljóta hér með, syo að betta samstacða efni kornist í eitt“. Bókin „Astalíf er 154 síður í hinni nýju útgáfu. Á kápu er mynd af höggmynd eftir Ás- mund Sveinsson. Höfundur gef- ur bókina sjálfúir út.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.