Þjóðviljinn - 02.07.1972, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. júli 1972
SIÐARI HLUTI
ÁLEIÐIS
TIL
ALMENNINGS
Hvað er
Reykjavík?
í því sambandi gemm við rært
um það, Ólafur, hvaða áhrif það
hefur að kamast út fyrir það
svið sem við hræruimst á heima,
og þá sérstaklega í Reykjavík,
því Reykjavík er nú einu sinni
aðalmiðstöð /slenzks menningar-
lífs. Reykjavík verkar mjög kæf-
andi á aLla skoðanamyndun og
allt menningarlíf, vegna þess að
menn lokast inni í sínum hópi
og kannski er það 9em við erum
að segja núna mjög mótað af
því, að við erum ekki í Reykja-
vík.
— Þessir efnislegu þættir í
Reykjavík eru senniiega dálítið
sérkennilegir, Kriscinn, hún er
mikil þjónustuborg og miðstöð
verzlunar, ekki verulega fram-
leiðandi borg, framileiðsluaillanna
gætir Iítið, en í staðinn er hún
þjónustumiðstöð fyrir þjóðfélag,
innflutningur gerist að mestu
leyti í gegnum hana, hún er
helzta aðíkomuleiðin — allt
þetta sker hana að ýrnsu leyti
frá öðrum borgum, sérstaklega
höfuborgum. Andllegt líf í
Reykjavík, eða það sem maður
kallar stemninguna í Reykjavík,
er áreiðanlega að nokkru leyti
frábrugðið því sem annars stað-
ar gerist, og þetta hefur vafa-
Iaust áhrif á hvernig maður
þrífst í Reykjavík. Og eitt atriði:
draumurinn um að fara frá
Reykjavík, út í Flatey eða þorp
úti á landi eða upp í óbyggðir,
hann er algengur. Til dæmis hef-
ur þú Kristinn verið, og sérð
fram á að verða, meginhlutann af
dvöl þinni á íslandi á næstunni
einhvers staðar uppi í óbyggðum;
þú ert farinn að líta Reykjavík
öðrum augum en þeir sem lifa
stanzlaust í henni, og við sem
erum í útlöndum hugsum líka
um Reykjavík á annan hátt.
— Nú held ég að framleiðslu-
öflin séu töluvert meiri í Reykja-
vík heldur en þú hugsar þér,
þrátt fyrir alk. En það, að þú
finnur ekki fyrir þeim er sakir
þess að við höfum ekki gert okk-
ur grein fyrir því. Maður fær
ekki yfirsýn yfir Reykjavík nema
að komast út fyrir hana einhvern
tíma. Það sem hefur legið bein-
ast við hingað til hefur verið
að fara út á land, en það gef-
ur ekki sýn nema yfir þessa þró-
un úr sveitaþjóðfélagi í borgar-
þjóðfélag, en sleppir aftur á móti
þróun Reykjavíkur sem borgar.
Ef maður fer til útlanda gerir
maður sér grein fyrir Reykjavík
sem borg og þá fer maður að
hugsa á allt annan hátt. Þá er
maður ekki bundinn svekinni
eins og flestir Reykvíkingar eru
nú.
— Ég held að við getum séð
í Reykjavík það sem gerzt hefur
á miklu lengri tíma úti í Evr-
ópu, þessa mannsöfnun í borgir,
samfara ákveðinni þjóðlífsbylt-
ingu, framleiðslubyltingu. Þetta
hefur gerzt á annan hátt á ís-
landi; jafnhliða gífurlegtivtækni-
þróun hefur mannfjöldinn safn-
azt í Reykjavík. Ég veit ekki
hvort hægt er að sanna með hag-
fræði að hún sé- framleiðandi
borg, hún er auðvitað stór ver-
scöð, en aðallega kemur hún
fram sem þjónustuborg og mið-
stýrandi afl á íslandi,
— En ég held einmitt, að
Reykjavík sé að nokkru leyti á
eftir vegna þess að fólk hefur
ekki gertsér grein fyrir því, að
það er í borg. Við getum séð
það bara í srjórnmálum, stjórn
Reykjavíkur er miklu íhaldssam-
ari en stjórn landsins í heild,
og það er vegna þess að íbúar
Reykjavíkur hafa ekki gert sér
grein fyrir því að þeir eru borg-
arbúar. Þeir lifa í fortíðinni,
þeir lifa í draumnum um ísland
9em var, og ég held að það væri
mjög til batnaðar ef einhverjir
til dæmis rithöfundar gætu gert
íbúum Reykjavíkur grein fyrir
því hvar þeir eru staddir. Það
er mjög nærliggjandi verkefni
fyrir rirhöfunda að athuga borg-
arlífið í Reykjavík.
— Það er oft talað um Reykja-
vík þannig í Morgunblaðinu og
víðar, að hún sé heimsborg, —
þar er sinfóníuhljómsveit og
þjóðleikhús og ég veit ekki hvað,
sem á að sýna það að Reykjavík
sé borg meðal borga í Evrópu,
og samt finnst okkur við þar
hamlaðir, að hún sé beinlínis
kæfandi, þrátt fyrir allt þetta
alþjóðlega menningarlíf, háskóla
og allt það, allt þetra fína. Nú
getur það vel verið eðlikgt, að
borgir séu kæfandi, að þær séu
ómanneskjulegar...
— En það er einmitt vegna
þess að þetta borgarlíf er stofn-
un og Reykjavík vantar hina
eðlilegu borgarmenningu.
— En finnst þér þá, að Kaup-
mannahöfn eða Leníngrad
hafi einhverja svona borgar-
menningu?
— Já, ég mundi skilgreina það
mjög óljóst sem andrúmsiloft eig-
inlega; maður kemur til nýrrar
borgar og finnur eitthvert and-
rúmsloft koma á móti sér, mað-
ur finnur fas fólks, og þetta er
miklu eðlilegra í erlendum stór-
borgum heldur en í höfuðborg
íslands.
— Hefur þú verið í sveit,
Kriscinn?
— Að vísu ekki.
— En komið í sveit semsagt,
á sveitaheimili?
— Já, ég hef gert það. Og
þykist vita nokkurn veginn
hvernig sveitamenning íslands
hefur þróazt gegnum aldirnar.
Alþýðubandalag
og SÍA
— Ert þú félagi í Alþýðu-
bandalaginu, Kristinn?
— Ég veit það nú eiginlega
ekki, ég var í því á síðasta ári
eða árið þaráður, en hvort ég er
það ennþá veit ég ekki.
— Ertu hrifinn af Alþýðu-
bandalaginu? Kemur það að ein-
hverju leyti til móts við óskir
þínar?
— Ég er mjög efins um þró-
un Alþýðubandalagsins, ég held
að það hafi möguleika á því að
verða mjög góð og holl hreyf-
ing, en ég veit ekki nema það
sé komið alllangt út í þá þróun
sem Alþýðuflokkurinn lenti í á
sínrnn tíma, og það er mjög
hættuleg þróun, mjög borgara-
leg hægriþróun. En þróun Al-
þýðubandalagsins á næsmnni er
bara spurning um það hverjir
ganga inn í raðir þess og kom-
ast til áhrifa þar.
— Þekkirðu margt ungt fólk
í Alþýðubandalaginu?
— Já, ég þekki þó nokkuð af
ungu fólki þar.
— Ég þekki mjög fáa flokks-
menn AJþýðubandalagsins, unga.
Ég lenti á óformlegum fundi
ungs fólks hér í Kaupmanna-
höfn í fyrra, þar sem til umræðu
var stjórnlist sósíalisma á ís-
landi. Þar var enginn félagi í
Alþýðubandalaginu, en allir á
því að styðja það, versnaði það
ekki enn.
— Já, ég held að Alþýðu-
bandalagið hafi farið of mikið
út í stjórnunarstofnanir, og starf-
ið hefur kristallazt of mikið í
því að stofna framkva2mdaráð
eða nefndir. Að vísu em lofs-
verðar þessar ráðstefnur þess um
ýmis mál, en bara spurning hve
margir geta sótt þær og hvað
kemur út úr þeim, hvort fólk
finnur þar fyrirfram að það geti
haft áhrif gegnum þessar ráð-
stefnur.
— Hvað finnst þér jákvætt
við að taka þátt í stjómmila-
baráttu á íslandi, flokkspólitískri
á ég við, t. d. innan Alþýðu-
bandalagsins?
— Það fer eftir því hvort sá
hópur sem ég finn næstan mér
er innstilltur á það. Ég held að
eins manns barátta sé einskis
virði innan slíkrar hreyfingar,
en hins vegar ef tekst að finna
hljómgmnn hjá fleirum er það
rétclætanlegt og sjálfsagt.
— Til dæmis með hliðsjón af
stjórnmálahreyfingum í Vestur-
Evrópu þessi árin, eða þessa
mánuðina jafnvel, — finnst þér
þá Alþýðubandalagið ekki vera
eins konar steingervingur frá
liðinni tíð, sem reynt er að
sprauta einhverjum hormónum í?
— Ég held að það sé nú
minna áberandi heldur en annars
staðar í Vesmr-Evrópu, beinlín-
is vegna þess að hingað til hef-
ur verið minna um ldofning í
vinstri hreyfingunni heldur en
annars staðar í V-Evrópu. En
fyrir bragðið verður Alþýðu-
bandalagið að vísu mjög svífandi
og maður sér það bara á stefnu-
skrá þeirri sem nú er verið að
rasða, að hún er mjög í lausu
lofti, að mér finnst.
— Já, hún virðist vera útkoma
hjá einhverjum sósíalistum fyrri
ára, með ákveðna reynslu og á-
kveðinn bakgrunn, sem em að
reyna að blása lífi í nýsköpuð
stjórnmálasamtök, einsog reynt
sé að gera gott úr öllu saman,
bjarga því sem bjargað verður
úr því að flokkurinn er einu
sinni til og þykist vera sósíalist-
ískur.
— Já, þetta er eiginlega spurn-
ing um það hve samtökin em
fær um að endurnýja sig; ef það
tekst ekki er fyrirsjáanleg sama
þróun og varð í gamla Alþýðu-
flokknum.
— Þú er semsagt ekki fylgj-
andi því að stofnaá íslandi marx-
lenínistískan stjórnmálaflokk eða
maóistískan kjarna í stjórnmála-
flokki, nýjum?
— Nei, síður en svo, ég held
að slík stofnun smðli aðeins að
Mofningi. En ef reynslan sýnir
hins vegar fram á að önnur leið
sé ekki fær, þá er það náttúrlega
sjálfsagt) að hreyfing káofni nið-
ur. En mér finnst mjög áberandi
á íslandi, að umræðan er ekki
jafn stöðug og áköf og erlendis,
menn hlaupa út í ýmislegt án
þess að ræða það, og mér fiinnst
að tilfinningamál megi ekki
spila mjög mikið inn í þetta.
Mér finnst stjórnmál vera of
mikilvæg til þess að persóntxleg
tilfinningamál megi verða yfir-
gnæfandi.
— Nú finnst okkur sem höf-
um alizt upp á íslandi og haft
aðgang að ýmsum gögnum eins
og Þjóðviljanum og öðrum heim-
ildum sem sósíalistar hafa gefið
út, okkur finnst semsagt þegar
við kórnium til údanda, við vera
dálítið sviknir, að við höfum
verið leyndir ákveðnum þáttum
í sambandi við ákveðnar hreyf-