Þjóðviljinn - 30.12.1971, Page 2
2 SÍÐA — IjJÖÐVH'UBENN — Pi!mimtoKÍa(ður 30. desemlbe9’ VjTJX.
Minrting:
Asta Sigurðardóttir
Fædd 1. apríl 1930, dáin 21. desember 1971
Ásta Sigurðardóttir
Kveðja
Öll þessi týndu blóm.
Tíbráin á hvítu vorkvöldi.
Nú kveðjum við þig
við sem þú gafst svo mikið
við sem skuldum þér svo mikið.
Vertu sæl Ásta.
Geymi þig Guð.
UNNUR EIRÍKSDÓTTIR.
,,'Ég átti draum.
Það var draumur. sem átti
fyi-ir sér að rætast, hvað er
fremur sjaldgæft um drauma.
Ég beið þess í tilMöikkun að
hann rsettist. Það muinidi verða
einhvem sólskinsdag í mai
(þegar alit getur skeð) eða
bláa vomótt, um það bil sem
morguninn les sig á gullreip-
um upp í himininn.,
Þessi drajumiur var alveg ó-
trúlega dýrlegur, — um sjald-
gæfflt djáisn, og óg undraðist
að mijr skyldi hafa dreymt
hann.“
Með þessum orðum hefst
sagan Draumurinn, sem rúm-
lega tvítug stúlka sendi frá sér
í bókarformi árið 1952. Það
er draumurinn um ástina til
lífsins. — draumurinn um
fegurðina og þá sælu kon-
unnar að Vera til þess kvödd
að bera í líkama sinum kveikj-
una að nýju lífi Hvílík dýrð.
Og í fögnuði hjarfcans lifir hún
hverja stund í tilhlökkun. þar
til einhvem daginn, að hún
hrakkur upp við það, að þetta
nýja líf, bamið hennar, er
ekki velkomið í þessa veröld
og hún mætir skilningsleysinu
og þjáningunni og síðan
grimmdinni í umhverfinu efn-
islega og andlega. Þessa harm-
sögu segir Ásta Sigurðardóttir
á svo einstæðan hátt og með
þeirri fullkamnu snilli sem
þeim einum er fært að tjá,
sam hefur hlotið náðargáfuna.
En þetta var ekki fyrsta
verk hinnar ungu 'Skáldkonu.
Áður hafði hún birt í lista-
tímaritinu Líf og Mst smásög-
umar: Sunn-udagskvöld til
mánudagsmorguns oB Gatan í
rigningu en þær sögur hafði
hún skrifað. er hún var að-
eins nítján ára gömul.
Þegar fyrsta sagan hennar
birtist í Líf og list kynnti
ritstjórinn skáldkonuna með
þessum orðum: „Ungfrúin er
tvítug, snæfellsk, kennari- að
mennt model að atvinnu. legg-
ur gjörva hönd á margt: yrkir,
málar, teiknar, rennir og
skreytir leirker; auk þess drif-
fjöður i endurreistum atorn-
skáldaklúbbi.,‘ Og þegar sag-
an: Gatan í rigningu birtist i
sama tímariti, sagði ritstjórinn:
,,Enginn efi er á þvi, að með
koomu nýrrar bókar veitir Ásta
fersku og beitu blóði inn í ís-
lenzkt bókmenntalíf því að
leitun er á skáldsagnahöfundi,
sem fer jafn glaesilega af stað
og hún út á hina torsóttu og
vandrötuðu rithöfundabraut."
Og tíu árum síðar sagði
Sverrir Kristjánsson í ritdómi:
„Þegar fyrstu sögumar eftir
Ástu Siguðardóttur birtust í
Lífj og Mst fyrir rúmum ára-
tug, mun flestum karlmönnum
að mininsta kosti hafa komið
saman um, að nú væri risin
upp meðal vor penriafærasta
kona á íslandi."
Þannig kom þessi unga, fal-
lega og fluggáfaða stúlka fram
á sjónarsviðið Hún var ekki
nema sextán ára þegar hún
kom til höfuðstaðarins til þess
a'ð nema og starfa. En það var
eins og hún stigi fram alsköp-
uð að andlegu og líkamlegu
atgervi. Hún kunni utanað
ljóðabækur margra skálda og
hafði á hraðbergi sögur og til-
vitnanir úr bókmenntum ald-
anna þjóðsögunum og fomsög-
unum.
Það lá > loftinu, að þessar-
ar ungu stúlku biði eitthvað
mikið. Hún bar í sér mikinn
lífsþorsta og þurfti að njóta
þess dýrasta, sem líffð gat
veitt, en jafnframt því stráði
hún kringum sig ódáinsgjöf-
um.
Hún var s/uðræn i útliti, bar
höíuðið hátt meg nokkru stolti
í fasi og tinniusvart bárið
hrundi í bylgjum niður á herð-
ar. Það var hljóðlát og tíguleg
reisn í fari hennar. en i aug-
um hennar var fjarræn og
austurlenzk dýpt
Og hún eignaðizt m-arga að-
dáendur Og þeir komu og
færðu henni „gull, reykelsi og
myrru“ krupu henni og lutu
hennL Þeir dóðust að andagift
hennar og ritlist og hún sóaði
auðlegð anda síns öllum
stundum í „nærveru sálar."
En er stundir liðu, var eins og
hrifisað væri til hennar úr öll-
um áttum jaftat úr birtu
vordagsins og sói suiroarsins
sem hinum myrku löngu nótt-
um haustsins. Hún var við-
kvæm fyrir hræring-um roainn-
legs Mfs oe hjarta hennay sió
vinstra megin í barmi i takt
við hjörtu hinna þjáðu smáðu
og undirokuðu þeirra sem
þráðu réttlæti, en lifðu í
skuigga. Hún var einörð í skoð-
unum og sló aldrei af til sátta.
ef um líf lítilmiagnans var að
teflia, fyrr en bætt baifði ver-
ið úr.
Ásta var fædd á Litla Hrauni
í Kolbeinsstaðahreppi í Hnappa-
dalssýsiu 1. apríl 1930 Por-
eldrar hennar voru Þóranna
Guðmundsdóttir og Sigurður
Benjiamiín'Jónsson, er bæði eru
af snaefellskum ættum. Þær
voru tvær systur Oddný tveim-
ur árum yngri. og ólust upp
á Litla Hrauni. Bærinn þeirra
var í hrauninu & sjávarsitrönd-
imni sumoam við prestssetrið
Stóráhraun. Það er harðbýl og
afskekkt jörð. Þær voru mjög
samrýmdar þessar gáfuðu syst-
ur, bæði í leik, námi og margs-
konar samvinnu eftir að bær
komust til fullorðins ára. Hélzt
sú srystravinátta milli þeirra
alla tið
Ásta lauk kennaraprófi tví-
tug að aldri, en hafði j-afn-
framt stundað nám í ýmsum
listum, að miklu leyti á eig-
in spýtur Hún var mjög góður
teiknari og margs konar banp-
yrðir léku í höndum hennar.
Þá la® hún ýmsar fræðigrein-
ar oe varð t.d. mjög vei a<8
sér í grasafræði.
Ritstörf stundaði hún að-
eing í hjáverkum. Auk Draums-
ins, sem fyrr er getið, kom
út eftir hana smásagniasafnið:
Frá sunnudagskvöldi til mánu-
dagsmorguns, tíu sögur. Þá
birti bún smásögur í Tímiariti
Máls og menningar og tíma-
ritinu Birtingi. en aðeins fá
ljóða henmar hafa birzt á
prenti,
Ásta var langtímum sjúk á
seinni árum og átti við margs
konar eríiðleika að striða Hún
eigna'ðist marga góða vini auk
nánustu skyldmenna. Einn
þeirra er verðugt að nefna,
þegar hennar er minnst. Það
er Þorgrimur Jónsson gullsmið-
ur. Hann veitti henni marg-
háttaða aðstoð á erfiðum
stundum oe brást efcki, þegar
mest reyndi á. Átti hún heima
í húsi hams á annan áratug
og þar íézt hún 21. desember
síðastliðinn, 41 árs að aldri.
Faðir hennar er látinn fyrir
nokkrum árum, en Þómnna.
móðir hennar, lifir enm, rúm-
lega áttræð.
Ásta lætur eftir sig sex
böm Elzt þeirna er Geir,
stúdent, er nú situndar háskóla-
nám. Faðir hans er Jóbannes
Geir listmálari. Þá átti hún
fimm böm meg Þorsteini Jónsr
syni frá Hamri. Þau em á
aldrinum frá sj'5 til þrettán
ára: Dagný, Þórir Jökull.
Böðvar, Kolbeinn og Ása. Ár-
ið 1967 giftist Ásta Baldri
Guðmundssyní úr Reykjavik.
Þeim varð ekki bama auðið.
Þegar Ástu er minnst nú,
hvarflar hugurinn tii ummæla,
sem Einar Hjörleifsson Kvar-
an hafði um vin sinn og skáld-
bróður. Gest Pálsson látinn.
Hann sagði: „Það eru ekki
nema örfáir menn með þjóð
hans, sem hafa nokkra hug-
mynd um, hvílíkir fjársjóðir
af íslenzku listrænu mannviti
flutti sig af iörðinni með hon-
um.“
Það er víst, að Ásita Sig-
urðardóttir skáldkona flytur
fjársjóði af íslenzku Ustrænu
mannviti með sér af jörðinni.
En hún skilur lfka mlkil dýr-
mæti eftir.
Gunnar M. Magnúss.
*
I bvert sinn sem ég hef le&ið
sögur Ástu Sóigurðardóttur, hef-
ur mér fundizt ég vera að
ganga upp stiga þar sem hver
trappa væri gerð úr hreinum
og traustum marmiara, og svo
við sögulok hefiur mér þótt eg
standa nákvæmlega á efsÆu
tnöppuinini — en,gin trappa væri
eftir — og um leið heifiur stig-
inn verið horfinn. En í stað
þess að vera staddur í lausu
lofti, hef ég aftur staðdð á jörð-
inni, fastarj fótum en þegar ég
hóf lestur söguinnar.
Ég veit ekki hvað veldur þvi,
aö mér þykja sögur hennar
upprunalegri og sannari en
flestra annara manna. Eta eitt
er víst: þjóðin hefiur nú misst
mikinn smásagnahöfund £
blóma lífsins, höfund sem hef-
ur skilið henni eftir dýrmætan
fjársióð.
Bömum hemnar, eiginmarmi,
ættintriuim og vitnum votta ég
samúð.
Stefán Hörður Grímsson
*
Dökkhærð kona og skarpleit.
líkust því sem við blasir í þjöð-
sögum eða frásögnum af suð-
rænum framandleik — þannig
kom Ásta Sigurðardlóttir manni
fýrir sjónir. Hún gat verið
völva ellegar seiðkona, og i
fljótu bmgði gat manni fumd-
izt það rnijög á huldu, hvort
heldur hún væiri góð eða ill.
En það mátti einu gilda; hún
hlaut allavega að vera með ein-
hverjum hætti öðruivísd en
venjulegar konur.
Eftir meira og minna sam-
felld kyruni um tyttugu ára
skeið, mimnist ég þess einna
helzt við leiðarldk, hversu þessi
dökMeita, suðræna og einatt
brúnaþumga stúlka átti til
mæman skilning á líf fóilks og
ríka samúð með því; ef hún
var nolklkrum ill um dagana, þá
hygg ég það hafi helzt verið
i eigim garð.
Hún var óvenjuleg um margt
annað en útlit. Listgáfa hexm-
ar var á ffleiruim sviðum en
einu, og kraftar hennar dreifð-
ust meðal annars fyrir þær sak-
ir; og f list sinni var húm nokk-
uð sérstæð, þótt það litla sem
eftir hana liggur bendi ekki á
sérlega fjölhæfni
Ein af smásögum hennar, sem
ég las fyrir mörgum árum og
man eikiki á stunddnini hvað hét,
fjallaði um fngl í búri. Mér
fannst sú saga likari ævintýr-
um Oscars Wildes en flest ann-
að sem ég hef séð frumsamið
á íslenzku. Hér er hvorki stað-
ur né stumd til að rekja efni
neinnar einstakrar smósögu. En
má vera, að fuglinn í sögu Ástu
hafi átt fleira skylt með henni
sjálifiri cg örlögum hennar en
aðeins það að vera í búri.
En nú heftir ekkert búr leng-
ur. Sú sem mammd fannst stund-
um vetra í álögum hefur hlotið
fjaðurham sinn á ný til þess
flugs sem engdnn fær hindrað.
Elías Mar.
Kveðja firá Rithöfumdalflélagi
íslands.
Einn félagi okkar, Ásta Sig-
urðardóttir skiáldlkona er fallin
frá. Hún lézt að heimili sínu
Nesvegi 12 hér í borg þriðiu-
daiginn 21. desember. Ásita var
snæfellsk að uppruna, fædd að
Litla-Hnaiumi 1. april 1930. Hing-
að til Reykjavíkur kom hún ung
að árum, settist í Kenoaraskól-
ann og lauk þaðan piófi með
ágætum 1950. -Litlu síðar, eða
1951 birti hún í Lífi og list
fyrstu smásögu sína, Sunnu-.
dagsikvöld til mónudagsmorguns
og vakti þá þegar óskipta at-
hygli allra þeirra sem fýlgdust
mieð nýjungum í íslenzfcuam
bókmenntum. Ásta bdrti fleiri
sögur í blöðum og tímaritum og
gaf eima þeirra út sérprentaða.
Drauminn, en allar báru þær
vitni um fróbæra ritleikni bess-
arar gáfuðu skáldkonu. 1961 gaf
Helgafell út smósagnasafn
hennar sem bar hedti fyrstu
smósögumnar Sunnudagskvöld
til miánudagismorguns. Skáld-
konan var aulk bess í betralagi
drátthög sem sjá má á bókum
henmar og anmarra sem hún
skreytti.
Margslungin Mfsótökin ollu
þessari viðkvæmu konu miklu
hjartabrimi, og stundum
skammt milli ‘glits og döfckva
Því urðu ritverk hennar máski
minni að vöxtum en vimvr
henmar hefðu óskað, en nióig til
þess að hún setti svip á bók-
menntir samtiðar sinnar og
engan miyndi undra þó þessá
sérkennilegi höflumdur yrði við-
fangseflni ungra vísindamanna í
bókmenntum á komandi tímum.
Ásta Sigurðardóttir er öllum
harmdauði sem þekktu hana
fyrr og síðar.
Við félagar hennar semdum
bomum henmar, eiginmanni os
öðrum ástvinum okkar samúð-
arkveðjur.
R'thöfundafclag Islands.
Ásta Sigurðardóttir er óað-
skiljanleg æskuárum mínum og
uppvexti. Ljóminn yfir árun-
um á Laugavegi 11 væri ekki
allur nema vegna þess að hún
kom þar vdð sögu. Hún brá
síkum óróa á umhverfi sdtt
í þá daga, að mörgujm góð-
borgara leizt hreint ekki á
blikuna. Þessi menningarsögu-
legi þáttur Laugavegs 11 hefst
að mínu minni á árumum 1951-
52, því að staðir eins og
Kommakaffi og Hressingarskál-
inn stóðu á gömluim merg. Þá
var tímaritið Líf og List ekki
orðið dýrmætur safngripur,
heldur ört vaxandi sproti sem
Steingrímur Sigurðsson sinnti
með glæsibrag. Og þar átti
Ásta sínar fyrstu sögur. Sú
fyrri, Sunnudagskvöld tilmánu-
dagsmorguns í aprílheftinu 1951
og Gatan í rigningu í ágúst-
heftimu. Og það má með sa-nni
segja að smásögumar og Ásta
sjálf vöktu athygM allra lands-
manna í einni svipan.
Fyrir réttuim 20 árum skakk-
blíndu Reykvíkingar auguim á
unga stúlku fyrir það eitt að
voga sér að ganga um götur
bæjarins á köflóttum síðbux-
um. Það þarf því engan að
undra, þótt Ásta Sigurðardótt-
ir ætti ekki aMsstaðar upp á
pallborðdð með sinni vægðar-
lausu framkomu við umhverf-
ið. Hún gekk á síðum buxum
og víðum peysum, reykti á
götum úti og hafði stundum
helzt til hátt á almannafæri.
Hún talaði tæpitungulaust með
sínum sterka og sérkennilega
rómi. og fólk lagði eyrun við
því sem hún sagði, Hún var
komin af Snæfellsnesinu, hafði
lokið prófi frá Kennaraskólan-
úm, hún var fyrirsæta mynd-
listarmianna, sem þótti í bá
daga vera hálfgerð goðgá, og
var fyrir vikið oft kölluð Ásta
módel. Hún stundaði leirkera-
smíði í Funa. og i munni
margra festist það nafn við
hana, Ásta í Funa.
Með okkur Ástu tókust góð
kynni, það var að mig minnir
veturinn 1952, og vinéttan hélzt
með okkur alla tíð síðan.
Stundum skildu leiðdr,, en
aldrei var svo langt á millí
okkar, að þær lægju ekki auð-
veldlega saman aftur. Hún var
ákaflega trygg og vinföst, eins
og títt er urn fólk sem ekfci
blandar geði við alla að fyrra
bragði. Hún var mjög kát og
fjörug á þessum árum, frásögn
hennar mergjuð og taktföst,
hún átti líka margt í sjóði og
miðlaði óspart af. Mér fannst
hún oft á tíðum allt að þvi
mögnuð í allri sdnni gerð.
Henni virtist oft auðvelt að
ryðja öllum andlegutn torfær-
um úr, vegi með einni setningu
eða hvassri athugasemd. Hún
var líka léttstríðin við fólk,
og þá oft upp í opið geðið á
því, Mifraði ekki eftir balkimu
á kunningjum sínum eða öðr-
u,m.
Það sem mér er einna minn-
isstæðast við útlit hennar er
mjög sérstætt bros, strákslegt
stríðnislegt en ákaflega innilegt
bros, sem læddist einhvemveg-
inn feimnislega yflir stóran
munninn og út í munnvikin og
lá þar eins og í læðingi stund-
arkorn og náði svo öllu andlit-
inu. Svo var eins og hún liti
oft undan og frá þegar þetta
bros var að búa um sig.
Engu að síður fannst mér
megintónninn í lundarfari
hennar vera þungur og hægur
og eiginlega angurvær, og dul
var hún alla tíð, og með árun-
um varð hún allt að því ar-
mæðulega sjálfhæðin.
Ásita eignaðist ung soninn
Geir með Jóhannesi Geir Jóns-
syni listmálara. Hanm ólst u,pp
hjá mióðurömimu sinni, ég man
vel eftir honum þegar hann var
lítiH drengur, hann hafði éld-
rautt hár og fjöldamiaingar
frekmur og vildi helzt alltaf
vera að grúska í állskoinar bók-
um. Seinna tók hún höndum
saman við Þorstedn skáld flrá
Hamri, og þau bjugigu saman í
mörg ár og eignuðust fimm
böm. Þá urðu eðlöega mikil
þáttaskil í lífi Ástu Sigurðar-
dóttur, og það duldist engum
sem toom á Nesveginn bversu
óskoraða ánægju hún hafði ef
litlu börmunum sfnum. Hún var
þar eins og í öllu öðtau, mjög
sérkennileg og ákafllega
skemmtileg móðir. Mér líðu-r
sednt úr minni hvernig hún
söng fyrir þau og kvað og las
fyrir þau þulur, og ekki sízt
hvemig hún talaði við þau og
Iagði sig fram um að fá svörin
hjá þeim. Ég sá hana líka
teikna fýrir þau allskonar
sfcringilegar myndir og mynzt-
ur. Og bömin máðu lífca skjót-
um oig skemmtilegum þroska
svo kornung sem þau voru.
Þessi bráðgeri bamahópur sem
var samansettur af rauðkollum:,
glókolum og einum svartkolli,
eru: Dagný, 13 ára, fædd 1953,
Þórir Jöfcull 12 ára, f. 1959,
Böðvar XI ára, f. 1960, Kolbeinn
9 ára, f. 1962 og Guðný Asa 7
ára, f. 1964.
Þegar árin liðu þótti það
ráðlegra að fá öðrum uppeldi
þessara bama í hendur. Ekki er
því að leyna, að aðalástæðan lil
þess var þung óreigla Ástu og
þverrandi lífsorka, Eftir því
sem ég bezt veit haifa bau oll
hlotið gott fóstur að öknum,
Hraunhreppi í Mýrasýslu.
Líf Ástu var oft raunarsaga,
og hún sjálf eitt af minnstu
bömum guðs, en hún varð aldr-
ei alger einstæðingur. Fyrir það
ber að þakka Þorgrími Jónssyni
gullsmið á Nesveginum, sem
alla tíð hélt hlífiskildi vfir
henni og reyndist henni tak-
markalaus vinur. Hann hefur
núna mikið misst.
Ég sendi honum, öllum böm-
unum hennar Ástu og öðrum
ættingjum hénnar samúðar-
kveðjur og óska beim alls góðs
f framtíðinni,
- Ásta gleymdist beim ekki
sem þekktu hana, hún brá
„sterkum SVip yfir dálftið
hverfi“. og bað veit trúa miín,
að LyMa-Pétur hrindir sinni
bungu hurð upp á gátt og leiðir
hana Ástu Sigurðai’dóttur bétt
við hönd sér í himininn inn
Isafirði 29. 12. 1971
Asdís Kvaran Þorvaldsdóttir