Þjóðviljinn - 13.06.1972, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 13.06.1972, Blaðsíða 12
FUCHS MEÐ NÝTT HEIMS- MET í SPJÓT KASTI A-þýzka stúlkan Ruth Fuchs setti nýtt heimsmet í spjótkasti um helgina á frjálsíþróttamóti í Pots dam í A-Þýzkalandi. Kast- aði hún 65,06 m. Eldra met- ið átti sovézka stúlkan Elena Gortsjakova og var það 62,40 m. Fuchs bætti sitt eigið a-þýzka met um heila 3,58 m. Það virðist Ijóst af þeim árangri sem náðst hefur í frjálsíþróttamótum i sum- ar, að a-þýzku stúlkurnar séu í sérflokki í fjölmörg- um greinum, og þeim fer stöðugt fjölgandi greinun- um sem þær eru beztar í. Vafasöm vítaspyrna færði FH sigurinn Mjög vafasamur víta- spyrnudómur varð þess valdandi, að FH sigraði Hauka 2:1 i 2.- deildar- keppninni s.l. laugardag, en í þeim síðari sóttu Hauk- arnir mun meira, án þess að þeim tækist að skora. FH átti eitt og eitt skyndi- upphlaup án verulegrar hættu. 011 mörkin urðu i fyrri hálfleik. Fyrsta markið i leiknum var skorað úr þessari vitaspyrnu. Það gerði Helgi Ragnarsson á 35. minútu. Spyrnuna bar að með þeim hætti, að Stefán Jónsson markvörður Hauka sló boltann frá markinu. Lenti hann þá utan i hönd eins varnarmanns Hauka, og vitaspyrnavar þegar dæmd! ? ? Aðeins nokkrum minútum siðar jafnaði Elias Jónasson fyrir Frh. á bls. 15 EINAR GUÐNASON VANN EINVIGIÐ VIÐ KJÆRBO Bridgestone-Camél keppn in í golfi, sem er opið mót með og án forgjafar, fór fram í 7. sinn á golfvell- inum í Keflavik um siðustu helgi. Flestir beztu golf- menn landsins tóku þátt í keppninni, og undir lokin varð hún að miklu einvígi á milli þeirra Einars Guðna sonarog Þorbjörns Kjærbo, og lauk því með sigri Ein- ars, sem fór 36 holur á 149 höggum, en Kjærbo fór á 154 höggum. Það er Bridgestone-keppnin sem er án forgjafar, en forgjöf er gefin I Camel-keppninni. Alls tóku yfir 80 keppendur þátt 1 mótinu. Keppt bar bæði á laugardag og sunnudag, 18 holur hvorn dag. Eftir fyrri dag keppninnar var Einar með 73 högg, Högni Gunn- laugsson 75 högg, en siðan komu fjórir jafnir í 3. til 6. sæti, þar á meðal Kjærbo og Bandarikja- maður að nafni John Everept. Siðari daginn varð geysimikil keppni á milli þeirra Einars og Kjærbos. Þegar leiknar höfðu verið 9 holur siðari daginn, hafði Kjærbo dregið svo á Einar,að að- eins munaði einu höggi. En á þeim 9 holum sem eftir voru tók Einar sig aftur á og sigraði með nokkrum yfirburðum á 149 högg- um. Þeir Kjærbo og Everept voru jafnir á 154 höggum, en i úrslita- keppni sigraði Kjærbo á annari holu. 1 f jórða til fimmta sæti urðu þeir Björgvin Hólm og Július R. Júliusson á 157 höggum, og i 6. sæti varð Jóhann Ó. Guðmunds- son á 158 höggum. Þetta mót er eitt af þeim sem gefur stig til landsliðsins. 1 Camel-keppninni, sem er for- gjafarkeppni, sigraði Jóhann Jósepssoná 135höggum nettó. 1 2. til 3. sæti urðu jafnir Sigurður Thorarensen og Helgi Hólm á 139 höggum, en Sigurður vann i úr- slitakeppni. í 4. sæti varð Sigurð- ur Hafsteinsson á 140 höggum. 7.00 Morgunútvarp Við sjóinnkl. 10.25 Dr. Jón- as Bjarnason talar aftur um fiskirækt 1 sjó. Sjómanna- lög. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Eftir hádegið Jón B.Gunnlaugsson leikur létt lög og spjallar við hlustend- ur. 14.30 Siödegissagan: „Einka- lif Napóleons” eftir Octave Aubry 15.00 Fréttir. Tilkynningar. 15.15 Miðdegistónleikar: Pianóleikur 16.15 Veðurfregnir. Létt lög. 17.00 Fréttir. Tónleikar. 17.30 Saga frá Lapplandi: „Lajla” eftir A. J. Friis 18.00 Fréttir á ensku 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Fréttaspegiil. 19.45 Islenzkt umhverfi 20.00 Lög unga fólksins Ragn- heiður Drifa Steinþórsdóttir kynnir. 20.30 Frá listahátið i Reykja- vik: Enski baritónsöngvar- inn John Shirley-Quirk syngur i Háskólabiói. Undir- leikari: Vladimir Askenazý a. Þrjár kansónettur og sönglag eftir Haydn. b. „Liederkreis” op. 24 eftir Schumann. 21.15 Faustus, magnus, maximus Ævar R. Kvaran leikari flytur erindi um fyr- irmyndina og skáldverkiö. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan: „Gömul saga” eftir Kristinu Sigfúsdóttur 22.35 Harmonikulög Karl Eric Fernström leikur sænsk harmonikulög með félögum sinum. 22.50 A hljóðbergi 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 Fósturbarnið. Fram- haldsleikrit eftir Carin Mannheimer. 3. þáttur, sögulok. Þýðandi Dóra Haf- steinsdóttir. Efni 2. þáttar: Lillemor Dahlgren, einstæð móðir, kemur barni sinu i fóstur, til þess að geta lokið námi. Fósturforeldrarnir, sem eiga engin börn sjálfir, taka miklu ástfóstri við fósturbarnið, og þegar að þvi kemur, að Lillemor vill fá barnið, er þeim þvert um geð að láta það af hendi. (Nordvision — Sænska sjón- varpið). 21.25 Setið fyrir svörum. Umsjónarmaöur Eiður Guðnason. 22.00 tþróttir. Umsjónarmað- ur Ömar Ragnarsson. Dagskrárlok óákveðin. Frá Húseigendafélagi Reykjavíkur: Af gefnu tilefni skal þeirri aðvörun beint til allra fasteignaeigenda i Reykjavik, að athuga gaumgæfilega hvort fasteigna- skattur sé rétt á eignir þeirra lagður og kæra til yfirfasteignamatsnefndar rikisins ef rangt er á lagt. Þá skal og sérstaklega vakin athygli á 3. og 4. mgr 5. 6. 8. gr. laga 8 frá 22. marz 1972 um tekjustofna sveitar- félaga, sem hljóða svo: 5. gr„ 3. og 4. mgr.: „Heimilt er sveitarstjórn að lækka eða fella niður fast- eignaskatt, sem efnalitlum elli- og örorkulífeyrisþeg- um er gert að greiða. Sama gildir um slfka Hfeyris- þega, sem ekki hafa verulegar tekjur umfram elli- og örorkulífeyri. Heimilt er sveitarstjórn að undanþiggja nýjar ibúðir og ibúðarhús ásamt lóðarréttindum fasteignaskatti i allt að tvö ár, eftir að afnot hefjast. 6. gr. Nú er afnotum fasteignar, sem metin er ein heiid, þann veg háttað, að greiða ber fasteignaskatt af henni sam- kvæmt báðum gjaldflokkum 2. mgr. 3. gr. og skulu þá þeir, sem annast mat nýbygginga og endurbóta fast- eigna, ákveða hlutfalislega skiptingu matsverðs siíkra eigna eftir afnotum.” TTm afstöðu Húseigendafélags Reykjavikur til þessarar skatt- álagningar visum við til rits félagsins „HÚSEIGANDINN”, útgefnu i febrúar 1972. Stjórn Húseigendafélags Reykjavikur. Húseigendur — Stofnanir Látiö okkur annast viðhaid á útihurðum yðar og harð- viðarkiæðningum. Leggjum áherzlu á mjög vandaða vinnu. Uppl. i sima 24663.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.