Þjóðviljinn - 19.07.1972, Side 9

Þjóðviljinn - 19.07.1972, Side 9
Miðvikudagur. 19. júli 1972 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9. Breiðablik — Vikingur 1:0 Einhvern veginn fer allt í handaskolum Svo virðist sem Vikingum sé algjöriega meinað að geta skorað mark, hvaða tækifæri sem þeir fá upp í hendurnar. i leik þeirra við Breiða- blik s.l. mánudagskvöld áttu þeir nokkur tækifæri, en að knötturinn vildi í mark, það var af og frá. Ekki vantarþá knatttækni, og leikur þeirra er oft á tíð- um góður, en að skora mörk er sá hlutur knatt- spyrnunnar, sem þeir kunna alls ekki. Fer nú að syrta í álinn fyrir þá, ef fleiri leikir ganga þeim úr greipum án þess að sigur náist. Upp- byggingar þeirra i sókn gefa ætíð von um mark, en einhvern veginn fer allt í handaskolum, þegar reka skal endahnútinn á. Von- andi ferþetta að lagast, því að eftir þennan leik hafði ég á tilfinningunni, að Vik- ingurhefði átt annað stigið skilið. Með þessum orðum minum ætla ég mér ekki að lasta Breiða- bliksliðið, en nokkrum sinnum voru þeir heppnir að fá ekki á sig mörk. Breiðabliksmenn leika fasta og oft á tiðum grófa knattspyrnu, en það er ekki hægt annað en að fyr- irgefa þeim það, baráttuviljinn er það mikill hjá liðinu. Þeir leika eftir reglunni, að leikur er aldrei tapaður fyrr en búið er að flauta hann af. Og þó svo að liðið leggist i vörn, á það alltaf hættulegar sóknarlotur. Sérstaklega skapa þeir hættu við mark andstæðinganna, þegar þeir taka hornspyrnur. Hinir há- vöxnu leikmenn liðsins eru ógnun við hvaða vörn sem er, með hin- um hættulegu skallaboltum sin- um. Leikurinn s.l. mánudag var skemmtilegur á köflum, og stundum skapaðist spenna. t fyrri hálfleik voru Vikingar öllu ákveðnari og sóttu meira, án þess þó að uppskera árangur erfiðis sins. 1 seinni hálfleik fór smám saman að draga af þeim, og undir lokin var vonleysisblær kominn yfir liðið. Breiðabliksmenn voru harðir i horn að taka og virtust likamlega sterkari en Vikingarnir. Vörn þeirra með markvörðinn sem bezta mann tókst ætið að trufla sóknarmenn Vikinga og gaf þeim aldrei neitt ráðrúm til þess að undirbúa skot sin. A 4. min. mistókst Þór Hreið- arssyni að skora þegar hann fékk knöttinn einn fyrir opnu marki Vikings. Minútu siðar eiga Vikingar skot framhjá. Á 15. min. eru Vikingar i sókn og reyna markskot, en markvörð- ur Breiðabliks er ekki i vandræð- um með að verja það. Á 16. min. gefur Guðgeir Leifs- son góðan bolta fyrir markið. Páll Björgvinsson nær knettinum og kemst einn innfyrir, en skot hans fer langt yfir. Þar fór gott tæki- færi forgörðum. Á 17. min. er sótt að marki Breiðabliks. Til þess að missa ekki Eirik Þorsteinsson frá sér greip Ólafur Firðriksson, Breiða- bliki, i hann og hélt honum. Atti þessi atburður sér stað inni i miðjum vitateig Breiðabliks. Dómari leiksins Hannes Sigurðs- son sá ekkert athugavert við þetta, og lét leikinn halda áfram. Framhald á bls. 11. Vikingar berjast við mark andstæðingsins, en knötturinn vill ekki f netið. (Ljósm. Bjarnleifur). Mynd 1: Mangsýnir hvernig á að stökkva jafnfætis upp i körfu- boltahring. Mynd :t: Hér er Mang i við- bragðsstöðu fyrir spretthlaup. Ilefur hann hlaupið 100 m. á 12 sek. og 50 m. á 8,9 sek. i æfinga- fötum eins og myndin sýnir. Mynd 2: i langstökki án atrennu hefur Mang stokkið rúnia 2.90 m. Mynd 4: Án atrennu varpar hann kúlunni 14,50m, og fylgir það sögunni, að þau skipti sem hann hcfur snert á henni séu tcljandi á fingrum sér. „EEWÍGI ÁRATUGSINS” Hér á islandi fer nú fram hið svokallaða „ein- vigi aldarinnar" í skák. Fleiri gætu eflaust tekið sér ja fnstór orð í munn, að minnsta kosti eru Þjóð- verjar byrjaðir á þvi að auglýsa sem „einvigi ára- tugsins", þann atburð, er V-Þ jóðverjinn Rudolf Mang og Rússinn Wassilji Alexejew mætast i ly ftingakeppni Olympíu- leikanna. Vitaskuld halda Þjóðverjarn- ir nafni landa sins mjög á lofti, og til þess að lesendur geti gert sér grein fyrir þvi, hve alhliða iþróttamenn lyftingamenn eru, birtum við nokkrar myndir af Mang i hinum ýmsu iþrótta- greinum. Rudolf Mang. Aldur: Hæð: Þyngd: Ummál háls: Herðabreidd: Brjóstummál: Mitti: Læri: Kálfi: Fótastærð: 21 árs. 180 cm. 130.5 kg. 48.5 cm. 65 cm. 131 cm. 105 cm. 86 cm. 45 cm. 45 cm. Bezti árangur i þriþraut: Pressa: 230,5 kg. Snörun: 175kg. Jafnhöttun: 227,5 kg. Samanlagt: 625 kg. Wassilij Alexejew. Áldur: 30ára. Hæð: 186 cm. Þyngd: 147,5 kg. Ummálháls: 54 cm. • Herðabreidd: 60 cm. Brjóstummál: 136 cm. Mitti: 120 cm. Læri: 80 cm. Kálfi: 50 cm. Fótastærð: 44 cm. Pressa: Snörun: Jafnhöttun: Samanlagt: 236.5 kg. 180 kg. 237.5 kg. 645 kg. Hér er átt við, að þyngdunum er lyft i þriþrautarkeppni, og ná þeir kannski ekki sinu bezta nema i einni lyftu, svo i næstu keppni ná þeir beztu lyftu i annarri grein. Vitaskuld eru Þjóðverjar hrifnir af hinum unga frábæra iþróttamanni Mang og gera veg hans mikinn i iþróttablöðum, enda maðurinn þess virði að eftir honum sé tekið. Mang hefur átt i deilum við þýzka iþróttaforystu, og þá aðallega vegna fjárstyrks, sem hann telur sig eiga rétt á, vegna hins gifurlega fæðiskostnaðar sins. Nú er allt i blóma milli hans og forystunnar út af þeim málum, og vona Þjóðverjar, að Mang takist að sigra Alexejew i Miinchen; honum hafði nærri tekizt það á Evrópumeistara- mótinu i Constanca nú i vetur. Wassily Alcxejew núverandi heimsmethafi i yfir- þungavigt

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.