Þjóðviljinn - 28.04.1972, Qupperneq 4
4 SlÐA — í*JÓÐVtEtJI'NN — Föstudagur 28. apríl 1972.
— Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Cltgefandl: Utgáfufélag Þjóðviljans.
Framkv.stjórl: EiSur Bergmann.
Ritstjórar: Sigurður Guðmundsson, Svavar Gestsson (áb.).
Auglýsingastjórl: Heimír Ingimarsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýslngar, prentsmiðja: Skólavörðustig 19. Siml 17500
(5 línur) — Áskriftarverð kr. 225.00 ó mánuði. — Lausasöiuverð kr. 15.00
Jóhannes ár Kötlum látinn
§ú mikla hetja ljóðlistar og sósíalisma Jóhannes
úr Kötluim er látinn. Jóhannes var um áratuga-
skeið fremsta skáld Íslendinga, hann gaf þjóð
sinni ljóðperlur sem um langa framtíð munu verða
bömum þessa lands í minni. Jóhannes úr Kötlum
orti baráttuljóð; sífelld iða þjóðlífsins snerti hjarta
hans og hann ffreypti í ljóð tilfinningu sína og
lífssýn og sýndi öðmm mönnum í siónhending
glögga og skýra mynd umhverfisins. Jóhannes úr
Kötlum var einn af fremstu barátfumönnum ís-
lenzkra sósíalista oe sat uim tíma á albingi fyrir
Sameiningarflokk albýðu — Sósialistaflokkinn,
gegndi fjölmörgum öðrum trúnaðarstörfum á veg-
um sósíalista. flutti allt fram á seinni ár ræður
sem þeir eiga enn í minni sem voru svo lánsamir
að fá að hlýða á.% Hann skrifaði ótalmargar greinar
um stjómmál. bókmenntir. listir. — En Jóhann-
es úr Kötlum er nú látinn, 72ia ára að aldri. Þjóð-
viljinn mun minnast hans síðÞ-*’
Heilhrigðisþjónustan
Mei frumvarpinu er ekki
gengið á hlut Reykvíkínga
Varast þarf að gera staðsetningu heiisugæzlustöðv-
anna að flokkspólitísku máii, sagði heilbrigðisráðherra
Fruimivarpið um heilbrigðis
bjónustu hefur nú verið rætt
á 3 fumdum í neöri deild og
lauk 1. umræðu um frumvarpið
í gær. Allmargir þ'ingmenn
hafa tekið til máls og gert at-
hugasemdir við einstaka þætti
frumvarpsins og komið fram
með ábendingar. Þrátt fyrir þá
gagnrýni sem fram hefur kom-
ið hafa þingmenn yfirleitt fagn-
að jþeimi meginstefnu, sem
mörkuð er með frumvarpinu.
Magnús Kjartansson, heil-
brigðisráðherra, svaraði í lok
umræðnanna í gær þeim helztu
athugasemdum, sem fram
höfðu komið. Vék Magniús m.a.
að þeirri staðhæfingu Ragn-
hildar Helgadóttur (S) að með
frumvarpinu væri gengið á
hlut Reykvíkinga með því að
gera ráð fyrir einum héraðs-
lækni í Reykjavíkurhéraði, en
það tekur yfir svæðið frá Her-
dísarvík að Hvalfjarðarbotni.
Magnús kvað það rétt að mik-
íll mueur væri á stærð hér-
aðanna eins og frumvarpið ger-
ir ráð fyrir að þau skiptist.
Nauðsynlegt væri binsvegar að
Reykjavíkurhéraðd, Reykjavík
og nágrannábyggðum væri
stjórnað sem einni heild. Á
þessu svæði væru helztu
sjúkrahús landsims og á því
væri miMl nauðsyn að þau^
tækju upp aukna samvisnnu og
verkaskiptingu sín í miUi.
Sagði Magnús að því færi
fjarri að í frumvarpinu fælist
nokkur árás á Reykvíkinga,
eins og Ragnhildur Helgadóttir
hefðd gefið i skyn. Það væri
t.d. sérstaklega tekið fram í 24.
gr. frumvarpsins, að í Reykja-
vík skuli Heilbrigðismálaráð
fara með st.iórn heilsuigæzlu-
stöðvanna.
Varðandi heilsuigæzlustöðv-
arnar almennt, kvaðst Magnús
vilja vara mjög við því að
staðsetning þeirra yrði gerð að
flokkspólitísku máli, heldur
þyrftu þingmenn og aðrir sem
um þessi mál mymdu fjalla
í héruðunum að ledtast við að
• skapa sem víðtækasta sam-
stöðu.
Verður námar greimt frá þess-
um umræðum síðar.
páeinir aðilar hafa lagzt svo lágt að lýsa yfir óíta
við brottflutning bandariska hersins úr land-
inu á þeim forsendum að þá missi fjöldi manns
aívinnu sína. Hér er í senn um að ræða hina mestu
firru og lágkúrulegustu tegund hemámshugar-
fars. Geir Gunnarsson albingismaður svnir ereini-
lega fram á þetta í Þjóðviljanum í gær. Þar kem-
ur fram að á næstu árum mun umferð um Kefla-
víkurflugvöll aukast stórlega. Gert er ráð fyrir að
flugtök og lendingar verði tvisvar sinnuim fleiri
eftir átta ár en nú er og að farþegafjöldi um flug-
völlinn verði tvær miliónir manna árið 1980. í
stoð 700.000 1970. Til þess að starfa við alþjóða-
flugvöll sem tekur Við svo mikilli umferð þarf
þrjú þúsund manns árið 1980, en til samanburðar
má geta þess að nú starfa í tengslum við atvinnu-
rekstur hersins liðlega 700 fslendingar. Með þess-
um samanburði kemur í ljós að Mintoffsáróður
nokkurra aðila um atvinnuleysi á Suðumesjum við
brottflutning hersins er fásinna ein. Ennfremur
má benda á að einhverjar beztu verstöðvar lands-
ins em á Suðumesjuim og því er ekki ástæða til
þess að ætla annað en að fiskiðnaður á Suðumesj-
um geti á næstu ámm og áratugum bætt við sig
enn fleira fólki til starfa
J-|ins vegar lýsir umtal ákveðinna aðila um at-.
vinnumissi við brnt'tför bersins bugarfari sem ekki
er f«lenóinp‘um sæmandi. en þessi tegund hugarfars
er ein aflnjðing hemámsins og sennilega sú ömur-
legasta Mo^ brottflutningi hersins úr landinu lét't-
ir ekki einasta hemámi landsins heldur einnig
hugarfarsins og þá munu íslendingar á Suðumesj-
um starfa við íslenzkar atyinnugreinar eins og
aðrir landsmenn
Stjómartrumvarp
um vátryggmgar
19 aðilar reka tryggingarstarfsemi
Lagt 'hefur verið fram á Al-
þingá stjómarfnamvarp um vá-
tryggingastarfsemi. Frumvarpið
er samið að nefnd. sem Eggert
G. Þorsteiinsson fyrrverandi
tryggingamálaráðherra skipaði
árið 1970, efl formaður nefnd-
arinnar var Benedikt Sigur-
jónssotn, hæstaréttardómari.
Tnn 1 frumvarpið hafa, eftlr að
neflndim skilaði því verið felld-
ar breytingar, sem Kr. Guó-
mundur Guðmundsson, trygg-
ingastærðfraaðingur, lagði til að
gerðar yrðu á því. Einnig hafa
verið teknar inn í frumvarpið
nokkrar breytingar. sem Er-
lendur Lárusson. trygginga-
fræðingur, lagði til að á því
væru gerðar. Var frumvarpið
þannig breytt rætt á fund'i
allra þeirra aðila, sem að samn-
ingu þess stóðu og þar gengið
frá þvi eins og bað nú liggur
fyrir.
1 greinargerð flrumvarpsins
segir m.a.:
Vátryggingar skipta rruklu
máli í nútíma þjóðfélagi og
varða flesta, ef ekki alla, þegna
bjóðfélágsins. Um hendur vá-
tryggingaraðilja rennur mjög
mikið fjármagn. Það er þjóð-
félagsnauðsyn að vátryggiingar
séu reknar á heilbrigðu;m
grundvelli og gætt sé hags-
muna vátryggingartaka og vá-
tryggða. Vátryggingartakar og
vátryggðir hafa yfirleitt ekki
aðstöðu til að meta fjártiags-
aðstöðu þeirra vátrygginigar-
aðilja, sem þeir skipta við og
gera sér í raun grein fyrir
þeim kjörum sem þeir semja
um. Af þessum ástæðum er
nuðsynlegt, að ríkisvaldið taki
að sér að hafa eftiriit með
starfsemi vátryggingarfélaga og
fái rúmar heimild ir til að taka
í taumana. ef eittihvað fer úr-
skeiðis.
. >á kemur fram í greinar-
gerð nefndarinnar, að 19 stofn-
anir raka hér tryggingarstarf-
semi, samkvæmt sérstökum
lögum og eru þar af 9 báta-
ábyrgðarfélög. Þá reka hér
einnig vátryggingastarflserhi 21
hlutafélag, 3 gagnkvæm félög
og 1 féiag á vegum bifreiða-
tryggingarfélaganna. Af hluta-
félögunum er raunar eitt þrota-
bú.
Við samningu frumvarpsins
hefur nefndin aðallega stuðst
við lögigjöf annars staðar á
Norðurlönídum.
Oriof húsmæðra
Lagt hefur verið fmm á Ai-
þingi stjómarfrulmvarp um or-
lof húsmæðra og mælti Hanni-
bal Vaidimarsson, félagsmála-
ráðherra fyrir frumvarpinu
neðri deild í gær. Meginbreyl
ingtn, sem frumvarpið felur
sér frá gildandi lögum er sú
að framlag ríkissjóðs til orlofs
húsmæðra er tífaldað, þ.e.
hækikað úr kr. 10 í 100 kr. fyrir
hverja húsmóður í landinu. Til
--- Vicvfnir hlutur sveitarfélaga
ferið mun ríflegri en ríkissjóðs,
on frumvarpið gerár ráð fyxir
að framlag sveitarféJaga verði
50% á móti framlagi ríkisins.
F élagsmálaráðherra gat þess.
að árið 1970 hefðu aðeins 2,3%
þeirra húsmæðra, sem rétt eiga
til orlofs, notið þess.
í 6. gr. laganna segir: „Sér-
hver kona, sem veitir eða hefur
veitt heimili forstöðu, án launa-
greiðslu fyrir það starf, á rétt
á að sækia um orW.“
Sssítlistar —
verklýðssinnar!
1. maí verður kaffisala Kveii'
félags sósíalista til styrktar
Karólínusjóiði. Að þessu sinni
verður kaffisalam að Hallveig-
arstöðum og hefst kl. 3 s.d.
Félagskonur og aðrir velunn-
arar sjóðsins eru beðnir um að
gefa kökur til veitinganna.
Sjóðsstjórnin.
Utanrikisstefna
Sovétríkjjanna
Dr. Niikoiaj Lébédéf deildar-
farseti Slkóia aJþjóðlegra sam-
skipta í Moskvu, heldur fyrir-
lestur í I. kannslustofu Háskóla
Islan Js í kvöld 28. apríl og
hefst fyrirlesturinn kl. 21,00.
Fyrirlesturinn nefnist: „Utan-
ríkissteflna Sovétríkjanna”, og
verður fluttur á ensku.
Dr. Nikolaj Lébódéf er höf-
umdur ýmissa sérhæfðra verka
um alþjóðasamskipti og utan-
ríkismálastefnu Sovétríkjanna.
og hefur haldið fyrirlestra urn
það efni við háskóla víða um
lönd.
(TiJk. fró Háskóla Islands).
Tók sæti é
þingi i gær
SSigurður Blöndal, . skógar-
vörður á HaJlormsstað tók í
gær jpeti á Alþingi, sem vara-
maður Lúðvíks Jósepssonar,
viðskiptaráðherra, sem er á
förum til útlanda í opinberum
erimdagerðum.
Sigurður Blöndal sat á þingi
fyrir skemmstu, þá einnig sem
varamaður Lúðvíks.
Smurt brauð
Snittur
Brauðbær
VII) OOLNSXOKG
Síml 20-4-90
Kópavogs-
apótek m-íwwu
Opið öll kvöld»tiiiikl.
7, nema laugardaga
til kl. 2, sunnudaga
milli kl. 1 og 3.
Sími 40102.
Sinfóníuhljómsveit íslands
Aukatónleikar
í Háskólabíói fimmtuaginn 4. maí kl. 21. Stjóm-
andi Ragnar Bjömsson.
Flutt verður:
Stabat Mater eftir Dvorak.
Flytjendur: Guðrún Á. Símonar, Svala Nielsen,
Magnús Jónsson, Jón Sigurbjömsson. Óratóríu-
kórinn og Karlakór Reykjavíkur.
Aðgöngumiðar seldir í Bókabúð Lárusar Blöndal,
Skólavörðustíg 2 og í Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mimdssonar, Austurstræti 18,
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Að lokimni kröfugöngu og útifundi verkalýðssamtakanna 1. mai
heldur AlþýðubandaJagið í Reykjavík fund á Hóte) Borg. >ar
flyfcur ræðu Magnús Kjartansson ráðherra og Guðrún Tómas-
dóttir söngkona syngur nokkur lög með undirleik Ólaf.. Vignis
Albertssonar. Félagar og aðrir stuðningsmenn! Drekkið siðdeg-
iskaffflð á Hótel Borg. Takið með ykkur gesti. — Stjórain.