Þjóðviljinn - 13.06.1972, Blaðsíða 16
mmu/M
Þriðjudagur 13. júni 1972.
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavikur,
simi 18888.
Kvöldvarzla lyfjabúða
vikuna 10. júni—16. júni er i
Laugavegs Apóteki, Holts
Apóteki og Kópavogs
Apóteki.
Næturvarzla er i Stórholti 1.
Slysavarðstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn. Simi 81212.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
Tannlæknavakt i Heilsu-
verndarstöðinni er opin alla
helgidaga frá kl. 5— 6.
Hannes
Kjartansson
látinn
Þann 11. júni lézt i New
York Hannes Kjartansson
sendiherra Islands hjá Sam-
einuðu Þjóðunum aðeins 55
ára að aldri. Hann hafði verið
ræðismaður Islands i New
York frá þvi árið 1948 og aðal-
ræðismaður varð hann tveim-
ur árum siðar. Hann sat oft
þing S.Þ. sem fulltrúi Isíands
og árið 1965 var hann skipaður
sendiherra landsins hjá sam-
tökunum og gegndi þvi starfi
til dánardags.
Vikuritið Newsweek:
Bjöllu-
faraldurinn
í rénum
Malmö 11/6. Baráttan gegn
Kólóradobjöllunni heldur áfram á
suðurströnd Sviþjóðar og talið er
að um 100 þús. bjöllum hafi verið
komiö fyrir kattarnef siðan tilvist
bjöllunnar uppgötvaðist á mánu-
dag i siðustu viku. Sviar reikna
með að bjöllufaraldurinn sé i rén-
un þvi á sunnudag varð ekki vart
við auknar skemmdir i kartöflu-
görðum á ströndinni.
Danska lögreglan tilkynnti á
mánudag að bjallan hefði fundizt
i göröum á Suður-Jótlandi og hafa
eftirlitsmenn farið á staðinn til að
kynna sér málið.
MORÐIN I MY LAI
VORU SMÁMUNIR
miðað við slátrun Bandaríkjahers á bændafólki Mekongósa
í síðásta fíefti bandariska timaritsinsNewsweek
er skýrt frá þvi að um fimm þúsundir óvopnaðs
bændafólks hafi verið myrtar á óshómasvæði
Mekongfljóts árið 1968. Það var að sjálfsögðu
Bandarikjaher sem stóð að þessum hryðjuverkum,
en þau voru liður í umfangsmiklum hernaðarað-
gerðum á þessum slóðum, og þóttu takast ,,mjög
vel”.
Það er fréttamaður rits-
ins íVíetnam sem frá þessu
skýrir, en hann hefur dval-
ið í landinu um fjögurra
ára skeið. Hann segir
fjöldamorðin í My Lai hafa
verið hreinustu smámuni,
miðað við þetta, og máli
sínu til stuðnings bendir
hann á að herfylkið sem sá
um aðgerðir á þessum slóð-
um segist hafa fellt rösk-
lega tíu þúsund andstæð-
inga, en aðeins náð á átt-
unda hundrað vopnum á
sitt vald. Af þessu megi
glöggt sjá, að þorri þeirra
sem drepnir voru haf i verið
óvopnaðir borgarar.
Bandariskur herforingi
segirog að herinn hafi oft-
lega haldið uppi skothríð úr
þyrlum á óvopnaða ,,and-
stæðinga", og annar her-
foringi hefur borið, að
„fallnir f jendur" hafioft og
tíðum verið blásaklausir
bændursem hafi verið strá-
drepnir við vinnu sina á
hrísgrjónaökrum.
Vietnam:
Enn magnast loftárásirnar
sjúkrahús, skólar og orkuver grátt leikin
12/6 Bandarlkjastjórn hefur nú
1 enn magnaö loftárásirnar á Norð-
ur Vietnam og 1 dag héldu flotar
B-52 sprengjuþota uppi hörðustu
árásum sem gerðar hafa verið
siðan lofthernaðurinn hófst á ný i
april.
Kínverska stjórnin lýsti þvl yfir
i dag, að loftárásirnar á Noröur
Victnam séu ógnun viö öryggi
Kina. Loftárásirnar hafa að und-
anförnu færzt sifellt nær kin
versku landamærunum, og fyrir
hclgina var sprengjum varpað á
skotmörk sem eru aðeins um
þrjátiu kilómetra suður af landa-
mærunum.
A laugardaginn eyðilagðist |
stærsta raforkuver Norður-Viet-
nams i sprengjuregni Banda-
rikjamanna, að sögn bandarisku
herstjórnarinnar i Saigon. Raf-
orkuverið getur séð fyrir 75
hundraðshlutum af rafmagns-
neyzlu landsins, og auk sjáifrar
orkustöðvarinnar og rafalanna
laskaðist spennistöð skammt frá
stiflugarðinum.
Fregnir frá N-Vietnam herma,
að þúsundir óbreyttra borgara
hafi týnt lifi i loftárásum að
undanförnu, og að átta sjúkrahús,
þrjátiu skólar og tólf kirkjur hafi
eyðilagzt. Auk þessa hafa árás-
irnar valdið spjöllum á landbún-
aðarmannvirkjum, stiflum og
áveitum. Þrjár Bandariskar flug-
vélar munu hafa verið skotnar
niður yfir Norður-Vietnam i gær,
en bandariska herstjórnin hefur
að vanda neitað að segja eitt né
neitt um það tjón.
Sprenging í v-þýzka
sendiráðinu í Belfast
Dublin 10/6. Talsverðar
skemmdir urðu á laugardag er
sprengja sprakk fyrir framan
vestur-þýzka sendiráðið i Dublin.
Enginn slasaöist við sprenging-
una en 75 ára gamall næturvörður
i sendiráöinu Edmond Westphal
var lagður inn á sjúkrahús með
taugaáfall. Talsmaður sendiráðs-
IRA FÆR VOPN
FRÁ LÝBIU
Túnis, London 12/6 Múhameð
Gaddafi, ieiðtogi Lýbiumanna,
skýröi frá þvi i gær að stjórn sfn
héldi uppi vopnasendingum til
hins bannaöa lýöveldishers IRA
á trlandi. Brezka stjórnin hefur
að vonum tekið þessari yfirlýs-
ingu illa, og I dag kom utan-
rikisráðherra Bretlands að máli
við ambassador Lýbiu i London,
og mótmælti vopnasendingun
um harðlega.
I ræðu sinni á sunnudaginn
sagði Gaddafi að Lýbiustjórn
hefði stutt og myndi styðja þau
öfl sem berðust gegn brezkum
yfirráðum á Norður-lrlandi.
Hann kvað þessa ákvörðun hafa
verið tekna með það fyrir aug-
um að berjast við Breta á
heimavigstöðvum, þar eð þeir
hefðu selt Palestinu i hendur
gyðingum.
Gaddafi lét sér ekki nægja að
ráðast á Breta i orði, heldur
beindi og skeytum að Banda-
rikjastjórn. Ræðan var haldin
við hátiðlega athöfn á þeim stað
er Wheelus-herbækistöð Banda-
rikjamanna var forðum daga,
til að minnast þess að nú eru tvö
ár liðin siðan Lýbiustjórn rak
Bandariskt herlið á brott úr
landinu. Gaddafi lét sér tiðrætt
um þjáningar og niðurlægingu
þjóðar sinnar er hún var undir
áhrifavaldi Bandarikjastjórnar,
og þá glæpi er bandariskir her-
menn hefðu gerzt sekir um i
Lýbiu. Hann kvaðst og styðja i
einu og öllu baráttu þeldökkra
manna vestanhafs.
Ambassadorar Bretlands og
Bandarikjanna, sem voru við-
Gaddafi: Bretar seldu
Palestinu i hendur gyðingum.
Nú ætlum við að berjast gegn
brezku stjórninni á heimavig-
velli, og þess vegna sendum við
IRA vopn. . .
staddir athöfnina, kváðust ekki
geta setið undir þessum um-
mælum og gengu af fundi.
ins sagði að skemmdir á sendi-
ráðinu væru miklar en sendiráðið
hefði enga hugmynd um hver
væri ábyrgur fyrir sprenging-
unni.
A laugardagskvöid hringdi
ónafngreindur maður til dagblaðs
i Dublin og hélt þvi fram að
Baader-Meinhof hópurinn stæði
að sprengingunni en þeim er nú
kennt um flest sprengjutilræði i
Vestur-Þýzkalandi og i sendiráð-
um Vestur-Þjóöverja viðsvegar
um heim.
Enn hrapar
Starfighter
Bonn 12/6. Flugmaður beið
bana er flugvél hans af gerðinni
Starfighter F 104 hrapaði á mánu-
dag nálægt hollenzka smábænum
Neade. Vestur-þýzki flugherinn
hefur þar með misst 154 vélar af
þessari gerð og 71 flugmann.
Randarísk-
um hers-
höfðingja
sparkað
gaf fyrirskipanir um
loftárásir i leyfisleysi.
Washington 12/6 Bandariski
hershöfðinginn John Lavalle
viðurkcnndi i dag að hafa gef-
ið fyrirskipanir um loftárásir
á Norður Vietnam, án þess að
hafa fengið til þess heimild
stjórnvalda og varnarmála-
ráðuneytisins i Washington.
Gerðir sinar varði hann þeim
rökum, aö skotmörkin hefðu
haft snara hernaðarlega þýð-
ingu og tilvist þeirra stofnað
iifi manna hans i hættu.
Lavalle var vikið frá störf-
um i marzmánuði og hann
lækkaður i tign er uppvist varð
um athafnir hans og agabrot.
Að þvi er stórblaðið New York
Times segir, voru aðgerðir
þær er um ræðir framkvæmd-
ar frá þvi i janúar og fram til i
marz, og loftárásunum var
beint gegn ýmsum hernaðar-
mannvirkjum i Norður-Viet-
nam. Hins vegar haföi banda-
riska varnarmálaráðuneytið á
þeim tima aðeins heimilað
loftárásir á þær stöðvar Norð-
ur-Vietnama, sem töldust bein
ógnun við öryggi Bandarfkja-
manna, og það var ekki fyrr
en seint i april sem Nixon af-
réð að stofna til áraáarstyrj-
aldar úr lofti.
Mannskæð flóð í USA
Rapid City, S-Dakota 11/6.
Stifla brast i Rapid City i S-Dakota
á laugardag með þeim afleiðing-
um að 200 manns drukknuðu og
mikils fjölda er saknað, og marg-
ir misstuheimili sin. Brunar hafa
komið upp viðsvegar i borginnýen
brunaliðsmenn hafa enn ekki haft
tima til að ráða niðurlögum elds-
ins þar sem þeir eru allir önnum
kafnir við björgunarstörf. Allir
vinnufærir menn i Rapid City 16
ára og eldri hafa undanfarna
sólarhringa unnið að björgunar-
störfum.