Þjóðviljinn - 12.09.1971, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 12.09.1971, Blaðsíða 16
LANDHELGIN Að íslandsströndum hnígur haf er himinlind oss skóp og gaf, sem tár í rúmsins tóm. Það haf er brunnur auðs og afls, er orkugjafi hins mikla tafls um lífsins dýra dóm. En nú í dögun vi'tum vér oss varnarskyldu að höndum ber við sjávarlífsins safn, að valda helgi íslands alls, um Unnarslóðir dals og fjalls, í lög við lands vors nafn. Ljóð eftir Tryggva Emilsson Vér Eylands börn við ægisskör, með ævitengsl við djúpsins kjör, það haf er lífs vors hlíf. í brimi straums sem stendur laus't býr styrkur vor, hið gullna traust fyrir lands og þjóðar líf. Og þar við sköpunaflsins önn, sem ein er heilög, frjáls og sönn og lífsins dýra Lofn, í lands vors helgi fiska fjöld skal friðarhöfn á nýrri öld fyrir djúpsins dýra safn. Er boð af hafi grunntónn gnýr og goðasvörum að oss snýr, um hafsins heiðnu bú, að geyma vel hins gullna arfs á gróðamiðum lífs og starfs, sé helgi, traust og trú. Og lands vors nafn við íshöf yzt, með eylands dirfð í starfi og list, fær dýpri, hreinni hljóm, er frelsi knúin fiskigengd fær friðarmörkin landi tengd, í hafi helgidóm. Að nema lög þín Norðurslóð við neistakast frá stjarnaglóð og hvítra boða brim, er skyldugrein hjá þeirri þjóð sem þylur íslands sagnaljóð við þyngstu sjóa þrim. Til hafs vér sækjum björg í bú og blóðsins afl fyrir mennt og trú og föng í fólksins önn, því er oss landsins helgi í ha’f jafn heilög þeim sem lífið gaf, jafn sigurviss og sönn. Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins athugaði notkun fiskikassa sumarið 1969 og Hagræði- deild verkalýðsfélaganna á Norðurlandi hefur notað niðurstöðurnar við athugun á rekstraraf- komu fiskiskipa og frystihúsa. í Ijós kemur að fiskikassar eru bezta fjárfesting sem sjávarút- vegurinn á kost á. Þeir færa útvegsraörumn, sjómönnum og frystihúsum aukinn hagnað, því kassafiskur gefur hærra verð, minni rýrnun, betri flokkun og nýtingu. Endurskoðaðfr útreikningar Hagræðideildar, mið- aðir við ástand og verðlag í ágúst 1971, sýna að áætla má auknar greiðslur til sjómanna á fiski- skipum fyrir hvert tonn af kassafiski (þorskur og ýsa) rúml. 600 kr. og hagnað útgerðar á hvert tonn um 600 kr. (fiskiskip) og upp í 930 kr. (tog- ari). Veitum og sendum nánari upplýsingar. Ný stökkbreyting er framundan. Fram- leiðslan er komin í fullan gang. Kassarnir erU' gerðir úr ABS harðplastefni sem er nýtt á heimsmarkaðnum, harðara, sterk- ara og léttara en áður hefur þekkzt. Nýjung sem gefur bættan hag. ★ 90 I kassar taka 45—50 kg af fiski ★ ganga hver ofan í annan tóm- ir, en sitja stöðugir hver á öðrum, séu höfð endaskipti ★ ávalar brúnir, handhægir, létt- ir ★ ótrúlega auðvelt að þrífa. Margvísleg not möguleg í iðnaði og hvers konar þjónustu, s. s. í kjöt- og fiskvinnslu, við vöruflutn- inga o. fl. Framleiðum tvær gerðir fiskbakka fyrir frystihús, einnig úr ABS. — Leitið nánari upplýsinga. Umboð: KRISTJÁN G. GÍSLASON HF. Hverfisgötu 6, Reykjavík. íslenzkir sjómenn og útvegsmenn eru fljótir að tileinka sér tækninýjungar og líta ekki við öðru en því bezta: FISKIKASSAR Fiskikassar tryggja hærra verd og betri nýtingu Þjóðviljinn er þýðingar- mestur fyrir þá sem fylgjast með verkalýðs- málum Kaupið Þjóðviljann Fylgizt með TJ tí 5> o £ u O & Oi 3 *o u :0 > O3 >o w a *o 12 M ‘=> !5 a ía bo ^ <u w t—i s > a Q a ‘O > A í

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.