Þjóðviljinn - 01.08.1971, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 01.08.1971, Blaðsíða 3
Sunnudagur 1. ágúst 1971 — Í>JÓÐVIL«TINN — SlÐA 3 L OFTLEIDIfí ICELANDIC A1RUNE8 Hver verða viðbrögðin nú? Trálega er það enn ýmsum i minni, þegar norsikur piltur lét svo um mælt á norrænni ungmennaráðstefnu, ekki alls fyrir löngu, að velviljuð af- staða Bandaríkjamanna til Loftleiða væri afleiðing af her- setunni hér. En hann hafði varla sleppt orðinu þegar upp hófst óp mikið á Islandi. Blaða- fulltrúi Loftleiða lýsti því yfir í fjölmiðlum, að þetta væri hin argasta lygi og útvarpið sagði frá því með auðheyrðri vel- þóknun. að piltur sá 'hinn norski, hefði verið að því spurður, hvaðan hann hefði upplýsingar sínar, og hefði hann orðið að játa. að þetta hefði enginn sagt sér. honum hefði bara rétt sisona dottið í hug að segja það. Þá þurfti auðvitað ekki framar vitnanna við. Þetta hlaut að vera upp- spúni frá rótum. En það ber ekki allt upp á sama daginm. 1 móðursýkisskrif- um frændþjóða vorra um hina nýju ríkisstjóm á Islandi, var því á einum stað haldið fram, að Islendingar hefðu alls engin efni á því að missa herinn úr landi. Það væri t.d. enginn efi á því, að velviljuð afstaöa Bandaríkjamanna til Loftleiða væri bein afleiðing af herset- unni á Islandi. (Hér er stuðzt við útvarpsfrétt sem var efnis- lega alveg svona). Og nú hlýtur fávís og sauð- svartur almúginn að spyrja: Hvað verður nú sagt á Islandi? Ætlar ekki blaðafulltrúi Loft- leiða að láta til sín heyra um málið? Ætlar ekki ríkisútvarp- 1 ið að segja frá því með miklum virðuleik, að það hafi sannazt. eftir mörgum leiðum. að orð hins sænska blaðs séu áróður og öhróður? Eða er það ef til vill svo, að sama sagan geti verið sann- leikur annan daginn en lygi hinn dagin, eftir þvi, hvort sá sem hana segir. er norskt ung- menni eða sænskt íhaldsblað? Gustur. Innritun i Parísarháskóla Samkvæmt upplýsingum frá sendiráði Isiands í París hafa frönsk stjórnvöld ákveðið, að innrituo erlendra stúdenta i Parísarháskóla fari fram í julí- mánuði og septemíbermánuði. Innritun er óheimil á öðrum timum, nema að fenginni sér- stakri undanþágu fró rektorhá- skólans. Ennfremur er rétt að vekja athygli stúdenta. sem hyggja á nám við Parísarhóskóla næsta háskólaár, á því að umsóknir um garðvist þurfa að hafa bor- izt stjóm stúdentagarðanna þar i borg fyrír júlílok. 35.000 kr. styrkur Hinn 14 ágúst n.k. verður út- hlutað styrk úr Minningarsjóði dr. Rögnvalds Péturssonar til eflingar íslenzkum fræðum. Það er tilgangur sjóðsins að styrkja kandídata í ísilenzkum fræðum frá Háskióla Islands, sem reyndir eru að áhuga, dugnaði og góðum hæfileikum. til framhaldsnáms og undir- búnings frekari vísindastarfs Að þessu sinni nemur styrkur- inn 35.000 krónum. Umsóknum #m styrk úr sjóðnum skal skil- að ó skrifstofu Hóskólans eigi siðar en 10. ágúst n.k. ÚRVAL, GÆÐI, ÞJÓNUSTA. Vel rekin verzlun er grundvallar- skilyrði þess, að þörfum hins aimenna neytanda sé fullnægt. Forsendur þess, að verzlun geti boðið vöruúrval á hagkvæmu verði, eru frjáls viðskipti, frjáls verðmyndun, vel menntað og þjálfað verzlunarfólk, og gagnkvæmt traust verzlunar og neytenda. RÉTTUR NEYTANDANS. Hvers konar einokun er andstæð hagsmunum þeirra, sem kaupa vörur og þjónustu. Einokun afnemur heil- brigða samkeppni fyrírtækjanna um viðskipti neytenda, og um leið rétt fólksins til að velja og hafna. Það er nauðsynlegt að tryggja það, að hérlendis ríki ekki einokunaraðstaða á sviði verzlunar og viðskipta, hvorki af hálfu einkaaðila, samvinnuhreyfing- ar né opinberra aðila. HEILBRIGÐ SAMKEPPNI. Frjáls viðskipti stuðla að nauðsyn- legri sérhæfingu í öllum atvinnu- greinum þjóðarinnar. Iðnaður, sjávar- útvegur og landbúnaður einbeita sér að framleiðslu afurðanna, og verzlunarfólk brúar bilið milli fram- leiðenda og neytandans. Frjáls samkeppni hvetur til hagkvæmrar framleiðslu og hagkvæmrar verzlunar. Þannig skapar heilbrigð samkeppni fólkinu í landinu rétt til að velja réttar vörur á hagkvæmu verði hvar sem er á landinu. Með lýðræðislegri uppbyggingu viðskiptalífsins standa verzlunar- samtökin vörð um heilbrigða sam- keppni milli hvers konar fyrirtækja, — og rétt neytandans til að velja vörur án takmarkana. Verzlunarsamtökin senda verzlunar- fólki og landsmönnum kveðjur í tilefni af frídegi verzlunarmanna 1971. FÉLAG ÍSLENZKRA STÓRKAUPMANNA. KAUPMANNASAMTÖK ÍSLANDS. ÉÉt

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.