Þjóðviljinn - 13.06.1972, Blaðsíða 13
TUTTUGASTI OG ÞRIÐJI
KAFLI
Það hafði kólnað töluvert um
nóttina. Glugginn minn vax gal-
opinn eins og vanalega, og ég
hafði vaknað og reynt að breyta
teppinu í svefnpoka með því að
liggja ofan á báðtun brúnum
þess. Við þetta hækkaði hita-
stigið að vísu, en þegar ég sofn-
aði aftur losnaði teppið og ég
fór aftur að skjálfa.
Loks hlaut ég að hafa vanizt
kuldanum, því að ég var stein-
sofandi, þegar Eva liristi migtil.
Fyrst flaug mér í hug að hún
þyrfti að komast á fæðingar-
deildina og ég settist upp í flýti
og sagði:
— Vertu bara róleg. Þetta er
allt í lagi. Ég skal sjá ttm allt.
— Góðan daginn, sagði Eva
með hæðnishreim í röddinni, sem
gaf til kynna að henni fyndist
ég rugluð og hálfsofandi ennþá.
Það er síminn til þín.
Ég varð dálítið hvumsa því að
ég hélt enn að hún væri að fara
á fæðingardeildina og skildi ekk-
ert í hvers vegna ég fékk sím-
hringingu út af því,en röltisamt
berfætt og skjálfandi fram að
uppfinningu Aiexanders Gra-
hams Bells, sem. nálgaðist aldar-
afmæli sitt. Ég igat ekki ímyndað
mér hver væri að hringja. Jöran
hafði hringt seint kvöldið áður
til að spyrja hvar upptakarinn
væri. Ég taldi víst að hann hefði
notað hann oftsinnis síðan ég
fór að heiman og gat enga vís-
bendingu gefið honum. Ef til
vill var hann ekki búinn að
finna hann ennþá og hringdi í
von um einhverja leiðsögn.
— Jú, góðan daginn, sagði
bláókunnug rödd. — Jú, ég
hringdii út af auglýsingunni, skilj-
ið þér.
Enn var ég alveg ringluð.
Hafði kvenmaðurinn — því að
þetta virtist gamall árgangur af
þairri sortinni — hringt í skakkt
númer? Hélt hún að ég seldi
hvolpa, listaverk eða gamlar
dragkistur?
— Ég þekkti hana vel, hélt
konan áfram, — því að ég lá
á Södersjúkcahúsinu í marz í
fyrra í fótbroti, skiljið þér. Ég
var á leið niður í kjallara... það
er kannski rétt að taka það fram
að ég á heima í Söder í Stokk-
hólmi og ég...
Allt í einu mundi ég eftir
auglýsingunni sem ég hafði lát-
ið birta í Dagens Nyheter, þar
sem ég lýsti eftir fólki sem haft
hefði samband við Katrínu. Nú
hafði einn af fyrrverandi sjúkl-
ingum hennar bersýnilgea kom-
ið auga á hana og fundizt hún
tilefni til að hringja klukkan sjö
að morgni. Og óvenju málgefin
virtist hún í þokkabót. Einn af
þúsundum einstasðinga í stór-
borginni eygði nú möguleika til
að fá að tala við manneskju og
ætlaði að nýta hann til þrautar.
Eva sá mér fyrir blokk og
lcúlupenna, auk þess litlu svörtu
pípunni minni sem ég reyki í
Ieynum og pakka af Hamilton-
blöndu. Eftir nokkra stund færði
hún mér líka sterkt kaffi.
— Ef ég mætti fyrst biðja um
nafn og heimilisfang frúarinnar,
sagði ég.
Það féll ekki í góðan jarð-
veg. Konan varð hrædd um að
hún hefði anað út í eitthvaíf sem
hefði útgjöld í förr með sér, en
hvað það snerti var hægt að róa
hana. Hún þurfti svo sem ekki
að segja til nafns ef hún vildi
það síður, sagði ég, það skipti
ekki öllu máli.
— Jú, víst get ég sagt til
nafns, sagði hún þá. Ég heiti
Linnea Andersson og á heima á
Prestsetursgötu 25. Á Söder. Ef
þér kannizt við staðinn. Og ekis
og ég sagði hrasaði ég í kjallara-
stiganum í fyrra þegar ég var að
sækja flösku af saft. Dóttir mín
á nefnilega sumarbústað, þau
hjónin á ég við, og hann er í
Bergslagen, nærri Munkfors, og
ég er hjá þeim í júlí og fram
í ágúst á hverju ári og við sult-
um...
Sultun og niðursuða stóðu yf-
ir í fuliar tíu mínútur en þá
fylgdu líka nokkrar uppskriftir
og heilræði sem hún vonaði að
kæmu mér að gagni. Þegar búið
var að lýsa hinni löngu leiðberj-
anna á flöskur kom mikilfengleg
lýsing á því hvernig Linnea
Andersson hafði hrasað í stigan-
um og síðan kom læknisfræði-
legur fyrirlesmr um tilfeUið
Linneu Andersson, fótbrot í marz
1970. En þegar berið var komið
á flöskuna og Linnea Andersson
var búin að sækja flöskuna,
hrasa, fótbrjóta sig og aka í
sjúkrabíl, og þegar læknirinn var
búinn að segja sitt, gera það sem
þurtfi og fóturinn kominn í
gips, þá lagðist Linnea Anders-
son reyndar inn á deildina hjá
Katrínu Kowalowski og það var
svo sannarlega þakkarvert. Að
hugsa sér ef hún hefði lent ann-
ars staðar! Þá hefðu berini verið
sett á flösku aldeihs að óþörfu
og þá hefði... jæja, það má svo
sem standa á sama.
— Ég var ósköp niðurdregin
og leið meðan ég lá þar. Ein-
mana. Hugsaði sem svo að það
væri ljóta ólánið að ég skyldi
fara að sækja saftina. Ef ég hefði
ekki gert það, hefði ég verið
heima að dunda eins og ekkert
hefði í skorizt. Ég á við að þá
ltefði ekkert komið fyrir. En
þetta eru víst íorlögin. Ef ég
hefði...
— Og þá hittuð þér sem sé
Katrínu Kowalewski. Hvernig
líkaði yður við hana?
— Hún var dásamleg kona.
Reglulega góð. Hún kom inn til
mín og sat hjá mér og spjallaði
við mig. Þetta var ekkert hættu-
legt, sagði hún, og mér myndi
bráðum batna. Hún spurði um
mína hagi og ég sagði að maður-
inn minn hefði rekið stóra smá-
vöruverzlun en við hefðum selt
hana f tíma og ég hefði verið
ekkja í tíu ár. Maðurinn minn
safnaði gömlum gripum ...
Nýr kaffibolli var tæmdur
meðan frú Andersson sökkti sér
á ný niður í minningarnar. Ég
andvarpaði og horfði út um
gluggann. Fólk var í hlýrri yfir-
höfnum þennan morgiun. Skyldi
lokadagur ágústmánaðar koma
með kuldann með sér til fram-
búðar?
— Hún hjálpaði mér að laga
dótið mitt. Veskið mitt á nátt-
borðinu og ekki of mikið af
verðmæti í því. Það lagði hún
í læstan skáp. Lyklana mrna og
annað slíkt. Til þess að ég gæti
verið örugg. Og svo var bjalla,
og ekki kemst maður á einbýlis-
stofu nú orðið, þórr maður hafi
efni á að borga fyrir sig. Ekki
svo að skilja ao ég sé að kvarta
yfir þeim sem lágu með mér og
ég hef alltaf verið félagslynd
og okkur kom vel saman þótt
þær væru ekki sérlega ræðnar,
en mér finnst þetta ólán þetta
nýja fyrirkomulag á sjúkrahús-
unum. Að ekki sé hægt að fá
að liggja einn þótt maður borgi
það og . . .
Næsru mínúturnar fóru í
gallharða gagnrýni á yfirvöldin.
Þá kom hún afmr að því sem
var aðalinntakið:
— Hún var reglulega indæl
manneskja þessi Katrín Kowal-
ewski. Systir Katrín á ég við.
Það ætm fleiri af hennar tagi
að vera í hjúkrunarkvennastétt.
Fleiri sem hefðu persónulegan
áhuga á sjúklingum sínum. Það
hafði hún. Það er alveg dlæmi-
gert að svona manneskja skuli
vera myrt. En það eru þessir
útlendingar. Maðurinn hennar
var útlendingur og maðttr veit
svo sem hvernig þeir eru. Það
var ósköp lítið talað um þetta
í blöðunum, en það kom samit
fram að það var maðurinnhenn-
ar sem gerði það.
Þá ræddi hún ttm siðspillandi
áhrif útlendinga á velflest á
Þriöjudagur 13. júní 1972. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13.
H iiii
INDVERSKUNDRAVERÖLD
Vorum að taka upp mjög glæsilegt úrval af
Bali-styttum og Batik-efnum. Einnig ind-
verskt og Thai-silki — röndótt, köflótt,
ntynstrað, einlitt, Batik-mynstrað og
sanseraö.
ATH. Við erum flutt að Laugavegi 133 (við
Hlemmtorg).
Urval tækifærisgjafa fáið þér í JASMIN
flí (Hl ffftSWSIfSHSí
fÉLAG ÍSLflZKRA HUðMUSTARMAlVNA
#úlvegar yður hljóðfœraleikara
og hljómsveitir við hverskonar t/ckifim
Vinsamlogast hringið í 20255 milli kl. 14-17
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32
LJÓSASTILLINGAR
HJÓLASTIILINGAR MÓTORSTILLINGAR Sjrni
Látið stilla I tíma.
Fljót og örugg þjónusta.
13-10 0
®&íD
SENDIBÍLAS7ÖÐIN HE
Höfum ávallt fyrirliggjandi allar stærðir skraut-
hringja á hjólbarða, bæði alhvíta og hvíta með
svartri rönd.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
GÚMMÍVINNUSTOFAN H.F.
Sklpholti 35 — Reykjavík — Sími 30688