Þjóðviljinn - 13.06.1972, Blaðsíða 15
Þriöjudagur 13. júni 1972. þJóÐVILJINN — StÐA 15.
LISTAHATÍÐ í
REYKJAVÍK
Þriðjudagur
13. júni
Leikfélag Reykjavíkur
ki. 17,00 Leikhúsálfarnir (önnur sýning)
Bústaðakirkja
kl. 18,00 Nóafióöiö (áttunda sýning)
Norræna húsið
kl. 20.30 Hljómleikar: Edith Guillaume,
alt,Ingólf Olsen, gitar, lúta.Nútimatónlist,
m.a. frumflutningur.
Háskólabió
kl. 20.30 John Shirley-Quirk, söngvari,
Viadimir Ashkenazy, pianó.
Miðvikudagur Leikfélag Reykjavikur
14. júni ki. 17.00 Leikhúsálfarnir (þriöja sýning)
Austurbæjarbió
kl. 16i— Kammertónleikar IV
(Verk eftir Jón Leifs,
Seiber og Beethoven)
Háskólabió
KL. 20.30 Einleikstónleikar: André Watts
Fimmtudagur Laugardalshöll
15. júni.
Kl. 20.30. lokatónleikar. Sinfóniuhljóm-
sveit tsiands Einleikari: André Watts
Stjórnandi: André Previn
Myndlistarsýningar opnar frá kl. 14-22
daglega á meðan á Listahátið stendur.
AÐGÖNGUMIÐAR EINNIG
VIÐ INNGANGINN
Aðgöngumiðasalan er i Hafnarbúðum. Opið kl.
14—19 daglega. Simi 2 67 11.
LISTAHÁTÍD I
REYKJAVÍK
AÐALFUNDUR
í Prentsmiðju Þjóðviljans hf. verður hald-
inn miðvikudaginn 21. júni 1972 kl. 20.30 i
Lindarbæ uppi.
DAGSKRA:
1. Venjuleg aðalfundarstörf og framlag-
ning reikninga félagsins fyrir árin 1960 til
1971.
2. önnur mál.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhent-
ir hluthöfum i skrifstofu félagsins að
Skólavörðustig 19 Reykjavik.
Stjórnin.
Loks vaknaði
Framhald af bls. 10
Friðþjófsson, einn af varnar-
mönnum IBV, inn að markteig
Vfkings og skaut.en Diðrik varði
snilldarlega. Tveim minútum síö-
ar átti örn Óskarsson skot að
marki af 30 m. færi, en boltinn
small i þverslá.
Fleira gerðist ekki markvert i
fyrri hálfleik, en i þeim siðari
jafnaöist leikurinn mikið og sóttu
nú Víkingarnir nokkuð, án þess þó
að skapa sér marktækifæri, og
áttu Eyjamenn raunar ekki held-
ur svo neinu nam. Þó átti Ásgeir
ágætt tækifæri seint í leiknum, en
skaut yfir, og Páll Björgvinsson
átti gott skot af löngu færi á ÍBV
markið á 20. minútu, en Páll
varði.
1 heild var þessi leikur vel leik-
inn af báðum liðum. Það sem
mestu réð um gang hans var að
heimamenn réðu vallarmiðjunni,
og þvi mestu um gang leiksins.
Bezti maður IBV-liðsins var
Kristján Sigurgeirsson, sem nú er
aftur kominn I liðið og var þvi ó-
metanlegur styrkur. Þá átti Ösk-
ar Valtýsson mjög góðan leik eins
og þeir Ólafur Sigurvinsson og
Einar Friðþjófsson. Páll stóð fyr-
ir sinu i markinu og varði vel þaö
sem á markið kom.
Diðrik Ólafsson markvörður
var bezti maður Vikingsliösins,'
en eins áttu þeir Páll Björgvins-
son og Guðgeir Leifsson góðan
leik, en Guðgeir hvarf stundum
alveg i leiknum.
Dómari var Elnar Hjartarson
og dæmdi vel, hann þurfti þó að
sýna gula spjaldið einu sinni og
það var Gunnar Gunnarsson sem
varð fyrir þvi. —K.G.B.
---- -.w..
Ræða Guðmundar
Framhald af bls. 8.
betur fer ekki ættgengt. Nú á
allrasíðustu tímum höfum við
séð ýmis merki þess um allan
heim, að yngra fólk hefur mildu
heilbrigðari þankagang. Þessi
tei'kn benda til þess, að heimur-
inn sé að fá bót meina sinna,
lækningu á ofsóknarasðinu, sem
á stundum hefur verið að því
komið að útrýma öllu lífi hér
á jörð.
Á íslandi er kynslóð hinna
andlega sjúku manna einnig að
ganga sér til húðar. Ný kynslóð
að sjálfsögðu ekki á sjúkdóms-
er að taka við, -- og hún lítur
firrur hinna eldri sem neinn
sannleik. Þess vegna tók hún
völdin síðasta vor af íhaldsöfl-
um þessa lands og færði þau
vinstri flokkunum. Þessir vinstri
flokkar með ríkisstjórnina í
broddi fylkingar hafa að kröfu
róttækrar æsku gefið fyrirheit
um brottvikningu allra erlendra
herstöðva af landinu. Og hin
nýja kynslóð mun halda áfram
að sýna þjóðinni baráttuvilja
sinn og áhuga á því að gera
ísland að alíslenzku Iandi á ný
og á því að svipta íslenzkt auð-
vald þeim stuðninigi, er erlent
ránveldi - veitir því nú. Þessi
nýja kynslóð mun kveða niður
ameríska drauginn á Miðnes-
heiði. Takmark okkar er:
ÍSLAND ÁN HERSTÖÐVA!
— HEIMUR ÁN HER-
VIRKJA! —
Vafasöm • ••
Framhald af bls. 12
Hauka með langskoti, en á sið-
ustu minutu fyrri hálfleiks skor-
aði Daniel Pétursson siðara mark
FH. Hann fékk boltann þar sem
hann stóð rangstæður langt fyrir
innan Haukavörnina og skoraði
án þess að nokkuð væri dæmt. í
siðari hálfleik var ekkert mark
skorað, þrátt fyrir nokkuð þunga
sókn Hauka það sem eftir var.
Þetta er fyrsti sigur FH-liðsins
á þessu keppnistimabili i móta-
leik, og þótti vist flestum FH-ing-
um timi til kominn að liðið færi að
sýna lit og vinna, en heldur er
það leiðinlegt fyrir þá að það
skyldi þurfa að vera með hjálp
dómara eða réttara sagt fyrir
dómaramistök, að sá sigur
vannst.
Haukarnir hafa verið nokkuð
óheppnir i þessum tveim fyrstu
leikjum sinum, og ef liðið ætlar að
vera meö i toppbaráttunni i sum-
ar eins og menn spáðu, þá þarf
það að fara að taka sig á.
Bæjarpóstur
Framhald af bls. 2.
áður segist umboðið ekki geta
endurgreitt framlagða peninga
mannsins, fyrr, en Ýtutækni
hafi greitt upp i bilinn, en þaö
fyrirtæki þarf fyrst aö greiða
umboðinu gamla skuld, áður en
að greiðslu umrædds bils kem-
ur.
Furðulegt má telja, að eig-
endur Scania-Wabis bila, skuli
ekki hafa kvartað yfir þjónustu
umboðsins hér á landi, til fram-
leiöenda, en sannarlega virðist
ekki vanþörf á þvi. S-A.
Ræða Gunnlaugs
Framhald af bls. 8.
afstööu samkvæmt vilja hennar,
er ekki lengur frjáls og óháð,
byggir ekki skoðanir sinar og við-
horf á grundvelli eigin tilveru.
Skrefin i þessa átt eru sjaldnast
stór eða áberandi, en þvi mark-
vissari og ákveðnari eru þau á
slóðinni til ósjálfstæðis og undir-
lægjuháttar i hugsun og gerðum.
Þó að nú séu að verða ýmsar
breytingar á stefnu islenzkra
stjórnvalda i þessum efnum,
meira okkur að skapi sem hér
stöndum en áður var, megum við
ekki ganga þess dulin, að hvorki
verður þessi breyting ör né geng-
ur langt, ef ekki er til staöar
sterkt almenningsálit, sem þrýst-
ir á stjórnvöldin að framkvæma
gefin fyrirheit, þvi að við vitum jú
ölL, að hjörtu stjórnmálamann-
anna slá meira úti á meðal kjós-
endanna en i brjóstum þeirra
sjálfra.
Þaö er okkar verkefni, ungra
sem gamalla, allra sem vilja
frjálst, sjálfstætt og óháð tsland,
að skapa slikt almenningsájit og
gera það virkt i baráttunni fyrir
brottrekstri erlends hers og her-
stöðva af islenzku landi. Þá um
leið leggjum við okkar lóð þeirra
megin á vogarskálar heims-
pólitikurinnar, sem vilja sin lönd
frjáls undan hervaldi innlendra
striðsherra hvarvetna um heims-
byggðina.
Baráttan er hafin, ný holskefla
er að hefjast, og þvi verðum vér
öll, hver einasti einn, að vera
hvarvetna og ævinlega reiðubúin
aö leggja málstaðnum lið, þannig
að vér myndum að lokum þaö
flóð, sem dugar til þess að sópa
burt þeim illu kaunum, sem þjáð
hafa landið og þjóðina i meira en
tvo áratungi.
íslenzka þjóðin ætti að sjá sóma
sinn i þvi að gefasérherlaust land
i afmælisgjöf, þegar vér minn-
umst þess að 1100 ár eru liðin siö-
an hér festu búsetu menn, sem
flýðu hernaðaryfirgang pólitiskra
framagosa i heimabyggðum sin-
um.
Vér leggjum af stað i þessa
göngu undir kjörorðinu gamla
„HERINN BURT” og hefjum enn
einu sinni baráttuna fyrir þvi aö
HERINN FARI BURT, en i þetta
skipti heitum við þvi, að nema
ekki staðar fyrr en HERINN ER
FARINN BURT.
Þyrlan
Framhald af bls. 2.
hvort vélin er að klifra eða á
niðurleið.
Áður en flugferðin hefst er
mér fengið það afskaplega
vandasama hlutverk að standa
framan við vélina meðan hreyf-
illinn er ræstur. Ég er sannfærð-
ur um, að ég sé i bráðum lifs-
háska, og hugsa til þess með
skelfingu að gripurinn taki nú á
rás.
t þvi sambandi kemur mér i
hug sagan af manninum, sem
settist upp á mótorhjól af
rælni hér á Akureyri fyrir
mörgum árum . . ., Sem hann
nú situr á hjólinu og virðir fyrir
sér hinn furðulega tæknibúnað,
veit hann ekki fyrri til en hjólið
rýkur af stað. Gat hann með
engu móti stoppað reiðskjótann,
en tókst þó að stýra framhjá öll-
um hættum. Barst leikurinn
lengi dags fram og til baka um
bæinn og nærliggjandi sveitir,
og lauk ekki fyrr en eldsneytið
var þrotið.
Ekkert i þessa veru kemur þó
fyrir mig, og brátt er vélin kom-
in út á flugbraut og hefur sig til
lofts með ógurlegum gný.
Ég stilli mér svo upp á
ákveðnum stað til myndatök-
unnar, og Húnn flýgur hverja
ferðina eftir aðra rétt yfir höfði
mér og ljósopið opnast og lokast
án afláts.
Eftir dágóða stund er sýning-
unni hætt, og ég spyr að þvi
hvort ekki sé mikil kúnst aö
fljúga svona vél. Húnn telur þaö
ekki vera a.m.k. ekki fyrir þá
sem almennt bera eitthvert
skynbragð á flug. Þaö sé hins
vegar staðreynd, að i Banda-
rikjunum hafi svona vélar veriö
auglýstar þannig, að mikill
fjöldi manna hafi slasazt, eða
jafnvel farizt, við að fljúga
þeim.
Astæðan er sú, að seljendur
hika ekki við að segja i auglýs-
ingum sinum, að á þessap-vélar
geti allir lært, bara af sjáifum
sér. Og afleiðingarnar eru
hörmulegar fyrir marga menn.
Eitt er alveg vist: Hversu
mjög sem þetta kann að vera
auðvelt mundi undirritaður
tæpast vinna það sér til lifs aö
ferðast um á „priki”.
hágé
Myndlista- og
Handíðaskóli íslands
Þeir, sem hafa i hyggju að sækja um inn-
göngu i forskóla Myndlista- og Handiða-
skólans á næsta vetri, sendi umsóknir sin-
ar til skrifstofu skólans, að Skipholti 1,
fyrir 1. sept. n.k. Umsóknareyðublöð og
námsskrá liggja frammi i bókabúðum
Lárusar Blöndal, Skólavörðustig og
Vesturveri.
Skólastjóri.
Skipholti 1 - Sími 19821
NAUÐUNGARUPPBOÐ
annað og siðasta, sem auglýst var i 74., 76.
og 78. tölublaði Lögbirtingablaðsins ár
1970, á neðri hæð húseignarinnar Alfhóls-
vegur 143, eign þrotabús Magnúsar Árna-
sonar, fer fram á eigninni sjálfri á morg-
un, miðvikudaginn 14. júni 1972 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.