Þjóðviljinn - 03.01.1971, Side 10
Sunnudagur 3. janúar 1971 — 36. óngangur — 1. tölutoiaö.
Aðeins veggirnir standa uppi
afHótel Húsavík eftir bruna
Námskeið í stjórnun fyrír-
tækja hefst 18. janúar nk.
Stjórnunarfræðslan, (Kynning-
amámskeið um stjórnun fyrir-
tækja) — byrjar námskeiðahald
á vegum iðnaðarráðuneytisins 18.
janúar n.k. Markmið námskeiðs-
ins er að veita þeim, sem fást
við stjórnunarstörf og fyrir-
tækjarekstur haldgóða þekkingu,
sem komi að beinum noturn í
starfi þeirra og auðveldi ákvörð-
unartöku á ýmsum sviðum fyr-
irtækjarekstrar. I samræmi við
það fjallar hver námskeiðshluti
um ákveðið svið, en þcir eru
innbyrðis tengdir og mynda eina
lieild. Námskeiðið verður haldið
í húsakynnum Tækniskóla Is-
lands á mánudögum, miðviku-
dögum og föstudögum frá kl.
15,30 til 19,00.
Hinir einsitöku námskeiðsihlut-
ar veröa sem hér segir:
Stjómun og starfsmannamáL —
Höröur Sigurgestsson, rekstr-
arhagfirasðingur, hetflur umsjón
með þeim hluta. Þar verður
fjallað um eðli og hlutverk
stjórnunar, setningu markm.iöa,
stjórnun og sikipulagningu
fyrirtækja, 'hegðuin einstaik-
linga, hegðun hlópa í ákvörð-
unartöku, ýmis ný gireining-
ar- og hjálpartæiki o. fl.
Frumatriði rekstrarhagfræði, sem
Brynjólfur Sigurðsson, lekitor,
sér um. Þar verðuir m.a: fjall-
Framlhald á 7. síðu.
Fjórir hlutu styrk úr Rithöfundasjóðnum
Á myndinni eru taldir frá vinstri: Gunnar M. Magnúss, Jón Helgason, Jóhann Hjálmarsson og Sig-
fús Ðaðason. — (L.jósm. I»jóðv. A.K.).
• A gamlár.sdag fór fram út- ^
hlutun úr Rithöfundasjóði rík-
isútvarpsins og er það í -15. sinn,
sem styrkjum er úthlutað úr
sjóðnum til skálda og rithöfunda.
Vorn forseti Islands og mennta-
málaráðherra meðal gesta við
athöfnina.
• Stedngrímiur J. Þorsteinssón
formaður sjóðsstjórnar afhenti
styrkina og skýrði harm svo frá
i ræðu sinni, að í þaiu fjórtán
skipti, er úthluitað hefði verið
úr sjóðnum áður hefðu samitals
28 skáld og rithöfundar hlotið
styrki eða að meðalitali tveir á
ári. Að þessu sinni yrði úthlutað
styrkjum til fleiri manna en
nokkru sinni áður eða fjögurra,
þeirra Gunnars M. Magnúss,
Jóhanns Hjálmarssonar, Jóns
Heigasonar og Sigfúsar Daðason-
ar. Hlaut hver þeirra kr. 50 þús-
und í styrk og er það sama upp-
hæð og styrkþegar hlutu í fyrra.
Þakkaði Gunnar M Magnúss
fyrir hönd þeirra félaga þann
heiður sem þeim væri sýndur
með þessari styrkveitingu.
100 vestur-þýzkum vísað frá
Guineu vegna innrásarinnar
BONtN — KON’AKRY J/l —
Sekou Tourc Guineuforscti hefur
vísað úr landi 100 Vcstur-Þjóð-
verjum vegna þátttöku þeirra í
innrásmni í Guineu. Vestur-
Þjóðverjar hafa hafnað öllum
ásökunum Guineu-forseta, en
þeir halda fast við þær. Sagði
útvarpið í Konakry á föstudag
að Vestur-Þjóðverjar hefðu tek-
ið þátt í samsæri scm hafði
þann tilgang að myrða Sekou
Toure, forseta. Þá er sagt í vcst-
ur-þýzka utanrikisráðuneytinu að
tvcir Vestur-Þjóðverjar sitji nú
í fangelsi í Giiineu.
Það kom fram á blaðamanna-
fundi í Bonn að Sekou Toure
höfiur farið þess á leit við Gustav
Heinemann, fbrseta Vestur-
Þýzkalands,. að hann kalii vest-
mvjjýzka ambassadorinn í Kona-
kry heim, þar sem hann njóiti
ekki lengur trausts Toures.
Austur-Þjóðverjar hafa frá í
sept. s. L stjórnmálasamband við
Guineu. Segir austur-þýzka
fréttastofan ADN, að vestur-
þýzkir haifi aðstoðað við portú-
göllsku innriásina í Guineu á
tvennan hátt: I fyrsta lagi með
pólitískum þrýstinigi, gegnum
starfslið þróunarhj'álparinnar og
í öðru laigi með beinni hernaðar-
aðstoð í gegnum NATO. Þá er
haft eftir ADN, að vestur-þýzkir
borgarar í Konakry hafi gefið
portúgölskum hei'skipum ljós-
merki frá húsum sínum auk þess
sem vestur-þýzkir hernaðarséi
fræðingar hafi verið beinir þátt
takendur í innnásmni í nóv.
Fjölmennt var
við áramóta-
brennurnar
Það viðraði vel til þess að
brenna út gamla árið, enda
var mikið fjölmenni við
áramótabrennurnar í borg-
inni sem voru eitthvað
milli 35 og 40 talsins. Þessi
mynd var tekin af brenn-
unni er var á mótum
Kringlumýrarbrautar og
Laugavegs og sést Hótei
Esja í baksýn. — (Ljósm.
Þjóðv. A.K.).
Af Hótel Húsavík standa nú
aðeins uppi naktir veggimir eft-
ir bmna sem þar varð aðfara-
nótt gamlársdags og því sem
næst engu tókst að bjarga út
úr húsinu af innanstokksmunum,
að sögn lögreglunnar.
Eldurinn kom upp skömmu
eftir miðnætti og breiddist mjög
fljótt út, enda húsið gamalt
timburhús, hæð, ris og kjolllari.
Kom slökkviliðið strax á staðinn,
en vegna eldhafsins varð fáu
bjargað úr húsinu og stóð
slökkvistarfið fram á sjötta tím-
ann um morguninn, en þá var
húsið allt brunnið innan.
Enginn var í húsinu þegar
eldurinn kom upp, en hótelstjór-
inn og kona hans voru nýgengin
þaðan. Eldsupptök eru ekki fuil-
könnuð. Á Húsavík var logn og
mjög gott veður þessa nótt.
Ekkert annað hótel er á Húsa-
vík, en í húsinu sem brann,
Garðarsbraut 8, voru aðeins
gistiherbergi og hefur hótelið
haft veitingaaðstöðu í félags-
heimili bæjarins.
I fyrrinótt kom aftur upp eld-
ur í bi'unarústunum, en hann
varð fljótlega slökktur.
Áramótin á Húsavík voru
annars róleg og fóru hið bezta
fram.
HÞ 1970:
Síðustu forvöð
zi gera skil
★ Nú fara að verða síð-
ustu forvöð að gera skil
í Happdrætti Þjóðviljans
1970, en enn eru ókomin
skil frá nokkrum aðilum,
sérstaklega utan af landi.
Vonum við að bau berist
fljótlega svo ekki dragist
mikið úr þessu að birta
vinningsnúmerin.
★ Hér í Reykjavík er
tekið á móti skilum á af-
greiðslu Þjóðviljans áð
Skólavörðustíg 19, sími
17500, opið kl. 9—12 og
1—6 daglega, og á Skrif-
stofu Alþýðubandalagsins
að Laugavegi 11, sími
sími 18081, opið kl. 10—12
og 1—6.
tái^
*m/ Hver áfanqi í
baráttu SÍBS er
ávinningur okkar allra
VinnuheimiliS að Reykjalundi á nú 25 ára
starfstímabil a3 baki. Um 150 vistmenn
geta nú átt þar heimili, stundað vinnu og
notið endurhæfingar og hjúkrunar. Happ-
drætti S.i.B.S. hefur greitt 83 milljónir
króna til uppbyggingar á staðnum.
En margir bíða eftir vist og vinnu. Auka
þarf húsrými og vélakost í vinnustofunum
Múlalundi í Reykjavík, þar sem 50 öryrkjar
vinná 'nú við þjóðnýt framleiðslustörf.
Markmiðið er að allir sem fara halloka í
viðureign við sjúkdóma, fái starf og um-
önnun við sitt hæfi. Þess vegna leggur
Happdrætti S.Í.B.S. í nýjan áfanga og
væntir þess að enn fleiri verði með.
Hinn frægi sígur, sem vannst í baráttunni
við berklaveikina, hefur aukið þrótt og
sóknarmátt S.Í.B.S. svo að nú geta sam-
tökin aðstoðað hvers konar öryrkja. *—
hvaðanæva af landinu. Qllum ágóða af
happdrættinu er varið til þess starfs.
Því er ávinningur í hverjum miða, sem
keyptur er í Happdrætti S.f.B.S., og meira
en fjórði hver miði hlýtur vinning.
að vera með