Þjóðviljinn - 16.07.1971, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 16.07.1971, Blaðsíða 4
4 SfÐA — PJÖÐVIEJPINN — ETBsbudagur 1«. JúM 1Ö7L — Málgagn sósíalisma, verklýðshreyfingar og þjóðfrelsis — Utgefandi: Utgáfufélag Þjóðviljans. Framkv.stjóri: Eiður Bergmann. Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Sigurður Guðmundsson. Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson (áb). Fréttastjórl: Slgurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Sími 17500 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 195,00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 12.00. Kveíur viB annan tón J^aunaíólk á íslandi heíur haít yíir sér í 12 ár rík- isstjórn sem aldrei hefur sett sig úr færi um að ráðast gegn hagsmunum þess á einn eða annan máta. „Viðreisnar"-stjómin hefur sí og æ staðið í stríði’við launafólk í landinu og vegna fjandsam- legrar afstöðu hennar áttu íslendingar um tíma heimsmet í verkföllum að því er sagt var í erlend- um blöðum. Sá hluti íslenzks launafólks sem nú er um og innan við þrítugt man ekki aðra tíma en tímabil látlausrar baráttu verkafólks við fjandsam- lega ríkisstjórn og það hlýtur að vekja athygli þessa fólks sem annarra launamanna að nú kveð' ur við annan tón í afstöðu nýrrar ríkisstjórnar til launafólks í landinu. Þar er því lýst yfir að ríkis- stjómin muni þegar í stað beita sér fyrir ráðstöf- unum sem hafa munu í lör með sér verulega kjara- bót til handa launafólki. J málefnasamningi stjórnarflokkanna er því lýst sem einu af meginstefnumiðum ríkisstjórnarinn- ar að bæta afkomu verkafólks, bænda, sjómanna og annarra þeirra, sem búa við hliðstæð kjör. Ríkis- stjórnin mun beita sér fyrir því að vinnuvikan verði stytt í 40 stundir án kaupbreytingar á viku- kaupi, orlof verði lengt í 4 vikur, kaupgreiðsluvísi- talan verði leiðrétt um 3,3 vísitölustig, kjör sjó- manna verði bætt með breytingu á hlutasldptalög- unum frá 1968. Loks lýsir ríkisstjórnin því yfir í málefnasamningi sínum að hún muni með nánu samstarfi við samtök launafólks beita sér fyrir aukningu kaupmáttar launa verkafólks, bænda og annars láglaunafólks um 20% í áföng- um á næstu tveimur árum, þ.e. 5% aukning á átta mánaða fresti eða þar um bil. Miðað við að fyrsti áfangi þessarar kauphækkunar taki gildi nú á næstu mánuðum ásamt styttingu vinnuvikunnar og leiðréttingu á vísitölustigunum má gera ráð fyrir að kaupmáttur lægstu launa hækki um 20%< ^Juk þessara ráðstafana í kjaramálum launafólks hefur ríkisstjórnin ákveðið að gefa strax út bráða- birgðalög um að elli- og örorkulífeyrir hækki strax, en hækkunin verði ekki látin bíða til áramóta eins og fráfarandi ríkisstjóm ætlaði. Kjör ellilífeyris- þega og öryrkja eru nú þannig að það má engan tíma missa til þess að gera ráðstafanir til að bæta kjör bótaþega trygginganna. En það mun einsdæmi að íslenzk ríkisstjórn lýsi yfir útgáfu bráðabirgða- laga um ráðstafanir til þess að bæta kjör þeirra sem þau hafa lökust og er það enn til marks um nýjan tón í garð almennings. JTráfarandi ríkisstjórn lét það verða eitt af sínum síðustu verkum að ræna umsömdum vísitölustig- um af kjörum launafólks. Þegar ný '•íkisstjórn tek- ur við er sömu stigum skilað tafarlaust — ránið á vísitölustigum í tíð fráfarandi stjórnar var því framkvæmt af einum saman fjandskap og leiðrétt- ingin sjálfsögð. En í þessu dæmi og þeim sem hér hafa verið nefnd kemur fram annar vilji, önnur við- horf í garð launafólksins í landinu. — sv. Stóra Núllið — Alþjóðahyggja torgklukkunnar Tvö bréf eru í póstmum i dag, og fjalllar annað um meðferöina á krónumni, sem við stoulum vona, að veröi um sinin í traustari höndum ,en hitt fjallar um torglklukkuna blessaða, sem heldur betur hefur ruglazt í riminu að undanfömu, og hefur nú fjög- ur ósamstæð andlit að sögn bréifritara. — Engin bjóð í hinnm sið- aða heimi hefur farið jafn ömurlega með gjaldmiðil sinn og Islendingar. Allt frá upp- hafi síðustu heimstyrjaldar hefur mokazt inn fé til txióð- arinnar svo slíks eru hvergi- dæmi. Fyrir strið var skráð gengi pundsins ca. kr. 22.00. Gullstraumurinn inn í betta litla land hefur verið lát- laus síðan, setuliðsvinna, hátt alfurðaverð, giafir og sníkjur í öllum myndum, jafnvel úr flóttamannasjióðum. En reisn ísl. stjómmálamanna hefur verið slík, að gengi knónunn- ar hetfur verið fellt 7 sinn- um á þessu tímabilli og nú jalfnvel skellfur hún í 8. sinn. öllu því rangllæti sem fylgir gengisiföllum barf ekki að lýsa, beir sparsömu eru rænd- ir á fínan hátt af því opin- bera. Hinn 85 ára Landsbanki er svo blygðunarlaus að skrá með gullnu letri á sparibauka bankams „Græddur er geymd- ur eyrir“ „Safinast þegar sam- an kemur“. Hvaða þýðinigú hefur að vera á harða blaupum með verðgildi gjalidmiðilsins, fella það 7 sinnum í glóðæri? Svar- ið er: landið heftur verið því sem næst stjómlaust í 3 ára- tugi. Breytinigar á verðgildi peninga þýðir flutningur á eignum milli manna og fyr- irtækja, með öðrum orðum, þeir ríku eru gerðir ríkari, en þeir sem geyma eigur sínar í ríkistrygigðum bönk- um, eru snauðir. Þessi ríkLs- ábyrgð bamkanna er ódýr fyndni. Það er staðreynd, að eftir því sem penimgar erj verðminni, þeim mun verr er farið með þá og sýnd meiri lítilsvirðing. Það sjálfsagða er nú, þrátt fyrir allt ranglæti og eymd í fjármélum að taka núllið af, kr. 10.00 fá verð- gildi kr. 100.00. Pundið er þá slkráð á kr. 21.00, Dkr 1.20, Skr. á 1.70 osfirv. Það skiptir engu máíi hvort mjölkurlítri kostar kr. 2.00 eða kr. 20.00. Allar skuldir og eignir verður að skrifa niður td. sá sem á 1 miljón í banka á aðeins 100.000,00 Þetta hafa V-Þjóðverjar gert, Frskkar og Finnar og líkar öllum vel. Með þessu móti korna hinir frægu lOeyringar Seðlabankans að notum, gdldir 1 krónu. Hér með er skomð á hina nýju vinstrí stjóm að hef.iast nú handa. Bitthvaö verður hún að vinna sér til frægðar, ef hún ætlar að liffa í land- inu. Hjálmtýr Pétursson. Kæri Bæjarpóstur. Fná því að ég man eftir mér heflur klukkan á Lækjar- torgi verið fastur punktur i reiku.lli tiiveru miinni. Ég hef vanizt þvi að líta á hama í tíma og ótíma og hef látið hana náða ferðum mínum um Miðbœinn daglega. Ef hún er mér fimm mínútum í vil, get ég látið eftir mér að kikja í búðarglugga eða rabba við kunningja á götuhornum. Elf hún er mér fimm mínútum í óhag þarf óg hins vegar að taka umdir miig stökk til að komast á áfevörðunairstað. Hún sýnir mér, hvort ég er búin að missa af sitrætá, eða hvort óg get sötrað eina kók, meðan ég bið eða hvoirt ég þartf að hllaupa eins og skot. Armbandsúrið, sem ég fékk í fermingargjöf er ekki notað, meðam ég er í návígi við torgfklukkuna. Kannski er það vegma þess að hún byrjaði að stjórna mér, löngu áður en ég fermdist. Eins og strætisvagnakerfíð hér áður fyrr fór allt úr Sikorðum, þégar klukkan stopp- aði eða bilaði; veit ég hvorki í þennan heim né annan, þeg- ar það kemur fyrir. Og því skrifa ég þér, Bæjarpóstur góður. ad ég haf varla náð upp í nefið á mér fyrir ring- uilreið síðustu daga. Hin fjög- ur andlit klukkunnar eru svo ósamstæð, að ætla mætti að eitt sýndi tíma í Nasasúark, annað i Kúala Lumpur, en ekkert þóknast blessuðum möriandanum. Skárri er það nú alþjóðahyggjam. Ég er ekki fyrr komin niður í bæ í verzl- unarerindum en eitt andlit klukkunnar segir mér, að nú líði að lokun verzlunartima. Og sivo vönkuð er ég og gleymin, að óg átta mig aldr- ei á því, aö þessi garníla vin- kona mín er steimhætt að kunna ísienzku, og geri því eintómar rósir í búðunum í 4- kafanum við að ljúka erind- rekstri fýrir lofcun óg öll stefnumót min lenda í handa- sikolum, vegna þess að ég treysti á klukkunua frá fomu fari. Getur ekiki einhver góður ábyrgur aðili séð aumur á mér og komið viti í klukk- una, annars er ég hrædd um að vitið rjýki úr mér ednn góðan veðurdag. „Femína“. Samstarf í félagsmálum verði aukið 1 fréttatilkynningu sem blað- inu barst í gær kemur fram að 5. til 7. júlí var haldinn fundur félagsmállaráðherra Norðurlanda í Kuopio í Finn- landi. Segir í fréttatilkynning- unni sem birtist hér á eftir að auka verði samstarf Norður- landanna á sviði félagsmála, heilbrigðismála og trygginga- mála. Fundur félagsmálaráðherra Norðurlandanna var haldinn f Kuopiö í Finnlahdi dagana 5. til 7. júlí. Þessir ráðherrar sátu fund- inn; Frá Danmörku: Natlhalie Lind. félágsmálaráðherrá, frá Noregi: Odd Höjdahl, féiags- og hei lbrigðismálaráðlherra, frá Svíþjóð: Sven Aspling, félags- og heilbrigðismálaráðherra og Camilla Odhnoff, félagsmála- ráðherra, frá Finnlandi: Pekka Kuusi, félags- og heilbrigðis- málaráðherra og Katri-Hélena Eskelinen, félagsmálaráðherra. Háðgert hafði verið að Eggiert G. Þorsteinsson, heilbrigðis- og -«■ Felft að hætta aðstoð við Grikkland WASHINGTON 15/7 — Utan- ríkismálanefnd fulltrúadeildar bandaríska þingsins felldd í dag með mjög iitlum meirihluta (14 atkvæðum gegn 12) tiillögu um að stöðva alla hemaðar- og efnahaigsaðstoð Bandaríkjanna við Grikkland. Það var demókratiinn Wayne Hays frá Ohio, sem lagöi ílram þessa tillögu, og átti hún að vera viðbót við samþykkt um aðstoð við önnur lönd. I henni stáð að hætt skyldi alilri aðstoð við Grikkland, ef forsetinn teldi hana ekki nauðsynlega fyrir öryggi Bandarík.ianna. Eftir atkvæðagredðsluna sagði ■Hays að hann ætlaði ?ð gera nýja tilraun til að £á þessari gréin bætt inn í iögin um að- stoð við önnuir rífei. tryggingamálaráðherra, sækti fundinn af Islands hálfu en vegna Væntanlegrá stjórnaf- skdpta var hætt við þátttöku hans og var því hvorki félags- málaráðherra eða heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra Is- lands staddur á fundinum, en í þess stað sátu þeir Páll Sig- urðsson, ráðuneytisstjóri í heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu og Jón S. Ólafsson, deildarstjóri í félagsmálaráðu- neytinu fundinn sem fulltrúar Islands. Auk ráðherranna sátu fund- inn áheyrnarfulltúar frá félags- málanefnd norræna ráðsins, þeir Antti-Veikko Perheentupa frá Finnlandi og Hakan Bran- ders ritari Finnlandsdeildar Norðurlandaráðs í Helsingfors. Fjölmargir embættismenn frá löndunum öllum tóku auk þess þátt í mótinu. Umræðuefni þessa móts voru eftirfarandi: 1. Upplýsingastarfsemi á félags- legu sviði innan Norðurlanda og milli þeirra. 2. Eiturlyfjaneyzla á Norður- löndum. ' 3. Þáttur framfærslu í samfé- lagshjálp og félagslegu starfi. Félagsmálaráðherrar Finn- lands, Noregs og Svíþjóðar höfðu framsögu í þessum mál- um. Það var samhljóða álit allra ræðumanna að leggja sérstaka áherzlu á þörfina á áframhald- andi og auknu norrænu sam- starfi á þessum sviðum öllum. ^ Alllangur umræðutími fór í að ræða nauðsyn upplýsinga- starfs bæði innanlands og milli landanna og því var vísað til norrænu félagsmálanefndarinn- ar að taka það mél upp og gera tillögur um hvaða aðferðum skyldi helzt beita á því sviði. Miklar umræður urðu um eitu-rlyfjavandamálin á Norður- löndum. AUir þátttakendur voru sammála um að leggja áherzlu á áframhaldandi norrænt sam- startf á þessum sviðum bæði hvað sneriir fyrirbyggjandi starf, samræmingu meðferðar og saimræmingu rannsókna- tækni. Við umræðu-r um framfærslu- mál og hjálp á félagslegum sviðum var lögð sérstök áherzla á umhverfismálin frá félags- legu sjónarmiði og sérstaklega lagt til að til þeirra sé tekið vaxandi tillit við þjóðfélagsá- ætlanir. . -. Gert er ráð fy-rir að næsti félagsmálaráðherrafundúr verði á Islandi sumarið lff)^,‘é¥í*þeSS- ir fundir eru haldnir annað hvert ár og á Norðuriöndunum til skiptis og var fundur hald- inn á Islandi sáðast sumarið ’63. Ríkjabandalag stofnað við Persaflóa KUWAIT 15/7 — Ákveðið hefur verið að sameina sjö oiíuaiuðug furstadæmi við PersatfLóa og mynda bandialagsríki. Þetta ríki kemur í staðinn fyrir rúu rikja bandalag, sem áöur hafði verið stotfnað. Furstadœmin sjö eru Dulbai, Abu Dhabd, Ras al Haima, Sharja, Ajman, Fujaira og E1 Quwain. Ríkin Bahrain og Qat- ar sem voru í niu ríkja bamda- laginu hafa ákveðið að ganga ekki í bandalagsirfkið. Höföingjar ríkjanna sjö hitt- ust nýlega í Dubai. „Það er ekki fögur sjón... vv í leyniskýrslunum banda- rísku um upptak Víetnam- striðsins kemur m.a. fram hvemig afstaða báverandi ut- anríkisráðherra McNamara breyttist algerlega með árun- um. í orðsendingu frá honum tdl Johnsons sem dagsett er hinn 19. maí 1967 segir: — Það geta verið mörk, sem margir Bandaríkjamenn og fólk um viða veröld leyfir Bandaríkjunum ekki að yfir- stíga. Það er ekki fögur sjón að horfa upp á mesta stórveidi í heimi drepa eða særa alvar- lega 1000 óbreytta borgara á viku í tilraun til þess að beygja frumstæða smáþjóð til hlýðni í máli, sem er mjög umdeilt. Þetta gœti hugpan- lega haft dýrkeypt áhrif á samvizku bandarísku þjóðar- innar og mynd Bandaríkjanna í augum almennings um all- an heim — sérstaklega ef tjónið sem unnið verður i Norður-Víetnam er nægilega mikið til þess að verða „ár- angursríkt“. McNamara snerist hugur

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.