Þjóðviljinn - 02.07.1972, Blaðsíða 1
mOÐViuiNN
Sunnudagur 2. júli 1972 — 37. árgangur —144. tölublað
Alþýöubankinn hf
ykkar hagur
okkar metnaóur
HM-einvígið í skák
Stóra stundin rennur
upp í dag klukkan 17
í dag klukkan 17 hefst
fyrsta skákin i 24ra skáka
einvígi þeirra Boris
Spasskýs heimsmeistara og
áskorandans Bobby
Fischers um heims-
meistaratitilinn í skák. Fer
einvigið fram í
LAUGARDALS-
HÖLLINNI, Teflt verður
frá kl. 17-22/ sunnudaga/
þriðjudaga og fimmtudaga,
frá því í dag, 2. júlí og til 24.
ágúst, nema ef úrslit
fást fyrr.
Þegar blaðið fór i prentun
var Fischer enn þá
ókominn til landsins og
ekkert vitað um hans ferðir
eða komutíma.
Biðskákir verða siðan tefldar á
mánudögum og föstudögum frá
kl. 14.30 til kl. 18.30. begar þetta
er skrifað er Bobby Fischer ekki
kominn til landsins, en allt
byggist á þvi að hann standi við
áskorunina, mæti til leiks og verði
kominn fyrir kl. 17 i dag.
Heimmeistarinn Boris Spasský
er 35 ára gámall, fæddur i
Leningrad 30. janúar 1937. Hann
lærði mannganginn 5 ára gamall
og siðan hefur skákin átt hug hans
allan. Afrekaferill hans hófst 1955
þegar honum tókst að vinna sér
rétt til þátttöku i 22.meistaramóti
Sovétrikjanna, en þar hafnaði
hann i 3.-6. sæti. Siðan hefur
ferill hans verið öllum kunnur,og
þar kom að hann vann heims-
meistaratitilinn af Petrosjan árið
1969.
Kobert Fischer er fædduri
Chicago i Bandarikjunum 1943 og
er þvi 29ára gamall. Hann lærði
Frh. á bls. 15
Kolbeinn Friðbjarnarson
Atvinnuástand er sæmilegt hér
i Siglufirði núna og er unnið i báð-
um frystihúsunum. Gæftir hafa
veriö sæmilegar í vor hjá dekk-
bátum og trillum og nokkuð stöð-
ugur afli komið hér á land.
Hafinn er undirbúningur að
byggingu nýs frystihúss, sem
kemur i staðinn fyrir frystihús
S.R. hér i kaupstaðnum. Var þvi
Rœtt um atvinnu
og kaupmáttinn
holað niður á sinum tima i einni
elztu mjölskemmu S.R. hér i
Siglufirði. Hefur húsnæðið raunar
alltaf verið óhæft til frystihúsa-
reksturs. Breytingar á þessu
gamla húsnæði til bóta fyrir
frystihúsið voru taldar svo kostn-
aðarsamar, aö minni kostnaöur
er af þvi að byggja nýtt frystihús.
bessa daga er byrjað að rifa
niður gamla húskumbalda og
bryggjur, þar sem hinu nýja
frystihúsi er ætlaður staður. Er
þvi fyrirhugaður staður á svæö-
inu frá hafnarbryggjunni aö smá-
bátahöfninni.
— Hvernig er hljóðið i verka-
fólki yfir dýrtiðarmálum i Siglu-
firðií
— Fólk er heidur rólegt hér yfir
dýrtiðinni, sagði Kolbeinn. bað
var ýmsu vant úr tið fyrrverandi
stjórnar og ég held, að núverandi
stjórn njóti trausts til þess að
gera viðeigandi ráðstafanir til
þess að hamla á móti dýrtiðinni.
Kjarabætur hefur verkafólk
fengið á liðnu ári og kannski er
mesti vandinn að viðhalda kaup-
mætti verkafólks og helzt að auka
hann.
Verkafólk væntir þessa af nú-
verandi stjórnarvöldum, sagði
Kolbeinn.
bessa daga er ekki unnið i
Siglósild. bessi niðurlagningar-
verksmiðja hefur alltaf þurft að
stöðva framleiðslu um 3ja vikna
til 4ra vikna skeið á sumrum.
Er þetta gert af þvi að kaupandi
að gaffalbitunum i Sovétrikj-
unum neitar að taka á móti fram-
ieiðslunni yfir heitustu sumar-
mánuðina.
Siglfiröingar hafa haft hagræði
hinum nýju tekjustofnalögum,
sagði Kolbeinn.
Hafa þessar breytingar reynzt
jákvæðar fyrir Siglufjarðarkaup-
stað. býddi þetta rúmlega 14
miljón tekjuaukningu fyrir
bæjarfélagið. bykir þetta gott
framlag fyrir ekki rikara bæjar-
félag en hér er, sagði Kolbeinn.
Er þetta um 7% af heildartekjum
bæjarins. Hefur bæjarstjórn sam-
þykkt sérstaka yfirlýsingu , þar
sem rikisstjórninni er þökkuð
þessi fyrirgreiðsla. Raunveru-
lega kemur þetta fjármálum
bæjarfélagsins i lag. Svo er um
fleiri bæjarfélög eins og á Sauöar-
króki og á Húsavik sagði Kol-
beinn. g.m.
Fœðist meirihluti í
bœjarstjórn Isafj.?
Siðan kosningar fóru
fram á ísafirði i fyrra,
eftir sameiningu ísa-
fjarðarkaupstaðar og
Eyrarhrepps, hefur ekki
tekizt að mynda meiri-
hluta i bæjarstjórn.
Þó náðist samkomu-
lag með Frjálslyndum
og Sjálfstæðismönnum
um afgreiðslu fjár-
hagsáætlunar, en um
frekara skipulagt sam-
starf hefur ekki verið að
ræða miili flokka innan
bæjarstjórnarinnar.
Nú virðist sem fæð-
ingahriðirnar séu orðn-
ar harðari, en um langt
skeið, en samt sem áður
alls endis óvist um burð-
inn.
Blaöiö sneri sér til Halldórs
Ólafssonar, fréttaritara bjóðvilj-
ans á ísafirði, og hafði hann þetta
að segja um gang málanna:
— A Alþýðubandalagsfundi,
sem haidinn var 10. april, var ein-
róma samþykkt að skrifa Alþýöu-
flokknum, Framsóknarflokknum
og Samtökum frjálslyndra bréf
um möguleika á myndun meiri-
hluta þessara flokka i bæjar-
stjórn.
Bréf þetta var siðan sent flokk-
unum, en mjög dróst á langinn, að
svar væri sent frá þeim, en þó
kom það að lokum.
Svar Framsóknarflokksins var
án allra skilyrða, og lýstu þeir sig
reiðubúna að taka þátt i viðræð-
um um meirihlutamyndun.
Alþýðuflokkurinn kvaðst reiðu-
búinn til viðræðna um samstarf
við kosningu nefnda, en ekki um
myndun meirihluta. Frjálslyndir
vörpuðu fram spurningu um það,
hvort Alþýðuflokkurinn hefði tek-
ið sinnaskiptum, og áttu þá við
það sem gerðist i viðræðum hér
eftir kosningarnar i fyrra, þegar
slitnaði upp úr vinstra samstarfi,
meðal annars vegna afstöðu
Alþýðuflokksins. Frjálslyndir
kváðust sem sé vera reiðubúnir
til viðræðna ef fyrir lægi, að krat-
arnir hefðu tekið sinnaskiptum.
begar svona var komið, sáum
við okkur ekki annað fært,
Alþýðubandalagsmenn en að
ræöa sérstaklega við Alþýðu-
flokkinn og Samtök Frjálslyndra.
Okkdr tókst svo aö ná samtali
við Alþýðuflokksfulltrúann. A
viðræðufundunum með honum
kom það fram, að þeir vildu halda
við þá afstöðu, sem þeir lýstu i
bréfinu, og svo fór, að þeir féllust
á að ræða við okkur og Framsókn
og Frjálslynda um nefndarkjör,
en þeir virtust þó helzt tregir að
tala við Frjálslynda.
bað dróst svo talsvert að við
ræddum við Frjálslynda, þvi Jón
Baldvin , Hannibalsson, aðalfor-
ingi þeirra, var upptekin við próf i
menntaskólanum, og siðan ferða-
lög til Reykjavikur og Noregs, og
náöum við ekki tali af þeim fyrr
en á mánudaginn í siðustu viku.
bar kom fram, að þeir þóttust
vera mjög hlynntir vinstri meiri-
hluta, en töldu ýmis tormerki á
þvi að fara út i sameiginlegt
nefndarkjör. Varð þó samkomu-
lag um að boða til sameiginlegs
viðræðufundar allra þessara fjög-
urra flokka daginn eftir.
A þeim fundi var rætt um
möguleika um samstarf á kosn-
ingum i nefndir, og sett upp
ákveðið plan i sambandi við það,
þannig að flokkarnir kysu allir
saman i bæjarráð og þriggja
manna nefndir, en við kjör i fimm
manna nefndir yrðu frjálslyndir
sér, og við-hinir þrir flokkarnir
með sameiginlegan lista.
betta varð að visu ekki alveg
Frh. á bls. 15
Munið 10%
afsláttarkortin
Skák-
einvigið
i blaðinu i dag eru
siða 7,8,9, 10, helgaðar
skákmótinu, svo og
leiðari blaðsins.
Enginn
karlmaður á
atvinnu-
leysisskrá í
Reykjavík
Ráðninngarskrifstofa
Keykjavikurborgar tók til
starfa árið 1934. Kr nú enginn
karlmaður þar skráður atvinnu-
laus þessa stundina. Kr þctta i
fyrsta skipti i tæplcga 40 ára
sögu þcssarar stofnunar, að
cnginn karlmaður cr skráður
alvinnulaus þar.
Um 26konureru skráðar núna
atvinnulausar. bar af 18 skóla-
stúlkur. Hefur verið erfiðara að
útvega skólastúlkum atvinnu
heldur en skólapiltum. Hins
vegar hefur til þessa tekizt að
útvega öllum skólapiitum at-
vinnu, sem hafa leitað til
Ráningaskrifstofunnar. A sama
tima i fyrra voru 206 á atvinnu-
leysisskrá i Reykjavik. bar af
117 karlar. g.m.
Yegaþjónusta FEB
Ef óskað er aðstoðar vega-
þjónustu eða kranaþjónustubila
er nærtækast að stöðva einhverja
af hinum fjölmörgu talstöðvarbif-
reiðum, sem um þjóðvegina fara
og biðja þá um aö koma orð-
sendingu til vegaþjónustubifreiða
beint eöa i gegnum:
Gufunes-radio Simi.. .22384
Akureyrar-radio Simi...96-11004
Brú-radio Simi...95-1111
Langþráður
þurrkdagur
Akureyri, 30/6— Bændur unnu
yfirleitt að heyskap i dag i Eyja-
firði. Kom nú loks þurrkur eftir
votviðrasaman júnimánuð. Gras-
spretta hefur verið með miklum
ágætum i þessu votviðri. Nú þarf
bara þurrkurinn að haldast. Fá
þá bændur mikil og góö hey næstu
daga. Heldur hefur verið kalt i
júni. t dag er sunnangola i Eyja-
firði og 15 stiga hiti. Er þetta
fjórði þurrkdagurinn i júni.
Grindavík
Á síöu 2 og 3 í Þjóö-
viljanum er birt viötal
viö sveitarstjórann i
Grindavík.