Þjóðviljinn - 01.08.1971, Blaðsíða 6
§ SÍÐA — í>JÓÐVILJINN — Sumnudagur 1. ágúst 1971,
□ Niðursuðuiðnaður á landinu virðist
í mikilli ládeyðu. Stórar og fullkomnar verk-
smiðjur standa lítt eða ekkert nýttar,
og orsökin er einkum markaðsskortur, en einnig
s'taðbundinn skortur á hráefni.
| | Fyrir nokkrum árum hugðust 5 niðursuðu-
verksmiðjur á landinu stofna með sér
víðtæk sölusamtök og fengu í því
skyni vilyrði fyrir láni hjá Alþjóðabankanum
að upphæð 1 miljón dollara. Það var hinsvegar
sett að skilyrði, að bankatrygging fengist
fyrir láninu. Að sögn Mikaels Jónssonar
framkvæmdastjóra Niðursuðu K. Jónssonar á
Akureyri hefur umsókn um tryggingu
legið í hagdeild Landsbankans í hálft annað ár.
| [ Ástandið er þannig, að verksmiðjurnar
reyna hver fyrir sig að koma
afurðum sínum á erlendan markað, en
hafa ekki bolmagn til að standa undir miklum
auglýsingakostnaði eða standa straum af
rekstri söluskrifstofu erlendis.
„Við vonum, að nýja ríkisstjórnin verði
skilningsríkari á mikilvægi niðusuðuiðnaðarins
en sú gamla, og höfum raunar ekki ástæðu
til að ætla annað“, sagði Mikael ennfremur
í viðtali við blaðið.
Hér er framleiðslunni hlaðið upp — en ef stórar pantanir berast geta hinar fáu og smáu niðursuðuverksmiðjur ekki annað þeim
— í núverandi skipulagsleysL
Niðursuðuiðnaðurínn í mikilli ládeyð
Átti að senda mánaðar-
framleiðsluna vikulega
Auk annarra erfiðleika sem niðursuðuiðnaðurinn á við
að etja hefur það komíð fyrir, að svo stórár pantanir hafa
borizt að ekki hefur verið viðlit að afgreiða þaer. Þannig
mun t.d. nýðursuðuverksmiðjunni Ora hafa borizt pöntun
frá útlöndum á smjörsíld og átti verksmiðjan samkvaemt
henni að senda vikulega magn — sem svaraði til mánað-
arframleiðslu.
Niðursuðuverksmfájan Ora er
lofeuð þessa dagana vegna
sumarfría, en þar er alla jafna
framleiddur fiskbúðingur og
fiskbollur. Rækja, svið, kavíar
og grænmeti er soðið niður
og fleiri afurðir.
Misjafnlega gengur að affla
hréefnis en þó var frekar gott
með fisk í vetur, en fyrirsjá-
anlegur er skortur á grænmeti
í haust.
í verksmiðjunni starfa 40 til
50 manns að jafnaði, en
starfsfólkið kemst allt upp i
80 manns, þegarmesteraðgera.
Hin margvíslega framleiðsla
útheimtir misjafnlega mikið
vinnuafl — t. d. er einna mest
handavinna við niðursuðu á
murtu úr Þingvallavatni, en
hún er unnin u.þ.b. hálfs mán-
aðar skeið á haustin.
Þingvallamurtan er seld til
Vestur-Þýzkalands og pökkuð
fyrir stórfyrirtækið Appel, og
einnig er hún seld undir merki
Ora í Bandaríkjunum.
Meirihluti af framleiðslu
verksmiðjunnar er seldur hér
innanlands, en útflutningur
hefúr farið smávaxandi.
Yerksmiðjan hefur ekki
verið hálfnýtt í sumar
Vinna hefur að langmestu
legið niðri í sumar við Niður-
suðuverksmiðjuna H.f. Torfu-
nesi við Isafjörð. Veldur því
bæði í senn hráefnisskortur og
markaðsleysi. Vinnsla við rækju
hefst ekiki fyrr en með haust-
inu, smásíld hefur ekki sézt
þar vestra í sumar, og ekki
er ráðlagt að kaupa hráefni
annars staðar frá, þegar mark-
aðina vantar.
Þegar bezt lætur starfa við
verksmiðjuna um 30 manns. og
er afkastageta 6—700 kg. af pill-
aðri rækju á dag. en verfc-
smiðjan hefur einkum feng-
izt við rækjuvinnslu undanfar-
in ár. Hins vegar framleiðir
hún einungis fyrir innanlands-
markað og hann er íljótur að
mettast, þannig að nýting nið-
ursuðutækjanna er mjög óveru-
leg, en vinnan er eintoum fólg-
in í piilun og frystingu á rækj-
um. Verksmiðjan var stofnuð
árið 1955 og að sögn Böðvars
Sveinbjamarsonar framkvæmda-
stjóra er hún sæmilega búin
að tækjum, sem afleitt er að
láta standa ónotuð mánuðum
saman.
Endurbœtur niðursuöuverk-
smiðjunnar á Akranesi
Hjá Niðursuðu Haraldar
Böóvarssonar á Akranesi starfa
nú um 10—12 konur að pökkun
svakallaðra vinnslulhroigna á
Englandsmarkað í 600 gramma
dósir, en frágangi og pökkun
1. ffl. hrogna í 200 gramma
dósir er lokið. Uppfrá þessu
fer að hægjast um í verk-
smiðjunni, en með haustinu
hefst niðursuða á grænmeti, og
þegar Imuveiðamar byrja verð-
ur háannatíminn við niðursuðu
á lifur. Hún fer eintoum á
markaði í Sovétríkjunum og
Tékkóslóvakiu. Við það starfa
að jafnaði 20—30 manns. Dauði
tíminn að áliðnu sumri verður
notaður til að ráðast í ýmiss
konar endurbætur í vérksmiðj-
unni, að sögn verksmiðjustjór-
ans í viðtali við Þjóðviljann.
Tœkin standa ónotuð
mánuðum saman
Niðursuðuverksmiöja K. Jóns-
sonar á Akuireyri hefiur ekki
verið íháilfnýtt í sumar eða írá
því að gengið var frá stórri
pöntun af galfifalbitum fyrir
Rússlandsmarkað í júní. Að
undanförnu hafa um 45 manns
starfiað í verfcsmiðjunni og þá
aðallega við niðursuðu á fisk-
bollum og grænmeti fyrir inn-
anlandsmarkað. Verksmiðjan
liggur nú með talsvert hrá-
efnismagn, sem ekki hefur ver-
ið unnið úr vegna markaðts-
skorts, en nú er reynt að
semja um viðbótarsölu til
Sovétríkjanna, sem er lang-
stærsti markaðurinn, að sögn
Kristjáns Jónssonar verksmiðju-
stjóra. en heldur ótryggur. Um
aðra maricaði er ekki að ræða,
svo að teljandi sé, og taldi
Kristján brýna nauðsyn bera
til, að ráðizt yrði í náikivæma
markaðskönnun fyrir íslenzkar
niðursuðuvörur, en verksmiðj-
urnar sem slíkar hefðu ekki
bolmagn til þess. I verksmiðj-
unni, sem er mjög fullfcotmin
að tækjaútbúnaði starfa þegar
bezt lætur nokkuð á annað
hundrað rnanns, og nýtingin er
því aðeins um 40%, og ekki
eru horfiur á að úr rætíst nema
skjótt takist að semja um nýj-
ar sölur á erlenda markaði.
Hráefnfsskortur jafnan
yfirvofandi
Að sögn Kristjáns Guðmunds-
sonar verksmiðjustjóra hjá
Norðurstjömunni í Hafnarfirði
hefur vinna í venksmiðjunni
verið svo til samtfelld frá því
í júní. en hráefnisskartur er
jafnan yfirvofandi. Staxfa nú
um 50—60 manns að niður-
suðu á síld í kippers og íer
framleiðslan að langmestu leyti
til útflutnings.
I