Þjóðviljinn - 26.06.1971, Qupperneq 1
!
Alþýðubandalagsfólk Vestmannaeyjum
I | Kosningahátíð G-listans Q Allt stuðningsfólk Alþýðu-
verður haldinn í Alþýðu- bandalagsins, G-listans, er
húsinu í kvöld, laugardag, velkomið.
og hefst kl. 9.
Umrœður um myndun vinstri-
stjórnarinnar hófust i gœrdag
Samfökin svöruðu jákvœtt i gœr - AlþýSuflokknum boSin þáttfaka
[]] Formlegar umræður uim myndun vinstri-
stjórna<r hófust í gær, eftir að Samtök frjálslyndra
og vinstrimanna höfðu lýst yfir því að þau væru
reiðubúin til þess að taka þátt í þeirri stjórnar-
myndunartilraun.Var svar Samtakanna birtíformi
yfirlýsingar sem birt er hér á eftir, en þar var
m.a. lagt til að Alþýðuflokknum væri einnig boð-
ið að taka þátt í viðræðunum.
Var fallizt á þá tillögu^
og Alþýðuflokknum boð-
ið að standa að myndun
ríkisstjórnar „er m.a.
hafi það hlutverk að
leysa landhelgismálið á
þeim grundvelli, er mót-
aður var af framan-
nefndum flokkum á síð-
asta Alþingi“.
ingsyíirlýsing við þessi viðhorf.
Þess vegna vill þingflokkurinn í
upphafi viðrœðna um stjórnar-
myndun sérstaklega taítoa fram
eftirfarandi:
1. Við myndun ríksstjómar
ber eftir rnætti að forðast úti-
lokun þeirra afla, sem eiga
heima í sameiginlegum stjóm-
málasamtökum jafna’ðar- og sam-
vinnumanma.
2. Ákjósanlegast væri, að
væntanleg ríkisstjóm byggi við
sem traustastan meirihluta svo
að tryiggður sé framgangur
þeirra umfangsmiklu aðgerða,
sem framkvæma verður.
Af þessum ástæðum telur
þingflokkurinn nauðsynlegt, að
Alþýðuflokknum verði bo’ðin
þátttaka í þeim viðræðum, sem
nú eru að hefjast og flokksstjóm
Alþýðuflokksins ritað viðeigandi
erindi þar um.
Auk framangreindra atriða
vill þingflokkur Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna taka
fram, að útilokað sé að hann
geti staðið að myndun ríkis-
stjómar án þess, að fyrst fari
fram úttekt á þeim efnahags-
vanda, sem fráfarandi ríkis-
stjóroarflokkar skilja eftir sig
og ýtarlegur málefnasamningur
verði gerður um lausn þeirra
'Flraimhald á 9. síðu.
/ gærdag
Þessar myndir voru tekn-
ar um hádegisbili'ð í gær,
er viðtalsnefndarmenn yf-
irgáfu Þórshamar að Iokn-
um morgunfundinum. —
Fréttamenn og Ijósmynd-
arar biðu nefndarmanna á
útidyratröppunum. Á ann-
arri myndinni sést Ólafur
Jóhannesson form. Fram-
sóknarfiokksins ræða við
nafna sinn Ragnarsson sjón-
varpsmann og blaðamann
Alþýðublaðsins, en Hanni-
bal Valdimarsson er til
hægri á myndinni. A hinni
myndinni sést hópur sjón-
varps- og fréttamanna á
tröppum Þórshamars. Ólaf-
ur Jóhannesson er í miðj-
um tröppum. en neðar cr
Magnús Kjartansson og
Ragnar Arnalds. — Ljós-
mynd: Þjóðv. A.K.
Umræður uim myndun vinstri
stjómar áttu sem kunnugt er að
hefjast fyrir viku, en þá hiafði
. ekki verið um málið fjallað á
formlegan hátt innan Samtafca
frjálslyndra og vinstrimanna. Lá
svar þingflokks Samtaikanna
ekiki fyrir fyrr en á fundinum í
gær, en þar var lagt fram svo-
hljóðandi svar:
„Samtök frjálslyndra og vinstri
manna hafa frá upphafi lagt ríka
áherzlu á sameiningu allra
þeirra, sem aðhyllast hugsjónir
lýðræðis, jafnaðar og samvinnu.
Það hefur aetíð verið grundivall-
arskoðun samtafcanna. að vandia-
mál alþýðustéttanna og vinstri
hreyfingar á íslandi verði ekki
leyst til frambúðar nema með
siliíkri umsköpun flokkakerfisins.
Sigur Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna í nýafstöðnum
kosningum er tvímælalaus stuðn-
Fyrirfœkjum og félögum hlíff oS venju
Skattar og útsvör einstaklinga
í Reykjavík hækka allt að 46%
| | í gær fengu Reykvíkingar að kynnast álögð-
um sköttum og útsvörum frá ríki og borg. Hefur
samanlagður tekjuskattur á einstaklinga hækkað
hvorki meira né minna en um 46% og útsvör litlu
minna. Hins vegar er fyrirtækjum hlíft eins og
fyrri daginn og bera þau hlutfallslega minni þunga
en launþegar hér í Reykjavík.
★ Álögð telíjuútsvör einstak-
linga í Reyltjavík fara nú í
fyrsta skipti yíir miljarð
króna. Nema þau samtals kr.
1.022,249 þúsund lagt á 29306
einstaklinga. Hækka saman-
lögð tekjuútsvör um hvorki
meira nc minna en 40% mið-
að við árið á undan. Nemur
þó fjölgun gjaldbærra ein-
staklinga aðeins 3,9%.
★ Samkvæmt fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar var gert
ráð fyrir að leggja 295 milj.
króna á fyrirtæki í aðstöðu-
gjöid á þessu ári. Þegar til
framkvæmda kom voru þau
lækkuð í 272 miljónir og 400
þúsund á fyrirtækin hér í
Reykjavík.
Samanlögð teikjuiútsvör námu
árið 1970 samtails kir. 730 miij.og
444 þúsund á einstaklinga hér i
Reykjavík. Var 292 miljónujni kr.
bætt ofan á tekjuútsvör borgar-
búa árið 1971. Gjaldbærir ein-
staklingar árið 1970 voru hér í
borginni 28204 og hefur fjölgað
í 29306 á árinu 1971. Það er 3,9%
fjölgun.
Álögð tekjuútsvör á fyrirtæki
nema samtals kr. 155 mil og
143 þús. fyrir árið 1971, en námu
samtals kr. 110 miljófnum og 748
þúsund árið 1970. Hefur fyrir-
tækjum fjölgað úr 1320 í fyrra
i 1466 núna í ár hér. Það er 11
prósent fjölgun á fyrirtækjum.
Hins vegar hafa álögð tekjuút-
svör á fyrirtæki heekkað um 38%
hór í Reykjaivík.
Álögð eignaútsvör á einstak-
linga hér í Reykjavík nema nú
kr. 73 milj. oe 219 þús., en
námu samanlagt í fyrra kr. 68
miljónum og 21 þúsundi. Á fyr-
irtaeki nema eignaútsvör í ár
kr. 30 miljónum. og 424 þúsund
krónum. en í fyrra kr. 24 milj.
791 þús.
46% hækkun á tekjuskatti
Álagður tekjuskattur einstak-
linga hér í Rcykjavík nemur nú
samanlagt kr. 533 miljónum og
Fnamháld á 9. síðu.
Hæstu gjaldendur / Reykjavik sjá síðu ©
♦
* (