Þjóðviljinn - 21.08.1971, Síða 2
2 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagjur 21. ó@úst 1071,
Fjörug skák og æsileg
biðskák úr 5. umferð
Ingvar Barda
Fknimta umferð var heldur
daiufleg á Norðurlan d askákmót-
inu. Þó vann Finninn Miehael
Nykopp Hákon Akvist í fjör-
ugri skák, sem við birtum hér
að neðan Biðskák varð hjá Jóni
Kristinssyni og Yngvari Barda
frá Noregi. Jón átti unnið tafl
lengst af, en urðu á þau mis-
tök að leika kóngi sínum á f8
í stað g8; þá hefði Norðmaður-
inn mátt gefa strax. Eins og
máiin standa nú miun þó stað-
an töpuð hjá Jóni og Norð-
maðurinn á að vinna með mjög
óvanalegri riddarafiéttu. Bið-
staðan er þessi, hvítur á leik:
hvítt: Ingvar Barda, Kh2. Hb7,
Rc5, peð á a7, f2. g3 og h3.
Svart: Jón Kristinsson, Kf8,
Ha8, Bd5, Rd8 og peð á c6,
e5, f6, g6 og h7.
AðstoSariæknir
Staða aðstoðarlæknis er laus til umsóknar við svæf-
mgadeiLd Borgarspítalans. Upplýsingar varðandi
stöðuna veit'ir yfirlæknir deildarinnar.
Laun samkvæmt samningi Læknafélags Reykjavík-
ur við Reykj avíkurborg.
Staðan veitist frá 1. október til 6 eða 12 mánaða.
U’msóknir sendist til Heil'brigðismáílaráðs Reykja-
víkurborgar fyrir 15. sept. n.k.
Reykjavík, 19. 8. 1971.
Heilbrigðismálaráð Reykjavíkurborgar.
Félags íslenzkra myndlistarmanna.
Afhending sýningarpappíra í skrifstofu
Norræna hússins virka daga milli kl. 15
og 17.
SÝNINGARNEFND.
Frá Vélskóla íslands
Inntökupróf í 2. stig verður miðvikudaginn 1.
sept. kl. 9.30.
Innritun fer fram dagana 2. og 3. sept.
Þeir sem hafa sótt um skólavist. þurfa að mæta
til innritunar eða láta mæta fyrir sig eða hringja
í síma 23766.
Skólastjóri.
Skrifstofumaður
óskast á skrifstofu Borgarspítalans til launaút-
reiknings og fleira.
Verzlunarskóla, eða hliðstæð menntun áskilin.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf, sendist skrifstofu Borgarspítalans fyrir 28.
ágúst n.k.
Reykjavík, 19 8. 1971.
Heilbrigðismálaráð Reykjavíkurborgar.
Biðskákir verða tefldar í dag,
laugardag, klukkan 10 fyrir há-
degi. 1 lægri flokkunum haifa
landar vorir staðið sig illa, það
sem af er.
Eftir fimm umferðir var stað-
an þessi: í meistaraflokki A er
Paul Hansen (D) efstur með 4
vinninga og biðskák. Kaj Funck
(F) hefur 4, A. Vognsen (D) 3
og biðskák og Einar M. Sigurðs-
son 3 vinn og biðskák. 1 meist-
araflokki B er Vaage Ingerslev
(D) efstur með 4 vinninga. H.
Norman-Hansen hefur 3V2, og
H. H. Vognsen 3 vinninga.
1 1. flokki er Colin A. Moffat
(S) efstur ásamt Bimi Hall-
dórssyni með 4 vinninga. Ari
Guðmundsson hefiur 3% og
Gunnar Finnlaugsson sömuleið-
is. í 1. flokki er teflt eftir
Monrad-kerfinu.
I unglingaflokki var Magnús
Ólafsson efstur eftir fimm um-
ferðdr með „hreint“ borð, sem
svo er nefnt, hafði unnið allar
sínar skákir. Þess er þó að geta
að mjög mikið er af biðskákum
hjá þeim ungu mönnunum.
Hvítt:
Svart:
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
21.
22.
23.
24.
25.
26.
27.
28.
29.
30.
31.
32.
33.
Michael Nykopp
Hákon Akvist
b3, e5
Bb2, d6
d3, Rf6
d4, exd4
exd4, d5
Rf3, Bd6
Be2, 0—0
Rd2, He8
0—0, Rbd7
Hel, c6
Bd3, Rf8
Re5, Rg4
h3. Rxe5
dxe5, Bc5
Rf3, Be6
Dd2, a5
a3, Be7
Rd4, c5
Rxe6, fxe6
De2, Bg5
g3, g6
h4, Bh6
Dg4, He7
Kg2, De8
a4, Df7
Hhl, Hc8
h5, Bg7
Hel, gxh5
Hxh5, Rg6
Hhl, Hf8
f4, d4
Hxh7, Rxf4
Hh8 mét.
Akvist og Josefsson
Aövörun
um stöðvun atvinnurekstrar vegna van.
skila á söluskatti.
Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykja-
vík og heimild í lögum nr. 10, 22. marz
1960, verður atvinnurekstur þeirra fyrir-
tækja hér í umdæminu, sem enn skulda
söluskatt fyrir maí og júní s.l., og nýálagð-
an söluskatt frá fyrri tínna, sitöðvaður, þar
til þau hafa gert full skil á hinum van-
greiddu gjöldum ásamt áföllnum dráttar-
vöxtum og kostnaði. Þeir, sem vilja komast
hjá stöðvun, verða að gera full skil nú
þegar til tollstjóraskrifstofunnar við
Tryggvagötu.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 19. ágúst 1971
SIGURJÓN SIGURÐS SON.
Fæddur 22. febrúar 1880, dáinn 15. ágúst 1971
Margt hefur Jón í Möðrudal,
mestur tindur á fjölluoti,
veitt oss gott, er virða skal,
vegfarendum öllum.
Sól fór að skína um síla lón;
sást ei Máríufása,
ef að mökkvanum yfir Jón
aðeins náði að blása.
Viðrandi af oss veðrin hörð
vakti hann uppi’ í skýjum,
en skýldi nokkru neðar við
nægtabrunnum hlýjum.
Kom ei neinn svo aumur að
öðlings rausnarbóli
að eigi bæri boru af stað
brattari’ en hvannarnjóli.
Líking öll um listadreng
lagin er til að skeika. —
Minning tekur við tæran s'treng
á tómlegri nótt að leika.
Hillir yfir alda sveit
öræfagarðinn bjarta.
Aldrei sló í öðrum reit
íslenzkara hjarta.
Þokaði ei af þrumubrá
þúsund vetra ljómi,
raddir allar runnu frá
rammra vatna hljómi.
Þeim, er ylinn þekktu bezt
af þessum tryggðalindum,
kann að þykja færra um flest,
er fýkur í tíðar vindum.
Ský um dalinn skugga ber,
skúrir tekur að slíta.
Nú er gott að sofna sér
á svæflinum fífuhvíta.
ÞORSTEINN VALDIMARSSON.