Þjóðviljinn - 19.07.1972, Page 8
8. SÍÐA — ÞJ6ÐVILJ1NN Miðvikudagur. 1!). júii 1972
© EVA RAMM:
MANNFALL
OG
MEYJAVAL
Fyrir utan kjörbúðina við
torgið haföi verið komið upp eins
konar markaði með hamingju-
hjóli og brúðuhappdrætti og
hlutaveltu. t>ar var fólk einlægt á
ferli, og salan gekk ljómandi vel.
Kjörbuðin var splunkuný, og allir
i Totta voru hreyknir af henni,
ávaxlasöluborðið var með
bambusþaki yfir og blaktandi
kókospálmum, og kaffisalan var
innréttuð sem ósvikið svertingja-
þorp með strákolum og brosandi
negrastrákum, allt úr lit-
skrúðugum pappa. Við dyrnar
stóð sjálfur sölustjórinn, Amanda
Bekkerud úr norðurbæ, með
stifaðan hvitan kappa á höfði og
sýndi hikandi viðskiptavinum
hvar hægt væri að finna krydd-
vörur og lyftiduft. k>egar kjör-
búðin var opnuð i marz hafði
verið mikil hálið með fjöldasöng
og lúðrablæstri, ræðu forsetans
og úthlutun á góðgæti, svo sem
kexi með idýfu og öðru gómsætu.
Auk þess fengu viðskiptavinirnir
ókeypis happdrættismiða með
möguleika á vinningum, stórum
körfum fullum af girnilegum
varningi. Figandinn sjálfur,
Kjemperud, l'ékk skammvinnt
taugaáfall við tilhugsunina um öll
lánin.
Kétt fyrir lokun kom Merete
Kang, formaður félags hægri
kvenna í Totta, út úr kjörbúðinni
með netið fullt af vörum. Hún var
litil og dökkhærð með brún augu,
snyrtilega klædd og meö glóð i
augum sem stafaði af einlæri trú
hennar á frjálst verðlag, einka-
framtak, menningu og kristna
lifsskoðun. Hún stanzaði hjá sölu-
skálanum, horfði forvitnislega á
brúðurnar og alla hina vinning-
ana og tók sér stöðu i biðrööinni
sem ætlaði að freista gæfunnar á
hlutaveltunni. Við hliðina á henni
stóð Persrud snikkari með
N ú held ég að Jóhann
Hafstein sé að syngja sitt
siðasta. Látum nú vera þó að
hann dáist enn að landhelgis-
samningunum við Breta og V-
Þjóðverja frá 1961 og telji
jafnvel að Alþjóðadómstóllinn
sé rétti aðilinn til að skera úr i
þessu lifshagsmunamáli. En
að ryðjast fram á ritvöllinn,
eins og hann gerði um daginn,
og staðhæfa, ,,að samningur-
inn sé pólitiikur sigur fyrir
okkur islcndinga” rétt i sama
mund sem Bretar eru að til-
kynna okkur, að þeir muni
leggja fyrir þennan Alþjóða-
dómstól lögbannskröfu á út-
færsluna, á grundvelli þessa
sama samnings frá 1961, er of-
viða minum skilningi.
Ég veit ekki nema Jóhann
Hafstein ætti að skrifa fram-
vegis á ensku; islenzkir
lesendur hafa ekki áhuga.
budduna á lofti, magur, dökk-
hærður og lágur vexti, en kvik-
legur og vöðvastæltur.
Merete Bang kinkaði kolli vin-
samlega. Hún var þrautþjálfaður
hægriflokksmaður með mörg
stjórnmálanámskeið að baki,
meðal annars bréfanámskeiðið
„Hvernig á að sannfæra stjórn-
málaandstæðinga”, og ein af
meginreglum námskeiðsins var
að alltaf bæri að vera vingjarn-
legur og lipur við andstæðinga,
jafnvel harðsviraða sósialista.
Það væri aldrei að vita nema
maður stæði andspænis leitandi
sál, sem með vinsemd og alúð
gæti lært að finna sannleikann.
Hver vissi nema til að mynda
Persrud snikkari væri meðal
þessara villuráfandi, nauðstöddu
sálna?
Hún kinkaði kolli vingjarnlega
einu sinni enn.
— Daginn, Persrud! Til ágóða
fyrir hvað skyldi þetta vera?
Snikkarinn brosti, — hann var
með tvær gulltennur, aðra til
vinstri i efri gómi, hina til hægri i
neðri gómi, og trúlega hefur þetta
orðið til að gera bros hans eilitið
skælt, eins og hann hefði eitthvað
skuggalegt i hyggju.
—Ætli það sé ekki þessi
menningarsjóöur, sagði hann
kæruleysislega Merete Bang
mundi óljóst að hún hafði eitthvað
heyrt um menningarsjóð, en i
hvaða sambandi? Var það
lljartavernd? Giktarfélagið,
Krabbameinsfélagið? Hún brosti
hlýlega til Persruds:
— Auðvitað! Menningar-
sjóðurinn! Þá vcrð ég að kaupa
miða. Það er alltaf sjálfsagt að
styrkja gott málefni.
—Satt er það! sagði Persrud
innilega sammála. Mereta fann
sér til mikillar gleði, að nú var
jarðvegurinn reiðubúinn undir
sáningu: Hvernig er þaö,
Persrud, eruð þér ennþá
sósialisti?
Hún brosti glettnislega og
hnippti i hann.
Þér hafið eigið trésmiðaverk-
stæði og getið ekki verið þekktur
fyrir að vera sósialisti, ha? Þér
eruð atvinnurekandi. Viljiö þér
ekki koma á fundina okkar,
Persrud. nei. ekki fundi hægri
kvenna, ha-«ha, þótt þér væruð
auðvitað innilega velkominn
þangað lika! En komið á fund hjá
Hægri ílokknum og hlustið á það
sem við höfum fram að færa, og
ég er viss um að það yrði ekki i
siðasta sinn. Gerið það, Persrud!
Hún lagði höndina á arm hans
og brosti til hans heitum, brúnum
augum.
—Ég er verkamaður og á heima
i verkamannaflokknum, sagði
Persrud einbeittur og fitlaði við
seðlana.
Merete Bang leit i kringum sig,
en kom ekki auga á neinn
borgaralegan i biðröðinni. Þar
voru aðallega unglingar og börn
og fáeinir nemendur úr iðn-
skólanum. Hún lokaði augunum
andartak eins og hún hefði i
hyggju að kasta sér út i hyldýpi
og vildi ekki fá vatn i augun, og
siðan sagði hún lágri röddu:
—En vitið þér þá ekki, Persrud,
að Hægri flokkurinn er
næststærsti verkamannaflokkur
Noregs.
Þetta var leynivopnið á nám-
skeiðinu, kylfa sem aðeins átti að
beita gegn harðsviruðustu
sósialistum; setning sem átti
helzt ekki að berast að eyrum
hinna borgaralegu. Hún átti að
geta gert kraftaverk og opna
augun á ofstækisfullum and-
stæðingum. En Persrud skelli-hló.
—Já, þessi var góður! Ha->ha!
En nú er rööin komin að okkur á
hlutaveltunni, frú Bang! Gerið
svo vel, þér fyrstar!
Hann vék riddaralega til hliðar
til að láta hana komast að.Merete
Bang horfði i ofvæni niður i miða-
kassann; hún hafði aldrei komizt
yfir spenning bernskuáranna
þegar einhver vinningsvon var
annars vegar. Svo leit hún til
himna og lokaði augunum meðan
hún dró. Hún dró fjórum sinnum
og borgaði krónu. F'agnandi
komst hún að raun um, að hún
hafði fengið vinning á þrjú af
númerunum. Greiðu og tveim
sápuspilum rikari leit hún alsæl á
piltinn bakvið afgreiðsluborðið og
hélt vinningunum upp að brjósti
sér einS og það væri gullklumpar.
—Að hugsa sér hvað ég var
heppin. En gaman! Segðu mér, til
agoö'a fyrir hvaö er þessi hluta-
velta ?
—Menningarsjóð verkamanna,
sagði pilturinn alúðlega.
Brosið á Merete Bang bliknaði.
Ilún kyngdi og leit með viðbjóði á
greiðuna! siðan lagði hún bæði
hana og sápuspilin tvö á borðið
aftur. Persrud glotti meinfýsinn
og það glóði á gulltennurnar tvær
i sólskininu Merete Bang leit á
hann særð á svip.
- Þér vissuð þetta, Persrud!
Það var illa gert af yður að vara
mig ekki við.
—Vara yður við, sagði Persrud
og þurrkaði af sér brosið með
handarbakinu, — ég færi liklega
ekki að vara yður við að styrkja
gott málefni. En það var reglu-
lega gaman að sjá eina af
stjórnarkonum Hægri kvenna
leggja málefnum verkamanna
lið.
Það var ýmislegt sem hægt
hefði verið á ásaka Merete Bang
fyrir án þess að hún tæki það illa
upp, til að mynda bilaþjóínað
ellegar tilraun til ráns og inn-
brota. En að heyra það sagt upp i
opið geðið á sér að hún styddi
Verkamannaflokkinn.það var
eins og hnifSstunga i hjartastað.
Merete elskaði Hægri flokkinn, i
augum hennar var boðskapur
hans jafngildur guðspjöllunum,
og forsvarsmenn Hægri flokksins
ávöxtuðu hinn eilifa sannleika.
Stöku sinnum fór hún til höfuð-
borgarinnar til að hafa samband
við miðstjórnina að einhverju til-
efni; þá gekk hún um höfuð-
stöðvar Hægri flokksins, og henni
leið sem i dómkirkju, langir
gangarnir og háir stigarnir fylltu
hana andakt, hún fann að undir
þessu þaki störfuðu hugur og
hönd að einu, sönnu takmarki:
réttlæti og velferð allra.
Þess vegna þótti henni svo
biturt að hafa stutt Verkamanna-
flokkinn þótt óvart væri. Með titr-
andi varir þreif hún til sin veskið
og innkaupanetið og stikaði leiðar
sinnar án þess að mæla orð, i
alltof miklu uppnámi til að minn-
ast fyrstu meginreglu nám-
skeiðsins: Sýndu andstæðingi
þinum ævinlega vinsemd og
lipurð.
Hún var nú einu sinni bara
manneskja.
Persrud horfði brosandi á eftir
henni og sneri sér siðan að pilt-
inum við afgreiðsluborðið.
—Láttu mig hafa miða fyrir
tikall; þetta var gulls igildi!
—Ég skil ekki af hverju hún
varð svona vond, sagði strákur. —
Það stendur hérna skýrum
stöfum — hann benti uppundir
loft, þar sem grilla mátti i ör-
smáa bókstafi — hvert
hagnaðurinn gangi!
MIÐVIKUDAGUR
19. júlí
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.) 9.00
og 10.00). Morgunbæn kl.
7.45. Morgunleikfimi kl.
7.50. Morgunstund
barnanna kl. 8.45: Sigriður
Eyþórsdóttir les söguna
,,Kári litli og Lappi” eftir
Stefán Júliusson (3).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli liða. Kirkjutónlist
cftir Bach kl. 10.25. Hans
Vollenweider leikur á orgel
Tokkötu, adagio og fúgu i C-
dúr / Elly Ameling, Helen
Watts, Werner Krenn, Tom
Krause, Pro Arte kórinn i
Lausanne og Suisse
Romande hljómsveitin
flytja Kanötu nr. 130.Ernst
Ansermet stj. Fréttir kl.
11.00. Hljómsveitin Fil-
harmónia leikur Sinfóniu
nr. 34 i C-dúr eftir Mozart.
Otto Klemperer stjórnar /
Kgl. filharmóniuhljóm-
sveitin leikur verk eftir
Tsjaikovsky, Schubert,
Haydn,Bizet og Berlioz, Sir
Thomas Beechman
stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna. Tónleikar
14.30 S f ð d e g i s s a g a n :
„Eyrarvatns-Anna” eftir
Sigurð Hclgason. Ingólfur
Kristjánsson les (19).
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
15.15 islenzk tónlist.a. Stef og
tilbrigði fyrir kammer-
hljómsveit eftir Herbert H.
Agústsson. Sinfóniuhljóm-
sveit Islands leikur, Alfred
Walker stjórnar. b. „Helga
hin fagra", lagaflokkur eftir
Jón Laxdal. Þuriður
Pálsdóttir syngur við undir-
leik Guðrúnar Kristins-
dóttur. c. Sónata fyrir
troinpet og pianó eftir Karl
O. Runólfsson. Björn
Guðjónsson og Gisli
Magnússon leika. d. Lög
eftir ýmsa höfunda.
Guðmundur Jónsson syngur
við undirleik ölafs Vignis
Albertssonar.
16.15 Veðurfregnir.
Almemningsbókasöfn og ævi-
langt nám.Stefán Júliusson
bókafulltrúi rikisins flytur
erindi.
16.40 Lög leikin á munnhörpu.
17.00 Fréttir. Tónleikar.
17.30 Nýþýttefni: „Heimför til
stjarnanna” eftir Erich von
DUniken. Loftur Guð-
mundsson rithöfundur les
bókarkafla i eigin þýðingu
(1).
18.00 Fréttir á ensku.
18.10. Tónleikar.
Tiikynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Daglegt mál. Páll
Bjarnason menntaskóla-
kennari flytur þáttinn.
19.35 Alitamál.Stefán Jónsson
stjórnar umræðuþætti.
20.00 Strengjakvartett i Es-
dúr op. 125 eftir Schubert.
Filharmóniukórinn i Vin
leikur.
20.20 Sumarvaka.a. „Fjöllum
krynda Fróðárbyggö". Séra
Ágúst Sigurðsson flytur
þriðja frásöguþátt sinn
undan Jökli. b. Ljóðalestur.
Lárus Salómonsson flytur
frumort kvæði. c. Sögur og
sagnir úr Vestmannaeyjum.
Margrét Jónsdóttir les tvær
sagnir skráðar af Jóhanni
Gunnari Ólafss. d. Kór-
söngur. Karlakór Reykja-
vikur og Sinfóniuhljómsveit
Islands flytja tvö sjómanna-
lög eftir Sigfús Halldórsson,
Páll P. Pálsson stjórnar.
21.30 útvarpssagan:
„Hamingjudagar” eftir
Björn J. Blöndal; höfundur
les sögulok (11)
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Framhaldsleikritið „Nóttin
langa” eftir Alistair
McLean. Endurflutningur
annars þáttar. Leikstjóri
Jónas Jónasson.
23.00 Létt músik á siðkvöldi.
Hermann Prey syngur lög
frá Vin með kór og hljóm-
sveit óperunnar i Miinchen.
23.23. Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárkok.
brandarar
og skáldskapur
ASTIR SAMLYNDRA HJÓNA
Eiginkona ein sagði manni sin-
um frá þvi með öfund nokkurri,
að maður vinkonu sinnar hefði
gert til hennar fimm ferðir á einni
nóttu. Eiginmaðurinn getur ekki
á heilum sér tekið yfir þessum
fréttum. Hann tekur sig til og
endurtekur þetta afrek grannans.
Siðan vaknar hann snemma
morguns heldur dasaður. En
hann kemur seint i vinnuna og er
svo óheppinn að rekast beint i
flasið á yfirmanni sinum.
— Það er ekki það versta að þú
skulir koma svona seint, segir
hann. En hvar varstu i gær og i
fyrradag?
VONT FAG
Eltirðu hamingjuna, fer hún
burt og enginn veit i raun og veru
hvurt. Kannski kemur hún þó
einn dag. Lif þins sjálfs kannski
verst er fag,
sem þú hefur lært
og til reynslu fært,
en
DRAGALÖG
I efnisheimi rikja einföld lög, i
efnisheimi rikja einföld lög,
peningar og rökhyggjuleg drög.
I margviddamóð
flyt ég þennan óð.
Hann er fyrir þig,
ef þú skilur mig.
Þorsteinn Eggertsson (Faxi).
DANSKT FRJALSLYNDI
Tvær konur — mega vera hjón
— vantar til ræstinga i nýju skrif-
stofuhúsnæði i miðbænum.
Auglýsing i Politiken.
KANNSKI FYRIR ERFINGJ-
ANA
Hjarta hennar hætti allt i einu
að slá. Gat þetta boðað góðar
fréttir?
Afþreyingarmánaðarrit.
BANDAIUSKT SPAKMÆLI
Hjónaband er eini bisnessinn,
sem greiðir öðrum aðilanum pen-
inga eftir gjaldþrotið.
VEGURINN ER BETRI EN
VEITINGAHÚSIÐ, SAGÐI DON
QUIJOTE
A leiðinni heim eftir heimsókn i
veitingahús fór hann á mikilli
ferð fram úr bifreið, sem ók á
undan, en hefði hann vitað, að i
bilnum voru lögreglumenn, þá
hefði hann ekki gert þetta.
Flcnsborg Avis.
HÁRGREIÐSLAN
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugav. 18 III. hæð (lyfta)
Simi 24-6-16 '
Perma
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21 Simi 33-9-68.
YFIRDEKKJUM
HNAPPA
SAMDÆGURS
SELJUM SNIÐNAR SIÐBUX-
UR OG ÝMSAN ANNAN
SNIÐINN FATNAÐ.
BJARGARBÚÐ H.F.
Ingólfsstr. 6 Simi 25760.
Smurt brauð
Snittur
Brauðbær
Sími 20-4-90